Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 22

Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 Réttur ófædds lífs: ískyggileg fjölgun fóst- ureyðinga hér á landi borv. Garðar Kristjánsson mælti í K«r fyrir frumvarpi um þrcngingu heimilda til fóstureyðinga, þ.e. að félagslejiar aðstæður réttlæti ekki fóstureyðingu. Stjórnvöld eigi að mæta félagsiegum vanda með öðrum ráðstöfunum en eyðingu lífs. Fyrri hluti framsöguræðu hans fer hér á eftir en síðari hluti birtist í Mbl. á morgun. Hér til hliðar á sfðunni eru viðbrögð þingmanna við máli Þorv. Garðars rakin í örstuttu máli. Bæta þarf félagslegar aðstæður með öðrum hætti Frumvarp þetta, sem hér er til umræðu, felur í sér að þrengd er heimild til fóstureyðinga. Samkvæmt gildandi lögum er fóstur- eyðing heimiluð af þrenns konar ástæðum, þ.e. í fyrsta lagi af félags- iegum ástæðum, í öðru lagi af læknisfræðilegum ástæðum og í þriðja lagi ef konu hefur verið nauðgað eða hún orðið þunguð sem afleiðing af öðru refsiverðu atferli. Með frumvarpi þessu er lagt til að .fella niður, að félagslegar ástæður geti heimilað fóstureyðingu. Af þessu leiðir aðrar breytingar sem í frumvarpinu felast. Frumvarp þetta er flutt á þeirr forsendu, að félagslegar aðstæður eigi ekki að réttlæta fóstureyðingu. I fyrsta lagi eru félagslegar ástæður ákaflega rúmt og teygjanlegt hug- tak. I öðru lagi á að bæta úr félagslegum ástæðum með öðrum hætti en að tortíma mannlegu lífi. I gildandi lögum er gert ráð fyrir að félagslegar ástæður heimili fóstureyðingu, þegar ætla má, eins og það er orðað, að þungun og tilkoma barns verði konunni og hennar nánustu of erfið vegna óvið- ráðanlegra félagslegra ástæðna. í lögunum er svo að finna leiðbeining- ar um það, til hvers skuli tekið tillit við mat á því, hvað er „of erfitt" í þessu sambandi og hvað eru „óviðráðanlegar félagslegar ástæður". Þar er tiltekið sem ástæða fyrir fóstureyðingu, að konan hafi alið mörg börn með stuttu millibili og skammt sé frá síðasta barnsburði. Samkvæmt þessari reglu getur fóstureyðing verið heimil, þó að heimilisástæður séu góðar og heilsu- far gott á heimilinu. Ef barnið er ekki velkomið í heiminn af einhverjum öðrum ástæðum, skal lífi þess tortímt, ef óskað er. Þá er önnur leiðbeiningarreglan sú, að fóstur- eyðing geti verið heimil „ef konan býr við bágar heimilisástæður vegna ómegðar eða alvarlegs heilsuleysis annarra á heimilinu". Og þriðja leiðbeiningarreglan er sú, að fóstur- eyðing geti verið heimil „þegar konan getur ekki vegna æsku og þroskaleysis annazt barnið á fullnægjandi hátt“. Tvær síðustu leiðbeiningar- reglurnar byggjast vissulega á félagslegum ástæðum. En naumast verður það sagt um fyrstu leið- beiningarregluna. Þessar heimildir eru því mjög rúmar. Og öll tvímæli eru tekin af um það með því ákvæði laganna, sem heimila fóstureyðingu af öðrum ástæðum, séu þær sam- bærilegar við hinar tilgreindu aðstæður. Samkvæmt þessum ákvæðum laganna liggur því nærri að álykta, að fóstureyðingar séu frjálsar í þeim skilningi, að fóstur- eyðing sé heimil af hvaða ástæðu sem er. Hægt er að heimfæra svo til hvaða tilvik undir þá reglu I,ögin nr. 25 frá 22. maí 1975 áttu sér þann aðdraganda, að