Morgunblaðið - 06.06.1979, Side 5

Morgunblaðið - 06.06.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979 Varaforsætisráðherra Kína á íslandi: Heimsækir fyrirtæki í dag og ræðir við ráðherra á morgun Varaforsætisráðherra Kína er um þessar mundir í opinberri heimsókn á íslandi, en hann kom til Keflavíkur með þotu Flugleiða frá Osló annan hvítasunnudag. Geng Biao varaforsætisráðherra og Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræddu saman í gær morgun og um hádegið sat hann boð forsetahjónanna að Bessastöðum. Síðdegis í gær fór varaforsætisráðherrann ásamt fylgdarliði sínu til Þingvalla. Séra Eiríkur J. Eiríksson þjóðgarðsvörður greindi þar frá staðháttum og síðan var móttaka í Hótel Valhöll. í gærkvöldi sat hann boð ríkisstjórnarinnar að Hótel Sögu. Geng Biao varaforsætis- ráðherra Kína. Dagskráin í dag hefst með heimsókn ráðherrans í frystihúsið ísbjörninn og kl. 11 verður farið með varðskipinu Tý að Grund- artanga, járnblendiverk- smiðjan skoðuð og þeginn þar hádegisverður. Síðan verður siglt um Hval- fjörðinn ef veður leyfir og eftir komuna til Reykja- víkur verður dælustöð hitaveitunnar að Reykj- um skoðuð og í kvöld býður Reykjavíkurborg gestunum til kvöldverðar. A morgun hefst dagskráin með heimsókn í Stofnun Árna Magnússonar, Þjóð- minjasafnið og Listasafn íslands og síðdegis verður rætt við ráðherra að lok- inni heimsókn í álverið. Skipulögð dagskrá verður ekki á föstudaginn, en á laugardagsmorgun halda gestirnir utan að nýju. Farmanna- og f iskimannasam- band íslands: Ráðherrar bera á borð stórvíta- verðar blekkingar FARMANNA- og fiski- mannasamband íslands hefur sent Morgunblaðinu athugasemd vegna yfirlýs- inga ráðherra Fram- sóknarflokksins í fréttum af blaðamannafundi forystu Framsóknar- flokksins fyrir helgina. Yfirlýsingin er svohljóð- andi: „Vegna ályktunar fram- kvæmdastjórnar Framsóknar- fiokksins, sem tveir af ráðherrum flokksins skýrðu frá á fundi með fréttamönnum, vill samninga- Dregið í happdrætti Fáks DREGIÐ hefur verið í happdrætti Kvennadeild- ar Hestamannafélagsins Fáks og kom reiðhestur á miða númer 500. Annar vinningur, flugfar fyrir tvo til Kaupmannahafn- ar eða London með Flug- leiðum eftir eigin vali, kom á miða nr. 4500 og þriðji vinningur, flugfar fyrir tvo innanlands með Flugleiðum fram og til baka eftir eigin vali, kom á miða nr. 2500. Yrstyður FFSÍ FJÖLSKYLDUFÉLAG landhelg- isgæzlumanna, „ÝR“, samþykkti á fundi, sem haldinn var 28. maí að lýsa einróma stuðningi við aðgerð- ir í kjarabaráttu Farmanna- og fiskimannasambands íslands. Þá lýsti fundurinn einnig andúð á auglýsinga- og áróðursherferð þeirri, sem Vinnuveitendasam- band Islands hefur staðið fyrir. nefnd farmanna koma eftirfar- andi athugasemd á framfæri. Augljóst er, að á umræddum fundi Framsóknarflokksins hefur verið leitað samþykkis framkvæmdastjórnar flokksins á fyrirhuguðum aðgerðum ríkis- stjórnarinnar með setningu bráöabirgðalaga, sem m.a. er ætlað að ná til kjaradeilu far- manna og svipta þá samningsrétti sínum. Forsendur þær, sem gefnar eru og tilgreindar sem sérstök áherzluatriði fyrir samþykktinni eru auk harðinda, áburðar- og kjarnfóðurskortur vegna verfalla farmanna. Hér er svo freklega hallað réttu máli, að stórvítavert verður að teljast, þegar ráðherrar leyfa sér að bera fram slíkar blekkingar bæði fyrir alþjóð og til að fá samþykki framkvæmda- stjórnar flokksins fyrir heimild til þeirrar árásar á samningsrétt farmanna, sem lengi hefur verið í undirbúningi. Staðreyndin er hins vegar sú, að með tilliti til hinna miklu erfið- leika, sem bændur og fleiri hafa átt við að stríða og þrátt fyrir fjandskap ríkisstjórnar, hafa far- menn heimilað alla þá fóður-, áburðar- og olíuflutninga, sem óskað hefur verið eftir til þessara svæða, auk þess að heimila siglingar strandferðaskipanna." Hestaþing Mána um helgina HESTAMANNAFÉLAGIÐ Máni á Suðurnesjum heldur Ilestaþing á Mánagrund við Garðveg 9. og 10. júnf n.k. Dagskráin hefst á laugardag klukkan 14 með því að dæmt verður í A- og B-flokki sem síðan keppa, og sýna unglingar á 300 metra hringvelli. Á sunnudag klukkan 14 verða kappreiðar á 800 metra beinni grasbraut. Keppt verður í 800 metra brokki, 250 metra skeiði, 250 metra ung- hrossahlaupi, 350 metra stökki og 800 metra stökki. Loks verða úrslit í keppnisgreinum og dómum lýst. Þátttöku í keppnisgreinum þarf að tilkynna í síma 1343 í Keflavík fyrir n.k. föstudag. Sportjakkar 1) Flauel 22.500 2) Bómull 19.900 3) Bómull 14.900 4) Flauel 22.500 4) 22.500.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.