Morgunblaðið - 27.03.1979, Page 26

Morgunblaðið - 27.03.1979, Page 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 Umsjón: HILDUR FRIÐRIKSDÓTTiR Kræklingar Krœklingar & beikon Vefjið beikoni utan um kræklingana, festið með tann- stönglum og steikið í olíu. Gratineraðir krœklingar Setjið 1 dós (250 gr) af kræklingum jafnt yfir 4 ristaðar brauðsneiðar. Raðið þeim í ofnfast fat. Hrærið síðan 60 gr smjör með 1 feitum, pressuðum hvítlauk, 1 tsk sítrónusafa, salt og hvitum pipar og deilið þessu jafnt yfir brauðsneiðarnar. Setjið rifinn ost yfir og setjið inn í 200°C heitan ofn í u.þ.b. 10—20 mín. Krœklingapönnukökur Bræðið 2 matskeiðar smjör og hrærið 2 matsk. hveiti út í, þynnið með 2 dl rjóma, 2 di hvítvíni og vökvanum af 2 dósum af kræklingum. Bætið kræklingunum út f og kryddið með salti og pipar. Jafningurinn er sfðan settur á pönnukökuna, henni rúllað saman og yfir er settur rifinn ostur. Sett í heitan ofn, þar til osturinn er orðinn fallega gulbrúnn. Kalifornískur krœklingsréttur Blandið saman 1 dós maís, 1 papriku, sem er skorin í ræm- ur, 2 tómötum, sem eru skornir í báta, og 1 dós kræklingum. Hitað í potti og gott er að bera fram brauð með. Gott er að vita ... aö hafi pappír fests viö pólerað tré er hægt aö fjarlægja hann með ólífuolíu. Bleytið pappírinn meö olí- unni og látið standa í u.p.b. klukku- stund. Nuddið varlega með mjúkum klút eða bómul. Skafið pað aldrei af, par sem tréð mun rispast. — O — ... að hafi komiö hvítur blettur á borð t.d. eftir heitan hlut, er hægt að fjarlægja hann með pví aö dýfa rökum klút í vindlaösku og nudda varlega blettinn. Síðan er hann nuddaður með mjúku skinni. — O — ... að pegar bakað er gróft brauö er betra að setja mjólk og súrmjólk til helminga, pá helzt brauöið lengur ferskt. ... að kaffibletti úr dúkum og munnpurkum er hægt að fjarlægja meö spritti. — O — ... aö purfi aö banka rik úr husgögn- um innan dyra, setjið pá rakan klút yfir húsgöngin, pannig að rykiö pyrlist ekki um allt herbergiö, heldur setjist fast í klútinn. — O — ... aö til að fjarlægja líkjörbletti er notað volgt vatn. Setjiö klút, sem sígur vel í sig bleytu, undir blettinn og nuddið síðan blettinn með öðrum klút, nokkuð vel blautum. Þurrkiö yfir með purrum klút, pegar bletturinn hefur veriö fjarlægður, og strauiö efnið á röngunni. ... að pegar verið er aö sjóöa rauðrófur ber aö setja edik út í vatnið pegar pað er að kólna, pá halda rófurnar fallega rauöa litnum .. .aö hrísgrjón verða hvítari og paö sýður ekki eins upp úr, ef settur er svolítill sítrónusafi saman við vatnið. — O — ... að gott getur veriö aö skreyta tertur með góðum fyrirvara. Til aö geta sett sellófan, plast eöa eitthvaö yfir terturnar án pess að skemma skreytinguna, er hægt að stinga tannstönglum í tertuna og breiöa síðan yffir hana, án pess að skreytingin fari úr skorðum. ... að ef salatblöð eru oröin hálfljót er hægt að setja pau í skál meö köldu vatni og sítrónusneiöum, pá eiga pau aö braggast. — O — ... að ef smákökur er orðnar linar eða mjúkar, er hægt aö setja pær í ofn, ekki mjög heitan, smástund, pá verða pær aftur stökkar. Árni Helgason: Hver ju reidd- ust goðin? Menn skyldu aldrei taka sér penna í hönd þegar taugarnar eru ekki í jafnvægi. Þá er hætt við að tilfinningagos komi í stað skyn- samlegra raka. Þeim mönnum er þó sjálfsagt vorkunn sem ranka við sér eftir langt sljóleikatímabil og telja sig þá hafa höndlað allan sannleikann og ekkert nema sann- leikann. Þeir sjást oft ekki fyrir í dugnaði sínum og ákafa og hættir til að fullyrða og dæma um hluti sem þeir vita ekki skil á, mikla fyrir sér vissar hliðar mála en láta sér sjást yfir aðrar. Hilmar Helgason formaður SÁÁ sendir mér, óbreyttum fé- lagsmanni í samtökunum, heldur betur tóninn í Morgunblaðinu föstudaginn 16. mars. Ég veit eiginlega ekki hvaðan á mig stend- ur veðrið. Ég er óvanur því að forystumenn þeirra félaga, sem ég er í, taki vinsamlegum bendingum þannig að