fyrst var lagt fram á Alþingi 1973 frumvarp að þessari lagasmíði. Um það atriði, sem hér um ræðir, stóð þar sem hér segir: „Fóstureyðing er heimil að ósk konu, sem búsett er hér á landi eða hefir íslenzkan ríkisborgararétt, ef aðgerðin er framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngu og ef engar læknis- fræðilegar ástæður mæla á móti aðgerð". Samkvæmt þessu átti fóstureyðing að vera heimil án nokkurra félagslegra eða læknis- fræðilegra ástæðna eða sem eins konar getnaðarvörn, er grípa mætti til, sýndist konu svo. Þegar frum- varpið var endurflutt árið 1974, var þetta ákvæði fellt niður og í staðinn sett þau ákvæði, sem nú eru í lögum og áður greinir. Þessi breyting átti að vera til bóta að áliti þeirra, sem vilja hamla gegn fóstureyðingum. En þetta þótti breyting til hins lakara hjá þeim sem vilja mest frjálsræði í þessum efnum. Oddviti þeirra sagði samt sem áður í umræðum á Alþingi 29. janúar 1975 um þær reglur, sem lögfestar voru, á þessa leið: „Það er hægt að heimfæra svo til hvaða tilvik sem er undir þessar reglur. Ef menn lesa þær, þá ætti þeim að vera ljóst, að það fer eftir mati læknis og félagsfræðings, og það er hægt að framkvæma eiginlega hvaða fóstureyðingu, sem er, samkvæmt þessum reglum. Ég hefi ekki nokkra minnstu trú á því að þetta feli í rauninni í sér einhverja takmörkun á þessum rétti a.m.k. ekki miðað við þau yiðhorf sem nú eru uppi hér á Islandi." Ég held að þetta hafi á sínum tíma verið rétt mat á þeim ákvæðum um fóstur- eyðingu í frumvarpinu, sem lögfest voru með lögum nr. 25 frá 1975. Það hefir reynslan síðan leitt í ljós. Og hver hefir svo framkvæmdin verið? I því sambandi skulum við huga að 28. gr. laga nr. 25 frá 1975. í grein þessari segir: „Rísi ágreiningur um hvort framkvæma skuli fóstur- eyðingu eða ófrjósemisaðgerð, skal málinu tafarlaust vísað til land- læknis og skal hann tafarlaust leggja málið undir úrskurð nefndar, sem skipuð skal í þeim tilgangi að hafa eftirlit með framkvæmd lag- anna. I nefndinni skulu eiga sæti 3 menn og jafnmargir varamenn, einn læknir, einn lögfræðingur og einn félagsráðgjafi og skulu þeir skipaðir af heilbrigðisráðherra til 4ra ára í senn. Nefndin skal úrskurða málið innan viku frá því að henni berst það í hendur." Þessi nefnd, sem skal hafa eftirlit með framkvæmd laganna hefir í fjögur ár ekki fengið nein mál til úrskurðar um fóstureyðingu fyrir lok 12. viku meðgöngutíma nema 2 mál, en þá var svo ástatt, að viðkom- andi konur höfðu látið eyða fóstri áður á sama árinu og þessi mál komu til. Samkvæmt 11. gr. laganna skal áður en fóstureyðing má fara fram, liggja fyrir skrifleg rökstudd greinargerð tveggja lækna eða læknis og félagsráðgjafa, sé einungis um félagslegar ástæður að ræða. Spurningin er þá sú, hvort konur, sem leita eftir fóstureyðingu við þessa aðila fái yfirleitt vilja sínum framgengt án ágreinings, þar sem mál eru ekki lögð undir úrskurð eftirlitsnefndar samkvæmt 28. gr. laganna. Þetta er spurningin um, hvort fóstureyðingar séu í raun og veru frjálsar hér á landi fyrir lok 12. viku meðgöngutíma. Eða er á því sú skýringin, að eftirlitsnefndin fái ekki mál til úrskurðar vegna þess, að þegar læknar og félagsfræðingar