Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
25
•Kalli Jó hefur lætt knettinum inn á línuna til Hilmars Sigurgíslasonar. Valgarð rígheldur hins vegar í
Ililmar sem fyrir vikið, nær ekki knettinum. Ljósm: Emiif*
HK að bjarga
sér úr fallhættu
Gamla góða reynslan er nú sem
óðast að bætast í hóp þeirra kosta
sem lið HK hefur til brunns að
bera. Þar sem fyrr í vetur náði
liðið forystu f leikjum og glopraði
þeim siðan niður, heldur liðið nú
fengnum hlut. Bæði gegn ÍR I
síðustu viku og FH á laugardag-
inn hefur liðið þá átt slæma
leikkafla sem orðið hafa til þess
að sigurinn hefur hangið á
bláþræði. En aðalatriðið er, að
leikmennirnir hafa haldið haus
og verið sterkari á lokasprcttin-
um. Sigur vannst gegn FH,
22—20, en staðan í hálfleik var
11-8, HKívil
FH var aðeins yfir einu sinni í
leiknum, 2—1, í upphafi, en eftir
það átti liðið varla möguleika fyrr
en á lokamínútunum, en þá tókst
þeim að minnka muninn i eitt
mark, úr 21 — 18 í 21—20.
Æsispennandi lokamínútur, en
þegar aðeins tæp mínúta var til
leiksloka smeygði Karl Jóhanns-
son sér gegnum vörn FH og skor-
aði örugglega með laflausu skoti
sem fór í fótinn á Magnúsi Ólafs-
syni áður en hann skoppaði í netið.
Eftir leikinn vildi Karl að sjálf-
sögðu ekki heyra á það minnst að
um grísmark hefði verið að ræða.
Mark Karls gerði út um leikinn
fyrir HK, en það hefði verið
hámark ósanngirninnar ef FH
hefði tekið upp á því að næla sér í
stig. HK átti bæði skilin og vel
það, liðið komst í 7—2 með góðum
kafla í byrjun og þó að FH-ingar
hafi saxað dálítið á það forskot,
munaði yfirleitt 2—4 mörkum.
HK hefur farið gífurlega fram
að undanförnu og í þokkabót er
baráttan í liðin slík, að úr hófi
keyrir stundum. Sumir leikmanna
liðsins eru svo upptrekktir í leikj-
unum, að það tekur þá örugglega
góðan tíma að róast á nýjan leik.
Einar Þorvarðarson átti enn einn
stórleikinn í marki HK, varði
hann mörk skot mjög glæsilega og
á mikilvægum augnablikum.
Stefán Haldórsson skoraði að
venju mikið af mörkum, en hann á
ávallt við yfirvegarvandamálið að
stríða. Þá áttu Hilmar, Ragnar og
Kristinn góðan leik. Vörn HK var
upp og ofan, hún míglak hægra
megin hjá þeim Stefáni og Ragn-
ari en var yfirleitt frekar traust
annars staðar. Þeir Geir Hall-
steinsson og Guðmundur Árni
Stefánsson fóru margsinnis í
gegnum vörnina á umræddum
stað. Þeir, ásamt Guðmundi
Magnússyni, voru langbestir
FH-inga. FH-liðið átti afar lélag-
an leik og flestir áttu slakan dag.
Geir hefur oft verið betri, en var
samt langbesti leikmaður liðsins.
Það á við hann og Guðmund Árna,
að þeir skoruðu mest, en gerðu líka
rúmlega sinn skerf af mistökum.
Þeir Árni Tómasson og Jón
Friðsteinsson sáu um dómgæsluna
og voru þeim mislagðar hendur.
Hitti það naglann á höfuðið, þegar
einn áhorfandi spurði dómaranna,
hvor hefði dæmt, þeir eða Geir
Hallsteinsson. Ekki svo að skilja
að FH hafi hagnast á dómunum,
það kom jafnt niður á báðum
liðum, þannig að hvorugt liðið
getur í rauninni kvartað.
í stuttu máli:
íslandsmótið, 1. deild: HK—FH
22-20 (11-8)
Mörk HK: Stefán Halldórsson 8
(2 víti), Hilmar Sigurgíslason 5,
Jón Einarsson og Ragnar Ólafsson
2 hvor, Karl Jóhannsson, Gunnar
Eiríksson, Friðjón Jónsson og
Kristinn Ólafsson 1 hver.