þeir ausi áhugasama og hreinskilna félagsmenn fúkyrðum í stað þess að svara spurningum þeirra hæversklega. Þetta er kannski einhver ný tegund lýðræð- is. Eða er þetta ef til vill „of mörgum kynslóðabilum á eftir áætlun", sem sagt „vér einir vit- um“ — stjórnarfarið? En hverju reiðist formaðurinn? — Hann virðist ekki greina á milli félags og forystu. Ég fann að ýmsum hrópyrðum hans og hæpnum fullyrðingum í fjölmiðl- um. Ég spurði um launagreiðslur samtaka okkar sem fá milljónir úr sameiginlegum sjóði landsmanna. — Það er von mín og ósk að þar sé enginn maðkur í mysunni. Ég lét í ljós vafa um að fræðsla fólks, sem veit fátt um áfengismálastefnu og lítið um aðrar hliðar áfengismála en alkóhólisma, yrði jafn mikils- virði almenningi og skólanemend- um sem alkóhólistum í endurhæf- ingu. Fátt hefur styrkt þá skoðun mína betur en fákunnátta for- manns okkar á þessum sviðum. Hann jafnar til dæmis vímuefninu áfengi við kjöt og mjólk eins og fávíst barn og heldur að bindindis- menn hafi ráðið þeirri áfengislög- gjöf sem hér er við lýði. En kannski er alvarlegast að formaðurinn virðist greina óljóst milli sinnar eigin persónu og samtakanna. „Ríkið, það er ég,“ sagði einvaldurinn. Hann virðist ætla að af því að hann varð ekki „var við neitt nema nafnið" á ýmsum ágætum félögum hljóti að vera heldur lítið í þau varið. Þá vitum við það, sem við höfum reynt að leggja okkar litla lóð á vogarskálir réttlætis og sannleika aðeins í nokkra áratugi! Ef formaður SÁÁ, sem hefur starfað „að áhugamáli" sínu, „áfengisvandamálum", í 4 ár — takið eftir, heil 4 ár! — minnist ekki viðleitni okkar þá er hún vegin og léttvæg fundin. Skrif mitt og hreinskilnislegar spurningar urðu til vegna áhuga á velferð samtaka sem ég gekk heils hugar til liðs við og hélt að væru í þörf fyrir að heyra viðhorf óbreytts félaga sem ekki er með öllu ókunnugur þessum málum. Rugl Hilmars Helgasonar um Góðtemplararegluna í þessu sam- hengi skil ég ekki. Hann hefði eins getað talið mig túlka stefnu Sjálf- stæðisflokksins eða Náttúrulækn- ingafélagsins. Nú eða Austfirð- ingafélagsins í Reykjavík. Ég veit ekki betur en góðtemplarar hafi sýnt SÁÁ hlýhug og góðvild. Forystumaður þeirra flutti til dæmis ávarp við stofnun samtak- anna. Og þó að forysta SÁÁ hafi hvað eftir annað opinberað fávisku sína um sögu íslenskrar áfengis- málastefnu og niðurstöður vís- indarannsókna síðustu áratuga hafa góðtemplarar mér vitanlega látið það ótalið. Hins vegar er ekki fráleitt að geta þess — formannin- um, sem haft hefur áhuga á Árni Helgason áfengismálum í 4 ár, til leiðbein- ingar — að flestir, sem til þeirra mála þekkja, gera sér ljóst að sá byr sem samtök okkar hafa fengið byggist á fræðslu og upplýsinga- starfi bindindishreyfingarinnar í áratugi. Þau — og einstakir bind- indismenn, svo sem sr. Árelíus Níelsson, — erjuðu jarðveginn sem nú er sáð í. I lítillæti sínu og hæversku segir formaðurinn um athugasemdir óbreytts félaga: „Þessi tilraun hans til á slá sjálfan sig til riddara með því að traðka niður starfsemi SÁÁ er alvarlegur þverbrestur í starfsemi allra þeirra sem af besta hug og skilningi reyna að vinna sameiginlega að þjóðfélagsvanda- máli — áfengisvandamálinu." — Ég fæ nú að vísu enga heila hugsun út úr þessum orðum. En þar sem Hilmar hefur haft áhuga á málinu í 4 ár en ég aðeins í rúma hálfa öld ber mér líklega að látast skilja þennan samhengislausa vað- al og hneigja mig fyrir hverju orði sem fram gengur af munni þessa manns. — Annað „flokkast" víst undir „sjúklegt hugarfar". Enn gæti ég spurt margra spurninga en til þess að ofbjóða ekki skapstillingu formannsins læt eig eina nægja: Leyfist óbreyttum félögum í SÁÁ að gagnrýna það að forystu- maður þeirra ber fram í fjölmiðl- um einkaskoðanir á áfengismála- stefnu, skoðanir sem ganga þvert á álit Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unar Sameinuðu þjóðanna?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.