Morgunblaðið - 27.03.1979, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979
27
• Bjarni Bessason sem hér er kominn í skotstöðu átti ágætis leik á móti
Þór í bikarleiknum.
Einstaklingsfram-
takió fleytti ÍR
ÍR sló Akureyrar-Þór út úr 8 liða
úrsiitunum í bikarkeppni HSl um
helgina, er liðin mættust í
Laugardalshöllinni. Norðanmenn
riðu ekki feitum hesti frá bæjar-
dvöi sinni að þessu sinni, tvö töp
á bakinu, og sennilegast að ekki
bara hafi liðið glatað möguleik-
anum á að komast í fyrstu deild,
heldur er liðið nú úr leik í
bikarkeppninni að auki. ÍR vann
23—22, naumt var það. Þórsarar
höfðu knöttinn lokamínútuna, án
þess að þeim tækist að jafna
metin. Staðan í hálfleik var
13-12 fyrir Þór.
Það verður að segjast eins og er,
að ef að dæma á liðin eftir
frammistöðu sinni í þessum leik,
eru bæði félögin með mjög slök lið.
Það er tilþrifalitill gönguhandbolti
sem Þór býður upp á, en IR hefði
eigi að síður tapað ef ekki hefði
komið til einstaklingsframtök
manna eins og Guðjóns Marteins-
sonar og Brynjólfs Markússonar.
Sem heild er IR-liðið eins og meðal
2. deildar-lið. Þór hafði forystuna í
leiknum allan fyrri hálfleik og
framan af þeim síðari, síðast
15—13. Þá voru þeir búnir í bili og
ÍR skoraði 4 mörk í röð. Þór gerði
eitt, en tvö í viðbót frá Guðjóni
gerðu út um leikinn. Munurinn
minnkaði ekki fyrr en rétt fyrir
leikslok, þegar Þór skoraði þrjú
síðustu mörkin og breytti stöðunni
úr 23—19 í 23—22, sem urðu
lokatölur leiksins.
Ekki er sérstök ástæða til að
hrósa öðrum ÍR-ingum nema þeim
Guðjóni og Brynjólfi, jú, Ásmund-
ur í markinu lék vel. Guðmundur
Skarphéðinsson var einna spræk-
astur Þórsara, sérstaklega eftir að
hann hætti að snúast eins og kefli
og fór að ganga beint að hlutunum.
Hann er sleipur gegnumbrotamað-
ur.
Mörk ÍR: Guðjón 8, Brynjólfur 5,
Sigurður Svavars 5(2 víti), Guð-
mundur Þórðarson og Bjarni
Bessason 2 hvor og Bjarni Há-
konarson 1 mark.
Mörk Þórs: Sigurður Sigurðar-
son 7(4 víti), Sigtryggur Guðlaugs-
son, Guðmundur Skarphéðinsson
og Gunnar Gunnarsson 3 hver,
Valur Knútsson, Arnar Guðlaugs-
son og Ólafur Sverrisson 2 hver,
Jón Sigurðsson 1 mark.
— gg-
23 mörk skildu
Þór og Leikni
Þor frá Vestmannaeyjum vann
eins og öll önnur lið í 2. deild
stórsigur á Leikni í Laugardals-
höllinni á laugardag er liðin
mættust. Lokatölurnar voru
36—13. Staðan í hálfleik var
16 — 4. Leikurinn var ekki
burðugur, til þess voru yfirburðir
Þórs alltof miklir. Lið Leiknis
getur ekki veitt neina mótspyrnu
og er að auki alveg stjórnlaust.
Það var rétt fyrstu 10 mínútur
leiksins, sem Þórsurum gekk
ekki vel að skora. Var eins og þeir
hefðu vanrækt upphitunina og
kæmust ekki í gang strax. En
eftir það skoruðu þeir nánast
þegar þeim datt í hug.
Eini maðurinn í liði Leiknis em
einhverja getu sýndi var mark-
vörðurinn Guðjón Einarsson sem
varði oft af stakri snilld.
I liði Þórs var Hannes Leifsson
einna atkvæðamestur en allir leik-
mennirnir komust vel frá leiknum.
Staða Þórs er nú mjög góð í 2.
deildinni, og nú eiga þeir eftir að
leika við Ármenninga á heimavelli
og takist þeim að sigra í þeim leik
verða þeir ásamt KA í næstefsta
sætinu í 2. deild.
Mörk Þórs: Hannes 13, Herbert 7,
Ragnar 6, Þór 3, Þórarinn I. 3,
Andrés 2, Böðvar 1, Bergþór 1.
Mörk Leiknis: Skafti 3, Rúnar 2,
Friðrik 2, Sveinbjörn 2, Ólafur 2,
Gunnar 2.
-Þr.
