Morgunblaðið - 06.06.1979, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og skrifstofur AAalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar AAalstræti 6, sími 22480.
Afgreiósla Sími 83033
Áskriftargjald 3000.00 kr. á mónuói innanlanda.
i lausasölu 150 kr. eintakió.
Olía og íslenzk-
ir hagsmunir
Verðþróun á olíu á heimsmarkaði og viðskiptakjör
íslendinga á olíuvörum frá Sovétríkjunum hafa verið í
brennidepli þjóðmálaumræðu síðustu vikurnar. Verðspreng-
ingar á þeim olíuvörum, sem hingað eru fluttar, hafa komið
mjög illa við þjóðarbúskap okkar, viðskiptajöfnuð, rekstrar-
stöðu sjávarútvegs og raunar fjárhagsafkomu heimila í
landinu, bæði vegna verðhækkana á olíu til húshitunar og
bensíni. Staðreynd er að Rotterdamverðmiðun á olíuvörum,
sem við kaupum frá Sovétríkjunum, veldur því, að olíuverð-
þróunin hefur komið mun verr við okkur íslendinga en flestar
aðrar þjóðir Evrópu og N-Ameríku.
Það kemur að sjálfsögðu engum á óvart, að Þjóðviljinn
gengur fram fyrir skjöldu til varnar þeim afarkostum í
verðviðmiðun á olíu frá Sovétríkjunum, sem við megum sæta.
Það kemur út af fyrir sig heldur ekki á óvart, að
viðskiptaráðherra Alþýðubandalagsins setur sig í varnarstöðu
fyrir Rotterdamverðmiðun á olíuinnflutningi frá Sovétríkjun-
um. Sú verðviðmiðun var meir en réttlætanleg þá upp var
tekin, enda hagstæð á þeirri tíð. Aðstæður hafa hins vegar
gjörbreytzt. Innan Efnahagsbandalagsins eru nú háværar
raddir um að setja Rotterdammarkaðinn undir strangt
eftirlit, enda hefur hráolíuverð þar orðið allt að helmingi
hærra en OPEC-verð á síðustu vikum. Það ber því að harma
að viðskiptaráðherra hefur allt frá því í febrúar þráast við að
taka upp viðræður við Sovétmenn um nýja verðviðmiðun, en
þess var krafist á Alþingi, og flýtir sér svo hægt í því máli, að
sýnt þykir að ekki verði um þau mál fjallað í viðræðum milli
ríkjanna fyrr en í ágústmánuði n.k. i fyrsta lagi.
Því hefur verið haldið fram að ekki sé hægt að fá olíuvörur
nema frá Sovétríkjunum. Á þetta hefur einfaldlega ekki reynt,
ef undan eru skilin nokkur olíukaup frá Portúgal, sem um var
samið til að koma á meiri jöfnuði í viðskiptum milli íslands og
Portúgals. í þessu sambandi er rétt að minnast þess að
áratuga olíuviðskipti okkar við Sovétmenn hafa m.a. verið
rökstudd með því, að olíukaup þaðan tryggðu fiskmarkað
okkar í Sovétríkjunum og eðlilegan viðskiptajöfnuð milli
landanna. Einnig á þessu sviði hafa aðstæður gjörbreytzt. Við
fluttum út vörur til Sovétríkjanna fyrir tæpa 7 milljarða á sl.
~:i. Hins vegar keyptum við vörur af þeim á sama tíma fyrir
15 xh milljarð — eða meir en helmingi hærri fjárhæð. Raunar
var viðskiptajöfnuður okkar við EFTA-ríki, EBE-ríki og
A-Evrópuríki verulega óhagstæður á liðnu ári. Aðeins
Bandaríkin gáfu okkur mjög hagstæðan viðskiptajöfnuð.
Þangað fluttum við vörur fyrir tæplega 52 milljarða króna
1978 en keyptum þaðan vörur fyrir 13 milljarða. Augljóst er af
framansögðu, að sú röksemd, að olíuviðskipti okkar við
Sovétríkin séu trygging fyrir fiskmarkaði okkar þar, og
réttlátum viðskiptajöfnuði, hefur hvergi nærri það vægi sem
áður var, er raunar brostin.
Ef horft er fram á veginn felst ákaflega takmarkað
framtíðaröryggi í olíuviðskiptum okkar við Sovétríkin.
Sovétríkin munu, ef að líkum lætur, fyrst og fremst horfa á
eigin olíuhagsmuni og síðan leppríkja sinna í A-Evrópu. Þau
geta raunar hvenær sem er tekið pólitíska ákvörðun þess efnis
að skera á olíuviðskipti sín við ísland. Það er því skylda
stjórnvalda að reyna að setja fleiri stoðir undir framtíðar-
öryggi íslenzks þjóðarbúskapar í olíumálum.
I þessum efnum þarf nú að leggja höfuðáherzlu á 3 atriði:
1) Nauðsynlegt er að taka nú þegar upp viðræður við
Sovétríkin um sanngjarnari verðviðmiðun á olíuvörum en
Rotterdammarkað.
