Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 24

Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979 1 1 Markavél ÍBK fór í \ gangsvo um munaði 'bk- Amn Víkingur 4.U KEFVÍKINGUM hefur gengið illa að skora í vor og sumar og er ekki laust að aðdáendur þeirra hafi verið orðnir æði áhyggjufuil- ir. En áhyggjur þeirra hurfu eins og dögg fyrir sóíu á mánudaginn þegar Keflvíkingar mættu Vík- ingum á malarvellinum ( Kefla- vík. Nú fór markamaskfna Kefl- vtkinga loksins (gang og það svo um munaði, fjögur mörg og stór- sigur ÍBK var staðrcynd 4:0. Keflvíkingar gátu reyndar ekki fengið léttari mótherja en Vík- ingana f þessum leik, sem voru eindæma slakir en það rýrir ekki sigur Keflvfkinga. Sigur þeirra var fyllilega verðskuldaður og oft á tfðum léku þeir mjög góða knattspyrnu, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Keflvíkingar byrjuðu leikinn með talsverðum látum og eftir aðeins 5 mínútur lá boltinn í marki Víkings. Kári Gunnlaugs- son bakvörður hafði þá brotizt laglega upp vinstra megin og sent knöttinn fyrir markið. Eftir mik- inn darraðardans barst knöttur- inn út á vítateigslínuna til Óskars Færseth bakvarðar, sem skallaði í átt að markinu. Rétt utan mark- teigs tók Þórir Sigfússon við boltanum og nikkaði honum áfram í markið mjög laglega. Sigurjón markvörður var staddur í einhverri ævintýraferð úti í vítateig og kom hann engum vörn- um við. Má skrifa þetta mark á hans reikning. Þetta var eina verulega hættu- lega tækifærið, sem Keflvíkingar fengu í fyrri hálfleiknum. Þeir léku oft vel saman úti á vellinum en gekk illa að skapa sér tækifæri nema þá helst eftir hornspyrnur, sem sköpuðu ávallt hættu við mark Víkings. Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn fóru Víkingarnir að sækja í sig veðrið og voru þeir Óskar Tómasson og Gunnar Örn ekki langt frá því að skora með langskotum, sem smugu framhjá stöngunum. TVÖ MÖRK í RÖÐ Á 8. mínútu seinni hálfleiks fengu Keflvíkingar sitt annað verulega góða tækifæri í leiknum og úr því skoruðu þeir einnig. Róbert miðvörður Víkings skallaði knöttinn frá Víkingsmarkinu en tókst ekki betur en svo að knöttur- inn hafnaði hjá Gísla Eyjólfssyni úti í vítateignum. Gísli gaf út til vinstri til Þórðar Kárasonar. Hann lék upp að endamörkum og gaf fyrir markið. Sigurjón mark- vörður ætlaði að slá boltann frá en honum mistókst líka og boltinn barst til Gísla Eyjólfssonar, sem skoraði léttilega af stuttu færi enda enginn í markinu til varnar. Eftir þetta var aldrei neinn vafi á því hvernig leikurinn færi. Keflvíkingarnir sóttu án afláts og bættu við tveimur mörkum fyrir leikslok. Þriðja markið kom á 14. mínútu seinni hálfleiks. Þá tók Sigurður Björgvinsson auka- spyrnu og sendi boltann út til hægri á Guðjón Guðjónsson. Vik- ingsvörnin hefur væntanlega haldið að Guðjón myndi missa boltann aftur fyrir endamörk, því að hún hreyfði hvorki legg né lið til varnar þegar Guðjón sendi þrumusendingu fyrir markið þar sem Einar Ásbjörn Ólafsson var einng óvaldaður og skallaði bolt- ann í markið. Lokamarkið kom svo á lokamínútunni eins og vera bar. Þórður Karlsson sendi þá boltann fyrir markið frá vinstri. Sigurjón markvörður missti enn einu sinni af boltanum og við fjærstöngina var Þórir Sigfússon til staðar og sendi boltann í markið af öryggi. LIÐIN Keflvíkingarnir höfðu lengst af algjöra yfirburði í þessum leik, sérstaklega voru yfirburðir liðsins miklir í seinni hálfleik. Leikmenn liðsins áttu allir góöan dag og er ekki ástæða til þess hér að nefna einn einstakan leikmann öðrum fremur. Það sama verður ekki sagt um Víkingsliðið. Það átti afleitan dag. Framlínumenn liðsins og tengiliðir voru varla með í leikn- um, ef Heimir Karlsson er undan- skilinn, en hann var sá eini, sem reyndi virkilega að spila knatt- spyrnu. Mikið mæddi því á vörn- inni og Sigurjóni markverði en þetta var bara ekki dagur Sigur- jóns og markvarðanna og því fór sem fór. - SS. í STUTTU MÁLI: Keflavíkurvöllur 4. júní, Islands- mótið 1. deild. ÍBK — Víkingur 4:0 (1:0). Mörk ÍBK: Þórir Sigfússon á 5. og 90. mínútu, Gísli Eyjólfsson á 53. mínútu og Einars Á. Ólafsson á 59. mínútu. Gul spjöld: