Morgunblaðið - 06.05.1979, Page 1
64 SÍÐUR
101. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Verð að
sigra með
glæsibrag”
Jóhannesarborg. 5. maí. AP.
Stórmeistarinn Viktor
Korchnoi er sagður ákveðinn í
að sigra á alþjóðaskákmótinu,
sem hefst í Pretóríu í dag og
vinna þar með til 48 þúsund
dollara verðlauna, eða sem nem-
ur 16 milljónum íslenzkra
króna.
Við komuna til Jóhannesar-
borgar í gær sagði Korchnoi á
fundi með fréttamönnum, að
hann yrði ekki aðeins að sigra
heldur yrði hann að vinna með
glæsibrag, að öðrum kosti veikt-
ist staða hans sem skákmanns
verulega. „Ég er í öðru sæti
samkvæmt stigatöflu Alþjóða-
skáksambandsins, en ef ég sigra
ekki í Pretóríu er hætt við því að
einhverjir fari upp fyrir mig,“
sagði Korchnoi.
Aðspurður um, hvort hann
ætti von að því að verða fyrir
sams konar aðför dulsálfræð-
inga eins og í heimsmeistaraein-
víginu á Filipseyjum, sagðist
Korchnoi alls ekki eiga von á því.
Auk Korchnois munu taka
þátt í mótinu þeir Anthony
Miles frá Bretlandi, Anatoly
Lein, landflótta Rússi, sem ný-
verið hefur fengið bandarískan
ríkisborgararétt, og Wolfgang
Unzicker frá Vestur-Þýzkalandi.
Hryðjuverkakona
var skotin til bana
Miinchen. 5. maí. Reuter.
TUTTUGU og átta ára gömul kon;
eftir vegna ránsins og morðsins á
Hans Martin Schleyer árið 19'
Niirnberg í gærkvöldi.
Talsmaður lögreglunnar í Bæj-
aralandi sagði, að hún hefði dregið
upp byssu þegar lögreglumenn
komu til íbúðar hennar. Þeir
skutu hana niður og hún lézt af
sárum sínum í sjúkrahúsi í Núrn-
berg skömmu síðar.
Ungfrú von Dyck var í hópi sex
hryðjuverkamanna sem mest kapp
hefur verið lagt á að handsama og
lögreglan segist hafa í höndum
sannanir um að þeir hafi notað
. Elizabeth von Dyck. sem lýst var
vestur-þýzka kaupsýslumanninum
7. var skotin til bana í íbúð í
íbúðina. Þeir eru auk ungfrú von
Dyck: Christian Klar, Adelheid
Schulz, Rolf Heissler, Monika
Helbing og Werner Lotze.
Ibúin fannst eftir bankarán í
Núrnberg í síðasta mánuði. Ræn-
ingjarnir komust undan með
210.000 mörk og grunur lék á að
þeir væru hryðjuverkamenn. Lög-
reglan dreifði 100.000 flugumiðum
með myndum af hryðjuverka-
mönnunum sex sem lýst var eftir.
Upplýsingar frá almenningi
leiddu til þess að lögreglan fann
íbúðina.
Ungfrú von Dyck var dóttir
vélfræðings, dvaldist á bernskuár-
um sínum í Uruguav og gerðist
hjúkrunarkona að loknu námi í
Þýzkalandi. Hún trúlofaðist fé-
laga úr Baader-Meinhof samtök-
unum, Klaus Júnschke, sem var
dæmdur í ævilangt fangelsi 1977
fyrir morð og bankarán. Hann tók
þátt í sprengjuárás á aðalstöðvar
Bandaríkjahers í Evrópu í Heidel-
berg 1972.
Sprengju-
maður tekinn
höndumíÓsló
ÓhIó, 5. maí. (rá Jan Erik
Lauri. fréttaritara Mbl.
LÖGREGLAN handtók í gærdag
19 ára gamlan mann, sem hefur
viðurkennt að hafa komið
sprengju fyrir í miðborg Ósióar
1. maí s.l. Við sprenginguna
slösuðust tveir, en hvorugur lífs-
hættulega.
