Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 48

Morgunblaðið - 06.06.1979, Page 48
Síminn á afgreiöslunni er 83033 JWorfliinblflfcifc AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979 VSI boðar almennt verk- bann frá og með 18. júní SAMBANDSSTJÓRNARFUNDUR Vinnuveitendasambands íslands samþykkti í gær að boða frá og með 18. júnf til almenns samúðarverkbanns, sem nái til allra félaga innan VSÍ. Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri sagði í gær að vinnuveitendur vildu hafa rýmri frest á þessari aðgerð en almennt tíðkaðist, þeir teldu hinn aimenna 7 daga frest oí knappan. Þó töldu þeir sér ekki fært vegna ástands mála að hafa frestinn öllu lengri. Með þessu væru vinnuveitendur að knýja á um skjóta lausn þeirra vandamála, sem að steðjuðu. Þorsteinn kvað það jafnframt hafa verið ákveðið að hafa þessa aðgerð eins mildilega og frekast var kostur. Því var ákveðið að undanþiggja alla heilbrigðisþjón- ustu verkbanninu, þar með talda lyfjaverzlun og hvers konar þjón- ustu við sjúkrahús og heilsugæzlu- stöðvar, svo og gistihús. Undan- þegin er einnig hvers konar þjón- usta við löggæzlu, slökkvilið, öryggisgæzlu og neyðaraðstoð, svo og hvers konar þjónusta við skóla og aðrar menntastofnanir. Verk- Stöðvast Flugleiða- þotan í New York? VERÐI þotur af gerðinni DC-10 þota kyrrsettar enn á ný stöðvast þota Flugleiða af þessari gerð í Bandaríkjunum. Samkvæmt upplýsingum Sveins Sæmundssonar blaða- fulltrúa Flugieiða er vélin skráð í Bandaríkjunum og verður því að hlíta lögsögu FAA eða bandariska loftferðaeftirlitsins. DC-10 þota Flugleiða átti að lenda í Bandaríkjunum skömmu fyrir miðnætti í nótt 3g á að fara í venjubundna skoðun í New York í dag, en að auki 100 flugtíma skoðun, sem ákveðið var að setja vélarnar í eftir flugslysið í Chicago 25. maí. Ef „tíurnar" verða kyrr- settar að nýju hefur það því ekki áhrif á áætlun Flugleiða fyrr en á morgun. bannið nær heldur ekki til farþega- og póstflutninga hvers konar á landi og í lofti og þjónustu við þá, er slíka flutninga annast. Undan- þegin er vélgæzla og varzla fasteigna, framleiðslutækja, afurða og annarra verðmæta, verzlun með bensín, olíur, olíuvörur, afgreiðslu olíuskipa og olíuflutninga, smásöluverzlun með matvörur og vinna við útgáfu, prentun og dreif- ingu dagblaða. Þá er dreifing áburðar og fóðurbætis einnig undanþegin. Þá segir einnig, að VSÍ sé reiðubúið að meta aðstæður og veita undanþágur vegna ófyrir- séðra knýjandi nauðsynja og ótal- inna þjóðfélagslegra mikilvægra starfa. Sjá fréttatilkynningu VSÍ í heild á bls. 29. Geng Biao varaforsætisráðherra Kína er staddur í opinberri heimsókn á Islandi og var mynd þessi tekin er hann var staddur á Þingvöllum síðdegis í gær. í dag mun hann heimsækja járnblendiverksmiðjuna og skoða starfsemi Hitaveitu Reykjavíkur. Sjá nánar bls. 5. Ljósm. Ól. K. M. Snorri Jónsson, varaf orseti ASÍ: Mikil ogill tíðindi sjálfsmorð að ræða. Til 11 11 Enn ein ítrekun á að ríkisstjórnin fyrirfari sér, — segir Ingólfur Ingólfsson „MÉR finnast þetta mikil og ill tíðindi og komi þetta til framkvæmda, sem ég vona nú ekki, þá lendir þetta langverst á okkur hér á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Snorri Jónsson, varaforseti ASÍ, er Morgunblaðið spurði hann um viðbrögð vegna hins almenna verkbanns, scm VSÍ boðaði í gær. Þetta sagði Snorri að væri vegna þess að Vinnuveitendasambandið væri sterkast í Reykjavík og nágrenni. Ef Vinnumálasambandið heldur hins vegar sinni stefnu, að vera ekki samstíga VSÍ í aðgerðum, sagði Snorri að verkbannið kæmi ekki nema óbeint niður á fólki úti á landi. Hins vegar sagði hann að enn ætti hann eftir að sjá ákvörðun VSÍ og kvað hann ASÍ eiga eftir að líta á þessa aðgerð og ræða hana. Snorri kvað ASI hafa mótað ákveðna stefnu í haust og af 50 þúsund meðlimum þess væri Ekkert lát á hækkunum í Rotterdam: Benzín í 280-290 kr. í næstu viku? Frekari hækkanir nauðsynlegar í byr jun júlí aðeins eitt lítið félag, sem boðað hefði verkfall, Mjólkurfræðinga- félagið. Hins