Mörk FH: Geir Hallsteinsson 10
(5 víti), Guðmundur Árni 5,
Guðmundur Magnússon og
Kristján Arason 2 mörk hvor.
Vannýtt víti: Einar Þorvárðar-
son varði tvívegis víti frá Geir
Hallsteinssyni. Magnús Ólafsson
varði víti Stefáns Halldórssonar.
Brottrekstrar: Sæmundur
Stefánsson FH, Hilmar Sigur-
gíslason og Stefán Halldórsson í 2
mínútur hver.
-gg-
HAUKAR: Ólafur Guðjónsson 2, Höröur Haröarson 3, Ingimar Haraldsson 2,
Árni Sverrisson 2, Jón Hauksson 1, Þórir Gíslason 1, Ólafur Jóhannesson 1,
Júlíus Pálsson 1, Andrés Kristjánsson 3.
VALUR: Brynjar Kvaran 2, Ólafur Benedkktsson 3, Stefán Gunnarsson 2, Jón
Pétur Jónsson 3, Jón Karlsson 3, Þorbjörn Guömundsson 2, Þorbjörn
Jensson 2, Bjarni Guðmundsson 3, Steindór Gunnarsson 2, Brynjar
Haröarson 2, Karl Jónsson 1, Gísli Fafalowich 1.
HK: Einar Þorvaröarson 3, Erling Sigurösson 1, Stefán Halldórsson 3, Kristinn
Ólafsson 2, Hilmar Sigurgíslason 3, Friöjón Jónsson 2, Jón Einarsson 2,
Ragnar Ólafsson 2, Gunnar Eiríksson 2, Karl Jóhannsson 2.
FH: Sverrir Kristinsson 2, Magnús Ólafsson 1, Guðmundur Árni Stefánsson 3,
Geir Hallsteinsson 3, Guðmundur Magnússon 3, Kristján Arason 1, Janus
Guölaugsson 1, Valgarö Valgarðsson 1, Sveinn Bragason 1.
VÍKINGUR Kristján Sigmundsson 3, Eggert Guömundsson 2, Páll Björgvins-
son 3, Viggó Sigurösson 3, Ólafur Jónsson 3, Erlendur Hermannsson 3,
Steinar Birgisson 4, Skarphéöinn Óskarsson 2, Einar Magnússon 1, Magnús
Guöfinnsson 2, Árni Indriöason 2.
HAUKAR: Ólafur Guöjónsson 2, Gunnlaugur Gunnlaugsson 1, Höröur
Harðarson 2, Árni Sverrisson 1, Andrés Kristjánsson 3, Júlíus Pálsson 3, Þórir
Gíslason 1, Siguröur Aöalsteinsson 1, Karl Ingason 1, Ólafur Jóhannesson 1.
ÍR tókst hið ótrúlega!
Hver hefði trúað því, að ÍR, sem
ekki hefur risið upp úr meðal-
mennskunni í allan vetur, myndi
ná algerum toppleik gegn Val er
liðin mættust í Höllinni í gær-
kvöldi og vinna með ekki minni
en 6 marka mun. Einhver sem
hefði spáð fyrirfram hefði verið
álitinn sturlaður og stimplaður
hálfviti fyrir lifstíð. Hans eina
von væri að ÍR mundi gera það
ótrúlega, sem liðið og gerði ræki-
lega. ÍR hafði slíka yfirburði, að
um tíma í síðari hálfleik var 9
marka munur. Langtímum sam-
an komst varla skot í gegn um
varnarmúr ÍR og hvað eftir
annað fiskuðu leikmenn liðsins
knöttinn, óðu upp og skoruðu.
Leiknum lauk 23—18, en staðan í
hálfleik var 13-7.
