Morgunblaðið - 15.06.1979, Page 15

Morgunblaðið - 15.06.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979 15 ÞegarHitler fór ad titra... Minnesota, 14. ]ún(. AP. SÁLFRÆÐINGUR við háskólann í Minnesota, dr. Leonard Hcston, segir að stórir og daglcgir skammt- ar af amfetamíni hafi valdið því að Adolf Ilitler hafi ekki verið í andlcgu jafnvægi og amfetamfnið kunni að hafa stytt síðari heims- styrjöldina. Dr. Heston hefur rannsakað þetta síðan 1972 og komizt að þeirri niðurstöðu að vinstri handleggur Hitlers hafi farið að titra skömmu eftir að Bandaríkin fóru í stríðið. Á næstu mánuðum og árum breiddist skjálftinn út til allra útlima, segir Heston, og Hitler fór að sjúga í sér puttana. Bjartsýni og svartsýni skiptust á hjá Hitler í stríðinu. Sýfilis, Parkinsonsveiki, geðklofi, og fleiri ástæður hafa verið nefndar til skýr- ingar á þessu. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Apena Barcelona Berltn BrUasel Chicago Denpasar Heisinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarb. 5 akýjað 16 rigning 34 sól 18 alskýjað 16 skýjað 20 skýjað 22 bjart 32 bjart 15 skýjað 27 bjart 28 bjart 10 bjart Kaupmannah. Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Majorka Malaga Miami Montreal Moskva Nýja Delhi New York Osló París Rio de Janeiro Reykjavík Rómarborg San Francisco Stokkhólmur Sydney Teheran Tel Aviv Tókíó Vancouver Vínarborg 17 úrkoma 22 skýjað 23 bjart 18 skýjað 33 bjart 29 skýjað 25 skýjaö 30 lóttskýjað 28 skýjað 19 bjart 23 bjart 31 skýjaö 23 bjart 19 skýjaö 19 skýjað 32 skýjað 7 skýjað 29 skýjað 16 bjart 21 skýjað 25 bjart 33 bjart 28 bjart 33 Skýjað 18 skýjaö 23 rigning Þetta gerðist 15. jiíní 1977 — Fyrstu frjálsu þingkosning- arnar á Spáni í 41 ár. 1972 — Hlé gert á loftárásum á Hanoi meðan Podgorny forseti er í heimsókn. 1965 — Rússar sýna farþegaflugvél, sem þeir segja þá stærstu í heimi og tekur 700 farþega, á flugsýningu í Frakklandi. 1950 — Vestur-Þjóðverjar fá aðild áð Evrópuráðinu. 1934 — Fundur Hitlers og Musso- Iinis í Feneyjum. 1923 — Búlgarski bændaleiðtoginn Stambolisky myrtur. 1919 — Alcock og Brown koma úr fyrstu flugferð yfir Atlantshaf án viðkomu. 1862 — Tyrknesk stórskotaárás á Belgrad eftir uppreisn Serba þar. 1858 — Fjöldamorð á kristnum mönnum í Jedda. 1775 — George Washington skipað- ur yfirhershöfðingi. 1752 — Benjamín Franklin sýnir samband eldinga og rafmagns með flugdreka í roki í Fíladelfíu. 1744 — Hnattsiglingu Ansons flota- foringja lýkur. 1584 — Hinrik af Navarre verður ríkisarfi við lát Francois hertoga af Anjou, en kaþólskir sameinast í bandalag gegn Hinriki undir forystu hertogans af Guise. 1567 — Jarlinn af Bothwell flýr til Noregs eftir ósigurinn á Carberry- hæð, en María Skotadrottning er tekin til fanga. 1520 — Leó páfi bannfærir Martein Lúther. 