neita að fóstureyðing fari fram, þá láti konan það gott heita og neyti ekki réttar síns til að skjóta máli sínu til eftirlitsnefndarinnar. Þrátt fyrir að dæmi eru til þess, að kona hætti við að láta eyða fóstri renna staðreyndir því miður ekki stoðum undir síðari skýringuna heldur hina fyrri, og að fóstureyðingar fyrir lok 12. viku meðgöngutíma séu í raun frjálsar hér á landi eða því sem næst. Fjölgun fóstureyðinga hér á landi Síðan gildandi lög um fóstur- eyðingar komu til framkvæmda 1975 hefir fóstureyðingum fjölgað ískyggilega. Þetta kemur greinilega í ljós, þegar bornar eru saman tölur fyrir og eftir 1975. Á tímabilinu frá 1950—1970 urðu fóstureyðingar fæstar 45 á ári, en flestar 107. Á árabilinu 1950—1960 voru þær að meðaltali 57 á ári, en árið 1961—1970 83 að meðaltali á ári. En ef við tökum tímabilið frá 1964—1974, þá urðu þær að meðaltali 123 á ári. Árið 1971 urðu fóstureyðingar 142 árið 1972 152, árið 1973 224 og árið 1974 224. Síðan koma umskiptin. Á árinu 1975 eru fóstureyðingar 308, árið 1976 367, árið 1977 447 og 1978 rúmlega 500. Þetta er reynsla okkar af því að heimila fóstureyðingar af svokölluðum félagslegum ástæðum. Skráðar fóstureyðingar hér á landi á hverjar 1000 konur á aldrinum 15-49 voru árið 1965 1,8 árið 1970 2,1 árið 1971 3,0, árið 1972 3,1 árið 1973 4,5 árið 1974 4,4, árið 1975 6,0 árið 1976 6,7, árið 1977 8,4 og á árinu 1978 um 9,3. Þessar tölur segja ótvírætt sína sögu. Reynslan með öðrum þjóðum En við í^jendingar erum ekki einir um þessa reynslu af því að fella niður hömlur á fóstureyðingum. Fjölgun fóstureyðinga í mörgum Þorv. Garðar Kristjánsson. Ljósm. Emilía Þingræða Þorv. Garðars - fyrri hluti löndum hefur verið mjög mikil þar sem fóstureyðingar í reynd hafa verið gefnar frjálsar. Tölur frá Norðurlöndum fyrir og eftir að hömlum á fóstyreyðingum hefir verið aflétt sýna þetta glöggt. Árið 1969 voru fóstureyðingar í Dan- mörku 7.474, en 1973, eftir að löggjöf hafði verið færð mjög í frjálsræðis- átt, 18.750 og árið 1977 26.661. í Finnlandi voru fóstureyðingar 1969 8.175, en 1973 23.362 og árið 1977 17.772. í Noregi voru fóstureyðingar 6.270 árið 1969, en 13.680 árið 1973 og árið 1977 15.528, og í Svíþjóð voru þær 1969 13.735, en 25.990 árið 1973 og árið 1977 31.462. Af upplýsingum, sem má finna í heilbrigðisskýslum sem Sameinuðu þjóðirnar gefa út, má sjá, aí New York-ríki í Banda- ríkjunum var árið 1970 löggjöf um fóstureyðingar breytt í þá áttina, að frjálsar fóstureyðingar voru uppteknar. 1971 voru skráðar fóstur- eyðingar í New York-ríki 173.900. Arið 1972 urðu þær 228.100. í Japan voru lög um fóstureyðingar færð í það horf að þar voru heimilaðar fóstureyðingar að ósk konu árið 1949. A árunum 1949—1972 voru skráðar leyfðar fóstureyðingar í Japan um 20 millj. Þannig mætti lengi áfram telja. Hér þarf ekki lengur vitnanna við. Það er og staðreynd, að í þeim löndum, þar sem fóstureyðingar hafa verið gefnar frjálsar, yfir- gengur reynslan það, sem gert hafði verið ráð fyrir. Mönnum ofbýður hin óhugnanlega þróun, sem málið hefir tekið. Á sama tíma sem íslendingar hafa gengið til meira frjálsræðis í þessu efni, hafa þær þjóðir, sem reynsluna hafa fengið af þessu