Morgunblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÖTTABLAÐI
Jóhannos Páll páfi 2. ásamt Stefan Wyszynski kardínála (t.h.) og Stanislaw Barela
biskupi fagna mannfjöldanum í borginni Czestochowa í Póllandi.
Páfií
Póllandi:
DC-10 enn
í flugbann?
Wa«hington; 5. júní AP — Reuter
BANDARÍSKI alríkisdómarinn Aubrey Robinson úrskurðaði í dag
að kröíu samtaka bandarískra flugíarþega, að engar þotur af
gerðinni DC-10, sem skráðar eru í Bandaríkjunum, mættu fljúga
fyrr en bandaríska loftferðaeftirlitið hefði sannað fyrir sér, að
þessar flugvélar væru öruggar.
Nokkrum mínútum eftir að
þessi úrskurður var kveðinn upp
féllst dómarinn á að taka málið
upp að nýju í fyrramálið og hlýða
á röksemdir loftferðaeftirlitsins,
sem telur, að flugvélar þessar séu
örugg farartæki og að allt hafi
verið gert til að tryggja öryggi
þeirra og farþega um borð í þeim.
Vélarnar verða í flugbanni til 11.
júní snúist dómaranum ekki
hugur, þegar hann heyrir rök-
semdir loftferðaeftirlistsins. Komi
ákvörðun þessi til framkvæmda,
mun hún hafa áhrif á starfsemi
Flugleiða, þar sem DC-10 þota
félagsins er skráð í Bandaríkjun-
um.
í gær skipaði bandaríska loft-
ferðaeftirlitið svo fyrir, að um 20
þotum af gerðinni DC-10 skyldi
ekki flogið fyrr en ný ítarleg
rannsókn hefði verið gerð á
hreyfilfestingum á vængjum
þeirra. Flestar þessara véla höfðu
verið skoðaðar í kvöld og eru
taldar flughæfar. Þetta er í þriðja
sinn á einni viku, sem bann er lagt
við flugi þessara véla.
Ástæða þessarar ákvörðunar
var sú, að komið hefur í ljós, að
ekki var fylgt nákvæmlega réttum
reglum, þegar þota sú af þessari
gerð sem fórst við Chicago flugvöll
fyrir skömmu var skoðuð í marz
sl. Var óttast að þær 20 vélar, sem
ákveðið var að skoða á ný, hefðu
fengið sömu meðferð viðhalds-
manna og sú sem fórst, og þyrftu
því sérstakrar skoðunar með.
Skorar á stjórnina
að virða kristna trú
Varsárborg, 5. júní. AP — Reuter
JÓHANNES Páll páfi 2. sem nú er í heimsókn í heimalandi sínu
Póllandi, skoraði í dag á kommúnistastjórnina í Póllandi að virða
réttindi og trú kristinna manna í landinu, jafnvel þótt lífsviðhorf
þeirra væru „algerlega á öndverðum meiði“ við skoðanir marxista.
Páfi varaði stjórnina við því, að pólska kirkjan myndi halda áfram að
berjast fyrir því að „grundvallarmannréttindi“ væru virt, öllum
Pólverjum að gagni.
voru saman komnir mörg þúsund
verkamenn úr námahéruðunum í
Slésíu.
I kvöld messaði páfi á ný og
helgaði messuna sáttum milli
þjóða heims og virðingu þeirra
hver fyrir annarri. Talið er að um
hálf milljón manna hafi hlýtt á
þessa kvöldmessu.
Sjá „500.000
bls. 47.
krupu
á
Að sögn stofnunar þeirrar í
Bandaríkjunum, sem fjallar um
öryggi í samgöngum, hafa flug-
virkjar tekið hreyfla og hreyfil-
festingar þessara flugvéla í einu
lagi af vængjunum í stað þess að
taka þessa hluti af hvern í sínu
lagi, eins og fyrir er lagt í reglum
framleiðanda vélanna. Er talið að
þessi vinnubrögð hafi getað leitt
til þess að sprungur komu í ljós á
hreyfilfestingunum, en slíkar
sprungur hafa fundist á a.m.k.
tveim bandarískum DC-10 þotum
við skoðun undanfarið og er nú
talið mjög líklegt að sprungur sem
þessar hafi orsakað flugslysið í
Chicago.
Ræða þessi var flutt á fjórða
degi heimsóknar hans til Póllands,
en þar hefur honum hvarvetna
verið tekið með kostum og kynjum
og fagnað sem þjóðhetju. Ræðan
var haldin á fundi með hinum 70
biskupum landsins. Henni hefur
verið tekið tómlátlega af yfir-
völdum landsins og sama er að
segja um yfirvöld og frétta-
stofnanir í öðrum Austur-Evrópu-
ríkjum, sem vart hafa gefið ferð
páfa til Póllands nokkurn gaum.
