Morgunblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.06.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979 23 • Sigurvegararnir í Faxakeppninni í Vestmannaeyjum. Talið í.v. Magnús Halldórsson, Geir Svansson. Sjöfn Guðmundsdóttir, Sigurjón Gíslason, Jakobína Guðlaugsdóttir, Guðni Grímsson, Kristín Pálsdóttir. Ágústa Dúa Jónsdóttir, Ágústa Guðmundsdóttir og Atli Aðalsteinsson. Ljósm: ÓS. Enn s igrar Sigurjón SIGURJÓN Gíslason golfklúbbn- um Keili Hafnarfirði varð sigur- vegari í Faxakeppninni í golfi í Vestmannaeyjum um hvítasunn- una. Sigurjón sigraði eftir harða keppni við Geir Svansson. Með þessum sigri sfnum er Sigurjón með flest landsliðsstig og er að öllum líkindum búinn að tryggja sér þar sæti. Mikið hvassviðri var í Herjólfs- dal og háði það golfleikurunum nokkuð og var því árangur nokk- uð misjafn. Sigurjón lék 18 hol- urnar fyrri daginn á 71 höggi eða einn yfir pari vallarins, síðari daginn lék hann á 82 höggum. Geir Svansson lék fyrri daginn á 74 höggum en þann sfðari á 78. Var því mjótt á mununum. í kvennaflokki sigraði Jakobína Guðlaugsdóttir GV með nokkruin yfirburðum lék hún 36 holur á 178 höggum en í öðru sæti varð Kristín Pálsdóttir GK á 193 högg- um. í þriðja sæti hafnaði Ágústa Guðmundsdóttir GR lék á 196 höggum. Efstu menn í karlaflokki urðu þessir: Sigurjón Gíslason GK 153 Geir Svansson GR 155 Magnús Haslldórsson GK 156 Oskar Sæmundsson GR 158 Atli Aðalsteinsson GV 158 Jón Guðlaugsson NK 160 Keppni með forgjöf: Guðni Grímsson GV 140 högg nettó Magnús Jónsson GS 141 Atli Aðalsteinsson GV 153 Guðmundur endurkjörínn GUÐMUDNUR Arnaldsson var endurkjörinn formaður Blak- sambands íslands á ársþingi þess sem fram fór f Melaskólanum f Rvk fyrir skömmu. Þingið sátu 35 fulltrúar og gestir. Helstu mál þingsins voru ný skipting ungra leikmanna f aldursflokka og ákvæði um úr- slitaleik þegar félög eru jöfn að stigum og um cr að tefla sigur eða fall f íslandsmóti. Til nýrrar stjórnar var vísað tilmælum um að skipta skóla- mótum í þrjá flokka. Grunnskóla- flokk, framhaldsskólaflokk og háskólaflokk. Velta Blaksambandsins var nærri sjö og hálf milljón á síðast starfsári og hagnaður af starf- seminni þrjúhundruð og fimmtíu þúsund. Hafði einn þingfulltrúi sem vel er að sér um málefni íþróttafélaga og sambanda það á orði að hagnaður væri óþekkt orð almennt séð í íþróttastarfinu og bæri þessi niðurstaða rekstrar- reikningsins fráfarandi stjórn gott vitni. Nýkjörin stjórn BLÍ hélt sinn fyrsta fund strax að þingfundi loknum og skipti með sér verkum: Formaður Guðmundur Arnalds- son varaformaður Indriði Arnórs- son, gjaldkeri Halldór Jónsson, ritari Þorvaldur Sigurðsson og fundarritari Kristín Bergmann. Fyrsta verk stjórnarinnar var ráðning framkvæmdastjóra og var Gunnar Árnason íþróttakennari ráðinn 1. framvkæmdastjóri BLÍ, en þessi ákvörðun hafði verið kynnt á þinginu og fengið góðar undirtektir fulltrúa. Stjórnin skipaði einnig formann eftirtal- inna nefnda: Mótanefnd Kjartan Páll Einarsson, Dómaranefnd Tómas Tómasson Landsliðsnefnd Indriði Arnórsson. Tíu i tveim greinum! RÚMENSKA fimleikastúlkan Nadia Comaneci, Evrópumeistarí 1979 og Oiympíumeistarí 1976, vann tvenn gullverðlaun á heimsbikarmót- inu sem fram fór í Tókfó f Japan um helgina. Comaneci fékk 10.00 fyrir tvær greinar, stökk á hesti og