Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 2

Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979 Erfiðleikar með á- burð víða úti á landi „VEGNA hráefnisskorts, flutningaerfiðleika og minni framleiðslu hjá verksmiðjunni en reiknað var með, er eftir að afgreiða nokkuð af áburði til kaupenda hér á Suður- og Suð-vesturlandi. Það vantar einnig áburð á ýmsa staði á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Norð-Austurlandi en ekki hefur fengist leyfi til að flytja áburð til þessara staða með skipum nema hvað Skipaútgerð ríkisins hefur flutt áburð eftir því, sem hún hefur getað samhliða öðrum vöruflutning- um“ sagði Hjálmar Finnsson, framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðju ríkisins í samtali við Mbl. í gær. Hjálmar sagði að í allt ætti eftir að afgreiða 8,1% af öllum áburð- arpöntunum á Suður- og Suð- vesturlandi eða um 2500 tonn og skiptust þessi 8,1% þannig að til Vegagerðar og Landgræðslunnar væru óafgreidd 2,6% og til ann- arra aðila 5,5%. Sagði Hjálmar að ekki hefði fengist undanþága til að Fjallfoss, sem lægi á Höfn í Hornafirði með 519 tonn af áburði, fengi að sigla til Þórshafn- ar en nær enginn áburður hefði borist þangað enn. Þá væru 540 tonn af áburði á Reyðarfirði en ekki hefði fengist undanþága til að flytja þann áburð til Húsavíkur en áburðinum hefði verið skipað upp á Reyðarfirði, þegar hafís lá fyrir Norðurlandi. Fram kom hjá Hjálmari að þær tegundir, sem aðallega hefði vant- að væru ýmsar tegundir, sem notaðar eru til íblöndunar, s.s. kalí. Eftir helgina ætti hins vegar að rætast úr þessu og einhver kjarni að fást afgreiddur í næstu viku, verið væri að losa skip, sem væri með kalí og á miðvikudag kæmi til landsins skip með 2800 tonn af blönduðum áburði. í skip- um í Reykjavíkurhöfn eru nú um 3000 tonn af áburði og ættu 874 tonn að fara út á land. Auður Bjarna- dóttir sigurveg- ariílist- danskeppni í Kuopio AUÐUR Bjarnadóttir ballett- dansari bar sigur úr býtum í norrænni listdanskeppni, sem fram fór í borginni Kuopio í Finnlandi og lauk í gær. 20 pör tóku þátt í keppninni og var mótdansari Auðar ung- verskur maður, sem starfar með henni við ballettinn í Munchen. íslenzkur dansari hefur ekki unnið til verð- launa í meiri háttar listdans- keppni síðan Ilelgi Tómasson hrcppti silfurverðlaunin í al- þjóðakcppninni í Moskvu fyrir mcira en áratug. Keppni þessi var haldin í tilefni 10 ára afmælis listahátíð- ar, sem haldin er í Kuopio og voru sem fyrr segir 20 pör, sem þátt tóku í keppninni. Voru keppendur á aldrinum 16—22 ára. Fyrsta keppnisdaginn var keppt í klassiskum dansi en annan keppnisdaginn var keppt í nútíma dansi. Hlutu Auður og mótdansari hennar einróma lof og komust auðveldlega í úrslita- keppnina ásamt 7 öðrum pörum. I sjálfri úrslitakeppninni þóttu Auður og mótdansari hennar standa sig frábærlega vel og sigruðu þau með miklum glæsi- brag. Verðlaun voru afhent í Teater Italo í Kuopio að lokinni keppninni í gærkvöldi. Auður hefur undanfarin ár starfað í Islenzka dansflokknum en nú starfar hún við ballettinn í Munchen í Þýzkalandi. Húsavík: Samstarfsráðherra Norðurlanda þinga FUNDUR samstarfsráð- herra Norðurlanda var haldinn á Hótel Húsavík í gær. Fundarstörfum lauk í gær en í dag fara ráð- herrarnir í skoðunarferð um nágrenni Húsavíkur. Fundinn á Húsavík sátu Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra fyrir íslands hönd, Bertil Hanson sveitarstjórnamálaráðherra fyrir hönd Svíþjóðar, Bjartmar Gjerde olíu- og orkumálaráðherra fyrir hönd Noregs, frú Pirkko Työlá- járvi aðstoðarfjármálaráðherra fyrir hönd Finnlands og Finn Aasberg-Petersen fyrir hönd Dan- merkur. Samstarfsráðherrarnir fjalla um þau