Morgunblaðið - 06.06.1979, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
500 ÁRA AFMÆLIHAFNARHASKOLA:
Stúdentar í mótmælapeysum
og prúðbúnir gestir snæddu
saman undir berum himni
„ÞESSI mótmæli stúdentanna settu auðvitað sinn
blæ á hátíðahöldin, aHavega þá þætti þeirra, þar
sem stúdentarnir komu við sögu. En þessi
mótmæli íóru að mestu friðsamlega fram og við
erlendu gestirnir urðum ekki fyrir neinni
áreitni. Ég held að Danir sjálfir hafi frekar tekið
sér þetta nærri en við og fyrir sjálfan mig voru
þessi hátíðahöld afskaplega skemmtilegur at-
burður, frjálslegur og eðlilegur“, sagði Guðlaug-
ur Þorvaldsson háskólarektor er Mbl. spurði
hann um hátíðarhöldin í Kaupmannahöfn vegna
500 ára afmælis Hafnarháskóla.
„Mótmæli stúdentanna beind-
ust annars vegar gegn mennta-
stefnunni í Danmörku og hins
vegar niðurskurði á fjárveiting-
um til háskólans, en á ferðum
mínum erlendis að undanförnu
hef ég orðið var við mikinn
pirring meðal stúdenta vegna
þess síðarnefnda sagði
Guðlaugur.
Hátíðarhöldin í Kaupmanna-
höfn hófust með morgunguðs-
þjónustu í Frúarkirkju og að
henni lokinni gengu gestir í fylk-
ingu umhverfis kirkjuna og til
hátíðarsalsins. Stúdentar
smeygðu sér þá í gönguna og voru
flestir klæddir hvítum peysum,
sem framan á báru áletrunina:
„Berjist gegn hinum borgaralega
háskóla", og aftan á þeim stóð:
„Nei við niðurskurðinum". Sungu
stúdentarnir mótmælasöngva.
Lögreglan kvaddi til liðsstyrk og
tókst henni að skilja stúdentana
frá gestunum.
Stúdentunum tókst svo að
komast í garðveizlu, sem haldin
var síðar og sagði Guðlaugur að
þar hefðu kjólklæddir gestir og
stúdentar í gallabuxum og hvít-
Stúdentar
í mót-
mæla-
peysum
smeygja
sór í
göngu
gestanna
kringum
Frúar-
kirkju.
Fremst
gengur
mennta-
mólaréö-
herra
Dana,
Dorte
Bennedsen,
og lengst
til hssgri
lítur rektor
Hafnarhó-
skóla, Erik
Skinhöj,
brosandi
um öxl.
Níu Danir og 17 útlendingar voru sæmdir heiöursdoktorsnafnbótum í
tilefni afmælisins og fimm Danir voru heiöraöir með sérstökum
mínníspeníngi auk pess sem Margrét Danadrotting fókk einn slíkan. Á
pessari mynd er Skinhöj rektor aö afhenda drottingu peninginn.
um peysum neytt morgunverðar
án áreitni gegn hvorum öðrum.
Rektor Kaupmannahafnar-
háskóla Erik Skinhöj brá sér inn
og kom andartak fram á svalir
íklæddur sams konar peysu og
stúdentarnir báru og vakti það
tiltæki hans athygli og einnig
það, að hann skyldi öðru sinni
taka undir mótmælasöng
stúdentanna. Hins vegar þraut
rektorinn þolinmæðina er fulltrúi
stúdenta gerðist of langorður við
athöfn í tónleikasal Tívolís, en
þar var hverjum ræðumanni
ætlaður ákveðinn tími. í ræðu
sinni fór fulltrúi stúdenta hörð-
um orðum um sósíaldemókrata í
Danmörku og er hann hafði talað
nokkuð lengur en til stóð, fór
Skinhöj rektor til hans og bað
hann að ljúka máli sínu. Fulltrúi
stúdenta endurtók þá bara fyrri
ummæli sín og hófu viðstaddir þá
stapp mikið. Guðlaugur Þorvalds-
son sagði að nokkrir gestanna
hefðu gengið út undir ræðu
stúdentsins, en þar hefði verið
um Dani að ræða og einnig hefðu
það verið Danir, sem létu
óánægju sína í ljós með því að
stappa niður fótunum. Hætti
súdentinn þá tölu sinni og hlaut
klapp fyrir.
Aðrir þættir hátíðahaldanna
gengu snurðulaust fyrir sig og er
af frásögnum dönsku blaðanna að
sjá, að þrátt fyrir allt hafi
hátíðarhöldin í heild þótt takast
vel.
Einbýlishús eyðilagðist í eldi á Akureyri:
íbúarnir björguð-
ust á náttklæðunum
Akureyri 2. júní
HÚSIÐ Reynilundur 1 gjöreyðilagðist af eldi í morgun. Það var
einnar hæðar einbýlishús úr steyptum einingum, en klætt innan með
timbri. Þar bjuggu eigendur þess, hjónin Birna Jónasdóttir og
Ilersteinn Tryggvason, ásamt fjórum börnum sfnum og komst
fjölskyldan út á náttklæðum einum, en ómeidd. Engu var bjargað úr
húsinu. Eigendur urðu fyrir gífurlegu tjóni því að húsið var í lágri
smíðatryggingu og innbú var aðeins vátryggt fyrir 400 þúsund
krónur.
húsinu á síðustu stundu.
