Morgunblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
Bandaríkjanna:
„Við bíðum þess að hval-
veiðibátamir leggi úr höfn”
Þórdís
Bachmann
ráðin
blaðafulltrúi
Peter Masson skipstjóri á Rainbow.
BLAÐAMENN Morgunblaðsins
litu við um borð í Rainbow
Warrior á ytri höfninni í
Reykjavík í gær og ræddu við
skipstjórann, en skipsmenn
hyggjast sem kunnugt er reyna
að hindra veiðar íslenzka hval-
veiðibátaflotans við landið. Þær
veiðar eru þó undir eftirliti
vísindamanna og viðurkenndar
af Alþjóða hvalveiðiráðinu.
Peter Masson skipstjóri sagði
að á skipinu væri 20 manna
áhöfn, en ekki kvaðst hann vita
hve lengi skipið myndi verða á
íslandsmiðum.
„Við ætlum að elta hvalveiði-
flotann og reyna að hindra
veiðar hans,“ sagði Peter, „við
erum í rauninni ekki á móti
hvalveiðum íslendinga í sjálfu
sér því þær eru mjög á annan
veg en þeirra þjóða sem drepa
allar hvalategundir sem þær
geta náð í. Við erum fyrst og
fremst að mótmæla Rússum og
Japönum og íslendingar fylgja
þeim algjörlega að málum í
afstöðu til hvalveiða.
Greenpeace samtökin sem eiga
Rainbow Warrior gera einnig út
togara af svipaðri stærð við
Vesturströnd Bandaríkjanna þar
sem reynt er að hindra veiðar á
mörgum tegundum hvala.“
Það eru aðilar í Hollandi
aðallega, Englandi og víðar sem
kosta útgerð þessara skipa, en
fólk af ýmsum þjóðernum skipa
Rætt við
skipstjórann
á Rainbow
Warrior
áhafnir kauplaust. Um borð í
Rainbow eru 20 manns frá 8
löndum.
Peter skipstjóri var ekki með
Rainbow s.l. ár hér við land en
nú kvað hann skipið betur búið
tækjum til að trufla veiðar. M.a.
væri nýr radar um borð og mjög
vel búinn stór hraðbátur sem
gæti gengið um 30 mílur. Á
honum er gert ráð fyrir þriggja
manna áhöfn. Þá eru fjórir
gúmmíhraðbátar um borð af
svipaðri stærð og íslenzka land-
helgisgæzlan hefur um borð í
varðskipunum.
Peter skipstjóri hvað hinar
stóru hvalveiðiþjóðir veiða mjög
grimmt við Spán, Afríku og
víðar og víða um heim væru
fyrirtæki sem japanskir aðilar
hefðu sett upp til þess að stunda
hvalveiðar í stórum stíl. Þegar
blaðamaður Mbl. spurði af
hverju Greenpeace beitti sér
ekki gegn þessum þjóðum frem-
ur en íslendingum, svaraði Peter
að þeir hefðu ekki tækjabúnað í
Þórdís Bachmann hefur verið
ráðin blaðafulltrúi Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna og tekur
hún við því starfi af Mik Magnús-
syni sem lætur af störfum 22. júní
n.k. Þórdís hefur starfað í Banda-
ríkjunum undanfarin ár.
Þórdís Bachmann
Þessi sórsmíðaði hraöbátur á bilfari Rainbow Warrior veröur
aöaltæki Greenpeace manna viö aö veita hvalbátunum íslenzku
eftirför, en báturinn er búinn tveimur 150 ha Mercury utanborös-
mótorum og getur siglt á um 30 mílna ferð. Bátar af bessari gerö
eru mjög dýrir en þeir hafa m.a. talsvert veriö notaöir til olíuleitar á
Noröursjó. Ljósmyndir Mbl. Emilía.
það ennþá, en ýmislegt væri á
döfinni. „Við munum þó ekki
gera neitt með miklum látum,
friðsamleg mótmæli eru okkar
stíll. Við gerum okkur grein
fyrir því að þetta tekur langan
tíma, því fólk veit svo lítið um
hvalveiðarnar og þá hættu sem
stofnarnir eru í. Vísindamenn
vita til dæmis ekkert um stærð
flestra stofnanna, aðeins fjölda
veiddra dýra og við það eru
veiði'leyfin sums staðar miðuð,
þ.e. að veiða eins mörg dýr og
veidd hafa verið um langan tíma
á hverju ári. Spurningin er hins
vegar hvort stofninn þolir það og
á meðan sú spurning er uppi
munum við halda áfram frið-
samlegri baráttu okkar. Hitt er
svo að við munum reyna eins og
eðlilegt er að hindra þessar
veiðar og til þess erum við hér
nú og bíðum eftir því að hval-
veiðiflotinn leggi úr höfn. Við
höfum heyrt að tvö skipanna séu
tilbúinn til veiða og við erum
tilbúnir til eftirfarar."
11 umsóknir
um starfdag-
skrárstjóra
UM MÁNAÐAMÓTIN rann út
umsóknarfrestur um starf dag-
skrárstjóra lista og skemmti-
deildar sjónvarps. Umsækjendur
eru 11 talsins og eru það eftir-
taldir:
Bryndís Schram,
Elínborg Stefánsdóttir,
Erlingur Gíslason,
Erlingur E. Halldórsson,
Hinrik Bjarnason,
Hrafn Gunnlaugsson,
Jens Pétur Þórisson,
Jón Örn Marínósson,
Ragnar Jónsson,
Ragnhildur Óskarsdóttir,
Tage Ammendrup.
Útvarpsstjóri veitir starfið en
áður mun útvarpsráð fjalla um
umsækjendur.
B- listinn
sigraði
381 kusu í stjórnarkjöri
Verslunarmannafélags Suður-
nesja sem fram fór 30. og 31.
maí. A-listinn, listi fráfarandi
stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs hlaut 185 atkvæði en
B-listi, borinn fram af Val-
garði Kristmundssyni, Magn-
úsi Gíslasyni og fleirum, hlaut
190 atkvæði. Auðir seðlar og
ógildir voru 6.
4 sœkja um
prófessors-
embœtti í
félagsfrœði
FYRSTA júní sl. rann út umsókn-
arfrestur um prófessorsembætti í
félagsfræði við félagsvísindadeild
Háskóla íslands. Fjórir sækja um
embættið en það eru: Björn Stef-
ánsson lic. argic., Dóra S. Bjarna-
son M.A., Þorbjörn Broddason
lektor og dr. Þórólfur Þórlindsson
lektor.
Menningarstofnun