Morgunblaðið - 06.06.1979, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979
Vítaspyrnur og
vindbelgingur
réðu úrslitum
Austri-
Fylkir
1:1
AUSTRI (>k Fylkir «erðu sann-
gjarnt jafntcfli í 2. deildinni í
knattspyrnu á Eskifjarðarvelli
á lauRardaKÍnn. Austri skoraði
úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.
en Fylkismcnn jöfnuðu á sama
hátt í seinni hálfleiknum. Tals-
verður vindur stóð beint á
annað markið meðan leikurinn
fór fram ok réð vindurinn
mestu um gang leiksins á nokk-
uð góðum, en þó lausum vellin-
um á Eskifirði.
Austri sótti undan vindinum í
fyrri hálfleiknum og sótti þá
mun meira. Strax i upphafi
ógnuðu þeir bræður Bjarni og
Sigurjón Kristjánssynir marki
Fylkis verulega, en Sigurjón
skallaði þá naumlega framhjá
eftir snarpa sókn Austramanna.
Þeir og Steinar Tómasson áttu
síðan heiðurinn af sóknarlot-
unni, sem gaf Austra víta-
spyrnu, en vítið var dæmt er
brotið var gróflega á Bjarna í
miðjum vítateig Fylkis. Sigur-
björn þjálfari Austra fram-
kvæmdi spyrnuna. Eskfirðingar
fórnuðu höndum er Ögmundur
varði skot hans, en menn önduðu
léttar er dómarinn lét endurtaka
spyrnuna, þar sem Ögmundur
hafði hreyft sig of fljótt. í
annarri tilraun urðu Sigurbirni
ekki á nein mistök og knötturinn
lá örugglega í netinu.
Dæmið snerist við í seinni
hálfleik og nú voru það Fylkis-
menn sem sóttu lengst af, en
komust lítt áleiðis og þau skot
þeirra, sem hittu rammann,
varði Benedikt af öryggi. Eftir
hornspyrnu er 12 mínútur voru
til leiksloka sigldi gott skot
framhjá Benedikt en stöðvaðist
á hendi varnarmanns Austra á
marklínu og réttilega var dæmd
vítaspyrna. Ögmundur mark-
vörður Kristinsson skoraði
örugglega framhjá kollega sín-
um í Austramarkinu. Litlu mun-
aði að Fylkir tryggði sér sigur í
leiknum er Grettir Gíslason
sendi þrumufleyg á Austra-
markið rétt fyrir leikslok, en
Benedikt varði snilldarlega í
horn.
í heildina var leikur þessi rétt
í meðallagi, en góðir kaflar sáust
þó til beggja liða. Bæði Austri og
Fylkir eiga að geta enn betur og
gera sjálfsagt ef viljinn og metn-
aðurinn til að standa sig verða
til staðar. Leikmenn Fylkis virk-
uðu frekar jafnir í þessum leik,
en Kristinn Guðmundsson
komst þó bezt frá leiknum,
bráðskemmtilegur leikmaður. Af
Austramönnum voru þeir Bene-
dikt markvörður og Gústaf
Ómarsson beztir og vörn Austra-
liðsins er greinilega að finna sig.
Haraldur Haraldsson gerði góða
hluti á miðjunni og Bjarni
Kristjánsson er stórhættulegur í
fremstu víglínu.
Ragnar Pétursson dæmdi leik-
inn allvel. Hann sýndi einu sinni
gula spjaldið í leiknum, Konráð
Hinrikssyni í Fylki. £jj
Þróttarar kræktu
í óvænt stig
UBK—
Þróttur
0:0
ÞRÓTTARAR frá Norðfirði
gerðu góða ferð suður til Kópa-
vogs á laugardaginn. Þá mættu
þeir Breiðabliki á grasvellinum
við Fífuhvammsveg og tókst að
krækja f dýrmætt stig. jafntefli
varð, ekkert mark skorað. Það
var fyrst og fremst baráttuvilj-
inn sem færði Þrótturum stigið
í þessum leik, þeir komu and-
stæðingum sfnum greinilega í
opna skjöldu með geysilegri
baráttu og þótt Blikarnir væru
oft nálægt því að skora vildi
knötturinn ekki fara í markið.
Annars var það veðrið sem setti
mesta svip á leikinn, sunnan
rok og rigning og vægast sagt
óskemmtilegar aðstæður til
þess að leika knattspyrnu.
Ekki gat leikurinn hafist fyrr
en rúmum tveimur tímum
seinna en auglýst hafði verið.
Fyrst var honum frestað í tvo
tíma þar sem Þrótturunum gekk
erfiðlega að komast suður og enn
tafðist hann um korter þar sem
línuverðir leiksins létu ekki sjá
sig en því vandamáli var bjargað
á þann hátt að tveir áhorfendur
hlupu í skarðið.
Blikarnir voru greinilega
sterkari í fyrri hálfleiknum en
Þróttarnir létu þá ekki í friði og
gekk þeim því illa að skapa sér
marktækifæri. Þeir Vignir Bald-
ursson og Ingólfur Ingólfsson
voru næst því að skora með
langskotum í f.h. í seinni hálf-
leik hélt Vignir uppteknum
hætti, þrumuskoi hans annað
hvort fóru fram hjá markinu eða
Ágúst Þorbergsson markvörður
sá við Vigni og varði skot hans.
Gunnlaugur Helgason komst
einnig í dauðafæri í seinni hálf-
leik en hitti boltann illa. Boltinn
barst til Hákons Gunnarssonar
sem stýrði boltanum fram hjá af
örstuttu færi.