1215 — Jóhann konungur landlausi undirritar Frelsisskrána miklu, Magna Carta, í Runnymede, Eng- landi. Afmæli. Játvarður, Svarti prinsinn (1330—1376) — Thomas Randolph, enskt skáld (1605—1635) — Edvard Grieg, norskt tónskáld (1843—1907). Andlát. Friðrik III Þýzkalandskeis- ari 1888. Innlent. Samningar um framkvæmd hitaveitu undirritaðir 1939 — Vígð kirkja í Skálholti 1155 — Síðasta landskjör 1930 — Tilkynnt að Sigurður Jónasson hafi gefið þjóð- inni Bessastaði 1941 — Byggðasafnið í Glaumbæ opnað 1952 — Tveggja mánaða stórhríðabálki lýkur 1882. Orð dagsins. Stríð er smitun. — Franklin D. Roosevelt, bandarískur forseti (1882-1945). Friðrik Ólafsson kvaddur fyrir rétt? Amsterdam. 14. júní. AP. EFTIRMÁLI heimsmeistaraein- vígis Anatoly Karpovs og Viktors Korchnois 1978 virðist ætla að gcta orðið næstum því eins langur og einvígið sjálft. Undirdómstóll skipaður þremur dómurum í Amsterdam úrskurðaði í dag að hann mundi tilkynna 5. september hvort hann tæki fyrir málshöfðun Korchnois á hendur Alþjóðaskáksambandinu Fide og Karpov. Sami dómstóll neitaði 7. marz sl. að taka að sér málið þar sem hvorki Karpov heimsmeistari né fulltrúar Fide hefðu mætt fyrir rétti. Korchnoi vill að 32. skákin sem tryggði Karpov sigurinn verði tefld aftur, þar sem fulltrúi í sovézku sendinefndinni hafi dáleitt sig. Hvorki Karpov né Friðrik Olafs- son forseti Fide mættu í réttinum. I fylgd með Korchnoi voru svissneskur lögfræðingur hans, lögfræðilegur ráðunautur og ritari. Hollenzki lögfræðingurinn Jan Voute flutti mál Korchnois og lögmaður Fide var The van Raalte. Van Raalte sagði að Fide hefði enga lögsögu í málinu þar sem reglur sambandsins tryggðu heiðarlega taflmennsku og keppn- isstjórn á alþjóðlegum skákmót- um. Auk þess væri ekki hægt að stefna Fide fyrir rétt þar sem sambandið væri ekki stofnun laga- lega séð samkvæmt hollenzkum lögum. Voute lögfræðingur Korchnois sagði að krefjast ætti þess að Friðrik Ólafsson eða opinber full- trúi Fide mætti fyrir rétti. Hann viðurkenndi að sovézka skáksam- bandið Iegðist gegn því að Karpov mætti 'eða fulltrúi hans á þeirri forsendu að hollenzkir dómstólar hefðu engan rétt til þess að skipta sér af starfsemi alþjóðlegra íþróttasamtaka. Karl Imhoff dómsforseti sagði að dómstóllinn mundi úrskurða í september hvort málið skyldi tekið fyrir og hvort Friðrik Ólafsson skyldi kallaður fyrir. Lækka fargjöld á Evrópuleiðum Brlissel, 14. júní. Reuter. FLUGFARGJÖLD í Evrópu kunna að lækka, ef tillögur sem Efnahagsbandalagið kunngerði í dag verða samþykktar, og ferðalög með flugvélum auðveldari. Meðal annars er lagt til við ráðherranefnd bandalagsins að tekin verði upp þriðja farrýmis fargjöld, svokölluð grunnfargjöld sem bæta má ofan á aukagjaldi fyrir pantanir og aðra þjónustu, að lækkuð fargjöld fáist fyrir ákveðinn fjölda sæta á viku og að tekin verði upp hringferðarfar- gjöld svo að ódýrara verði að ferðast milli tveggja eða fleiri staða. Einnig er gert ráð fyrir því að flugfélög geti hafið flug á nýjum leiðum án þess að landið sem flogið er til geti staðið í vegi fyrir því. Stjórnarnefnd bandalagsins segist ætla að fara fram á nýtt umboð til að rannsaka verðlags- stefnu flugfélaga þannig að hægt verði að ákveða sektir ef brotið er gegn fríverzlunarreglum banda- lagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.