frelsi, tekið til meðferðar nauðsyn þess að þrengja aftur heimildir og hamla á móti fóstureyðingunum. Eru þessi dæmi víða og hér í Evrópu, bæði austan og vestan járntalds. Það vær fróðlegt að ræða hér frekar um reynslu annarra þjóða af fóstureyðingum. Þeim mun fremur væri ástæða til þess, að oft er látið liggja að því í umræðum um þessi mál, að við gætum ýmislegt lært af þeim, sem hömlulausastar hafa fóstureyðingar. En ég held, að sá lærdómur örvi ekki til fóstureyðinga hér á landi, þvert á móti, sporin hræða. Og þar sem ég þekki til, virðist margt benda til þess, að þróunin hnígur frekar í öfuga átt, þ.e.a.s. að þrengja heimildir til fóstureyðingar. Það yrði of langt mál að fara að ræða þessi mál almennt í þessum umræðum, en ég get ekki stillt mig um að víkja rétt aðeins að tvennu í þessu sambandi. Stjórnlagadómstóllinn í V-Þýzkalandi Haustið 1972 var lögð fram á þingi Evrópuráðsins tillaga, vandlega undirbúin og ítarleg, um fóstur- eyðingar í aðildarríkjum Evrópu- ráðsins. Um þessa tillögu urðu miklar og eftirminnilegar umræður. í tillögu þessari fólst m.a. áskorun á aðildarríki Evrópuráðsins um að rýmka heimildir til fóstureyðingar þannig að í undantekningartilfellum, eins og það var orðað, yrðu fóstur- eyðingar heimilaðar af félagslegum ástæðum. Reglurnar um fóstur- eyðingar eru mjög mismunandi í aðildarríkjum Evrópuráðsins, svo sem kunnugt er. Það urðu líka miklar deilur um mál þetta á þingi Evrópuráðsins og aðallega um heimild til fóstureyðinga af félags- legum ástæðum. Tillaga þessi hlaut þau örlög að vera felld svo að ekki fékk ísland sem aðildarríki Evrópu- ráðsins uppörvun úr þessari átt til að lögfesta heimild til fóstureyðinga af félagslegum ástæðum. Ég skal víkja að öðru atriði erlend- is frá um fóstureyðingar. Það er frá Vestur-Þýzkalandi. I júnímánuði 1974 samþykkir ríkisþingið í Bonn lög um fóstureyðingar, sem rýmkuðu heimildir til fóstureyðinga. Þessi lög voru samþykkt eftir mikinn ágreining og sterka andstöðu í vestur-þýzka þinginu. Andstæðingar þessarar lagasetningar áfrýjuðu lög- um þessum til stjórnlagadómstóls ríkisins á þeirri forsendu að sú rýmkun heimildar til fóstureyðing- ar, sem lögin fólu í sér, bryti í bága við stjórnarskrá Vestur-Þýzkalands. Stjórnlagadómstóllinn kvað upp úr- skurð sinn 25. febrúar 1974 á þá leið, að fóstureyðingalögin væru dæmd ógild, þar sem þau samrýmdust ekki stjórnarskrá ríkisins. I forsendum úrskurðarins vitnaði dómstóllinn til 1. málgsgr. 1. gr. stjórnarskrár ríkisins, þar sem segir, að mannhelgi megi ekki raska og það skuli vera skylda ríkisvaldsins að virða hana og vernda. Dómstóllinn vitnaði og til 2. málsgr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir, að sérhver maður skuli hafa rétt til lífs og friðhelgi. Með þessum úrskurði hafnaði stjórnlagadóm- stóllinn að nokkur stjórnskipulegur mismunur væri á mannlegu lifi, hvort heldur það væri fætt eða ekki fætt. Þá var tekið fram í forsendum þessa úrskurðar að hin bitra reynsla af þýzka nasismanum hvetti til þess að ófætt mannslíf væri verndað. Þessi tvö dæmi, sem ég hef nú drepið á erlendis frá, sýna harðnandi andstöðu gegn fóstureyðingum og vissa tilhneigingu til að þrengja heimildir