2) Nauðsynlegt er að setja nýjar stoðir undir olíuöryggi okkar
með fleiri viðskiptaleiðum. Má í því sambandi nefna bæði
Bretland og Noreg sem hugsanlega viðskiptaaðila.
3) Huga þarf vandlega að því að koma upp verulega meiri
olíubirgðum í landinu en nú er hægt, sem grípa mætti til ef
neyðarástand skapaðist af einhverjum ástæðum. Fiski-
skipafloti okkar, knúinn olíu, hefur þá þýðingu fyrir
verðmætasköpun og lífskjör hér á landi, svo ein röksemd sé
nefnd, að ekki er verjandi að búa öllu lengur við óbreytt
ástand í þessu efni.
Viðskiptaráðherrann má ekki lengur láta við þau ein
viðbrögð sitja í olíuhagsmunum þjóðarinnar, að fylgja
verðþróun olíuvara eftir með fleiri skattkrónum til ríkisins í
bensínverði.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 3. Þáttur
Síðasti þáttur Gísla Jónssonar um íslenzkt mál er endur-
prentaður vegna vondra prentvillna og eru höfundur og
lesendur beðnir velvirðingar.
„Þegar ég var barn, talaði ég
eins og barn, hugsaði eins og
barn og ályktaði eins og barn“,
segir postulinn Páll. Oft verð-
ur mér hugsað til þess hvernig
ég skynjaði eða skildi orð í
ýmsu, sem ég heyrði sungið,
sagt og lesið, áður en ég gerð-
ist bóklærður. Mörgum sinn-
um sungu menn Vorvísu eftir
Jón Thoroddsen, og þar kom
brátt að ég heyrði:
Hæðirnar brusa <>g hliðarnar dala.
hóar þar smalinn ug rekur á búl.
Ég held ég hafi snemma
áttað mig á líkingamálinu
hæðirnar brosa, en hvað gerðu
hlíðarnar? Hlíðarnar döluðu.
Hvernig gátu hlíðar farið að
því að dala? Ég var enn að
velta þessari þungu spurningu
fyrir mér, þegar mér varð
loksins ljóst af lærdómi að
orðið dalur er dala í eignarfalli
fleirtölu.
Eða þá annar sumarsöngur,
og nú var það Steingrímur:
Nú er sumar.
gleðjist gumar.
gaman er í dag.
Brusir veröld víða.
veðurlagsins blíða
(sungið: veður lagsins u.s.frv.)
eykur yndishag.
Einhvern veginn vissi ég af
eðlisávísun hvað gumar voru.
Og ég gat skilið að veröldin
brosti víða, sbr. brosandi hæð-
irnar hans Jóns Thoroddsens.
Löngu seinna rann það reynd-
ar upp fyrir mér að veröldin
væri víð, þegar á allt væri litið.
En sjálfsagðast af öllu var þó,
af söng fólksins og tilfinninga-
semi, að blíða lagsins kom
vaðandi á móti mér. Veður-
lagsins blíða, mér er eiður sær,
hún kom vaðandi í söng fólks-
ins. Ég held ég hafi verið
orðinn tvítugur, þegar mér
skildist að blítt veðurlag
Steingríms gerði mönnum
glaðara í geði.
En önnur veður áttu eftir að
valda mér ósmáum heilabrot-
um. Mér er í barnsminni að
allt í einu er komin upp á borð
bók með undarlegu nafni: Veð-
ur öll válynd eftir Guðmund
G. Hagalín. Bókin er víst jafn-
gömul mér. En ég var orðinn
læs, þegar fundum mínum og
þessarar jafnöldru minnar bar
saman, og ég horfði í forundr-
an á þetta bókarheiti. Hver
var þessi Válynd? Hún kom öll
vaðandi. Smátt og smátt rofaði
til í almyrkva skilningsleysis-
ins og hugarsjónir barnsins
tóku að búa til myndir. Ég sá
fyrir mér ógurlega tröllkonu.
Hún var móðursystir Grýlu.
Hún kom vaðandi í öllu veldi
sínu eins og Grýla frænka
hennar í Jólin koma eftir
Jóhannes úr Kötlum. Og ég var
svolítið hræddur við þessa bók,
reyndar meira en svolítið. Ég
hef aldrei árætt að lesa hana.
Aftur á móti las ég Völuspá í
sjötta bekk í menntaskólanum.
Kemur þá ekki Válynd kerling
endurborin. En bíðum nú við. í
Völuspá er verið að lýsa vondu
tíðarfari. Öll veðrin voru vá-
lynd, hættuleg í lund, skaðvæn
sköpunarverkinu. Þar fór móð-
ursystir Grýlu fyrir lítið.
Ein.s mig fýsir alltaf þú.
aftur að fara í göngur.
kvað Jónas. Er eitthvað hægt
að misskilja hér? Getur ís-
lenzkur sveitastrákur verið svo
fávís? Ég skynjaði lengi fram
eftir ævi að eins hlyti að
merkja hér á sama hátt, eða
þangað til Halldór Blöndal
benti mér á að þetta væri
hvorugkyn af eitt, en ekki
atviksorð: Mig langar þó alltaf
til eins, þess að fara í göngurn-
ar. Auðvitað, ekkert sjálfsagð-
ara, þrátt fyrir allan fugla-
sönginn í fyrri hlutanum. Og
skyldi nú kannski skipta máli
hvort komma væri sett á eftir
þó?
