Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.03.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 31 Ávarp í tilef ni át jánda alþjóða leikhúsdagsins í dag, 27. mars, er haldinn hátíðlegur 18. alþjóða leikhús- dagurinn, en til hans var stofnað af Alþjóða leiklistarmálastofnun- inni (ITI) árið 1962 til að vekja athygli á list leikhússins. Á þess- um degi eru jafnan flutt ávörp í leikhúsum um allan heim og ýmislegt gert til að auka hróður leiklistar. Á undanförnum árum hefur það tíðkast að hvert land um sig kæmi á framfæri sínum eigin ávörpum í þágu leiklistar- innar og hefur Oddur Björnsson leikritahöfundur að þessu sinni samið ávarpið fyrir hönd íslensks leikhúsfólks. Fer það hér á eftir: Sem Islendingur ávarpa ég yður á Alþjóða leikhúsdeginum, sem ber upp á barnaár Sameinuðu þjóðanna, með tilvitnun í Jóhann Sigurjónsson leikritahöfund, sem auðnaðist að hefja íslenska leiklist í hærra veldi um leið og hanri gerði hana gjaldgenga á alþjóðlegum vettvangi. Hann segir: „Ég var á sjöunda árinu, þegar ég sá sjónleik í fyrsta skipti áævinni og það var í heimahúsum. Egill bróðir minn var lífið og sálin í fyrirtækinu, og hann lék aðalhlutverkið — sjálfan Skugga-Svein. Aldrei hvorki fyrr né síðar hefur nokkur leiklist Oddur Björnsson gripið mig með jafn mikilli aðdáun og skelfingu, eins og þegar Skugga-Sveinn hristi atgeirinn og kvað ógurlegri raust: „Ógn sé þér í oddi, í eggjum dauði." Löngu seinna, þegar ég var kominn til vits og ára, skildi ég að þá snart gyðja sorgarleiksins hjarta mitt í fyrsta sinn með sínum volduga væng...“ Þegar ég svo sjálfur var fimm um 700 manns hefðu fylgst með úrslitunum á sunnudagskvöldið. íslandsmeistararnir, Haukur Clauscn og Sigríður Guðjónsdóttir. Ljósm. Emilía. Sigríður Guðjónsdóttir og Haukur Clausen íslands- meistarar í discodansi Haukur Clausen og Sigríður Guðjónsdóttir urðu íslandsmeist- arar í parakeppni í diskódansi. Keppni þessi var háð í veitinga- húsinu Klúbbnum. en veitinga- húsið og ferðaskrifstofan Útsýn gengust fyrir keppninni. Úrslitakeppnin var háð s.l. sunnudagskvöld og tóku 6 pör þátt í henni en alls hafa 15 pör tekið þátt í keppninni. Sigur- vegararnir fengu bikar og verð- launapeninga frá Klúbbnum að launum auk sólarlandaferðar frá Útsýn. I öðru sæti í keppninni urðu Sigurður Einarsson og Fanney Gunnlaugsdóttir en í þriðja sæti Kristján Einarsson og Bryndís Sigurðardóttir. ára, gerðst það einn dag, að faðir minn sem var prestur í sveit segir formálalaust: „Á morgum förum við öll á Blönduós og horfum á óperettuna Nitouche." Þrátt fyrir aidur minn — eða öllu heldur aldursleysi — var þetta mitt fyrsta ástarævintýri, og það sem' trúlega skipti sköpum um feril minn síðan. í virðingarskyni við sannan leiklistarmann og leikhús- ið sjálft, vil ég minnast Lárusar Pálssonar: eitt augnatillit hans á þessari sýningu var þess valdandi að í brjósti fimm ára stráks vaknaði sá ástarhugur til leiklist- arinnar sem varð að hreinni ást- ríðu. Síðan hef ég alltaf vitað að í leiklist felast verðmæti, sem hvorki fjölmiðlar né nein stofnun önnur geta ýtt til hliðar, hvað þá komið í staðinn fyrir. Vegna þess að þetta var hugljómun augna- bliksins sem jafnvel kvikmyndinni er fyrirmunað að keppa við. I leikhúsinu sjálfu er með öðrum orðum um að ræða samspil tveggja aðila, eins nákomið, lifandi og mikilvægt og þegar tvær mann- eskjur tjá hvor annari ást sína. Það er stórt ánægjuefni að fá tækifæri til að auðsýna leikhúsinu þakklæti sitt, ekki síst á barnaári. Ég býst við, að við séum öll sammála um, meðan við trúum því að kærleikurinn falli aldrei úr gildi, að ungviðinu sé hollt að kynnast við listgrein sem vekur til umhugsunar — og glíma þegar í æsku við spurninguna „að vera eða vera ekki“. Ég trúi því líka að börn eigi erindi í leikhús fullorðinna og fullorðnir í leikhús barnanna. Þess vegna. leyfi ég mér að nota Skugga-Svein sem samnefnara og hans hjartahlýja höfund, Matthías Jochumsson, sem þýddi Shake- speare og Byron með yfirburðum. Ég trúi því með öðrum orðum að leikhús sé þýðingarmikið vegna þess, að