Morgunblaðið - 06.06.1979, Síða 22

Morgunblaðið - 06.06.1979, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979 • Allan Simonscn skoraði tvö mörk fyrir lið sitt um helgina í 3—1 sisri. Fclag hans Borussia Mönchengladbach varð að sætta sig við að hafna um miðbik deildarinnar. Ilamburger Sportverein vann titilinn. Hamburger meistari! HAMBURGER Sportverein varð vestur-þýskur meistari í knattspyrnu um helgina með þvf að gera jafntefli við Armenia Bielefeldt, á sama tíma og Stuttgart tapaði sfnum fyrsta heimaleik f háa herrans tfð, fyrir Köln. 1—4. Þegar aðeins ein umferð er eftir, hefur Hamburðger 49 stig, en Stuttgart aðeins 46 stig. Kaiserslautern, sem iengi virtist ætla að hremma titilinn, varð að sætta sig við þriðja sætið. Stuttgart varð að vinna Köln til að eiga nokkra möguleika á þvf að ná Hamburger. Möguleikinn hefði verið fyrir hendi, því að Hamburger varð að sjá af stigi. En leikmenn Stuttgart þoldu ekki álagið og léku hörmulega. Willmwer (12. mfn), Zimmermann (25. mín), Konopka (62. mín) og Glowacz (73. mín) skoruðu fyrir Köln áður en heimaliðið komst á blað með marki Foerster á 74. mfnútu. 60.000 áhorfendur vissu ekki sitt rjúkandi ráð og var Iftil stemmning á vellinum. Kaiserslautern og Bayern fara í UEFA-keppnina að þessu sinni, Bayern krækti f stig á útivelli gegn Dusseldorf. Klaus Allofs náði forystunni fyrir heimaliðið f fyrri hálfleik, en Janzon jafnaði fyrir Bayern f sfðari hálfleik. í botnbaráttunni stefnir allt f að það verði Darmstadt, Nuremberg og Armenia Bielefeldt sem falla niður í 2. deild. bað er athyglisvert að það voru einmitt liðin sem þaðan komu f fyrra. Schalke hefur bjargað sér. Klaus Fischer og Rudiger Abramzick skouðu mörk liðsins í sigurleiknum gegn Duisburg, sem einnig ver til skamms tfma f bráðri fallhættu. Sanngjarn sigur Reynis Sandgerðisvöllur laugardag- inn 2. júní Reynir—bór 1—0. Norðanmenn kusu að leika undan stcrkum sunnanvindi f fyrri hálflcik. brátt fyrir það voru það Reynismenn sem voru sókndjarfari og sköpuðu sér betri færi f hálfleiknum, áttu mjög mörg skemmtileg samleiks- upphlaup. Strax á 7. mfnútu skoruðu þeir sigurmark leiksins. Var það Pétur Sveinsson sem það skoraði með föstu jaðarskoti, af um 20 metra færi eftir laglegan undirbúning bórðar Marelssonar sem renndi boltanum frá víta- teigslfnu út til Péturs. . Á 10. mínútu átti Júlíus Jónsson skalla að Þróttarmarkinu sem fór rétt utan við stöng. Var þetta eftir hornspyrnu. Og á 31. mínútu kom þriðja hættulegasta tækifærið, er boltinn sópaðist fremur rólega fyrir framan Þróttarmarkið í gegn um þvögu sem þar var og enginn Reynismanna náði að pota honum í markið og var bjargað í horn. Auk þess áttu þeir mörg skemmti- leg upphlaup sem ekki gáfu eins opin færi. Þórsmennirnir reiknuðu aldrei nægilega með vindinum í hálf- ieiknum, og byggðist sóknarleikur þeirra einkum á löngum sending- um fram völlinn, sem flestar lentu hjá markverði Reynis eöa fyrir aftan endamörk. En á 40. og 44. mínútu áttu þeir bestu marktil- raunir hálfleiksins. Þá fyrri með skalla og síðari með góðu skoti, en Jón Örvar varði í bæði skiptin. í siðari hálfleiknum héldu Þórs- mennirnir uppteknum hætti með langsendingar fram völlinn, sem í tvígang gaf þeim tækifæri til jöfnunar, er framherjar þeirra komust einir inn fyrir sókndjarfa vörn Reynis. Annað tækifærið snemma í hálfleiknum, er mið- herji Þórs og bakvörður Reynis háðu kapphlaup á eftir boltanum inn í vítateig Reynis. Lentu þeir saman og duttu báðir og ekkert varð úr. Þórsmenn kröfðust