málefni norrænnar samvinnu, sem falla ekki undir svið einstakra ráðuneyta. Veigamesta málið, sem var til umræðu í gær, fjallaði um áhrif olíu- og gasleitar og hugsanlegrar vinnslu Norðmanna á svæðinu út af Norður-Noregi á byggð í Norð- ur-Noregi, Norður-Finnlandi og Norður-Svíþjóð, en þar hefur verið við mikinn vanda að etja vegna lítilla atvinnutækifæra. Grafiskir sveinar frest- uðu verkf alli STJÓRN og trúnaðarmannaráð Grafíska sveinafélagsins fjallaði í gær um frestun Vinnuveitenda- sambands íslands á verkbanni því sem boðað hafði verið hin 18. júní, en kemur nú til framkvæmda hinn 25. júní. I samræmi við þá frestun ákvað Grafíska sveinafélagið að fresta boðaðri vinnustöðvun félagsins, sem koma átti til fram- kvæmda hinn 18. júní til 25. júní. Á félagsfundi í félaginu, sem haldinn var, þegar verkfallið var upphaflega boðað, var það yfirlýst að verkfallsboðunin væri vegna verkbannsaðgerða VSÍ. Kristján Thorlacius formaður BSRB í ræðustóli. Aðrir á myndinni eru Hersir Oddsson, Haraldur Steinþórsson og Einar Ólafsson. Ljósm. Mbl. Krlstinn. Kristján Thorlacius endur- kjörinn formaður BSRB KRISTJÁN Thorlacius var end- urkjörinn formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á 31. þingi sambandsins sem lauk á Hótel Sögu í gær. Aðeins ein breyting varð á stjórn sambands- ins, Þórhallur Halldórsson, for- maður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, var kjörinn 1. varaformaður í stað Hersis Oddssonar, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Engin mót- framboð komu fram við tillögu kjörnefndar. í stjórn BSRB fyrir næsta kjörtímabil sitja: Formaður Kristján Thorlacius, 1. varaform. Þórhallur Halldórs- son, 2. varaform. Haraldur Stein- þórsson. Meðstjórnendur Ágúst Geirsson, Albert Kristinsson, Ein- ar Ólafsson, Guðrún Helgadóttir, Jónas Jónasson, Kristín H. Tryggvadóttir, Sigurveig Sigurð- ardóttir, Örlygur Geirsson. Vara- stjórn: Björn Björnsson, Helgi Andrésson, Bergmundur Guð- laugsson, Vilborg Einarsdóttir, Hildur Einarsdóttir, Magnús Björgvinsson og Elsa Lilja Eyjólfsdóttir. Þing BSRB stóð yfir í fjóra daga. Fjölmörg mál voru þar til umræðu, en hæst bar kjaramál, jafnréttismál, starfskjaramál og skattamál. Ú tf lutningsf y rirtækin b jargast á leiguskipum HVERGI Á landinu hafa birgðageymslur hraðfrystihúsa fyllzt, þar sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur getað afskipað frystan fisk á Bandarfkjamarkað og á Evrópumarkað með leiguskipum sölufyrir- tækja sinna Coldwater Seafood Corp. og Snax Ltd. Alls hafa nú 4 skip komið til landsins og hafa þau heimsótt allar hafnir, sem máli skipta, nema Reykjavfk, þar sem ekkert legurými hefur verið fyrir slík skip vegna farmannaverkfallsins. Þá hefur Sölustofnun lagmetis getað losnað við verðmæti 100 milljóna króna á Bandarfkjamarkað með skipinu Berglindi, sem var hér á dögunum. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þegar væru farin 3 skip á vegum sölufyrir- tækja SH, 2 til Bandaríkjanna og eitt til Englands. Nú er eitt allstórt skip að lesta fyrir SH og Samband íslenzkra samvinnu- félaga freðfisk á Bandaríkjamark- að og mun það taka um 1.500 smálestir. Eyjólfur kvað frystihús mjög víða hafa bjargazt vegna þessara skipa og hefðu þau ekki komið, hefðu húsin stöðvazt fyrir alllöngu. Þrátt fyrir þetta kvað hann stöðu Coldwater í Banda- ríkjunum vera mjög slæma. Þrjú skip hefðu þegar flutt fisk vestur, en það væri hvergi nærri nóg, þar sem vanalegt væri að 2 til 3 skip færu utan til Bandaríkjanna í hverjum mánuði. Gylfi Þór Magnússon, forstjóri Sölustofnunar lagmetis kvað stöðu lagmetisiðnaðarins mjög slæma. Nú biðu hér 400 til 500 milljón króna verðmæti afskipun- ar til