Morgunblaðið - 15.06.1979, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1979
Anatoly
Kuznetsov
léztígœr
London 13.júní Reuter.
SOVÉZKI rithöfundurinn Anatoly
Kuznetsov sem baðst hælis á Bretl-
andi fyrir tíu árum lézt skyndilega
á heimili sínu í London f morgun.
Kuznets v aflaði sér alþjóðaviður-
kenninKar árið 1966 með skáldsög-
unni Babi Yar um fjöldamorð
nazista á Gyðingum í Ukraínu í
seinni heimsstyrjöldinni.
Það var árið 1969 ^ð Kuznetsov kom
til Bretlands undir því yfirskini að
hann hygðist fá að sækja skjalasöfn
þar í landi vegna bókar sem hann
hafði í smíðum. Nokkru síðar hvarf
hann af gistihúsi sínu og leitaði
ásjár brezka utanríkisráðuneytisins
og fékk hæli í Bretlandi.
Kuznetsov sætti mikilli gagnrýni í
Sovetríkjunum síðustu árin sem
hann bjó þar og var sakaður um að
víkja í verkum sínum frá sósíaliskri
raunsæisstefnu sem æskileg þótti
til að rithöfundar nytu þar trausts
stjórnvalda. Babi Yar varð metsöl-
ubók víða á Vesturlöndum og ýmsar
aðrar bækur hans hlutu mikla
útbreiðslu. Kuznetsov varð brezkur
ríkisborgari á s.l. ári.
Trúarganga leyfd
í miðborg Krakár
Varsjá, 14. júní. Reuter.
í fyrsta skipti í 40 ár leyfðu
yfirvöld í Kraká, heimaborg
Jóhannesar Páls páfa II, hefð-
bundna trúarlega skrúðgöngu á
fimmtudegi eftir trinitatis um
miðborgina. Með þessu voru yfir-
völd greinilega að sýna velvild
sína eftir heimsókn páfa 1' sfðustu
viku.
Um 25,000 manns söfnuðust sam-
an þrátt fyrir rigningu og rok til
þess að fylgjast með trúargöngunni
sem fór eins kílómetra vegalengd
fram hjá fjórum altörum til
markaðstorgsins.
Síðan kommúnistar komu til
valda hafa yfirvöld lagt bann við
því að skrúðgangan færi leiðina frá
því fyrir stríð frá Wawel dómkirkju
til Madonnu kirkjunnar við mark-
aðstorgið og takmarkað hana við
virkisborgina þar sem dómkirkjan
er. Deilt hefur verið um leiðina
árum saman.
Páfi hélt því fram í fyrra þegar
hann var erkibiskup í Kraká að sú
ráðstöfun stjórnvalda að meina
skrúðgöngunni að fara um miðborg-
ina sýndi að enginn áþreifanlegur
árangur hefði náðst á fundi Páls
páfa VI og pólska kommúnistaleið-
togans Edvard Giereks 1977.
1 dag þakkaði nýi erkibiskupinn
við altari framan við Madonnu-
kirkju yfirvöldum að leyfa gönguna
„þótt fyrr hefði verið.“ Hann kvaðst
vona að önnur vandamál
Krakár-sóknarinnar yrðu leyst í
sama anda.
Æðsti yfirmaður pólsku kirkj-
unnar Stefan kardináli Wyszynski
þakkaði yfirvöldum fyrir veitta
hjálp við heimsókn páfa, einkum
smíði stórra altara. „Jesús Kristur
gengur enn á meðal vor í föðurlandi
okkar," sagði hann.
Þrátt fyrir opinskáar yfirlýsingar
páfa um stjórnmál og samskipti
ríkis og kirkju í Póllandsferðinni er
stjórnin greinilega ánægð með
heimsóknina, sem hún reyndi að
túlka sem stuðning við sig.
Kazimierz Kakol trúarráðherra
sagði í gær: „Eg er
ánægður. . .Heimsóknin stóðst
beztu vonir. Frá félagssjónarmiði
bar hún jákvæðan árangur."
Aðspurður hvort annarrar heim-
sóknar páfa væri að vænta minnti
hann á að Wyszynski kardináli
hefði látið í ljós von um að páfi
kæmi til 600 ára afmælis klausturs-
ins í Czestochowa 1982.
FLAUELIS- OG DENIM BUXUR 26“—38
Snorrabraut 56 sími 13505.