ákaft vítaspyrnu en Helgi Kristjánsson, ágætur dómari, var ekki á sama máli. Þar slapp Reynir fyrir horn því að einhverjir dómarar hefðu dæmt vítaspyrnu. En ekki var að sjá að bakvörðurinn bryti af sér. Síðara tækifærið kom á 40. mín- útu er einn framherja Þórs lyfti boltanum yfir markvörð Reynis sem kominn var fram undir víta- teigslínu á móti honum, en Jón markvörður sneri við og náði boltanum um einum metra frá marklínu. Að öðru leyti fór leikurinn fram á vallarhelmingi Þórs og voru hornspyrnur og innköst mýmörg. Á 25. mínútu síðari hálfleiksins skora Reynismenn annað mark beint úr aukaspyrnu sem tekin var úti við hliðarlínu, en markið var dæmt af þar sem spyrnan átti að vera óbein. Og endaði því leikur- inn sanngjarnlega 1—0 fyrir Reyni. Jón I Kaainnnrna l I 2.flellfl Platini til St. Etienne FRANSKI knattspyrnusnillingurinn Michel Platini heíur tilkynnt að hann muni leika með franska stórliðinu St. Etiennc. Tmis af frægustu félagsliðum Evrópu hafa verið að gera hosur sínar grænar fyrir Platini, en hann kaus að vera áfram í Frakklandi. Góður árangur Jónu Bjarkar í þríþraut FRI og Æskunnar GÓÐUR árangur náðist í ýmsum greinum á úrslitakeppni í þrí- þraut FRÍ og Æskunnar á Laug- ardaisvelli um helgina. Má þar helzt nefna gott hlaup Jónu Bjarkar Grétarsdóttur úr Foss- vogsskóla í 60 metra hlaupi, en árangur hennar, 7,9 sekúndur, er íslandsmet f öllum flokkum að 18 ára aldri. íslandsmet kvenna er 7,8 sekúndur og er árangur Jónu Bjarkar, sem er 13 ára, þvf athyglisverður. bá náði Selfyssingurinn Jón B. Guðmundsson góðum árangri í flokki drengja er fæddir eru 1967. Setti Jón stigamet í þraut- inni. Greinilegt er að eplið hefur ekki fallið langt frá eikinni þar sem Jón er sonur Guðmundar Jónssonar er var einn af fremstu frjálsfþróttamönnum landsins fyrir nokkrum árum. Auk þessara ungmenna komu fram efnilegir spretthlauparar og sumir köstuðu bolta óraveg sem gefur tii kynna að þar séu á ferðinni mikil efni f spjótkasti þegar fram lfða stundir. bá stukku sumir keppenda hæð sfna í hástökkinu, rétt eins og Gunnar á Hlfðarenda forðum. Stigahæst í pilta- og telpna- flokki urðu þau Jóna Björk og Jón og hljóta þau Færeyjaferð að launum. Alls tóku 5,045 ung- menni þátt f þrfþrautinni að þessu sinni, en til úrslitakeppn- innar er boðið sex stigahæstu í hverjum flokki í undankeppn- inni. Sum hinna útvöldu komust ekki til Reykjavíkur vegna veð- urs. Er keppni lauk á Laugar- dalsvelli var keppendum í loka- keppninni boðið f heitt súkkulaði og meðlæti á Hótel Esju og voru þar afhent verðlaun. bríþraut FRÍ og Æskunnar fór fram í umsjá útbreiðslunefndar FRÍ og stjórnaði Sigurður Helgason for- maður nefndarinnar keppninni röggsamlega, eins og hans var von og vísa. Fór keppnin vel fram og var skemmtileg og aðstand- endum hennar til sóma í hví- vetna. En lítum þá nánar á úrslitin: DRENGIR FÆDDIR 1965: stlg 1. Þorbjðrn Guðj&nsson, Borgarn. 2769 (8,1 - 74,20 - 1,50) 2. Ármann Einarsaon, Egiltwt. 2757 (7,8 - 60,10 - 1,65) 3. Friðgeir Halldórss., Bolungarv. 2340 (8.6 - 68,77 - 1,35) DRENGIR FÆDDIR 1966: stig 1. Þórður Þórðarson, Reykjav. 2746 (8.2 - 56,03 - 1,50) 2. Gunnar E. Gunnarss. Akure. 2663 (8.1 - 63.65 - 1,30) 3. Anthony K. Gregory, Reykjav. 2600 (8,5 - 55,73 - 1.45) 4. Magnús Steinþórss., Egilsst. 2593 (8,7 - 54,64 - 1,50) 5. Júlíus Þ. Tryggvas., Akure. 2539 (8,7 - 64,95 - 1,30) 6. Valdimar Halldórsson, Borgarn. 2342 (8,9 - 51,10 - 1,40) DRENGIR FÆDDIR 1967: stlg 1. Jón B. Guðmundsson, Selí. 3098 (8,2 - 63,86 - 1,45) 2. Kjartan Valdimarss., Mosfellssv. 