Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGÚR 27. MARZ 1979 15 — Friðarsamningurinn í Washington — Friðarsamningurinn í Washington — Friðarsamningurinn í Washington Friðarhlutverk Carters forseta AÐDRAGANDANN að friðarsamningunum sem var undirritaður í Hvíta húsinu í gær má rekja til Yom Kippur stríðsins 1973 er lauk raunverulega með þrátefli. Það var þá sem Egyptar gerðu sér grein fyrir því að Ísraelsríki yrði til frambúðar og það var þá sem ísraelsmenn komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri eins mikill hægðarleikur að bera sigurorð af Aröbum og í sex daga stríðinu 1967. Þrátt fyrir þetta virtist óhugs- andi að samkomulag gæti tekizt. Fjandskapur Araba og Gyðinga, sem nær aftur til stofnunar Israels- ríkis 1948, virtist alltof magnaður til þess að Bandaríkjamenn gætu nokkru komið til leiðar nema tak- mörkuðu samkomulagi. í áföngum Um þetta er gott dæmi: Árið 1975 var Henry Kissinger þá verandi utanríkisráðherra í förum milli ísraels og Sýrlands í iheira en mánuð. Það eina sem hann hafði upp úr krafsinu var að Israelsmenn féllust á takmarkaðan brottflutning í Golanhæðum. Þetta var talinn diplómatískur sigur. Þannig þreifaði Kissinger sig áfram og kom til leiðar tveimur takmörkuðum brottflutningum Israelsmanna frá Sinai og öðrum frá Golanhæðum 1974 og 1975. Það féll í hlut Jimmy Carters að reyna að koma til leiðar heildar- samkomulagi. Hann á enn eftir nokkra leið ófarna að því marki. Ekkert annað Arabaríki er reiðubúið að koma til liðs við Anwar Sadat forseta og semja frið við ísrael. Þau hafa raunar einangrað Sadat og valdið óvissu um hvort samningurinn beri tilætlaðan árangur til langframa. Ekki er mjög langt um liðið síðan Sadat lýsti því yfir að slíkur samn- ingur væri óhugsandi um hans daga. Ein af ástæðunum til þess að samningurinn komist í höfn var sú að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa samningsaðilum að hætta samningaumleitunum. En ástæð- urnar voru fleiri. Ein mikilvægasta ástæðan var sú að Sadat gerði sér grein fyrir að bezta von hans um að ná aftur landi af Israelsmönnum var samnings- leiðin, ekki hernaður. Gullid tækifæri ísraelsmenn komust að raun um fyrir sitt leyti að umleitanir Sadats veittu þeim gullið tækifæri til þess að fjarlægja Egypta úr röðum mótherja sinna í staðinn fyrir Sinai. Grundvallarhugsunin á bak við samninginn er þó ekki ný. í ályktunartillögu sem Öryggisráð SÞ samþykkti eftir stríðið 1967 og ítrekuð var eftir átökin 1973 segir að friður verði að grundvallast á því að ísraelsmenn láti af hendi her- tekin landsvæði í staðinn fyrir frið. Stríðinu 1967 lauk með algerum ósigri Araba. En stríðinu 1973 lauk næstum því með jafntefli, og vera má að Kissinger hafi stuðlað að því með tímasetningu vopnasendinga Bandaríkjamanna og vopnahlésvið- ræðna. Kissinger taldi að yfirburða- sigur ísraelsmanna kæmi svo miklu óorði á Sadat að verið gæti að hann yrði ekki nógu áhrifamikill til þess að geta samið um lausn. Egyptar höfðu slitið stjórnmála- sambandi við Bandaríkjamenn í stríðinu 1967, en þegar stríðinu 1973 lauk var sambandið bætt. Egyptar höfðu jafnframt slitið mestöllu sambandi sínu við Rússa og stefna Bandaríkjastjórnar miðaðist við það að taka við hlutverki Rússa meðal „hófsamra" ríkja Araba- heimsins. Þrýstingur Bandaríkjamenn beittu líka lítt dulbúnum þrýstingi. Carter lýsti yfir stuðningi við hugmyndina um. „heimaland Palestínumanna" 1977 — þótt ísraelsmönnum fyndist það grun- samlega líkt Palestínuríki. I febrúar 1978 heimilaði forsetinn vopnasendingar til Egyptalands og Saudi-Arabíu til að viðhalda hernaðarjafnvægi. Carter hyllti Sadat sem „fremsta friðarsemjanda heimsins". Á sama tíma bjuggu Bandaríkja- menn í haginn fyrir samkomulag með því að lofa ísraelsmönnum herþotuflota og birgðum annarra hergagna sem voru ófáanleg annars staðar. Áhrifamikil heimsókn Sadats til Jerúsalem í nóvember 1977 jafngilti óopinberri en mikilvægri sálrænni viðurkenningu á lögmæti ísraels- ríkis og framlag hans aflaði honum mikilvægs velvilja um allan heim þar sem litið var á hann sem einlægan forgöngumann