til að eyða fóstri. Þetta er ekki að ófyrirsynju. Þetta er vegna hinnar hörmulegu reynslu sem fengizt hefur víða um lönd af frjálsum fóstureyðingum eða rúmum heimildum til fóstureyðinga. Það var því fullkomin öfugþróun, sem átti sér stað hér á landi með setningu laga nr. 25 frá 1975. í stuttu máli----- Viðbrögð við rœðu Þorvalds Garðars Kristjáns- sonar • Þingmönnum ber saman um að ræða Þorv. Garðars Krist- jánssonar (S), er hann mælti fyrir þrengingu heimilda til fóst- ureyðinga á Alþingi í gær, og birt er í Mbl. í dag og á morgum, hafi verið afburða góð. Hins vegar vóru þeir ekki á einu máli um þau sjónarmið, sem fram vóru sett í henni. • Helgi F. Seljan (Abl) vildi virða fullan sjálfákvörðunarrétt konu til fóstureyðingar, sem framkvæmd væri innan 12 vikna frá þungun. Áður en félagslegar forsendur fóstureyðingar vóru viðurkenndar í lögum (1975) hafi verið framkvæmdar ólöglegar fóstureyðingar hér á landi, sem ekki sé æskilegt, eða fóstureyð- ing verið forréttindi kvenna, er höfðu efni á að fara utan til þeirra landa, er þær leyfðu. • Bragi Níelsson (A) sagði frumvarpið spor aftur á bak, bæði í tíma og mannréttindum. Líkti hann því við afturhvarf á borð við það, sem orðið væri í Iran fyrir tilstilli Khomeinis. Ekki ætti að svipta konur sjálfræði yfir sjálfum sér. Þá hæfust á ný ólöglegar fóstureyð- ingar, utanfarir efnakvenna og jafnvel ljúgvottorð lækna. Fóst- ur, innan 12 vikna, gæti ekki lifað sjálfstæðu lífi. Núverandi lög heimiluðu máske allt að því frjálsar fóstureyðingar — en þær væru ekki hömlulausar. • Bragi Níelsson sagði enn- fremur að 35% kvenna á frjó- semisaldri notaði lykkju og 25% pilluna. Þetta væri hærra hlut- fall í notkun getnaðarvarna en með nágrannaþjóðum. 10% kvenna á frjósemisaldri yrðu að meðaltali þungaðar á ári en aðeins 10% þeirra nýtti fóstur- eyðingu. Hér væri því ekki um neinn faraldur að ræða. • Ragnhildur Helgadóttir (S) sagðist ekki sannfærð um, að ganga ætti jafn langt og frv. ÞGKr. gerði ráð fyrir. Viðkom- andi þingnefnd þyrfti hins vegar að afla sér haldbærra upplýsinga um, hvert hlutfall „félagslegra ástæðna" væri í tölu fóstureyð- inga, svo hægt væri að meta, hvort einhver þrenging heimilda væri nauðsynleg. Minnti hún á fyrirvara ýmissa þingmanna við samþykkt laga frá 1975, þess efnis, að túlka bæri félagslegrar forsendur þröngt í framkvæmd. Kanna þyrfti, hvort svo hefði verið gert, sem væri e.t.v. vafa- mál. Taldi hún 9., 11. og 12. gr. gildandi laga setja nokkrar hömlur á fóstureyðingar. í þessu efni væri hins vegar ekki ein- vörðungu um rétt móður að ræða, heldur einnig rétt föður og þess lífs, sem konur bæru undir brjósti, sem einnig þyrfti að hafa í huga. • Þorv. Garðar Kristjánsson (S) vakti enn athygli á þeirri ískyggilegu aukningu, sem „fé- lagslegar ástæður" hefðu leitt til í fóstureyðingum hér á landi. Slíkum félagslegum ástæðum ætti þjóðfélagið að mæta þann veg, að gera þunguðum konum kleift að fæða og ala upp börn sín. „Félagslegar" forsendur þess að eyða lífi væri hins vegar spor lengra aftur en til Khomeinis, eða til þeirrar heiðni er leyfði að bera út börn, áður en þeim var gefin næring.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.