Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGÚR 6. JÚNÍ 1979
47
UL ' IMIIHBK '■WvTt'.W *A'.' .
Páfinn kyssir ættjörð sína eftir
komuna til Varsjár.
Czestochowa, Póllandi. 5. júní. AP.
ÞÚSUNDIR Pólverja krupu á
kné við messu sem Jóhannes
Páll páfi II. flutti undir berum
himni í dag við helgasta reit
Póllands. Páfi er nú í fyrsta
skipti aftur kominn til þess
svæðis í Póliandi þar sem hann
var fyrrum erkibiskup.
Hann bað Maríu mey að
blessa lönd sem hann nefndi
ekki, en auðheyrt var að hann
átti við Austur-Evrópu. „Ég fel
þau í þína umsjá í þögn“, sagði
páfi.
Páfi flutti messu sína frá
múrum Jasna Gora-klaustursins
í Czestochowa og um 500.000
manns söfnuðust saman á ná-
lægri hæð og í garði fyrir neðan
múrana. Messan stóð í þrjá
klukkutíma og páfi gerði oft hlé
á henni til að koma að bænum til
Maríu meyjar og hann sagðist
gera ráð fyrir því að ýmsir
ítalskir prelátar væru lítiö
hrifnir af aðferð hans við messu-
gerðina.
„Hvað eigum við að gera við
þennan pólska páfa, þennan
slavneska páfa,“ kvaðst hann
ímynda sér að þeir segðu. „Hvað
getum við gert?“
í Jasna Gora er helgimynd af
„Svörtu madonnu" sem munn-
mæli herma að guðspjalla-
maðurinn Lúkas hafi málað.
Hann heimsótti þennan stað á
þriðja degi heimsóknar sinnar
sem stendur í niu daga. A hverj-
um degi hefur hann látið frá sér
fara yfirvegaðar yfirlýsingar til
valdhafa í Póllandi og annars
staðar í Austur-Evrópu.
„Á síðasta áratug", sagði hann
í dag, „hefur eining pólsku
500.000 krupu
fyrir páfanum
þjóðarinnar og drottningar
hennar verið staðfest og aukizt."
Hann kvaðst biðja til Maríu
meyjar að kirkjan fengi að njóta
„frelsi og friðar" til þess að
gegna hlutverki sínu.
Fyrir rúmum 300 árum lýsti
pólski konungurinn Jan Kazimir
því yfir að María mey væri
drottning Póllands þegar
klaustrið hafði staðizt umsátur
Svía.
Á morgun fer páfi til Kraká,
hinnar fornu höfuðborgar þar
sem hann var erkibiskup og
kardináli áður en hann var
kosinn páfi í október í fyrra.
Seinna í vikunni fer hann til
heimabæjar síns Wadowice í
Suður-Póllandi og syngur messu
í leifum útrýmingarbúðanna í
Auschwitz. Hann ferðast einnig
til pólska hálendisins og flytur
messu, en páfi var kunnur fyrir
áhuga sinn á skíðaferðum og
gönguferðum þegar hann var í
Póllandi. Heimsókninni lýkur á
sunnudag eftir síðustu útimess-
una í Kraká til heiðurs heilögum
Stanislaus, þjóðardýrlingi Pól-
verja.
Páfi var aðalhvatamaður þess
að þess er minnzt í ár að 900 ár
eru liðin síðan Stanislaus lézt.
Páfi fagnar mannfjöldanum úr bfl sínum í Varsjá.
Jóhannes Páll páfi 2. ekur með fríðu föruneyti í brynvörðum bfl um götur Varsjár.
8 ára
Osló 5. júní
Frá íróttaritara Mbl.
FIMMTUGUR NorÁmaður. som skaut oiginkonu sína til
bana í fyrra, særði alvarlosa íslonzkan mann og veitti
tvoimur stjúphörnum sínum skotsár hofur nú verið
dæmdur í átta ára fanselsi fyrir manndráp ok tilraun
til manndráps. Saksóknari hafði krafizt að maðurinn
yrði dæmdur í tíu ára fanjjelsi, að hann yrði dæmdur
fyrir manndráp af yfirlöjíðu ráði ojí til að jjroiða bætur.
Rótturinn noitaði þossum kröfum. Komizt var að þoirri
niðurstöðu að morðið ojí morðtilraunin hofðu okki verið
undirhúin fyrirfram heldur vorið framin í stundaræði.
