Morgunblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 16
Hvítasunnukapp-
reiðar Fáks 1979
HestamannafélaKÍð Fákur hélt
sínar árlegu hvítasunnukappreið-
ar mánudatíinn 4. júní, annan í
hvítasunnu. f'jölmennt var í
áhorfendabrekkunni og má giska
á að þar hafi verið milli eitt o(í tvö
þúsund manns. Veður var hið
besta um 10 stiga hiti og lygnt
þegar á daginn leið. 115 hestar
voru skráðir til keppni og þar af
48 í skeið og er það greinilegt
merki um uppgang skeiðsins.
Dagskráin hófst með sýningu
gæðinga 12 vetra og eldri. Voru
þarna á ferðinni hestar sem stóðu
framarlega í gæðingakeppnum á
árunum 1965—1974. Þeir elstu eru
26 v. Virðist ótrúleg ending í
þessum gömlu hestum, enda er
sjálfsagt vel við þá gert. Þessari
sýningu var vel tekið meðal áhorf-
enda og sjálfsagt vakið upp góðar
endurminningar hjá mörgum frá
liðnum árum.
Að þessu loknu, voru kallaðir
upp gæðingar félagsins, er dæmd-
ir voru laugardeginum áður. Því
miður mættu alltof fáir og mættu
sýnendur gjarnan temja sér meiri
stundvísi.
Efstur í flokki alhliða gæðinga
varð Garpur 9 v. frá Oddsstöðum,
eigandi Hörður G. Albertsson og
knapi Sigurbjörn Bárðarson.
Garpur hlaut einkunnina 8,76.
Annar varð Váli 8 v. úr Eyja-
firði, eigandi Vála er Sigurbjörn
Bárðarson en knapi var Trausti
Þór Guðmundsson, Váli hlaut
einkunnina 8,41.
I þriðja sæti með einkunnina
8,35 varð svo Ljúfur 21 v. frá
Kirkjubæ, eigandi Hörður G.
Albertsson og knapi' Sigurbjörn
Bárðarson. Ljúfur er margreynd-
ur keppnishestur í skeiði og virðist
hann lítið láta sig þrátt fyrir háan
aldur.
I flokki klárhesta með tölti var
keppni geysijöfn um þrjú efstu
sætin. Að sögn Sigurðar Haralds-
sonar formanns dómnefndar, varð
að margreikna einkunnir tveggja
efstu hestanna og þegar upp var
staðið skildi aðeins hálft stig þá
að.
Efstur varð að þessu sinni Máni
7 v. frá Eiríksstöðum með
einkunnina 8,67, eigandi og knapi
Mána var Hrafn Vilbergsson.
í öðru sæti varð Brjánn 9 v. frá
Sleitustöðum, eigandi er Hörður
G. Albertsson en knapi Sigurbjörn
Bárðarson og var hann einu broti
lægri í einkunn en Máni eða 8,66.
Fast á hæla þessara tveggja fylgdi
svo Sámsstaða-Skjóni 13 v. frá
Sámsstöðum í Fljótshlíð, með
einkunnina 8,62, eigandi hans er
Árni Sigurðsson en knapi Eyjólfur
ísólfsson.
Meðal hesta sem sýndir voru í
B-flokki var sá frægi Hannibal frá
Stóra-Hofi. Reiknuðu margir með
honum í verðlaunasæti, því eins og
menn muna þá var hann dæmdur
5. besti B-flokks hestur á síðasta
landsmóti. Þess má einnig geta að
Hannibal var sennilega einn dýr-
asti gæðingur landsins, þegar
hann var seldur á síðasta lands-
móti.
Þegar litið er yfir úrslitin í
þessari gæðingakeppni vekur það
athygli, að af sex verðlaunasætum
eru hestar úr hesthúsi Harðar G.
Albertssonar í fjórum þeirra.
Svipuð staða kom upp í fyrra.
Virðist greinilegt að Sigurbjörn
Bárðarson og félagar standi öðr-
um framar í þjálfun og tamningu
gæðinga.
Unglingar kepptu í tveimur
flokkum. I flokki 13 til 15 ára urðu
úrslit þau að Tómas Ragnarsson
sigraði með einkunnina 8,69, í
öðru sæti varð Ester Harðardóttir
með 8,48 og í þriðja sæti varð
Magnús Arngrímsson með 8,25. í
flokki 10 til 12 ára sigraði Jóhann
Guðmundsson með einkunnina
8,16, í öðru sæti varð Dagný
Ragnarsdóttir með 7,88 og í þriðja
sæti Guðmundur Valsson með
7,38.
Að þessu loknu settist Hjalti
Pálsson í þularklefann og þá voru
byrjaðar kappreiðar. Eins og
venja er hófust kappreiðarnar
með 800 m brokki. Þátttakendum i
brokki virðist alltaf fara fjölg-
andi, en því miður virðast gæðin
ekki aukast að sama skapi heldur
þvert á móti. Af 19 keppendum,
hafði tæpur helmingur eitthvert
erindi í keppni, enda fór þulur
ekki í launkofa með álit sitt á getu
hestanna. Eins og á vorkappreið-
Hestar
unum sigraði Blesi frá Miðey
Valdimars Guðmundssonar á
1.47,8 mín. Annar á 1.50,0 mín.
varð Stjarni frá Litla-Vatnshorni,
en þess má geta að hann er undan
Lýsingi 409 frá Voðmúlastöðum.