Öruggur sigur KA
gegn Stjörnunni
KA SIGRAÐI Stjörnuna nokkuð
örugglega á laugardaginn með 25
mörkum gegn 22. Leikurinn var
síðasti leikur KA í deildinni að
þessu sinni og hefir liðið hlotið 18
stig í leikjum sínum. Möguleikar
KA á sæti í fyrstu deild að ári eru
enn nokkrir, og satt að segja er
ekki ólíklegt að leika verði um
efstu sætin í deildinni til að fá
skorið úr um hvaða lið fá setu í 1.
deild að ári.
Við ósigur Stjörnunnar verma
þeir nú næst neðsta sæti deildar-
innar, tveimur stigum á eftir
Þrótti, sem svo óvænt sigraði Þór
á föstudag. Stjarnan og Þróttur
eiga eftir að leika saman og þá
fæst úr því skorið hvort liðið
hafnar í næst neðsta sætinu og
þarf að leika gegn liði númer tvö í
3. deild um laust sæti í 2. deild.
Leikurinn á laugardag var all-
skemmtilegur á að horfa þó svo
handknattleikurinn sem liðin
sýndu væri ekki alltaf upp á það
besta. Stjarnan náði í upphafi
forystu og komst í fjögur mörk
gegn tveimur heimamanna. Þá var
eins og eldgos hæfist og KA-menn
skoruðu hvert markið á fætur öðru
og náðu yfirburðastöðu, 12 mörk
gegn 5, þegar skammt var til
leikhlés. Stjarnan rétti aðeins úr
kútnum fyrir leikhlé og staðan í
hálfleik var 13 mörk gegn 8. í
síðari hálfleiknum jafnaðist leik-
urinn nokkuð, en munurinn var
yfirleitt þetta fjögur til fimm
mörk fyrir KA. Minnstur varð
munurinn rétt fyrir leikslok, 23
mörk gegn 21, og úrslitin urðu
öruggur sigur KA, 25 mörk gegn
22.
Bestu menn KA á laugardag
voru Þorleifur Ananíasson, Alfreð
Gíslason og Magnús Gauti mark-
vörður átti góðan leik í fyrri
hálfleik. Þá má ekki gleyma Jóni
Árna Rúnarssyni, sem hefir komið
mjög sterkur út úr síðustu leikjum
KA í vetur. Jón Árni skoraði ellefu
mörk á iaugardag og að öðrum
ólöstuðum var hann sterkasti
maður vallarins.
Eyjólfur Bragason var bestur
leikmanna Stjörnunnar á laugar-
dag, þá átti Magnús Arnarson og
góðan leik. Hörður Hilmarssonn
var tekinn úr umferð allan leikinn
og við það bar einnig minna á
Magnúsi Teitssyni en oft áður en
samvinna þeirra Magnúsar og
Harðar hefir verið með ágætum.
MÖRK KA: Jón Árni 11, Alfreð 7,
Þorleifur 5, Jóhann og Hermann
eitt mark hvor.
MÖRK STJÖRNUNNAR: Eyjólfur
7, Magnús Arnarson 5, Magnús
Teitsson og Árni B 4 hvor, Eggert
ísdal og Hilmar Ragnarssan eitt
mark hvor. Sigb.G.
• Guðrún Aðalsteinsdóttir, Haukum, er ekki líkleg til að finna smugu í
varnarvegg Víkings á þessum stað, fjórar eru til varnar. Ljósm: Emilía
Haukastúlkurnar
rétt mörðu sigur
VÍKINGAR voru eigi allfjarri því
að bæta verulega stöðu sína í
fallbaráttunni. þegar liðið tapaði
með einu marki fyrir Haukum, í
1. deiid kvenna. Það gekk mikið á
síðustu mínútuna. Staðan var þá
13—12 fyrir Hauka og Ingunn
komst í gegn. En það var brotið
illa á henni og slógu öil Víkings-
hjörtu örar þegar dómararnir
dæmdu aðeins aukakast. Ekki
skal lagður á það dómur hér
hvort það var rétt, en skoðanir
voru greiniiega skiptar. Hasar-
inn var ekki búinn, þvf að rétt
siðar komst íris í dauðafæri á
línunni, en Sóley í markinu varði
mjög vel. Enn héldu Víkingar
boltanum og leituðu að glufum.
Loks var dæmt aukakast og leik-
tíminn var liðinn. Úr aukakast-
inu skaut Ingunn að marki, en
Sóley varði enn meistaralega,
sigurinn í höfn.
Haukarnir virtust ætla að kaf-
sigla Víking í byrjun og komst
liðið í 4—1. Víkingsstúlkurnar bitu
þá hins vegar í skjaldarrendurnar
og tókst að jafna 5—5 með mikilli
þrautseigju. Haukar sigu aftur
fram úr og höfðu yfir 9—7 í
hálfleik. Haukar komust síðan í
10—7, en Víkingar rifu sig enn upp
og jöfnuðu 10—10. Eftir það voru
allar tölur jafnteflistölur þar til í
lokin, svo naumt var það.