Engin. Áhorfendur: 718. Ljósm. Mbl. Sigtr. Sigtryggsson. • Fyrsta mark Keflvíkinga. Sigurjón Víkingsmarkvörður hefur hætt sér of framarlega og skallabolti Þóris Sigfússonar siglir yfir hann og í markið. Handboltaþjálfarar Óskum eftir aö ráöa handboltaþjálfara fyrir 2. deildar liö Týs frá Vestmannaeyjum fyrir næsta keppnistímabil. Upplýsingar veita Stefán Jónsson í síma 98-2339 og Hallgrímur Tryggvason í síma 98-1677 eftir kl. 19 á kvöldin. STAÐAN STADAN í 1. delld er nú þessl: lA ÍBK Valur Fram ÍBV KR KA Vfklngur Þróttur Haukar 3 2 1 0 6-3 5 3 1 2 0 4-0 4 3 1 2 0 5-2 4 2 110 4-23 2 110 2-0 3 3 1113-43 21015-42 3 1 0 2 3-8 2 2 0 0 2 1-4 0 3 0 0 3 1-7 0 Fyrsta mark Vals. Gunnlaugur Haukamarkvörður grípur um höfuð sér eftir Haukará von á fi Valur— OaA Haukar OaU ÞRÁTT fyrir að skap veðurguð- anna væri ekki upp á það besta á laugardaginn létu knattspyrnu- menn Vals og Hauka það ekki á sig fá og mættu galvaskir til leiks í leiðinflaveðri, roki og rigningu. Valsmenn fengu nýliða 1. deilar Hauka í heimsókn á grasvöllinn í Laugardal, og lásu þar yfir þeim lexíu. Þriggja marka sigur Vals í leiknum gefur ekki rétta mynd af gangi hans. Marktækifæri Vals voru svo mýmörg og hættuleg að með ólikindum var. Og oft var hreint furðulegt hversu lagnir Vals- menn voru að skora ekki. Lið Hauka barðist samt allan lcikinn og gafst aldrei upp og náði að skapa sér ágætis sóknar- lotur, en of oft var það tilviljun háð hvernig sóknirnar enduðu. Fyrstu mínúturnar í leiknum voru ekki viðburðaríkar, leikmenn fóru hægt í sakirnar og reyndu að finna sig á hálum vellinum. Fyrsta tækifærið er við mark Vals. Loftur fær stungubolta inn fyrir vörnina en of fastan og hinn ungi markvörður Vals, Guðmund- ur, sem lítið reyndi á í leiknum, náði boltanum örugglega. Smátt og smátt færa Valsmenn sig upp á skaftið, og eftir 7 mínútna leik á Guðmundur Þorbjörnsson þrumu- sko't rétt yfir þverslá, og hann er aftur á ferðinni á 9. mínútu með skoti sem hrekkur í þverslána og yfir. Valsmenn ráða lögum og lofum á miðju vallarins, og þrátt fyrir eina og eina sókn Hauka þá eru Vajsmenn aldrei í vandræðum. Á 16. mínútu brunar Atli upp og alla leið í gegn um vörn Hauka, og skýtur föstum jarðarbolta, en lán- ið leikur ekki við hann, þvií að boltinn fer í stöng og aftur fyrir. Valsmenn pressa svo til látlaust. Á 20. mínútu fá þeir þrjár horn- spyrnur í röð, en allt kemur fyrir ekki. Markið liggur samt í loftinu. Guðmundur Þorbjörnsson skor- ar svo fyrsta markið á 38. mínútu. Hörkuskot hans utan af vinstra kanti skellur í stönginni innan- verðri og síðan í bakið á Gunn- laugi markverði sem hafði hálf- varið skotið og í netið. Mark þetta má skrifa á markvörðinn, því þrátt fyrir að boltinn hafi verið hátt var skotið af löngu færi. Reyndist þetta vera eina mark fyrri hálfleiksins. Það yrðu löng skrif að fara að tíunda öll marktækifæri Vals í síðari hálfleiknum, svo mörg voru þau. En lítum á þau helstu. Ingi Björn skapar sér gullfæri á 3. mínútu, en var fullseinn að gefa boltann frá sér eða skjóta sjálfur og Haukar bjarga í horn. Jón Einarsson gefur vel fyrir markið á 53. mínútu. Atli er einn og óvaldaður við stöngina fjær og skallar glæsilega í netið og skorar annað mark Vals. Á 28. mínútu kemur glæsifyr- irgjöf frá Guðmundi Þorbjörns- syni sem einleikið hafði alveg upp að endamörkum og Ingi Björn kastar sér fram og þrumuskalli hans skellur í þverslánni. Á 76. mín. tekst Jóni Einarssyni að koma boltanum framhjá eftir að hafa svo gott sem verið með hann inn í markinu. En hann bætir það upp á 83. mínútu. Atli hafði brunað upp miðjuna og rennt til Jóns boltanum inn í vítateignum. Eftir smáeinleik inni í vítateig snýr Jón sér við og skorar með skoti í hornið fjær. Haukar sóttu annað slagið en skot þeirra fóru ýmist langt fram- hjá eða þau voru auðveldlega varin. Það voru helst þeir Sigurð- ur Aðalsteinsson og Ólafur Jó- hannesson sem gerðu einhvern usla í vörn Vals. Lið Vals verður sterkt í sumar, á því er enginn vafi. Ekki er gott að dæma það eftir þessum leik, til þess voru yfirburðirnir of miklir. Atli og Guðmundur áttu báðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.