Eigandi og knapi var Ómar
Jóhannsson. Þriðji varð svo
Skuggabaldur á 1.55,5 mín, eig-
andi hans er Guðlaugur T. Karls-
son en knapi Karl H. Guðlaugsson.
I 800 m stökki voru skráðir
margir þekktir hlaupahestar og
mátti búast við harðri keppni þar.
En það fór á annan veg. Einn
hestur, Þróttur, var þar í sér-
flokki, en hann sigraði á 62,5 sek.
Hafði áður hlaupið á 61,7 í undan-
rásum. Eigandi og knapi Þróttar
er Tómas Ragnarsson. Annar varð
Reykur Harðar G. Albertssonar á
63,3 sek. Knapi var Sigurður
Sæmundsson sem er nú þekktari
fyrir að ríða skeiðhestum. Er
þetta frumraun Reyks í 800 m
Knapar þriggja bestu
skeiðhestanna á kapp-
reiðunum taka hestana
til kostanna. Næst
grindverkinu er Skjóni,
knapi Albert Jónsson,
þá Fannar, knapi
Aðalsteinn Aðalsteins-
son og Vaíi, knapi
Erlingur Sigurðsson.
Ljósm. Valdimar
Kristinsson.
stökki og má segja að þetta sé góð
byrjun. í þriðja sæti varð svo
Tinna á 63,9 sek. Eigandi Tinnu er
Þórdís H. Albertsson, en knapi
Hörður Harðarson.
Eins og áður sagði var mikil
þátttaka í skeiðinu, og öfugt við
brokkið þá virðast gæðin aukast
samhliða auknum fjölda kepp-
enda.
Farnar voru tvær umferðir í
skeiðinu. Eftir fyrri sprett var
raðað í riðla eftir tíma. Út úr
þessu kom sterkur riðill, en í
honum voru eftirtaldir hestar
(innan sviga tímar úr fyrri riðli):
Skjóni (22,8), Fannar (22,9), Vafi
(23,8), Þór (24,0), Villingur (24,2)
og Austri (24,3). Hestunum var
raðað á ráslínu eftir tíma, þannig
að Skjóni var á fyrstu braut en
Fannar á annarri braut. Það var
fróðlegt að sjá hvernig Fannari
tælcist upp á annarri braut, en
hann er vanur að hlaupa alltaf á
fyrstu braut, og það kom á daginn
að Fannar stökk upp í þessum
spretti. Bestum tíma í skeiðinu,
22.8 sek., náði sem sagt Skjóni frá
Móeiðarhvoli, eign Helga Val-
mundssonar, en knapi var Albert
Jónsson. Annar varð Fannar á
22.9 sek., eigandi Hörður G.
Albertsson og knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson, og þriðja besta
tímanum náði svo Vafi Erlings
Sigurðssonar, 23,8 sek.
1 350 m stökki voru einnig stór
nöfn á ferðinni, og mikil spenna
ríkjandi. Þó fór það svo að tiltölu-
lega óþekktur hestur sigraði nokk-
uð örugglega. Sá heitir Óli frá
Neðra-Dal. Hljóp hann vegalengd-
ina á 25,1 sek. hafði hlaupið á 25,0
í undanrásum. Eigandi Óla er
Guðni Kristinsson, Skarði, en
knapi var Þórður Þorgeirsson.
Önnur varð Gjálp frá Laugarvatni
á 25,7 sek., eigendur eru Gylfi
Þorkelsson og Þorkell Bjarnason.
Knapi var Tómas Ragnarsson. í
þriðja sæti varð svo Kóngur á 26,0
sek., eigandi Kóngs er Jóhannes
Jóhannesson en knapi var Einar
Karelsson.
Keppni í 250 m unghrossahlaupi
var nokkuð hörð. Sigurvegari þar
varð Ljúfur, eign Ásgeirs Guð-
mundssonar, knapi var Reynir
Steinarsson. Hljóp hann vega-
lengdina á 18,9 sek. Annar varð
Don Harðar G. Albertssonar á
19,1, knapi á Don var Hörður
Harðarson. Jafnir í 3.-4. sæti
voru Leó Baldurs Baldurssonar og
Cesar Herberts Ólafssonar. Dóm-
nefnd vildi láta draga um verð-
launasætið en knaparnir þeir Ein-
ar Karelsson á Cesari og Björn
Baldursson á Leo voru á öðru
máli. Fór svo að þeir kepptu um
þriðja sætið og þar hafði Leo
betur. Þessir hestar hlupu á 19,3
sek.
Síðasta atriðið var svo 150 m
víðavangsskeið og er þar fyrir lítið
reynda skeiðhesta. Þar lágu aðeins
tveir hestar. Garpur, sá sami er
hlaut 1. verðlaun í A-flokki gæð-
inga, náði bestum tíma, 16,2 sek.,
knapi var Aðalsteinn Aðalsteins-
son. Næstbestum tíma náði svo
Andvari Halldórs Sigurðssonar,
knapi var gamla kempan Halldór
Jónsson, hljóp hann á 21,0 sek. Að
afloknum hlaupum fór fram verð-
launaafhending. V.K.
Þrír efstu hestar í
flokki alhliða gæðinga.
Sá með bikarinn er
Sigurbjörn Bárðarson,
sem sat Garp, við hlið
hans er Váli, sem
Trausti Þór Guðmunds-
son situr og þá Ljúfur,
knapi Aðalsteinn
Aðalsteinsson.