Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 27

Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ1979 35 Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Háskóla- tónleikar Efnisskrá: Modest Mussorgsky Kinderstube Atli Heimir Sveinsson Ljóð fyrir börn við texta eftir Matthías Johannessen Karl 0. Runólfsson Fjögur sönglög við ljóð eftir Kristmann Guðmundsson og þýðingu eftir Freystein Gunnarsson Einsöngur Elísabet Erlingsdóttir Undirleikari: Guðrún A. Kristinsdóttir LAGAFLOKKURINN Barna- leikir eftir Mussorgsky er frekar flokkaður sem tónverk en sem eiginlegur lagaflokkur. Þarna fer saman leikræn túlkun sem svipar til tónlesins eins og það hefur þekkst allt frá því um 1600 og einkennilegt tónferli. Mussorgsky, fæddur 1839, en ekki 1835 eins og stendur í efnisskrá, var kominn af aðal- bornum hermönnum og náði hann lautenantstign áður en hann ákvað að leggja her- mennskuna á hilluna og helga sig tónsmíðum. Hann hafði vak- ið athygli fyrir góða hæfileika sem píanóleikari en þrátt fyrir það og að hafa notið kennslu hjá Balakirev, var hann sjálfmennt- aður í tónsmíði og voru tónverk hans ekki almennt talin hæf til flutnings. Þau sem flutt voru að honum látnum, höfðu flest verið lagfærð og endurútsett af Rimsky-Korsakoff. Afnám þrælahaldsins í Rússlandi „setti hann á hausinn" og sem illa launaður embættismaður, mis- heppnað tónskáld, vinalaus og flogaveikur drykkjumaður lýkur hann ævi sinni á herspítala en þar fékk hann inni fyrir góð- semd og vegna fyrri stöðu í hernum. Það er ekki fyrr en maðurinn Mussorgsky er gleymdur að tónlist hans fær notið sín og allt verður fínt er hann samdi og vankunnáttan sem fyrrum var honum fjötur um fót, er skilgreind sem frum- leiki. Þannig býr menningar- flokkunarvél hvers tíma sér til formúlu og bætir við hana eftir þörfum hverju sinni. Mussorg- sky leit ekki á tónlist sem takmark í sjálfu sér, sem opin- berun fegurðar eða eitthvað sem Elísabet Erlingsdóttir fræðilega þarf að vera skipu- lagt, heldur sem tæki til að tjá sig, túlka og tala til fólks. „Eg vil tala við fólk á tungu sann- leikans. Orð og tónar eru ein heild og laglínar sprettur upp úr tungumálinu og mótast af merk- ingu þess.“ Til að flutningur verks eins og Barnaleikja njóti sín, þarf textinn að vera auðskil- inn og vafasamt að þýðingar tengist upprunalegri tóntúlkun textans. Þetta á ekki frekar við um lög eftir Mussorgsky heldur yfirleitt alla söngva, þó til séu undantekningar, helst þar sem leikræn túlkun er í lágmarki. Annað verkið á efnisskránni voru söngvar eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð eftir Matthías Johannessen. Það er áreiðanlega ekki auðvelt að semja leikrænt túlkandi tónmál við Ljóð fyrir börn eftir Matthías Johannes- sen, enda var samspil þessara þátta víða illa ofið saman, þó brygði fyrir einstaka góðu atr- iði, aðallega í undirleiknum, sem víða var tengdari textanum en sönglínan. Tónleikunum lauk með lögum eftir Karl Otto Run- ólfsson, Viltu fá minn vin að sjá, og þremur lögum við texta eftir Kristmann Guðmundsson, Svefnljóð, Stef og Síðasti dans en yfir því er skemmtilegur og léttur blær. Elísabet Erlings- dóttir er mjög góður tónlistar- maður og hefur mikla og góða rödd. Það sem einkum hefur truflað undirritaðan er hvernig hún leggur röddina, og kom sérlega fram í íslenzku lögun- um. Mjó og hvöss afturlæg tónmyndun er áreiðanlega ekki einu blæbrigðin sem rödd henn- ar ræður yfir og með dýpri og dekkri hljómgrunn eins og kom fram í Mussorgsky, er hugsan- legt að rödd hennar búi yfir einhverju, sem ekki hefur komið í ljós í mjóhvössum söng hennar hingað til. Mótun raddarinnar er sérkennilegt vandamál og getur varðað starfsdag söngvara miklu hversu til tekst. Til er óteljandi dæmi um slík mistök, sem kostað hafa söngvara mikla vinnu að yfirstíga, en þar sem hæfileikar, þekking og vilji hafa verið fyrir hendi, hefur þessi leiðrétting oft tekist með glæsi- legum árangri. Jón Ásgeirsson Borgarstjórnarmeirihlutinn: Felldi niður styrk til þjálfunar barna í reiðmennsku „ÞAÐ er rétt að borgarstjórnar- meirihlutinn í Reykjavík hefur fellt niður 500 þús. kr. styrk til Hestamannafélagsins Fáks vegna reiðskóla fyrir börn, en þessi styrkur hefur verið veittur um langt árabil til reiðkennslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík á vetrum. Daglega stunda um 25 nám í reiðmennsku á vegum Fáks á þessum árstíma, en á s.l. ári t.d. voru um 800 börn í reiðskóla á vegum Fáks og að hluta í sam- vinnu við Æskulýðsráð," sagði Bergur Magnússon framkvæmda- stjóri Fáks í samtali við Mbl. „Þetta þýðir," sagði Bergur, „að annaðhvort verðum við að -reka þetta með tapi eða láta nemendur borga meira og verður það líklega úr. Nú borga nemendur 8000 kr. fyrir 10 tíma, en s.l. ár voru það 6000 kr. Langur biðlisti er eftir því að komast á námskeið hjá Fáki.