það talar ekki tæpitungu. Þess vegna þurfum við ekki að þræta um stefnur. Aftur á móti krefst það manndóms — bæði af mér og þér. Það er stríðsvettvang- ur, þar sem manngildi eru höfð í heiðri, hvort sem fjallað er um gleði eða sorg. Gefum börnum tækifæri að taka þátt í ævintýrinu. Leyfum þeim að kynnast við Ibsen og Shakespeare og alla stóru höfunda fortíðar og samtíðar. Við ættum líka að leggja okkur fram við að kynnast hugar- heimi barnanna, minnug þess að það á að umgangast þau með þeirri virðingu, sem við auðsýnum öllu viti bornu. — Leikhúsið gefur kost á slíku, og það má ekki ætla sér annað hlutverk en sitt eigið. Það er í sjálfu sér strangt, því leikhús er leikhús, leiklist leiklist: „að vera eða vera ekki“. Oddur Björnsson. Charlton Heston í hlutverki sínu í „Kafbátur á botni“. „Kafbátur á botni” í Laugarásbíói LAUGARÁSBÍÓ frumsýndi í gær bandarísku kvikmyndina „Kaf- bátur á botni“ (Gray Lady Down) sem byggð er á sögu David Laval- les, „Event 1000“. Kvikmyndin greinir frá kjarn- orkuknúnum kafbáti sem sekkur í viðsjárverðu umhverfi og tilraun- um bandaríska sjóhersins til að bjarga hinni skelfdu áhöfn. Walter Mirisch framleiddi „Kaf- bstur á botni" fyrir Universal, kvikmyndahandritið er eftir Frank P. Rosenberg en David Green leikstýrir myndinni. David, sem eitt sinn var blaðamaður, hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir leikstjórn sína bæði fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Meðal annars leikstýrði David framhaldsmyndinni „Gæfa eða gjörvileiki" sem flestir íslendingar kannast við og stórum hluta myndaflokksins Róta. Með aðalhlutverk í myndinni fer Charlton Heston en með önnur mikilvæg hlutverk fara Ronny Cox, Ned Beatty og Stephen Machattie. Bandaríski sjóherinn aðstoðaði við upptöku „Kafbáts á botni" en þó nokkur hluti hennar fór fram undir vatni. Olli það kvikmynda- tökumönnum og leikurin nokkrum erfiðleikum og þurftu nokkrir þeirra aðstoðar lyfja til að ljúka verkinu. Reykjavíkurmótið í bridge, sveitakeppni: Sveit Sævars Þorbjörns- sonar Reykjavíkurmeistari SVEIT Sævars Þorbjörnssonar sigraði í úrslitakeppni Reykja- víkurmótsins í sveitakeppni sem fram fór um helgina í Hreyfils- húsinu. Ásamt Sævari eru í sveit hans: Skuli Einarsson, Valur Sig- urðsson, Sigurður Sverrisson, Guðmundur S. Ilermannsson og Þorlákur Jónsson. Þetta eru allt ungir spilarar sem hafa verið mjög framarlega í stærstu keppn- um vetrarins. I úrslitakeppninni voru fjórar sveitir, Hjalta Elíassonar, Sigur- jóns Tryggvasonar, Þórarins Sig- þórssonar og sveit Sævars. Vann sveitin Hjalta 16—4 og Sigurjón 16—4 en tapaði fyrir Þórarni 7-13 Lokastaðan í mótinu varð þessi: Sævar Þorbjörnsson 39 Hjalti Elíasson 36 Sigurjón Tryggvason 26 Þórarinn Sigþórsson 14 Fjölmargir áhorfendur komu til keppninnar en leikirnir voru sýnd- ir á sýningartöflum og fögnuðu þeir sigri ungu mannanna. Fyrirlestur um lögfræðiaðstoð fyrir almenning ÞRIÐJUDAGINN 27. marz mun Ebbe Nielsen skrifstofustjóri í danska dómsmálaráðuneytinu halda fyrirlestur fyrir almenning á vegum lagadeildar Háskóla Islands. Fjallar hann um efnið: „Lög- fræðiaðstoð fyrir almenning." Mun hann greina frá framkvæmd slíkrar aðstoðar á undanförnum árum í Danmörku og fleiri löndum. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi og hefst kl. 17.15. Á sunnudaginn fóru einnig fram úrslit í hópkeppni í diskó- dansi og var 9 manna hópur frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar hlutskarpastur en hópur frá Jassballettskóla Báru varð í öðru sæti. Vilhjálmur Ástráðsson plötusnúður í Klúbbnum, sem séð hefur um framkvæmd keppn- innar, sagði að fólk hefði sýnt mikinn áhuga á henni og sagði að m => xipiismiiiigjiigjiiimpiigmij^^ tiii iiji qjixpiipiiitiiijiiijiiiðilíji lui uji iuhiji Hljómplötumarkaður í Vörumarkaðnum, Ármúla. . Allt að 80% afsláttur af íslenskum og erlendum hljómplötum. ii Hljómplötuútgáfan hf. | firfflT<ilTíilTíilTfiUilTIiITfiITíilTfilTíi>TíÍlT(ir(iITIilTT(ilT(íIT(iITíilT(ilTfflTTfilT(ilT(iIT(ilTíiITfiifMÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.