2691 (8,7 - 51,05 - 1,35) 3. Mikael Traustas., Akureyri 2592 (9,2 - 55,58 - 1,30) 4. Magni Árnason, Húsavfk 2531 (9.6 - 60.78 - 1,25) 5. Hermann Bárðars., Húsavfk 2407 (9.3 - 50,87 - 1,25) 6. Karl E. Aðalgeirss., Akure. 2305 (9,2 - 54,27 - 1,10) STÚLKUR FÆDDAR 1965: stig 1. Jónfna Helgad.. Keflavfk 2502 (8,6 - 49,12 - 1,25) 2. Hrafnhildur Jónsd.. Gðrðum 2475 (9,1 - 50,75 - 1.30) 3. Helga Gunnarsd., Gðrðum 2469 (9,5 - 55.47 - 1.30) 4. Svanhildur Gunnarsd., Reykjav. 2321 (8,7 - 34,80 - 1.35) 5. Svafa Grönfeldt, Borgarn. 2304 (8.3 - 32,20 - 1,30) 6. Svanhildur Hlððversd., Reykjav. 2195 (9,0 - 32.24 - 1,35) STÍILKUR FÆDDAR 1%6: stig 1. Jóna Björk Grétarsd., Reykjav. 3052 (7.9 - 45,05 - 1,40) . 2. Þurfður Jónsd., Akureyri 2786 (8,4 - 34,77 - 1,45) 3. Auður B. Guðmundsd., Reykjav. 2597 (8,7 - 46,58 - 1,25) 4. Ingveldur Ingibergsd., Borgarn. 2568 (8,1 - 20,10 - 1,45) 5. Alfa R. Jóhannesd., Mosfellssv. 2501 (8,9 - 36,48 - 1,30) 6. Halldóra Magnúsd., Keflavfk 2179 (9,6 - 40,21 - 1.20) STÚLKUR FÆDDAR 1%7: stig 1. Svanhildur Kristjánsd., Ðolungarv. 2641 (8,6 - 37.80 - 1,10) 2. Heiða B. Sturlud., Mosfellssv. 2626 (9,6 - 43,07 - 1,20) 3. Ágústa Ragnarsd.. Reykjavfk 2513 (9,4 - 34,91 - 1,20) 4. Guðhjðrg Jónsd., Reykjavfk 2482 (9,4 - 33,35 - 1,20) 5. Sigurbjðrg Kristjánsd., Gðrðum 2404 (9,1 - 25,71— 1,20) Skotar rotaóir SKOTAR fengu hrikalegt kjaftshögg er landslið þeirra í knattspyrnu mætti argentínsku heimsmcistur- unum f vináttulandsleik á Ilampden Park f Glasgow um helgina. Argentínu- mennirnir tóku Skotana f kennslustund og skoruðu 3 mörk gegn einu. Eina mark Skotanna skoraði Arthur Graham 4 mínútum fyrir leikslok og var þá engu lfkara en að Argentín- umennirnir vildu beinlfnis að heimamenn skorðu eitt mark. 18 ára unglingur, Diego Maradonna, var maður leiks- ins, en þessi táningur hefur verið titlaður hinn nýi Pele. Hann sýndi marga snilldar- takta í leiknum, lagði m.a. upp fyrsta mark Argentínu og skoraði sjálfur þriðja markið. Var svo komið, að 70.000 skoskir áhorfendur voru farnir að klappa í hvert sinn sem Maradonna kom við knöttinn, en bauluðu hins vegar einkum á fyrirliða sinn, Kenny Dalghlish, sem var eins og álfur út úr hól í leiknum. Leopoldo Luque skoraði fyrsta mark á 33. mínútu, eftir að Maradonna hafði leikið þá Hansen og Hegarty upp úr skónum. Luque skor- aði aftur á 60. mínútu eftir snjalla sendingu frá varnar- manninum Roberto Qutes, sem þá var nýkominn inn á völlinn. Maradonna skoraði þriðja markið skömmu síðar eftir að hafa fengið langa sendingu frá Valencia. Arth- ur Graham skoraði eina mark Skota rétt fyrir leikslok og var ekki að sjá að Argen- tínumennirnir hefðu miklar áhyggjur af því, þar sem enginn gerði tilraun til að stöðva Graham. Argentínu- menn leika síðasta leik sinn í ferð sinni gegn New York Cosmos á fimmtudag. • Jóna Björk hlaut afreksbikar FR*» Ljósm. Emilía. 17. júní mótið i frjálsum 17. JÚNÍ mótið í frjálsum íþróttum verður haldlö dagana 16. og 17. júní n.k. á Laugardalsvellinum. Keppt veröur í þessum grelnum: 16. júní kl. 14.30: 200 m — 200 m kv — 400 m — 400 m kv — 1.500 m — 1.500 m kv — kringlukast kvenna — spjót- kast kv — kúluvarp — hástökk — hástökk kvenna. 17. júní kl. 15:30: Kúluvarp kv — spjótkast — langstökk kv — stang- arstökk — 100 m kv — 800.m.kv — 100 m meyja — 100 m sveina — 800 m — 4x100 m kvenna. Tilkynningar um þátttöku skulu sendar skrifstofu ÍB.R. PO Box 864, Reykjavík, fyrir 12. júní.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.