Það er ekki ofsögum sagt af
því að orð geti verið margræð.
Hlymrekur handan kvað:
í Butni var Burðeyrar-Stjana
ug bjú við sín hænsni að vana.
Það var uftastnær frí,
hana undraði á því
hversu örfáa langaði í hana.
Aftur á móti mun það bera
órækt vitni um sókn svokall-
aðs harðmælis, og það á ólík-
legustu stöðum, þegar sjálfur
landbúnaðarráðherra talar um
lampakjöt í umræðuþætti í
sjónvarpinu.
P.s. Heimilisfang páttarins er
Ásvegi 23, Akureyri. Sími
96-23352.
Leysingar og bensín-
skortur hindruðu menn
í ferðalögum um helgina
UMFERÐIN um hvíta-
sunnuhelgina gekk
óhappalaust fyrir sig, en
að sögn lögregluþjóna,
sem Mbl. ræddi við í gær,
var umferðin óvenju lítil; á
Suðurlandi settu veður-
guðirnir strik í reikning-
inn fyrri part helgarinn-
ar, á Vestf jörðum og Norð-
austurlandi kom ófærð
vegna leysinga í veg fyrir
ferðalög manna og á
Austurlandi
bensínskortur.
Hjá lögreglunni í Borgarnesi
fékk Mbl. þær upplýsingar að
talsverð umferð hefði verið um
Borgarfjörð á föstudag og laugar-
dag og þá aðallega fólk á norður-
leið, sem kom svo aftur suður á
mánudaginn. „Þetta var engin
sérstök umferð, bara venjuleg
helgarumferð", sagði lögreglu-
þjónninn, sem Mbl. ræddi við.
Að sögn lögreglunnar í Stykkis-
hólmi var óvenjulítil umferð um
Snæfellsnes þessa helgi saman-
borið við fyrri hvítasunnuhelgar.
„Þetta var svipað og um venju-
lega helgi", sagði lögreglan á
ísafirði. „Vegir hér á Vestfjörðum
eru svo slæmir vegna bleytu að
þeir freista ekki manna til lengri
bílferða".
Lögreglan á Blönduósi sagði, að
talsverð umferð hefði verið um
helgina á vestanverðu Norður-
landi og lögreglan á Akureyri
sagði umferð þar um slóðir hafa
verið „rétt í meðallagi. Enda er
slæmt færi austan við okkur, en
vegir hér í sýslunni eru sæmilegir
og eitthvað var um að Eyfirðingar
færu í Skagafjörð. Hér á Akureyri
var töluvert um aðkomubíla, aðal-
lega frá Reykjavík og mikið af
gestum í bænum".
Lögreglan á Húsavík sagði vegi
á Norðausturlandi ekki til mikill-
ar umferðar og því hefði hvíta-
sunnuhelgin, sem venjulega væri
talsverð umferðarhelgi, að mestu
liðið án ferðalaga fólks.
„Menn á Austurlandi komast
ekki langt vegna bensínleysis",
svaraði lögreglan á Egilsstöðum
stutt og laggott og lögreglan á
Hvolsvelli sagði umferðina hafa
verið „ósköp hóflega" og litla
miðað við hvítasunnuhelgina í
fyrra. Um 200 manns dvöldu í
Þórsmörk og var það færra en
búast mátti við, þar sem mikið er í
vötnum.
Lögreglan á Selfossi sagði um-
ferðina líka og á góðri sumarhelgi,
en þó hefði slæmt veður á föstu-
dag og fram á laugardag haldið
fólki heima við. Útisamkoma við
Kolviðarhól „fauk út í veður og
vind“. Eitthvað af fólki safnaðist
þangað á föstudagskvöld, en að
sögn lögreglunnar tíndust menn í
burtu um nóttina og þeir síðustu
fóru upp úr hádeginu á laugardag.
Með betra veðri á sunnudag og
mánudag varð talsvert þétt um-
ferð, sem þó dreifðist nokkuð um
Suðurland án þess að fleiri staðir
en Þingvellir og Þórsmörk drægju
sérstaklega að sér ferðafólk.
Bátar verða ekki
leyfðir á Tjörninni
Á FUNDI Borgarráðs í gær
var samþykkt samhljóða að
synja Ámunda Ámunda-
syni um leyfi til að reka
bátaleigu við Tjörnina.
Synjunin var byggð á bók-
un Umhverfismálaráðs,
sem taldi að bátaleiga á
Tjörninni hefði í för með
sér hættu og truflun á
fuglalífi og ennfremur að
Tjörnin væri ekki nægilega
djúp. Ef mikil bátaumferð
yrði um Tjörnina myndi
hún gruggast upp og verða
sem forarpollur.