vegar hefðu vinnu- veitendur knúið undirmenn á far- skipum út í aðgerðir. Snorri kvað þessi miklu og illu tíðindi vart verða til þess að leysa vanda atvinnuveganna. Ingólfur Ingólfsson, forseti FFSÍ kvað þessa ákvörðun ekki koma á óvart. Þetta væri undirstrikun vinnuveitenda á því að þeir verði leystir frá vandanum að ganga til samninga. Hins vegar væri ljóst, að útgerðirnar sjálfar væru til- búnar að ljúka samningsgerðinni, enda hefði verið unnið linnulaust frá morgni fram á nótt undan- farna daga. „Ætlum við okkur að semja í þessari deilu," sagði Ingólfur, „og munum við halda áfram með það. Þetta er aðeins enn ein ítrekun VSÍ um það að ríkisstjórnin fyrirfari sér. Ég er þeirrar skoðunar, að setji ríkis- stjórnin lög verði í raun um sjálfsmorð að ræða. Tilefnið er sjálfgefið, frumhlaup einstakra ráðherra um setningu bráða- birgðalaga gátu ekki annað leitt af sér, þeir hefðu báðir átt að segja af sér strax, bæði Magnús og Stein- grímur, þegar þeir höfðu hlaupið svo á sig.“ Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands íslands kvað það geta orðið skemmtilega sjón að sjá máttar- stólpa atvinnulífsins hlaupa á milli fyrirtækjanna og stöðva rekstur þeirra sem verkbanns- verði. Hins vegar kvað hann vinnuveitendur ekki gera sér grein fyrir því út í hvaða kviksyndi þeir væru að hoppa. Ljóst væri að þeir sæju ekki til lands og að þeir hefðu ekki kannað hitastig vatnsins, sem þeir væru að varpa sér í. Því myndu þeir annað hvort fá tauga- áfall, þegar þeir kæmu niður í, vegna þess að vatnið væri of heitt eða þá allt of kalt. Hins vegar varpaði Guðmundur fram þeirri spurningu, hvort hér væri ekki um eins konar verkfall að ræða, þar sem krafan væri hærri álagning og hækkun á vöru og þjónustu. Krafan væri sett gagnvart ríkis- valdinu. OLÍUFÉLÖGIN hafa ritað verðlagsyfirvöldum bréf og óskað eftir heimild til þess að hækka benzín og gasolíu um miðjan þennan mánuð þ.e.a.s. í næstu viku. Gera olíufélögin það að tillögu sinni að hver lítri af benzíni hækki úr 256 í 280—290 krónur og gasolíulítrinn hækki úr 103 í 120—130 krónur. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér munu forráðamenn olfufélaganna hugsa sér hækkunina sem áfangahækkun og að önnur stórfelld hækkun þurfi að verða í júlibyrjun þegar nýir og dýrir farmar af benzíni og gasolíu írá Rússlandi koma f sölu. Ekkert lát er á hækkunum á markaðnum í Rotterdam. Sam- kvæmt síðustu skráningum 30. maí s.l. var skráð verð á benzíni 410 dollarar hvert tonn, hafði hækkað um 10 dollara á 5 dögum og skráð verð á gasolíu var 395 dollarar hvert tonn, hafði hækkað um 7,5 dollara á 5 dögum. Skráð verð á svartolíu var óbreytt, 142,50 dollarar hvert tonn. Farmar af benzíni og gasolíu, sem keyptir voru á nýja verðinu eru þegar komnir til landsins og fara þeir í sölu í byrjun júlí. Þá þurfa olíuvörur að hækka á nýjan leik og fer benzínverðið þá líklega í tæpar 320 krónur lítrinn og gasolíuverðið fer líklega í 146—147 krónur lítrinn. Er í benzínverðinu reiknað með hækkun vegagjalds, til samræmis við byggingavístölu sem að öllum líkindum verður reiknað inni verðið við næstu hækkanir. í tillögum olíufélaganna er gert ráð fyrir ákveðinni upphæð til þess að jafna skuld olíufélaganna við innkaupajöfnunarreikning olíuvara. Skuld olíufélaganna er nú rúmlega 2000 milljónir króna, sem bankakerfið hefur fjár- magnað, en olíufélögin greiða vexti af upphæðinni. Saltfiskur fyrir um sex milljarða kr. til Portúgals SAMIÐ hefur verið um sölu á 10 þúsund lestum af saltfiski til Portúgals og má ætla að söluverð- mætið nemi um 6 milljörðum króna. Með þessum samningi hefur allur saltfiskur, sem fram- leiddur var á vetrarvertfð verið seldur, samtals um 27 þúsund tonn. Morgunblaðið bar þessa frétt undir Friðrik Pálsson fram- kvæmdastjóra SÍF í gær, en hann varðist allra frétta og sagði að fjallað yrði um sölumál og eins um þau vandamáL sem upp hafa komið vegna tafa á afskipunum á aðalfundi SÍF á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.