Evrópu, en tekizt hefði að koma 100 milljón króna verðmæti á Berglindi, sem sigldi til Banda- ríkjanna á dögunum. Gylfi kvað fyrirsjáanlegt að þegar hefði orðið mikið tjón á mörkuðum erlendis, sem erfitt væri þó að meta enn og í raun kæmi það ekki nákvæmlega í ljós, fyrr en salan kæmist í gang á ný. Hann kvað þetta ástand óþolandi og almenning alls ekki gera sér grein fyrir því, hve alvarlegt mál þetta væri. Útilokað væri að byggja upp markaði er- lendis, þegar árlega féllu að jafn- aði 2 mánuðir dauðir. í fyrra kvað hann það hafa verið útflutnings- bann, nú farmannaverkfall. Valgarð Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjá Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda kvað alla sölu á þurrum saltfiski hafa legið niðri í farmannaverkfallinu, en aðallega er um að ræða ufsa og þorsk á Þýzkalandsmarkað. Hins vegar kvað hann tvö skip nú vera að lesta blautfisk á Italíu og Grikkland annars vegar og hins vegar á Spán. Eru það Eldvíkin og Mávurinn, sem hafa undanþágu Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands. Mun Eldvíkin taka 2.300 smálestir en Mávurinn 1.400 smálestir. Jónas Þór Steinarsson fram- kvæmdastjóri Félags íslenzkra stórkaupmanna kvað almennt litl- ar birgðir eftir af matvöru hjá heildverzlunum, en þó væru þau fyrirtæki, sem hefðu aðstöðu í tollvörugeymslu betur stæð. Ástandið væri því misjafnt eftir því hvert fyrirtækið væri. Birgðir innfluttra matvæla væru þó af skornum skammti. Tveir stóðhestar Björns á Löngu- mýri seldir á uppboði — Björn kærir til Hæstaréttar SÝSLUMAÐURINN í Húnavatnssýslu bauð í gær upp á Blönduósi tvo stóðhesta, sem taldir voru eign Björns Pálssonar á Ytri-Löngumýri en hcstarnir voru teknir í landi Svínavatns, þar sem þeir gengu lausir. í upphafi uppboðsins lýsti Björn Pálsson því yfir að hann mótmælti uppboðinu sem ólögmætu og ætlaði sér að kæra það til Hæstaréttar til ógildingar. Báðir voru hestarnir seldir og var sá yngri, talinn 2 til 3 vetra, seldur á 80 þúsund krónur en sá eldri, talinn 6 til 8 vetra, var seldur á 152 þúsund krónur og keypti Þorfinnur Björnsson, sonur Björns á Löngumýri, þann eldri. Samkvæmt upplýsingum Jóns ísbergs sýslumanns nam kostnaður við töku og uppboðið á hestunum um 180 þúsund krónum. Björn Pálsson sagði í samtali stöð, þar sem þeir voru látnir éta við Mbl. að afloknu uppboðinu að upp í verð sitt og þá boðnir upp,“ ólöglega hefði verið staðið að sagði Björn. töku hestanna. Hann hefði verið Jón ísberg sýslumaður sagði að að lata syni sína sækja hestana, hann vildi ekki segja neitt um sem voru í hans eigin hryssum, hvort Hæstiréttur teldi þetta þegar hestarnir hefðu verið ólögmætt en lögunum hefði verið flæmdir lengra inn í land Svína- framfylgt með nákvæmlega sama vatns. Rétt væri að þeir hefðu hætti á undanförnum árum. „Á komist milli hólfa vegna þess að uppboðinu var staddur Haraldur landamerkjagirðing hefði legið frá Gautsdal, sem varð fyrir því niðri á kafla. „Það þekkist ekki að fyrir 17 árum að stóðhestur hans nágrannarnir taki svona hesta var tekinn tvisvar í afrétti. Það hver fyrir öðrum, þegar þeir fara á mál fór fyrir Hæstarétt og milli girðinga, heldur er venja að Haraldur tapaði. Björn átti kost láta eiganda þeirra vita af þeim. á að leysa hestana út og spara sér Þá lét sýslumaður kalla út auka- verulegan hluta kostnaðarins við vakt lögreglumanna til að taka töku hestanna. Annars er það hestana og í stað þess að afhenda dómstolanna að skera úr hvort ég þá hreppsstjóra hér í hreppnum hef farið út fyrir valdsvið mitt í fór hann með þá út á Blönduós og þessu rnáli," sagði Jón sýslumað- kom þeim í geymslu á tamninga- ur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.