Lætin byrjuðu strax, en maður
hafði það þó ávallt á tilfinning-
unni að IR-ingar myndu springa á
þeim hraða sem þeir léku. En
þegar munurinn jókst, var ljóst, að
það yrði æ erfiðara fyrir Vals-
menn að rífa sig upp. Vörn ÍR var
eins og fjallagarður þar sem fugl-
inum fljúgandi einum voru vegir
færir. Reyndar slapp boltinn
nokkrum sinnum, en Jens var í
essinu sínu og varði 20 skot, mörg
glæsilega. Sem fyrr segir var
staðan í hálfleik 13—7 og menn
reiknuðu frekar með því í síðari
hálfleik, að Valsmenn myndu loks
hrista af sér slenið. Það var þó
eitthvað annað og ÍR-ingar skor-
uðu þrjú fyrstu mörkin, öll úr
hraðaupphlaupum eftir að hafa
komist inn í sendingar Vals-
manna. Var stundum engu líkara
en að IR-ingarnir hefðu hverja
væntanlega hreyfingu Valsmanna
kortlagða og vissu upp á hár
hvernig bæri að stöðva hana.
Valsmenn rumskuðu dálítið um
miðbik hálfleiksins, Stefán skoraði
eitt mark og Jón Karlsson fjögur.
En meira var það ekki og undir
lokin var slík örvænting í Vals-
mönnum, að knötturinn hafnaði
mun oftar í höndum ÍR-inga held-
Enginn úr-
slitaleikur?
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur borist skeyti frá
Alþjóðasambandinu, þar sem
staðfest er að leika má kærða
leiki á borð við leik Vals og ÍR um
daginn, þar sem skýrsla og
klukkuna greindu á um hvað
Valur hafði skorað mikið. Ef að
bæði liðin samþykkja að leika á
ný, má KKÍ leyfa slíkt.
Ljóst er, að ÍR hefur samþykkt að
leita leikinn aftur og hvílir
ákvörðunin því á herðum KKÍ.
Víkingur
AÐALFUNDUR Knattspyrnufé-
lagsins Víkings verður haldinn í
kvöld og hefst klukkan 20.30 í
Félagsheimilinu við Hæðargarð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Öruggt hjá Val
VALSSTÚLKURNAR unnu FH í
1. deild kvenna í gærkvöldi og
eiga góðan möguleika á að stela
öðru sætinu af FH í deildinni.
Með sigri sínum jöfnuðu þær FH
að stigum, en þetta var þriðja tap
FH í röð. Lokatölur leiksins urðu
18—15 Val í vil, en staðan í
hálfleik var jöfn, 7—7.
Þetta var sveiflukenndur leikur
í byrjun og í heildina frekar slakur
með stórskemmtilegum mistaka-
köflum. Inn á milli voru þó gerðir
góðir hlutir, gallinn var bara sá,
að í flestum tilvikum voru það
sömu stúlkurnar sem það gerðu,
Erna hjá Val og Katrín hjá FH.
Það leit frekar lítið út fyrir að
Valur myndi gera stormandi lukku
í byrjun leiks, þegar FH skoraði 5
fyrstu mörkin. Þrátt fyrir það var
jafnt í hálfleik, enda sýndi FH-lið-
ið lítinn handbolta utan einstöku
einstaklingsframtak eftir það. FH
var reyndar yfir framan af síðari
hálfleik, en síðan sigu Vals-
stúlkurnar rólega fram úr og unnu
öruggan sigur, 18—15.
Sem fyrr segir, bar Erna Lúð-
víksdóttir af í liði Vals. Sigrún og
Oddný áttu einnig nokkuð góðan
leik. Katrín hefði keppt við Ernu
um nafnbótina maður leiksins, ef
sú nafnbót væri hér veitt. Hún ein
virtist standa í Völsurunum og á
lokakaflanum skoraði hún öll
mörk FH.
Mörk Vals: Erna 7 (4 víti),
Oddný 4, Harpa 4, Sigrún 3.
Mörk FH: Katrín 7 (4 víti),
Svanhvít og Kristjana 3 hvor,
Hildur 2 mörk. — gg.
Óvæntur sigur
Þórs gegn FH
11. deild kvenna
ÞÓRSSTÚLKURNAR í handknattleik komu mjög á óvart með því að
sigra FH f Ieik liðanna f 1. deild, sem fram fór á Akureyri á laugardag.
