Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 27

Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979 27 „ Við eignumst ekki samskonar s tjörnur og i gamla daga“ fyrr með hópnum sem valinn er til undirbúnings? KSÍ hefur verið heppið með þjálfara undanfarin ár. Tony Knapp reyndist mjög vel og hóf íslenzka landsliðið til vegs og virðingar. Yuori Iljischev kann líka sitt fag. Vandamál þeirra beggja er að margir af okkar bestu leikmönnum dvelja erlendis. Þetta er sérstaklega áberandi í sumar. Samæfing verður því lítil og kunn- átta þjálfarans kemur ekki að eins góðum notum. Ég held að úthald hafi ekki háð okkar mönnum svo að úrslitum hafi ráðið. Félögin hér heima hafa öll góðum þjálfurum á að skipa og KSI verður að treysta því, að þrekþjálfun sé þar í góðu lagi. Landsliðsþjálfari á ekki að þurfa að sinna slíku, heldur réttri uppstillingu liðs, leikaðferðum, baráttuþreki og samstöðu. Liggur ljóst fyrir hvort leiknir verða landsleikir við Bandaríkjamenn og Bermuda- menn í haust? Við höfum stefnt að því að efna til ferðar til Bandaríkjanna og Bermuda fyrir landsliðið, sem yrði þá nokkurs konar uppbót eða verðlaun fyrir erfiði sumarsins. Það yrði þá bæði keppnis- og skemmtiferð. Málin standa þannig í dag, að við bíðum enn eftir svari frá Bandaríkjunum varðandi tíma og tilhögun. Ég geri mér góðar vonir um að úr þessu geti orðið. Ertu bjartsýnn á framtíð knattspyrnunnar hér á landi? Eru að þínu mati of mörg lið í 1. deildinni í knattspyrnu? Knattspyrnulega séð eru liðin aldrei of mörg í 1. deild. Því fleiri lið sem þar eru, því fleiri hafa möguleika til að verða með þeim bestu. Breiddin eykst, góðum leikmönnum fjölgar. Vandamálið er hins vegar fjár- hagslegs eðlis, svo og það stutta keppnistímabil, sem við búum við. Vallargestum fækkar ef leikir eru of margir og hafa litla sem enga þýðingu í topp- eða fallbaráttu. Það eru aðeins tvö ár síðan fjölgað var í 10 lið í 1. og 2. deild og ég vil fá einhverja reynslu á núverandi fyrirkomulag áður en því er kastað fyrir róða. Og ef breytt verður, þá er ekki endilega víst að fækka eigi í 1. deild. Margar leiðir koma til greina s.s. það að skipta deild upp í miðri keppninni, þannig að efstu 5 liðin leiki um fyrsta sætið, en neðri 5 um fallsæti. Þetta er fyrirkomulag sem tekið hefur verið upp á nokkrum stöðum í Evrópu. Við verðum að muna að úrvalds- deild hjálpar vissulega þeim sem hana skipa, en ástandið verður enn verra hjá hinum, sem leika í „óæðri" deildum. Hafa íslensk knattspyrnu- félög sem misst hafa leikmenn í atvinnuknattspyrnu að einhverju leyti verið hlunnfarin ? KSÍ hefur hert reglur varð- andi utanferðir leikmanna og er það gert í þágu félaganna. Þau eiga nú að hafa betri aðstöðu til að fylgjast með og setja fram óskir, ef erlent félag vill kaupa íslenzkan leikmann. Meðan félögin gera ekki samn- inga við sína leikmenn og þeir eru frjálsir að því að ganga úr eða í félög að formsatriðum einum upp- fylltum, þá hafa félögin ekki lagalegan rétt til að gera fjárkröf- ur, þegar leikmenn fara úr landi. KSÍ mun reyna að gæta hags- muna félaganna eins og kostur er, en við verðum líka að virða rétt leikmannanna sjálfra. Við íslendingar erum frjálsir menn og leggjum ekki átthaga- fjötra á fólk. Hver er staðan í samninga- viðræðum við íslenska sjónvarpið í dag? Heimsókn vestur-þýska liðs- ins kostar KSÍ á milli 10—11 millj. kr. Okkur var ljóst að til að standa undir þessum kostnaði þurftum við að fá mjög góða aðsókn að leiknum. Miði í stúku kostar kr. 3000.00 og stæði kr. 1.800.00. Sjón- varpið vildi fá að sýna