Ungi maðurinn, sem er nemandi
í menntaskóla hér, sagðist hafa
stolið dýnamiti og hvellhettum
hjá verktökum sem eru að vinna
að ýmsum umbótum í miðborg-
inni. „Ég ætlaði aðeins að láta
fólki bregða, hafði alls ekki í
hyggju að skaða neinn," sagði
maðurinn við yfirheyrslur hjá
lögreglunni í gær. Hann er félagi í
ný-nazistahreyfingu hér í Ósló,
sem hefur fært sig nokkuð upp á
skaftið á undanförnum misserum
með ýmiss konar óknyttum.
Wayne aftur
með krabba
Loh Angelen. 5. maí. Reuter.
ÞRIÐJA barátta leikarans
John Wayncs gegn
krabbameini cr hafin.
La knar hans sögðu honum í
gær að krabbameinsfrumur
hefðu fundizt í vefjum sem
voru fjarlægðir úr innyflum
hans í skurðaðgerð í vikunni.
Læknarnir sögðu að hann
yrði að vera í nokkrar vikur í
sjúkrahúsi. Aðspurður
hvernig Wayne hefði tekið
fréttinni um þriðja krabba-
meinskastið sagði talsmaður
sjúkrahússins: „Hann leit út
eins og hann hefði dottið af
hestbaki."
Fyrir fjórum mánuðum var
gallblaðra hans fjarlægð þar
sem krabbameinsæxli fannst í
maganum. Hluti vinstra lunga
hans var fjarlaegður fyrir 14
árum.
VERKFALL
* Ljósmynd: ÓI.K.M.
Tóku sendi-
ráð í San-
Salvador
San Salvador. El Salvador.
5. maí. AP — Reuter.
HERSKÁ hreyfing, sem er óvin-
veitt stjórn E1 Salvadors, lýsti í
dag ábyrgð sinni á töku sendi-
ráða Frakklands og Costa Rica í
San Salvador. Lýstu samtökin að
taka sendiráðanna hefði farið
„friðsamlega“ fram, en stjórn E1
Salvador skýrði hins vegar frá
því, að „vel vopnum búnir hryðju-
verkamenn“ hefðu beitt ofbeldi
við töku sendiráðanna og sært
franskan sendiráðsvörð alvar-
lega. Tóku hryðjuverka-
mennirnir um 30 manns í gísl-
ingu í árásunum og eru sendi-
herrar beggja rikjanna meðal
gíslanna.
Til átaka kom milli lögreglu og
hryðjuverkamanna við sendiráðin
og seinna sló einnig í brýnu milli
lögreglu og annarra félaga í hreyf-
ingu þeirri er tók sendiráðin og
féllu tveir lögregluþjónar og
öryggisvörður í þeim átökum en
átökin urðu í nágrenni sendiráð-
anna.
Samtökin sem tóku sendiráðin
nefnast „byltingarbiokkin“ og
kváðust liðsmenn í símtali frá
franska sendiráðinu vera vopn-
lausir. Tilgang aðgerðanna sögðu
þeir vera þann að krefjast lausn-
ar fimm leiðtoga samtakanna er
hnepptir hefðu verið í fangelsi
síðustu tvær vikur.
Öryggi
í flugi
eykst
New York. 5. ma(. AP.
ÖRYGGI í áætlunarflugferðum í
heiminum í fyrra var nálægt meti
sem var sett 1977 að sögn
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar
(ICAO).
Manntjón fyrir hverjar 100
milljónir farþega og kílómetra á
árinu var aðeins 0.08 miðað við
0.07 1977. Á árinu fórust 23
áætlunarflugvélar og með þeim
652 manns miðað við 24 flugvélar
og 516 manns 1977.
Þrjátíu slys urðu á leiguflugvél-
um og 464 fórust 1978 miðað við 40
slys og 832 dauðsföll árið áður.
Flugumferð hefur aukizt um
10% að meðaltali síðustu fimm ár.