Páfi byrjaði daginn með guðs-
þjónustu í viðurvist 5000 pólskra
nunna, en um hádegið blessaði
hann 300 þúsund pílagríma, sem
komu til að fagna honum í borg-
inni Czestochowa. Síðar messaði
hann við útiguðsþjónustu þar sem
Rithöfundum
hótað í íran
Theran, 5. júní. Reuter. AP.
RUHOLLAH Khomeini ayatollah í íran hótaði í dag rithöfundum og
menntamönnum í landinu tortímingu ef þeir snerust ekki til
afdráttarlausrar hlýðni við Islam. Trúarleiðtoginn flutti ræðu í hinni
helgu borg Qom í tilefni þess að 16 ár voru liðin frá því trúarleiðtogar
í landinu gerðu uppreisn gegn keisaranum.
Khomeini vitnaði til þess að
hann hefði þá sagt keisaranum að
ef hann þjónaði ekki fólkinu í
landinu myndi honum sparkað.
Sagði Khomeirii að sama yrði gert
við alla þá aðra sem ekki ynnu
fyrir almenning og styddu við
bakið á lýðveldi Islams í íran.
Dagurinn í dag var lýstur
almennur frídagur í íran til þess
að fólk gæti minnzt afmælis upp-
reisnarinnar sem gerð var árið
1963. Allar verzlanir og skrifstof-
ur voru lokaðar og þúsundir
íslamskra byltingarmanna flykkt-
ust út á götur Teheran og annarra
borga.
Uppkast að nýjum lögum um
prentfresli voru kynnt í Teheran í
gær. Þar er m.a. gert ráð fyrir allt
að þriggja ára fangelsi fyrir að
móðga trúar- eða byltingarleið-
toga á prenti.
Arni Óla látinn
ÁRNI ÓLA blaðamaður lést á
Borgarspítalanum í Reykjavík í
gærkvöldi eftir skamma sjúkra-
húslegu. Hann varð 90 ára að
aldri, fæddur 2. desember 1888 á
Víkingavatni í Kelduhverfi.
Árni Óla gerðist starfsmaður
við Morgunblaðið þegar við stofn-
un þess árið 1913. Hann var
blaðamaður við Mbl. 1926 til 1936,
auglýsingastjóri 1937—1945, en
tók þá aftur til við blaðamennsku
á Morgunblaðinu. Árni Óla var
ritstjóri Lesbókar Morgunblaðs-
ins 1926-1936 og 1945-1961.
Eftir Árna Óla liggja mörg rit
auk þess sem hann þýddi margar
bækur. Árni Óli var heiðursfélagi
í Blaðamannafélagi íslands og
Stórstúku íslands. Hann var
fyrsti blaðamaður á íslandi, þ.e.
fyrstur til að gerast starfsmaður
á ritstjórnarskrifstofu, en áður
voru þar ritstjórar einir að störf-
um, eins og tíðkaðist á viku-
blöðum.
Árni Óla skrifaði fjölda greina
bæði í Morgunblaðið og Lesbók,
en ritstjóri hennar var hann um
langt skeið og setti persónulegt
svipmót á hana með greinum
sínum og efnisvali. Árni Óla
skrifaði öðru meir þætti úr þjóð-
lífinu, sem urðu vinsælir með
afbrigðum, ekki sízt greinar hans
um gömlu Reykjavík. Hann skrif-
aði einnig margar bækur með
þjóðlífsefni, þ.á m. ritverk um
Reykjavík, sem hlutu miklar vin-
sældir.
Árna Óla var í röð fremstu
blaðamanna landsins um margra
áratuga skeið og náinn samstarfs-
maður ritstjóra Morgunblaðsins,
ekki sízt Valtýs Stefánssonar,
sem hafði löngum mikinn og
sérstakan áhuga á Lesbók
Morgunblaðsins og fylgdist ræki-
lega með starfi Árna. Voru störf
hans ávallt mikils metin af ráða-
mönnum Morgunblaðsins ekki
síður en lesendum, og sinnti Árni
greinaskrifum í Lesbók til hinzta
dags. Þar hefur undanfarið birzt
greinaflokkur eftir hann. Er svo
langur starfsferill einsdæmi og
sýnir hvort tveggja í senn, ein-
stakt starfsþrek þessa áhugasama
blaðamanns og rithöfundar og
vinsældir hans.
Árni Óla var tvíkvæntur. Hann
lætur eftir sig börn og sendir
starfsfólk Morgunblaðsins og
stjórnendur þeim og fjölskyldu
hans samúðarkveðjur og þakkar
hinum látna blaðamanni frábært
starf og óbilandi vináttu, sem
aldrei bar skugga á. Hann
skrifaði þætti úr sögu Morgun-
blaðsins, sem öðrum þræði voru
æviminningar hans, Erill og ferill
blaðamanns, skrifaðar og út-
gefnar í tilefni hálfrar aldar
afmælis Morgunblaðsins 1963.
Árni Óla var Morgunblaðs-
maður af lífi og sál. Hans er sárt
saknað.