Sigur bórs var nokkuð öruggur, 18 mörk gegn 15, eftir að staðan í
leikhléi hafði verið níu mörk gegn níu.
FH hafði yfirhöndina framan af leik og hafði yfirleitt eins til tveggja
marka forystu. Um miðjan hálfleikinn tókst Þórsurum að jafna leikinn
og ná yfirhöndinni, en í leikhléi var jafnt, níu gegn níu. Síðari
hálfleikurinn var mjög jafn framan af, en um miðjan hálfleikinn náðu
Þórsarar forystunni, forystu sem dugði til sigurs.
I liði Þórs voru þær sterkastar Hanna Rúna, Magnea og Anna Gréta
ásamt Auði í markinu. Við þessi úrslit virðist allt benda til að
Þórsstúlkurnar haldi sæti sínu í deildinni.
I liði FH var Katrín Danivalsdóttir langbest, en auk hennar átti
Kristjana þokkalegan leik.
MÖRK ÞÓRS: Hanna Rúna 7, Magnea og Anna Gréta 3 hvor, Guðný og
Harpa tvö hvor og Aðalbjörg eitt mark.
MÖRK FH: Katrín 7, Kristjana 4 og eftirtaldar stúlkur skoruðu eitt
mark: Svanhvít, Anna Gunnarsdóttir, Björg Gilsdóttir og Brynja
Guðmundsdóttir.
Sigb.G.
ur en í neti þeirra. ÍR-ingarnir
voru hins vegar miklir klaufar á
þessum síðustu mínútum, fengu
fjölda dauðafæra sem aðeins nýtt-
ust að frekar litlu leyti, Óli Ben
varði vel um þetta leyti.
Sem fyrr segir, var hér um
algeran toppleik af hálfu ÍR-inga
að ræða, allir leikmenn liðsins
börðust eins og minkar í vörn,
voru þó að sjálfsögðu mun sterkari
líkamlega. Fengu Valsmenn ekki
stundarfrið til að stilla upp kerf-
um sínum. í sókninni blómstruðu
ýmsir, t.d. Bjarni Bessason, sem
ásamt einum eða tveimur öðrum,
er sá leikmaður sem hvað mest
hefur farið fram í vetur. Guðjón
Marteinsson átti einnig mjög góð-
an leik, en skaut mikið undir lokin.
Áður er getið um stórkostlegan
leik Jens Einarssonar.
Valsmenn voru hvorki fugl né
fiskur að þessu sinni, hvort sem
þeir hafa vanmetið ÍR-inga eða
ekki. Það var ótrúlegt að slíkur
munur skyldi vera á toppliði og
botnliði. Jón Karlsson stóð fyrir
sínu, Bjarni átti góða spretti og
Óli Ben. var góður í lokin. Aðrir
áttu afleitan dag.
f STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild: Valur — ÍR 18—23
(7-13)
MÖRK VALS: Jón Karlsson 6 (3 vfti), Jón
Pétur Jónsson 4 (1 víti), Bjarni Guðmunda-
son 3, Þorbjörn Guðmundsson 2, Þorbjðrn
Jensson, Stefán Gunnarsson og Steindór
Gunnarsson 1 hver.
MÖRK ÍR: Bjarni Bessyson 8, Guðjón
Marteinsson 6, Brynjólfur 4. Hafliði Hali-
dór8son 2, Sigurður Svavarsson, Bjarnl
Hákonarson og Guðmundur Þórðarson 1
hver.
VfTl í VASKINN: Óll Ben. varði tvö, annað
frá Bjarna Hákonar og hitt frá Sigurði
Svavaresyni. Jens varði eitt frá Brynjari
Harðareyni.
BROTTREKSTRAR: Þorbjörn Jensson 4
mfn., Sigurður Svavareson, Bjarni Ðessa-
son, Steindór Gunnareson og Stefán Gunn-
arsson 2 mfnútur hver.
— gg.
Ljósm: Emilía.
• Brynjólfur Markússon gerir aðför að marki Vals. Hann átti ágætan
leik, eins og flestir félaga hans í gær, er risinn Valur var lagður að
velli.