leikinn í heild sinni fyrir kr. 1.300 þús. það þýðir að aðeins 450 væntanlegir stúkugestir hætti við að koma á leikinn til að vega upp á móti greiðslunni frá sjónvarpinu. Allir vita að ekki þarf mikið út af veðri að bregða til að fólk hætti við að sækja völlinn, hvað þá ef vitað er að leikurinn er sýndur samdægurs í sjónvarpi. Slík viðskipti treystum við okk- ur ekki til að gera. Við höfum nú boðið sjónvarpinu sýningarrétt fyrir kr. 1.500 þús. enda sé þá leikurinn ekki sýndur samdægurs. Af þessu er ljóst að það er ekki við KSI að sakast að leikurinn við Vestur-Þjóðverja var ekki sýndur, eða aðrir leikir hér eftir. Erum við að keppa á jafn- réttisgrundvelli þcgar við erum slíkir áhugamenn sem raun ber vitni? Það er langt frá því, að við stöndum jafnfætis öðrum þjóðum, sem stunda íþróttina af háþróaðri atvinnumennsku. í þeim efnum getur lítil þjóð ekki keppt við stærri og ríkari þjóðir, sem hafa að baki sér aðstöðu, fjármagn, tugþúsundir áhangenda og úrval hinna allra bestu knattspyrnu- manna. En landsliðið er ekki allt. Tilgangur KSÍ er að efla íþróttina í þágu fjöldans og okkar áhugamál er að fá unglinga til að stunda íþróttina sér til heilsubótar og ánægju. Við megum ekki alltaf einblína á toppinn, þótt það óeigingjarna og fórnfúsa starf sem unnið er af knattspyrnufélög- unum fyrir æskuna falli of oft í skuggann. Hefur knattspyrnunni al- mennt farið fram hér á landi? Okkur hefur farið fram í ýmsum efnum, og þeim fer sífellt fjölgandi sem iðka knattspyrnu. Það er sú íþrótt sem ber af öðrum í vinsældum. Leikkerfi og fast- mótaðra skipulag veldur því hins vegar að leikmenn eru ekki eins frjáisir í leik sínum. Leiknir einstaklingar njóta sín ekki eins og áður og við eignumst ekki sams konar ,,stjörnur“ eins og í gamla daga. Ég sakna þess stundum. í fyrra báru tvö lið aí í 1. deildinni, og varð það til þess að aðsókn minnkaði verulega . . . Það eru margar skýringar á því, hversu aðsókn er sveiflu- kennd. Yfirburðir Vals og Akra- ness á síðasta ári var ein skýring- in. Auk þess má nefna slaka frammistöðu annarra liða, fjölda leikja, of litla auglýsingu eða frásagnir fyrirfram af leikjum, til að skapa spennu, önnur áhugamál fólks o.s.frv. Knattspyrnan er þess eðlis, að ef lið stendur sig, nær árangri, þá kemur fólk á völlinn. Velgengni liðs er lykillinn að góðri aðsókn. Svo einfalt er það. Ertu orðinn þreyttur á því mikla starfi sem fylgir því að vera formaður KSÍ. Ég er ekki þreyttur á því að vinna fyrir knattspyrnuhreyfing- una. Það verð ég vonandi aldrei. En önnur störf, fjölskyldan og brauðstritið veldur því að minni tími er aflögu til að sinna slíku tómstundastarfi. Stjórnarstörf í KSI eru algerlega ólaunuð, raunar borga menn með sér vegna alls kyns kostnaðar, sem þessu er samfara. Ég óttast það mest að í framtíðinni verði æ erfiðara að fá menn til slíkra félagsstarfa og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir íþróttahreyfinguna, sem þarf á hæfum forystumönnum að halda. En knattspyrnan verður mér alltaf hjartfólgin hversu lengi sem ég verð formaður í þessu stærsta sérsambandi landsins. Hvað er þér eftirminnileg- ast í starfi þínu sem formanns og hvaða óskir áttu sjálfur til handa íslenskri knattspyrnu? Mér er leikurinn gegn Aust- ur-Þjóðverjum, vorið 1975, minnisstæðastur. Stemmningin og sigurgleðin rann ekki af okkur fyrir einhverntímann undir morg- un næsta dag, enda sennilega einn stærsti íþróttasigur íslendinga fyrr og síðar. Við ætlum að endur- taka þá sigurhátíð á laugardaginn kemur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.