Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 17

Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 17 íslensku mannfræði- stofnuninni berast gjafir Alexander von Humboldt-stofn- unin í Sambandslýðveldinu Þýzka- landi hefur gefið Mannfræðistofn- un Háskóla Islands borðtölvu og jaðartæki til úrvinnslu gagna. Eru þessi tæki af gerðinni Hewl- ett-Packard 9825A og 9869A. Mun notkun þeirra auðvelda mjög úr- vinnslu Mannfræðistofnunar Há- skóla íslands, sem þegar hefur yfir margs konar mannfræðilegum efniviði að ráða varðandi 26 þús- und íslendinga og þúsundir út- lendinga. Sendiráðunautur þýzka sendi- ráðsins á íslandi, hr. Karlheinz Alexander von Humboldt Krug, afhenti formlega umrædd tæki fyrir hönd Humboldt-stofn- unarinnar 20. janúar s.l. við mót- töku í Mannfræðistofnun Háskól- ans. Forstöðumaður hennar, dr. Jens Pálsson, þakkaði gjafirnar og minntist jafnframt fyrri stuðnings Humboldt-stofnunarinnar við Mannfræðistofnunina. Viðstaddir voru auk ofannefndra: Stefán Sörensson, háskólaritari, í forföll- um rektors, Jóhann Axelsson, prófessor, formaður stjórnar Mannfræðistofnunarinnar og fleiri gestir. Alexander von Humboldt-stofn- unin er kennd við hinn fjölhæfa, heimsþekkta þýzka vísindamann, sem á 19. öld lagði grundvöll að ýmsum vísindagreinum nútímans. Stofnunin styrkir vísindamenn um víða veröld. Fyrst velja 86 þýzkir háskólamenn og vísindasér- fræðingar menn eftir vísindaleg- um verðleikum, en síðan stjórn stofnunarinnar styrkþega úr þeim hópi. Er valið óháð ríkisvaldi og stjórnmálum landa, þjóðerni og kynþætti. Hefur Humboldt-stofn- unin haft sérstaklega mikil og heillavænleg áhrif í vísindaheim- inum eftir síðari heimsstyrjöld undir forsæti nóbelsverðlaunahaf- anna Werner von Heizenberg, prófessors, og núverandi forseta stofnunarinnar, Feodor Lynen, prófessors, ásamt aðalritara henn- ar dr. Heinrich Pfeiffer. Verður þessum mönnum seint fullþakkað það mikla starf, sem þeir og samstarfsmenn þeirra hafa lagt fram til styrktar vísindum og jafnframt alþjpðlegum menning- artengslum. Hafa þeir auk annars gert sér far um að fylgjast með vísindalegri baráttu fyrrverandi styrkþega og Humboldt-stofnunin hefur boðið sumum þeirra aftur til Þýzkalands til endurhæfingar og kynningar og styrkt stofnanir er þeir vinna við í heimalöndum sínum. Ofannefndur forstöðumaður Mannfræðistofnunar Háskóla ís- lands var t.d. styrkþegi Humboldt-stofnunarinnar 1962—1965 og var einnig í boði hennar í Þýzkalandi árið 1976 að kynna sér starfsemi helztu mann- fræðistofnana þar. Ennfremur styrkti Humboldt-stofnunin á sín- um tíma Mannfræðistofnun ís- lenzka mannfræðifélagsins með tækjagjöf og bókagjöfum og síðar, eða árið 1977, Mannfræðistofnun Háskóla Islands, einnig með veg- legum bókagjöfum. Alexander von Humboldt-stofn- unin hefur þannig átt stóran þátt í því að efla mannfræðirannsóknir á Islendingum. Aðsetur Humboltdt-stof nunarinn- ar í Bonn-Bad Godesberg. ALLCGRO Enginn bíll jafnast á við framhjóladrifinn Austin Allegro, ef miðað er við verðflokk — og jafnvel þótt litið sé á enn hærri verðflokka. Lítið á allan útbúnaðinn — og dæmið sjálf. Vélin:Fjögurrastrokka70HÖSAE. Hitastýró vifta, sem ásjálfvirkan hátt stjórnarhitastigi vélarinnar. Vinnsluhitastig næst mun fyrr, Þetta dregur úr vélarsliti og minnkar bensínnotkun. Geymslurými: Geymslurýmið er stórt teppalagt og vel lýst, þar á allur farangur fjölskyld- unnar að komast fyrir. Stærðin er 265 Iftrar. — Sportlegt útlit: Allegro hefur verið reyndur í sérstökum vind- göngum og loftmótstaðan er lítil. Hér eru nokkur atriði, sem eru aukakostnaður í öðrum bíl- um, en innifalinn f Allegro: Metallic lakk, vfnylþak, litað gler f alla glugga, gúmmflistar á hliðarnar, svartir hliðarspeglar og sport-hjólkoppar. Og svo er auðvitað búnaður eins og bakk- Ijós, upphituö afturrúða, vindlakveikjari, o.m.fl. Fjöðrun og hjólaupphengjur Framhjóladrif og Hydragas- fjöðrun. Fjöðrunarbúnaðurinn þarf sáralftið viöhald. Engir höggdeyfar, sem þarf að skipta um. Hjólin á hvorri hlið eru að hluta tengd saman, en sú tækni eykuröryggi og þægindi. Tvö- falt hemlakerfi veitir öryggi — aflhemlar með diskahemlun að framan. Yfirbyggingin: Rúmgóð fyrir fimm farþega. Ofið sætaáklæði, stillanlegt bak á framsætum. Vönduð innrétting og mælaborö. Teppiágólfi. Stjórntæki: f Allegro er tann- stangarstýri, sem tryggirörugg- ari stjórn bílsins og næmari til- finningu fyrir veginum. Án þess að taka hendur af stýri er hægt aó ná til Ijósarofa, rofa fyrir rúðuþurrkur, rúóusprauturog stefnuljós. P. STEFANSSON HF. SÍÐUMÚLA 33 - SÍMI83104 - 83105 |Kodak ektra22ef myndavélin MEÐ INNIBYGGÐU EILIFÐARFLASSI Þessi nýtízkulega hannaða myndavél með handfanginu er með innibyggðu eilífðarflassi, þannig að þú stillir á flassmerkið og styður svo á takkann og tekur allar þær myndir sem þig langar til. Handfangið gerir vélina stöóugri og hjálpar þér til að taka skarpari myndir. HF GLÆSIBÆ AUSTURVERI S: 82590 S: 36161 PETERSEN HANS BANKASTRÆTI S: 20313 Verð með 2 rafhlöðum og einni fílmu: Kr. 24.700.00 Umboðsmenn um land allt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.