ÍR: Jens Einarsson 5, Ingimundur Guðmundsson 1, Guðjón Marteins-
son 3, Bjarni Bessason 4, Bjarni Hákonarson 2, Brynjólfur Markússon
3, Sigurður Svavarsson 3, Guðmundur Þórðarson 1, Hafliði
Halldórsson 2, Sigurður Gíslason 2.
VALUR: Brynjar Kvaran 1, Ólafur Benediktsson 2, Þorbjörn
Guðmundsson 1, Þorbjörn Jensson 1, Jón Pétur Jónsson 1, Jón
Karlsson 3, Bjarni Guömundsson 2, Steindór Gunnarsson 1, Stefán
Gunnarsson 1, Brynjar Harðarson 1.
• Steinar Birgisson dregur greinilega lítið sem ekkert af sér er hann þrumar í netið einu af átta mörkum
sínum í síðari hálfleik. Ólafur Jóhannesson fylgist með framvindu mála. Ljósm: Emilfa
Fátt stöðvar
Vikinga
YFIRBURÐIR tveggja efstu liða
1. deildarinnar í handbolta eru
hreint með ólíkindum. Haukar úr
Hafnarfirði reyndust lítil hindr-
un Víkinga í að krækja í tvö stig í
safnið f viðbót. Haukar héldu í við
Víkinga meiri hluta fyrri hálf-
leiks, en með sterkum leik síðustu
2 mínútur fyrri hálfleiks tókst
Víkingi að ná 3 marka forystu.
Liðið bætti síðan við hana í síðari
hálfleik. begar upp var staðið
höfðu Víkingar í pokahorninu 6
marka sigur, 28—22, en þegar
mest var, skildu 8 mörk, 20—12,
21 — 13 o.s.frv., staðan í hálfleik
var 12—9.
Páll (tvö) og Viggó skoruðu í
byrjun fyrir Víking og náðu for-
ystu sem ekki var látin af hendi.
Eigi að síður var ávallt í fyrri
hálfleiknum stutt í Haukana, sem
léku oft skínandi. Var fyrri hálf-
leikurinn sérlega vel leikinn og
leikkerfi beggja liða gengu upp
með tilheyrandi glæsimörkum. En
eins og svo oft í vetur, gátu
Haukar ekki haldið slíkum leik í
60 mínútur, og Víkingarnir með
Steinar Birgisson fremstan í
flokki kaffærðu þá gersamlega í
síðari hálfleik. Steinar átti vafalít-
ið sinn langbesta leik fyrir Víking
og hann lét sig ekki muna um það
að skora 8 mörk í síðari hálfleik.
Hafa fáir eða engir íslenskir hand-
boltamenn tekið jafn stórstígum
framförum og Steinar, því að auk
þess að vera sterkur í sókn, er
hann hinn liðtækasti varnarmaður
og það jafnvel lengst af verið hans
sterka hlið. Það var þó ekki aðeins
einstaklingsframtak Einars sem lá
að baki stórsigri Víkings, flétturn-
ar héldu áfram að ganga upp í
síðari hálfleik, þar sem dregið var
fyrir slíkt hjá Haukum. Og loka-
tölurnar urðu sem fyrr segir
28—22 fyrir Víking og er ljóst að
leikur Víkinga og Vals, em er
síðasti leikur Islandsmótsins,
verður hreinn úrslitaleikur. Það
kemur mjög á óvart ef eitthvert
hinna liðanna nær að reita stig af
þessum tveímur liðum.
Áður er getið um stórleik
Steinars Birgissonar hjá Víkingi,
en auk hans voru bestir hjá Vík-
ingi markvörðurinn Kristján Sig-
mundsson, sem varði 17 skot í
leiknum, og Viggó Sigurðsson, sem
virðist hafa lítið fyrir neglingar-
skotum sínum. Þá voru að venju
góðir hornamennirnir Erlendur og
Ólafur auk Páls Björgvinssonar.
Hörður Harðarson átti nokkra
góða spretti í leiknum fyrir
Hauka, en hans var vel gætt, betur
en oft áður. Andrés var sterkastur
Hauka að þessu sinni, en margar
styrkar stoðir brugðust og léku
illa.