U7
Veður
víða um heim
Akureyri 12 hálfskýjaó
Amsterdam 25 akýjaó
Bercelona 24 skýjaó
Berlín 28 heióskírt
Chicago 30 bjart
Denpaaar, Bali 32 bjart
Frankfurt 32 bjart
Genf 26 skýjaó
Helsinki 21 bjart
Fenayjar 28 heiðskírt
Hong Kong 29 skyjað
Jerúaalem 26 akýjaó
Jóhannesarborg 17 sól
Kaupmannahöfn 22 sól
Lissabon 23 sól
London 21 skýjaó
Los Angeles 22 skýjaó
Madrid 30 sól
Majorka 28 hilfskýjaó
Malagha 24 lóttskýjað
Las Palmas 21 skýjaó
Miami 31 skýjaö
Montreal 28 sól
Moskva 16 akýjað
Nýja Delhi 41 bjart
New York 19 skýjaö
Ósló 23 sól
París 20 skýjaó
Reykjavik 7 poka
Rio de Janeiro 29 sól
Rómaborg 31 sól
San Francisco 14 skýjaó
Stokkhólmur 23 sól
Sydney 18 sól
Teheran 30 bjart
Tel Aviv 27 skýjað
Tókíó 26 bjart
Toronto 26 rigning
Vancouver 18 rigning
Vínarborg 30 sól
Rétturinn tók einnig tillit til
þess að niaöurinn og konan bjuggu
í hinu erfiðasta hjónabandi. Kon-
Thatcher
kát í París
París 5. júní Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands sagði í við-
ræðu við Giscard D‘Estaing frá
hugmyndum sínum um hvernig
staðið skyldi að því að efla styrk
og veldi Bretlands og gera það að
atkvæðameira afli í Vestur
Evrópu. Báðir aðilar sögðu að ferð
Thatchers hefði tekizt ljómandi
vel, en þetta er fyrsta för hennar
til útlanda eftir að hún varð
forsætisráðherra. „Þetta hefur
verið fjarska indælt og Frakk-
landsforseti gladdist við að heyra
að Bretland myndi gegna mikil-
vægara hlutverki á alþjóðavett-
vangi en aður og stuðla að öflugri
Evrópusamvinnu" sagði Thatcher
við blaðamenn er hún hélt frá
Elyseehöll.
an lifði óreglusömu lífi, neytti
alloft áfengis og sótti samkomu-
staði óspart. Vitni hafa sagt að
hún hafi einnig haft skipti við
aðra karlmenn.
Það kom fram að kvöldið áður
en þessi atburður gerðist, hafði
maðurinn séð konu sína á veit-
ingastað ásamt íslendingnum
Eggerti Lárussyni og öðrum ís-
lendingi. Hann sá þau síðan enn á
ný sanian á öðrum samkomustað
daginn sem atburðurinn átti sér
stað. Maðurinn fór þá til heimilis
þeirra þar sem stjúpsonur hans
var f.vrir og nokkru síðar komu
kona hans, Eggert og stjúpdóttir-
in.
Hún hafði beðið Eggert að
koma með sér heim vegna þess
hún þorði ekki að fara ein heim.
Maðurinn greip þá byssu, colt 45
með kaliber 11.25, skaut á Eggert
skoti sem fór í maga, lifur og inn í
hægra lunga, skaut öðru skoti á
konu sína og lézt hún samstundis
og skaut síðan að stjúpbörnum
sínum og særði þau. í réttarskjöl-
um kemur fram að Eggert Lárus-
son hafi veri alvarlegast særður
þeirra þriggja og varð hann að
liggja á sjúkrahúsi í marga mán-
uði áður en hann gat haldið til
íslands. Að því er segir í rétt-
arskjölum er ekki ljóst hvort
Eggert muni bíða verulegt heilsu-
tjón af. Hann mun hins vegar geta
fengið miskabætur frá norska
ríkinu vegna þeirrar þjáninga og
óþæginda sem hann varð að sæta
vegna skotárásarinnar, að því er
Mbl. hefur fengið upplýst.
Erlendir ríkisborgarar og Norð-
menn geta gert kröfu til ríkisins
um að fá greidd öll fjárútlát og
kostnað sem verður í sambandi við
refsivert athæfi. Er sérstök nefnd
skipuð af konungi, „Skaðabóta-
nefnd þeirra sem verða fyrir
ofbeldi" sem sér um að útdeila fé
að fengnum umsóknum. Hámarks-
upphæð slíkra bóta er um 100
þúsund norskar krónur.
SITHOLE, aðalandstæðingur
Muzorewa biskups, forsætisráð-
herra Zimbabwe, þverneitaði í
dag að hans menn ættu nokkurn
þátt í samsæri til að myrða
forsætisráðherrann.
Sagði Sithole þetta upplognar
kærur sem búnar hefðu verið til í
Víkingamynt
tengist morði
MANNFRÆÐINGUR við
Iowa-háskóla, Marshall
McKusick, telur að frægur
norrænn peningur, elzta mynt
sem hefur fundizt í Amerfltu,
tengist morði sem var framið
fyrir 900 árum, að sögn blaðs-
ins Daily American.
Peningurinn fannst fyrir 17
árum í Maine. McKusick segir að
norrænn maður hefði aldrei lát-
ið slíkan pening af hendi án þess
að veita mótspyrnu og jafnvel
falla. Peningar hafi verið svo
sjaldgæfir í Grænlandi að eng-
inn hafi fundizt þar.
Aðeins fjórir peningar eru til í
heiminum eins og sá sem fannst
í Maine. Færir sérfræðingar
lýstu því nýlega yfir að hann
væri ófalsaður og þar með lauk
efasemdum sem hafa verið um
peninginn síðan fornleifafræð-
ingur fann hann 1961.
því skyni að fá átyllu til að
handtaka fjórtán stuðningsmenn
hans. Hann hótaði því að það gæti
haft „hinar ægilegustu afleiðing-
ar“ ef Muzorewa héldi áfram
uppteknum hætti. Hann sagði líka
að hinar sífelldu atlögur sem
herlið stjórnarinnar væri að gera
gegn skæruliðum andsnúnum
stjórninni væru til þess eins falln-
ar að kynda undir ólgu og ókyrrð.
Sithole neitar
Salisbury. Zimbabwe Ródesía.
5. júní. AP.