Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 19

Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979 19 V orharðindi seinka varpi VARP sjófugla yfirleitt og einnig ýmissa annarra fuglateKunda virðist vera 10—15 dögum síðar í ár en í eðiilegu ári, að því er Ævar Petersen fuglafræðingur tjáði Morgunblaðinu f gær. Einstaka fugl hefur þó haidið sfnu striki þrátt fyrir vorharðindin og má í þvf sambandi nefna tjaldinn, sem ekki virðist f neinu hafa breytt út af venju sinni hvað varptímanum viðkemur. Ævar var fyrir nokkru á ferð í Flatey og einnig í fleiri Breiða- fjarðareyjum. Sagði hann að yfir- leitt væri varpið seinna í ár en á eðlilegu vori og væri þá sama hvort átt væri við sjófugla eins og ritu, skarf og teistu, æðafugla eða mófugla eins og hrossagauk og stelk. Hann sagði að í Flatey væri áberandi lítið af hrossagauk og stelk, en ekki væri gott að segja um hverjar ástæður væru fyrir því. Hins vegar væri ekki minna þar af smáfuglum eins og þúfu- tittlingum. Um rituna sagði Ævar að henni fjölgaði með hverju árinu í Flatey og meira væri af henni nú en í fyrra, en ritan er að nema land í Flatey. I vor hefur verið nokkuð um að lóur hafi fundizt dauðar, en Ævar sagðist þó ekki hafa heyrt nema um einstaka fugl, en ekki lóu- dauða í stórum stíl í harðindun- um. Hann sagði að lóan væri yfirleitt byrjuð að verpa um þetta leyti, en menn gerðu því skóna að hún hefði e.t.v. ekki haft forða í egg á þessu harða vori. Síðustu þrjár vikur hefur sjald- séður gestur gist Náttúrufræði- stofnunina, brandugla, sem fannst illa haldin í Reykjavík. Hafði hún trúlega flogið á vír og meiðst án þess þó að beinbrotna. Ævar sagðist reikna með að branduglunni yrði sleppt ein- hvern næstu daga. Talsvert er af branduglu víða um landið en hún lifir einkum á smáfuglum og músum. .....................«... . Jfs7 :' ’ • "x- Tjaldurinn lætur vorkuldann ekki hafa áhrif á sig og hefur verpt á eðlilegum tíma. Kyndillmeð benzín lil Austfjarða BENZÍNBIRGÐIR á nokkrum stöðum á Austfjörðum voru á þrotum nú fyrir helgina og var útlit íyrir að benzfnlaust yrði þar um tíma. Var t.d. benzín búið í Seyðisfirði nema hvað haldið var eftir birgðum fyrir lögreglu og slökkvilið. Undanþága fékkst til eld- sneytisflutninga um helgine og lagði Kyndill af stað norður og austur um. Losaði hann fyrst á Akureyri en átti síðan að halda á Austfjarðahafnir. Ílífshœttu eftir eldsvoða ELDUR kom upp í íbúðarherbergi í húsinu að Blöndubakka 3 um fimm- leytið s.l. laugardagsmorgun. Einn maður svaf í herberginu og var honum bjargað út. Maðurinn, sem er 58 ára gamall, hafði hlotið alvarlega reykeitrun. Liggur hann með- vitundarlaus á gjörgæzludeild Borgarspítalans og er í lífshættu. Talið er að kviknað hafi í sængur- fötum út frá logandi sígarettu. I BILINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.