friðar. Menachem Begin, forsætis- ráðherra ísraels, svaraði fljótt með tilboði þar sem Egyptar voru full- vissaðir um að þeim yrði skilað Sinai. En dirfskufullar ráðstafanir Sadats og Begins hurfu fljótlega í skugga þjarks um samningsskil- mála. Báðir aðilar leituðu óhjákvæmilega til Washington í von um málamiðlun og hjálp. Hristu höfudid Carter tók þá áhættu sem varð til þess að reyndir diplómatar hristu höfuðið og bauð Begin og Sadat til fundarins í Camp David í septem- ber í fyrra, bersýnilega án þess að hafa handbæra nákvæma samningsformúlu og án þess að geta verið viss um árangur. Ramma- samkomulag um friðarsamning og samningaviðræður í framtíðinni um Palestínumálið tókst eftir 13 daga erfiðar samningaviðræður. Sadat og Begin voru sæmdir friðarverðlaunum Nóbels, en sigur- víman gufaði fljótt upp þegar aftur kom upp misklíð milli samnings- aðila. Cyrus Vance utanríkisráðherra fór að dæmi Kissingers og tók sér ferð á hendur ti Miðausturlanda en án þess að hann gæti fundið lausn. Það kom í hlut Carters að stíga síðasta skrefið með því að fara sjálfur í friðarferð, aftur án þess að hann gæti verið öruggur um árangur. Hann studdi Eygpta í flestum helztu kröfum þeirra, lýsti meðal annars yfir fylgi við kröfu þeirra um að samningurinn yrði tengdur framtíð Palestínumanna — en þó tókst honum að fá Sadat til að slaka svo mikið til að samkomulag tækist í grundvallaratriðum. Begin óskað til hamingju með samþykki ísraelska þingsins. Knesset, við friðarsamninginn. Egyptar fá aftur Sinai og olíuna Kairó, Washington, 26. mars. AP. LANDSVÆÐIÐ á Sinai, sem ísraelay afhenda nú Egyptum er um 1420 þús. ferkílómetrar að stærð. Á því eru eins og alkunna er miklar olíulindir, ísraelsk frumbyggjaþorp, herstöðvar og eftirlits- stöðvar — en þar eru líka stór eyðimerkurflæmi, þar sem Bedúinar einir hafast við og munu um 50 þúsund Bedúínar vera á sveimi á þessu svæði með geitur sínar og úlfalda. Herbækistöðvar ísraela þarna voru reistar í snatri eftir júnístyrjöldina árið 1967. Þarna hafa verið gerðir flugvellir og flugvélaskýli, varðturnar og ýms- ar aðrar byggingar. Samkvæmt samningi ríkjanna eiga Egyptar aðeins að nota þessi yfirgefnu flugsvæði í farþega- flutningi, en ekki myndi taka nema örskamman tíma að breyta þeim á ný í sitt upphaflega horf. Bandaríkjamenn hafa viður- kennt þá kröfu ísraela að gaum- gæfilegt eftirlit verði með því að Egyptar brjóti ekki ákvæði samningsins í Sinaí og munu Bandaríkjamenn halda áfram U-2 könnunarferðum sínum yfir þessu svæði og ganga þá úr skugga um hvort þar verði allt með felldu. Þessi könnunarflug hófust árið 1974 þegar aðskilnað- ur herja stríðsaðila hófst eftir Yom Kippurstríðið. Samtals er þarna um að ræða þrjá flugvelli, Eitam, Etzion og Refidim, fimm styttri flugbrautir og ein viðvörunarstöð með mjög fullkomnum rafeindaútbúnaði. Bandaríkjamenn hafa heitið að leggja fram 3,5 milljarða dollara til að aðstoða Israela við að byggja flugvelli í Negev-eyði- mörkinni, Uvdadagum og Matre- hæðum í staðinn. Brottflutningi ísraela á að vera lokið innan níu mánaða. Við Eilat í suðri verða ísraelar að afsala sér svæðum sem hafa töluverða þýðingu frá hernaðar- legu og ferðamannalegu sjónar- miði. Kóralrif þar eru sögð meðal hinna fegurstu í heimi og laða að marga gesti. Aðalbyggðin í Sinaí er í E1 Arish og má heita að það sé eini verulegi þéttbýliskjarninn á skaganum. Á norðurhluta Sinaí er töluverður gróður, þar er ágætis vatn og þar er h’afin ræktun fyrir frumkvæði Israela, en þaðan hverfa þeir nú einnig. Á sama svæði eru nokkur vatna- svæði þar sem fiskur er mikill. pólitískan stuðning ef samningurinn er brotinn. Sp .: Voru nokkrir leynisamningar gerðir? Sv.: Bandaríkjastjórn segir að svo sé ekki = Gagnstætt samkomulaginu við ísrael 1975 verður þessi samning- ur birtur þegar hann er fullgerður. Sp.: Hvað mun „pakkinn" kosta Bandaríkin mikið fé? Sv.: Engin ákveðin tala liggur fyrir. ísraelar fá 2,2 milljarða doll- ara í lánum og 800 milljóna dollara í framlögum til að standa straum af kostnaði við brottflutning sinn frá Sinai. Bandaríkin krefja yfirleitt ekki ísrael um