Um upptök eldsins er ekkert
vitað, en þó virðist sem eldurinn
hafi komið upp í stofu, sem enn
hafði ekki verið tekin í notkun, en
þjónaði sem geymsla..
Einhverjar reykskemmdir urðu
í næsta húsi norðan við, því að í
morgun var sunnan stinningskaldi
og í húsinu vestan við brotnaði
gluggi þegar stofurúðan úr brenn-
andi húsinu sprakk út vegna
hitans. Einnig skemmdist þetta
sama hús lítillega af steypumol-
um, sem sprungu með háum hvell-
um út úr steypueiningunum.
Hersteinn Tryggvason varð
einnig fyrir miklu brunatjóni fyrri
hluta vetrar þegar kviknaði í
verzluninni Femínu, sem hann er
meðeigandi að í Hafnarstræti 98
(Hótel Akureyri). Hann var þá
staddur í verzluninni og bjargaði
lífi sínu með því að brjóta rúðu í
læstri útidyrahurð og stinga sér
þar út. Lykillinn lá á búðarborð-
inu, en ekki var viðlit að ná til
hans þar til þess að opna með
honum — svo bráður var eldurinn.
- Sv. P.
Nágranni fjölskyldunnar varð
var við einhvern hávaða úti fyrir
og leit út, en þá var norðurhluti
hússins alelda. Hann hringdi
strax í slökkviliðið og þá var
klukkan 07.37. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang var eldurinn
kominn um allt húsið og engum
vörnum varð við komið. Þak húss-
ins féll inn norðan til og í stuttu
máli sagt er húsið og allt sem í því
var gjörónýtt, annað en náttklæði
fólksins, sem komst út úr logandi
32 ökumenn
teknir vegna
gruns um ölvun 1
MJÖG mikil ölvun var í
Reykjavík um helgina og átti
lögreglan mjög annrfkt.
Að sögn Rúdolfs Axelssonar
lögregluvarðstjóra voru óvenju
margir ökumenn teknir um
Hvítasunnuhelgina grunaðir
um ölvun við akstur, eða sam-
tals 32.
Slökkvistörfum að mestu lokið og eins og sjó má hefur nær allt brunnið,
sem brunnið gat, og í gegnum þakið sér f himinninn. (Ljósmynd Sverrir
Pálsson).
Mótmæla byggingum
á Landakotstúninu
NOKKRIR áhugamenn um varðveizlu Landakotstúns hafa hafið undir-
skriftasöínun þar sem krafist er af kaþólsku kirkjunni og borgaryfirvöld-
um að þegar verði látið af hugmyndum um byggingar á túninu. Hefur
undirskriftalistum verið dreift í verzlanir í vesturbæ og nokkrar verzlanir
í miðbænum. Á undirskriftaskjalinu er svofelld áskorun til kaþólsku
kirkjunnar og borgarstjórnar Reykjavíkur:
Við undirritaðir skorum á
Kaþólsku kirkjuna á íslandi og
borgarstjórn Reykjavíkur að láta
Landakotstún vera í friði.
Þrátt fyrir áratuga gamla samn-
inga og margendurteknar yfirlýsing-
ar byggingaryfirvalda í Reykjavík
urðu þau ótíðindi í febrúar 1978 að
skipulagsnefnd Reykjavíkur og
borgarráð létu undan kaþólsku
kirkjunni og leyfðu henni að byggja
hús á túninu vestanverðu. Við teljum
þetta óskiljanlegt glapræði af ráða-
mönnum borgarinnar og skorum á
þá að afturkalla þetta byggingar-
leyfi strax og láta túnið standa
óbyggt áfram. Það er eini auði
bletturinn í borginni fyrir vestan
Læk. Það má ekki minnka. Verði nú
leyfðar þarna frekari byggingar er
hætt við að fleiri komi á eftir og þá
hverfur túnið fyrr en varir. Það má
því síður verða.
Gamalthús
ánýjanstað
SAMÞYKKT var á fundi Borgar-
ráðs í gær að flytja húsið númer
40 við Hverfisgötu á lóð á horni
Hellusunds og Bergstaðastrætis,
gegnt Hótel Holti. Húsið er gam-
alt timburhús og nær út í Hverf-
isgötuna. Jafnframt var samþykkt
að auglýsa húsið til sölu og
flutnings á fyrrnefnda lóð.
Brenndu
fánann
TVEIR aðkomumenn í Stykk-
ishólmi tóku niður fslenzka
fánann af stöng við hús sýslu-
mannsins á hvítasunnudag
fóru með hann afsfðis og
brcnndu hann.
Lögreglan náði mönnunum
skömmu síðar. Þeir voru
ódrukknir, en sögðu fánann
hafa farið í taugarnar á sér
vegna þess að hann hefði verið
trosnaður, sem lögreglan í
Stykkishólmi sagði í samtali
við Mbl. að ekki hefði verið.
INNLENT
L. ° -Á