Á lokamínútunum kom mið-
vörður Norðfirðinga Magnús
Magnússon allmjög við sögu.
Þróttur fékk hornspyrnu sjö
mínútum fyrir leikslok. Boltinn
var gefinn fyrir markið til
Magnúsar sem skallaði naum-
lega yfir. Þarna munaði vissu-
lega mjóu en það hefði líka
flokkast undir þjófnað ef Þrótt-
ur hefði skorað þarna og haft
með sér bæði stigin. Skömmu
eftir að hornspyrnan var fram-
kvæmd komst Sigurður Grétars-
son miðherji Breiðabliks í
dauðafæri, fyrir miðju marki.
Ágúst hálfvarði boltann, sem
stefndi í markið þegar Magnús
kom á fullri ferð og bægði
hættunni frá. Vel að verki stað-
ið.
Þróttararnir fögnuðu innilega
þegar flautað var til leiksloka og
láir þeim enginn. Baráttan hafði
fært þeim dýrmætt stig. Vörnin
var sterk í þessum leik með
miðverðina Magnús og Sigur-
berg Sigsteinsson sem beztu
menn. Ágúst var öruggur í
markinu, Þórhallur Jónasson
geysiduglegur á miðjunni og í
framlínunni var Sigurður Frið-
jónsson sprækastur eftir að
hann kom inná í seinni hálfleik.
Breiðabliksliðið er ungt og á
vafalaust eftir að ná langt í
sumar. Helgi Helgason og Valdi-
mar Valdimarsson voru sterkir á
miðju varnarinnar, Vignir sterk-
ur tengiliður og skotfastur og í
• Knötturinn á leið í netið eftir hornspyrnu Þóris Jónssonar. Markvörður Magna er vel staðsettur. en
kemst ekkert áleiðis fyrir samherjum sínum, en þrír þeirra ætla að bægja hættunni frá sjálfir.
Ljósm. GB.
Sigurmarkið beint
úr hornspyrnu!
FH—
Magni
1:0
FH vann Magna frá Grenivík í
veðurofsanum á laugardaginn.
FH innbyrti þar tvö dýrmæt
stig í safnið, stig sem koma að
góðum notum í hinni erfiðu
baráttu sem framundan er í 2.
d'eild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Leikmenn liðanna voru
ekki öfundsverðir af því að
hlaupa um úti f veðurofsanum,
sem var slfkur, að þær fáu
hræður sem mættu á völlinn til
að horfa á, hfrðust inni f bflum
sfnum. Fóru varamenn að dæmi
þeirra, ellegar hefði lungna-
bólga orðið hlutskipti þeirra.
FH skoraði eina mark leiksins f
sfðari hálfleik.
Magni sótti undan stórviðrinu
í fyrri hálfleik og var knötturinn
þataf skiljanlegum ástæðum á
vallarhelmingi FH. Aldrei ógn-
uðu þó norðanmenn markinu,
því að þeir náðu aldrei tökum á
rokinu. Allan hálfleikinn voru
þeir að kýla knöttinn stefnulaust
fram völlinn. Nokkur skot áttu
þeir af löngu færi, en öll fram
hjá eða yfir og langur tími fór
oft í að sækja knöttinn út í
hraun. Mjög lítil knattspyrna
sást í fyrri hálfleik, en allt sem
af slíku sást, kom frá heima-
mönnum, sem áttu fáeinar lag-
legar sóknarlotur, sem runnu þó
allar út í sandinn án þess að
veruleg hætta skapaðist.
FH-ingar sóttu nokkuð í sig
veðrið þegar þeir hlutu aðstoð
roksins og voru þeir nokkrum
sinnum aðgangsharðir við mark
Magna. Aldrei þó eins mikið og
menn höfðu reiknað með. Viðar
Halldórsson átti þó skotí þverslá
og Leifur Helgason skaut naum-
lega fram hjá, en hann var þá
nýkóminn inn á sem varamaður.
Eina mark leiksins skoraði Þórir
Jónsson síðan á 70. mínútu og
var það beint úr hornspyrnu!
Eins og sjá má af meðfylgjandi
mynd, er ekki ólíklegt að mark-
vörðurinn hefði bægt hættunni
frá ef varnarmenn hans hefðu
ekki þvælst fyrir honum. Mínútu
síðar var brotið á Helga Ragn-
arssyni í vítateignum og víti
dæmt. Viðar Halldórsson
brenndi af. Lítið var um færi
eftir það og raunar einnig fram
að því, leikurinn var leiðinlegur
og best gleymdur. Betra liðið
vann a.m.k.
- KJJ,
w : *
■ . í f -Jy ■ ■ -■ ■ ■ -\ & r ,t
• Eitt bezta tækifæri Breiðabliks. Rétt fyrir leikslok komst Sigurður Grétarsson í dauðafæri, eins og
sést á efri myndinni. Ágúst markverði tókst að verja en boltinn stefndi engu að síður í markið þegar
Magnús Magnússon, lengst til vinstri, kom á fullri ferð og skallaði boltann aftur fyrir endamörk
nánast á marklínunni.
framlínunni vöktu þeir athygli
Ingólfur Ingólfsson og Sigurður
Grétarsson. Sá síðarnefndi er
Ljósm. Guðjón Birgisson.
aðeins 17 ára og greinilega efni í Keflavík dæmdi leikinn ágæt-
góöan knattspyrnumann. lega.
Halldór Gunnlaugsson úr — SS.