Dómgæsla Rögnvalds Erlings-
sonar og Guðmundar Kolbeinsson-
ar var í heildina góð, leikurinn var
erfiður. Einstaka yfirsjón að vísu,
en það er líka venjan.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild: Víkingar
— Haukar 28—22 (12—9).
Mörk Víkings: Steinar Birgisson
8, Viggó Sigurðsson 7 (1 víti), Páll
Björgvinsson 6 (2 víti), Erlendur
Hermannsson 4, Ólafur Jónsson 2
og Skarphéðinn Óskarsson 1 mark.
Mörk Hauka: Júlíus Pálsson 8 (5
víti), Hörður Harðarson 7 (2 víti),
Andrés Kristjánsson 4, Árni
Sverrisson, Sigurður Aðalsteins-
son og Þórir Gíslason 1 mark hver.
Víti í vaskinn: Kristján Sig-
mundsson varði vítakast Harðar
Harðarsonar og Eggert
Guðmundsson varði víti Júlíusar
Pálssonar.
Brottrekstrar: Steinar Birgis-
son, Víkingi, í 4 minútur og Hörð-
ur Harðarson, Haukum, í 2 mínút-
ur. — gg.
1. DEILD
Staðan < fyretu deiid er nú:
Víkingur 12 10 1 1 297- -237 21
Valur 12 10 1 1 224- -188 21
FH 13 6 1 6 271- -268 13
Haukar 13 5 2 6 272- -282 12
Fram 12 5 1 6 242- -271 11
ÍR 13 4 1 8 238- -255 9
HK 13 3 2 8 234- -253 8
Fylkir 12 1 3 8 215- -240 5
Markhæstu leikmenn eru:
Geir Ilallsteinsson FH 93
Hörður Harðarson Haukum 75
Stefin Halldóreson HK 72
Atli Hilmarsson Fram 65
Gústaf Björnsson Fram 62
Jón Pétur Jónsson Val 56
Viggó Sigurðsson Vfk. 56
Guðjón Marteinsson ÍR 51
Páll Björgvinsson Vík 48
Gunnar Baldureson Fyiki 47
Brynjólfur Markússon ÍR 43
Ólafur Jónsson Vfk. 43
Hilmar Sigurgfslason HK 42
Jón Karlsson Vai 39
2. DEILD
Staðan í 2. deild er nú þessi:
KR 13 8 2 3 308 -263 18
KA 14 9 0 5 323-282 18
Þór VE. 13 7 3 3 259-236 17
ÞórAK. 13 7 1 5 260- 234 15
Ármann 12 6 2 4 253-240 14
Þróttur 13 5 2 6 292-280 12
Stjarnan 13 5 0 8 284-276 10
Leiknir 13 0 0 13 180-336 0
Markhæstu leikmenn eru:
Konráð Jónsson Þrótti 104
Hannes Leifsson Eyjaþór 88
Björn Pétureson KR 76
Eyjóifur Bragass. Stjörnunni 68
Sigtryggur Guðlaugs. Þór Ak 65
Alfreð Gfslason KA 64
Björn Jóhanness. Armanni 63
Sigurður Sigurðss. Þór AK. 62
Þorleifur Ananfass. KA 62
Sfmon Unndóres. KR 57
Jón Árni Rúnares. KA 55
Páll Ólafss. Þrótti 49
Pétur Ingólfss. Ármanni 44
Einar Sveinss. Þrótti 42
1. DEILD
Staðan í 1. deild kvenna er nú:
Fram 12 11 0 1 155- -99 22
Valur 11 7 1 3 155- 144 15
FH 12 7 1 4 161- 147 15
Haukar 13 7 1 5 168- 146 15
KR 12 7 0 5 141- 125 14
UBK 11 2 1 8 92- 146 5
Víkingur 13 1 2 10 138- 174 4
Þór 10 2 0 8 110- 139 4
Markhœstar eru nú:
Margrét Theodórsdóttir Haukum 51
Ingiinn Bernóduadóttir Vfk. 45
Gudríður Guöjónsdóttir Fram 46
Svanhvít Magmúsdóttir FH 42
Hansína Melsted KR 37
Katrín Danivalsdóttir FH 41
Oddný Sigsteinsdóttir Fram 35
Halldóra Mathiesen Haukum 35
Erna Lúövíksdóttir Val 33