“ Plantað út 17 þús. trjáplöntum Mikil skakkaföll vegna ágangs Á sl. ári jukust ræktunarsvæði Reykjavíkurborgar um 5,83 hekt- ara og er nú heildarstærð um- hirðusvæðanna 268,13 ha og er þá sá hluti Ártúnsholts, sem kominn er gróður í reiknaður með, segir í skýrslu garðyrkjustjóra, Hafliða Jónssonar, sem nýlega var lögð fram í umhverfismálaráði. í skýrslunni eru talin upp þau svæði og sú gróðursetning sem fram fór sl. vor og sumar, sem eru f jölmörg víðs vegar um borg- ina. Frá ræktunarstöð borgarinnar í Laugadal voru afgreiddar 17.246 trjáplöntur. Var trjám plantað á ýmsum stöðum í borginni. Það vekur athygli í skýrslunni, að ekki virðist þessum viðkvæma gróðri alls staðar hlíft. Til dæmis segir: I Breiðholti var haldið áfram við trjáplöntun í hljóðmönina milli Seljabrautar og Breiðholts- brautar, en sá hluti sem plantað var í, árinu áður, hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna ágangs fólks, sem styttir sér leið þvert yfir beðin og var nú gripið til þess ráðs að setja upp girðingu til að tefja fyrir þessum ágangi. Trjágróður á nýjum svæðum í Fossvogi hefur verið lítil um- hyggjai sýnd af unglingum í hverf- inu og var nú plantað þar upp að nýju, að heita mátti í öll beð, bæði á miðsvæði og vestursvæði, auk ýmissa fleiri umbóta sem þar var að unnið, vegna þess hve harka- lega hefur verið gengið um þessi ræktunarsvæði. Einnig má sjá setningar á borð við þessa: Komið var upp fleiri skjólþiljum á garð- torginu við Hringbraut-Meistara- velli og þar bætt talsverðu við trjágróður í beðin, en all mikil brögð hafa verið að því, að gróður þar hafi verið traðkaður niður. Grasgarðurinn vinsæll Safnað var fræi af 370 tegund- um sumarið 1978,133 íslenzkum og 237 erlendum. Afgreiddar voru 735 tegundir til útlanda, þar af var 221 íslenzk, segir í kaflanum um gras- garðinn. Áf íslenskum plöntum var mest óskað eftir týsfjólu, snæsteinsbrjóti og skeggsanda, en af erlendum bóndarós, gullhnappi og alaskalúpínu. Sáð var 529 teg- undum, þar af voru 304 tegundir, sem ekki hafa verið reyndar áður. Unnið var áfram að stækkun sýningarsvæðis fyrir garðinn, sem ætlað er fyrir tré og runna. Orðinn er fastur liður hjá sumum barna- og unglingaskólum Reykjavíkur og nágrennis, að efna til hópferða í garðinn. Minnkandi aðsókn að skólagörðum Þátttakendur í skólagörðum urðu að þessu sinni 509 (voru 1977 779 börn) og er minnkandi aðsókn að görðunum. Trúlega á aukning starfsleikvalla þátt í því, segir í skýrslu garðyrkjustjóra. Fleiri stúlkur en piltar voru í skólagörð- um eða 295 talsins á móti 214 piltum. Um leið má geta þess að aðsókn barna að leikvöllum borgarinnar hefur minnkað um 11,5% frá árinu 1977. Alls voru nú 321.893 börn skráð í heimsókn á leikvellina 1978 (áður 361.219). Vel má vera að ein meginástæðan fyrir þessu sé að yngri börn en fyrr sækja nú á starfsleikvelli, en þeim var fjölgað um fjóra, sem er helmings aukning frá árinu áður. Starfsvellirnir störfuðu 504 daga og voru þar skráðir 30.625 heimsóknir og 3.182 börn innrituð. TAFLMENN 2. BHB-Standard kr. 24.720.- KLUKKUR 5. OLYMPÍA kr. 37.100.- 3. BHB-Blitz kr. 20200- 4. BOHEMIA kr. 22.400.- 1 d>\ Yfir 50 tegundir og stæröir taflmanna, verö frá kr. 1.000- Bendum t.d. á hina þekktu frönsku taflmenn „PHIDIAS". Stærö 9.5 sm., þyngdir, m/filti, í kassa meö renniloki. Póleraöir eöa lakkaðir, svartir/ hvítir eða ANTIK (brúnir) Kr. 19.265.- Eins, í kassa meö renniloki en stærð 9.0 sm. Kr. 16.370- Eins, sama stærö, nema í kassa meö lömum á loki Kr. 19.970- Plastmenn, 8.5 sm. í trékassa með lömum áloki (brúnir) Kr. 4.570- Plastmenn, 8.5 sm. í trékassa með lömum áloki, svartir/hvítir Kr. 6.605- Tafldúkar 33x33 sm Kr. 1.110- Tafldúkar 40x40 Kr. 1.710- Tafldúkar 48x48 Kr. 2.055- Sendum í þóstkröfu. Magnafsláttur til taflfélaga og taflklúbba. Heildsala — smásala. Tilvaldar fermingargjafir — og ekki síður fyrir stúlkur en pilta. SKÁKHÚSH) Laugavegi 46 — Sími 19768 — Box 491.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.