Víkingsliðið er gerbreytt frá því
fyrr í vetur, þegar liðið lék eins og
samansafn af klaufum. Er lið
Víkings nú sæmilega léttleikandi
og virðist ekki lakara en meðallið
deildarinnar. Það vantar þó ein-
hvern herslumun. Að þessu sinni
átti íris bestan leik Víkinga, Sig-
rún Olgeirsdóttir átti einnig góða
spretti í horninu.
Haukaliðið lék ekki mjög vel að
þessu sinni. Þær Margrét
Theodórsdóttir og Halldóra
Mathiesen skoruðu mest að venju,
en gerðu líka mestu mistökin.
Þannig vill það oft verða. Sóley
bjargaði stigi í lokin og þær
Guðrún Gunnarsdóttir og Sesselía
áttu þokkalegan leik.
Mörk Víkings: Ingunn og íris 4
hvor, Sigrún 2, Guðrún og Heba 1
hvor.
Mörk Hauka: Margrét og Hall-
dóra 4 hvor, Guðrún G. 3, Sesselía
2 mörk. _ gg.
— o — o — o —
Meistara-
mót TBR
MEISTARAMÓT TBR í tvíliða- og
tvenndarleik fer fram í húsi félagsins,
sunnudaginn 1. apríl n.k. kl. 14.00.
Keppt verður í tvíliða- og tvenndar-
leik í eftirtöldum flokkum karla og
kvenna:
Meistaraflokki
A-flokki
B-flokki
Keppnisgjald verður kr. 2500 kr.
pr. mann í hvora grein.
Þátttökutilkynningar skulu hafa
borist til TBR fyrir þriðjudaginn 27.
marz n.k. og skulu þátttökugjöld
fylgja.
Skv. reglum BSÍ er hverjum manni
aðeins heimilt að keppa í einum
flokki.
Létt
hjáKR
KR var ekki í vandræðum með lið
Breiðabliks í 1. deild íslandsmóts-
ins í handbolta í Ásgarði um
helgina. Það var reyndar jafn-
ræði framan af leiknum, en siðan
sigu KR-stúlkurnar örugglega
fram úr og unnu stórt, 17—8.
Staðan í hálfleik var 8—5 fyrir
KR. Eftir leiki helgarinnar er
staðan í botninum þannig, að
Víkingur og Þór hafa bæði 4 stig.
UBK hefur hins vegar aðeins 5
stig, þannig að lítið má út af
bregða.
Það var mikil barátta í Blikalið-
inu framan af og var þá jafnræði,
þannig var jafnt 4—4 um miðjan
hálfleikinn. Kópavogsstúlkurnar
virtist hins vegar skorta úthald,
þær báðu um skiptingar í stríðum
straumum, blásandi eins og hvalir.
Þegar draga tók af UBK á þennan
hátt fór KR-liðið að síga fram úr.
Það má segja, að KR-stúlkurnar
hafi gert út um leikinn, þegar þær
skoruðu 4 mörk í röð og breyttu
stöðunni úr 4—4 i 8—4. Var þá
allur vindur úr Blikunum og mun-
urinn jókst jafnt og þétt. Var
leikur Blikanna í síðari hálfleik
ekki svo mikið sem skugginn af því
sem þeir náðu að sýna framan af
þeim fyrri. KR-liðið var hins vegar
jafnt, það lék alls ekki vel, en
skoraði þó stöðugt. Þegar Blikarn-
ir hrundu saman í síðari hálfleik,
þurfti engan stórleik til að vinna
örugglega.
Hjá KR var markvörðurinn
Helga Bachman mjög góð, svo og
Anna Lind sem átti stórgóðan leik
í vörninni. Hún lék senter og
fiskaði boltann hvað eftir annað.
Minntu tilburðir hennar á fyrri
tíma bjartsýnismenn, sem hugðust
fljúga með heimatilbúna vængi
festa á handleggina. I sókninni
átti Arna Garðarsdóttir stórleik.
Magnea var að venju góð í marki
UBK. En auk hennar er ekki um
auðugan garð að gresja. Sigurborg
átti annað slagið góða spretti, en
Ása og Jónína stóðu vel fyrir sínu,
meðan þær voru inn á. Þær láta
a.m.k. boltann ganga og leggja
ekki fyrir sig leiðindahnoð, ýmsar
Blikastúlknanna mættu taka þær
stöllur til fyrirmyndar.
MÖRK UBK: Sigurborg 3(1 víti),
Hrefna 2, Ása, Ásta og Þórunn 1
hver.
MÖRK KR: Arna 6, Hansína 5(2
viti), Olga 3, Margrét 2 og Ólöf 1