greiðslu á öllum lánum. Egyptar kunna að fá 1,5 milljarða dollara til 2 milljarða dollara í hernaðaraðstoð en enn hefur ekki verið ákveðið hvernig það verður látið skiptast í framlög og lán. Þar að auki fá Egyptar líklega efnahags- aðstoð, kannski með stuðningi frá Vestur-Evrópu og Japan, og kostnað- urinn hefur ekki verið metinn. Sp.: Hvers vegna tók það svona langan tíma eftir Camp David að ná samkomulagi um þennan samning? Sv.: Aðalástæðan var sú ósk Egypta að samningurinn væri bund- inn því skilyrði að viðunandi lausn fengist í viðræðunum um sjálfstjórn Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. ísraelsmenn streittust á móti og Carter forseti varð að fara til landanna til að fá þau til þess að fallast á málamiðlun. Sp.: Hefur krafa um tengsl þarna á milli haft áhrif í Arabaheiminum? Sp.: Ef hún hefur haft áhrif, þá hafa Arabaþjóðir ekki sagt það opinberlega. Þær hafa gagnrýnt afstöðu Egypta allt frá því fundur- inn í Camp David var haldinn. Þær segja í aðalatriðum að Egyptar hafi gert „sérsamning" og svikið málstað Araba. Sú hernaðarlega hætta sem ísrael stafaði frá fjölmennustu þjóð Araba hefur verið fjarlægð án þess að Egyptar hafi fengið í þess stað tryggingu fyrir því að Arabar fái aftur vesturbakkann, Gaza-svæðið eða Austur-Jerúsalem og án þess að loforð hafi fengizt fyrir því að Palestínumenn fái að stofna ríki. Einn áhrifamesti leiðtogi Araba, Hussein Jórdaníukonungur, er talinn eiga að koma að vissu marki fram fyrir hönd Palestínumanna i sjálf- stjórnarviðræðunum. Hann hefur neitað að fallast á það og sagt að hann sé viss um að Camp David-samkomulagið muni ekki bera árangur. Önnur Arabaríki, undir forystu íraks og Sýrlands, vilja að haldinn verði fundur æðstu manna Araba- ríkjanna til þess að taka til athugun- ar að gripið skuli til efnahagslegra refsiaðgerða gegn Egyptum fyrir að undirrita samninginn. Bandaríkjastjórn hefur sagt þess- um Aröbum að útiloka enga valkosti = Hún segir að Camp David-sam- komulagið sé eini raunhæfi valkost- urinn sé lengra horft fram á við þótt ekki sé hægt að ábyrgjast það. Sp.: Hvað gerist næst? Sv.: Innan eins mánaðar er gert ráð fyrir því að Eguptar og ísraels- menn hefji samningaviðræður um kosningu Palestínuráðs á vestur- bakkanum og Gaza og völd þess. Þeir hafa heitið því að ljúka þessum viðræðum innan árs. Camp David-samkomulagið gerir ráð fyrir því að ráðið hafi yfirstjórn 'tveggja umræddra svæða og að ísraelskt herlið hörfi til tiltekinna svæða. Eftir fimm ár er þess vænzt að viðkomandi aðilar samþykki endan- lega stöðu landsvæðanna. Jafnframt er ætlast til að ísraels- menn hefji þriggja ára brottflutning frá Sinai. Á vissum tímum á þessu tímabili mun verða skipzt á sendi- herrum og efnahagsleg samskipti og menningarsamskipti tekin upp. Sp.: Mun áætlunin bera árangur: Sv.: Bandarískir embættismenn segjast ekki vita það. Samninga- mennirnir verða að leysa mál sem enginn héfur getað leyst í þessum heimshluta í 30 ár. Fá til dæmis Arabar í Austur-Jerúsalem rétt til að kjósa um sjálfstjórnaráætlunina? Ef þeir fá það felur það þá í sér að Austur-Jerúsalem sé hluti af vestur- bakkanum? ísraelsmenn halda því ákveðið fram að borgarhlutinn sé ísraelskt land og honum verði aldrei hægt að skila. Og hvað verður um byggðir ísra- elsmanna á herteknum svæðum? Hvað um vatnsréttindi? Hvað um land sem Arabar telja að ísraels- menn hafi tekið ólöglega frá þeim 1967? Hvað gerist ef Frelsissamtök Palestínu ákveða að hundsa kosning- arnar? Hvað gerist ef þau krefjast þess að taka þátt í þeim og Israels- menn neita? Sp.: Hvað gerist ef allt fer út um þúfur? Sv.: Því er enn til að svara að það veit enginn. Ýmsir hafa gefið í skyn að það sé mjög ólíklegt að samninga- mennirnir nái samkomulagi innan árs. Ef þeir gera það ekki kemst öll friðarþróunin í hættu, þar á meðal samningurinn. Þegar þar að kemur munu Egypt- ar samkvæmt viðaukunum hafa náð aftur á sitt vaíd um það bil tveimur þriðju hlutum Sinai, þar á meðal olíusvæðunum. Og hvor ríkisstjórn um sig yrði að vega og meta valkosti sína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.