fyrir gólfæfingar. Lék engin það eftir henni, og hlaut hún þvf gullverðlaun fyrir tvær greinar. Að öðru leyti var keppnin ekki dans á rósum hjá Comaneci og það besta sem hún náði fyrir utan þetta, var annað sætið fyrir æfingar á jafnvægisslá. • Steinunn Sæmundsdóttir varð bikarmeistari í kvennaflokki, Skíðavertíðinni lokið: Landi Comaneci, Emiliía Eberíe, sigraði á jafnvægisslánni, fékk 9,9 og Eberíe skipti einnig fyrsta sætinu á tvfslánni með austur-þýsku stúlkunni Steffi Krakcr. Þá kom soveákur nýliði, Stella Zakharova, á óvart með því að sigra í fjölþraut kvenna. Þá varð Zakharova önnur í gólfæfingum og í stökki á hesti, þriðja á tvfslá. SKÝRR sigraði NÝLEGA hélt Handknattleiks- deild Breiðabliks fyrstu UBK firmakeppnina í handknattleik þar sem starfsmenn 16 fyrirtækja og stofnana áttust við um tvo titla. Annars vegar um titilinn „UBK firmameistarar í hand- knattleik 1979“ og hins vegar „Vítaskyttulið UBK firmakeppn- innar í handknattleik 1979“. Keppt var í íþróttahúsinu Asgarði í Garðabæ. Skipt var í 4 riðla og léku síðan efstu lið úr riðlunum til úrslita. Starfsmenn Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKÝRR) urðu firmameistarar með fullt hús stiga, en starfsmenn Verslunarbanka íslands h.f. sigr- uðu hins vegar í vítakotakeppn- inni þar sem jöfnum höndum reyndi á skyttur og markmenn. Sem fyrr segir hlaut lið Skýrsluvélanna firmameistara- titilinn, en úrslitataflan varð þannig: SKYRR ÍSAL Dagbl./Hilmir Verslunarb. 3 3 0 0 34:25 6 3 1 1 0 33:28 3 3 1 1 0 26:24 3 3 0 0 3 22:38 0 Björn og Steinunn bikarmeistarar 1979 ÞÁ er vcrtíð skíðamanna hér- lendis formlega lokið. Ilenni lauk með Skarðsmótinu svokallaða í Siglufirði, en það fór fram nú um hvitasunnuna. Steinunn Sa>- mundsdóttir og Björn Olgeirs- son. húsvikingurinn ungi. urðu bikarmeistarar í flokki kvenna og karla. Svo har þó við. að báðum gekk frckar illa að þessu sinni. Góður árangur þeirra beggja í mótum fyrr í vetur sá þó til þess að það kom ekki að sök. Stcinunn var reyndar orðinn bikarmeistari áður en mótið hófst. Steinunn sigraði að vísu í stór- svigi, en var úr leik í sviginu. Björn komst hins vegar ekki í fremstu röð. Ásdís Alfreðsdóttir sigraði í svigi kvenna, en Ásdís var bik- armeistari í fyrra. Ásdís varð síðan í öðru sæti í stórsvigi, á eftir Steinunni Sæmundsdóttur. Einar Valur Kristjánsson sigraði í svigi karla og Árni Þór Árnason varö hlutskarpastur í stórsviginu. Verðlaun voru síðan afhent í mótslok og þá fékk m.a. Jóhann Vilbergsson viðurkenningu fyrir að hafa tekið þátt í öllum Skarðsmótum síðan 1956. Efstu menn i hverri grein Skarðsmóts- ins urðu sem hér segir: Svig karla: Kinar V. Kristjáns. í Karl Frímannsson A Tómas Ix'ifsson A Stórsvig karla: Árni Þór Árnason K VaI|K)r Þorjít'irss. Hús. Bjórn Yikingsson A Svig kvenna: Ástlís Alfroóstl. R Halltlóra Bjornsd. K Nanna Lvifstl. A Stórsvig kvenna: Stoinunn Sæmuntlsd. Ásdís Alfroðsd. K Nanna Ixdfstl. A —17,01 ‘U.S0 ■Id.Td—18.27 ‘12.00 10.00-18.01 ‘M.07 lií.l.S-511.77 102.20 51,01—52.80 101,8-1 50,75—55.10 100,21 •10.28—17.45 00.72 10.27-10,21 08.08 50.21—10.11 00.08 •10,08—10,28 02.20 •17.82—17,22 05,00 18.20—17.70 00.18 Ganga 17 ára og eldri: 1 — 2 (jottlicb Kunráðsson 01 18,51 suk l—2 Majinús Kiriksson Sijiló 18.51 sok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.