Morgunblaðið - 15.06.1979, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.06.1979, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979 hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstræti 6, sími 10100. Aöalstræti 6, sími 22480. Sími 83033 Áskriftargjald 3000.00 kr. á mónuöi innanlands. lausasölu 150 kr. eintakiö. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiösla Astæða er til að senda Þjóðviljanum sérstak- ar hamingjuóskir með dag- inn í gær. Dagurinn í gær var merkilegur dagur í sögu Þjóðviljans. Þá gerð- ust þau tíðindi, að Þjóðvilj- inn leitaði til eigenda þeirra tveggja olíufélaga hér, sem eru í einkaeign um stuðning og rök fyrir þeirri stefnu Þjóðviljans og Al- þýðubandalagsins, að engu megi breyta í olíuviðskipt- um íslendinga við Sovét- menn. Það heiði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar, að Þjóðviljinn sæi þann kost vænstan að leita eftir stuðningi hjá íslenzk- um „olíukóngum" við mál- stað sinn. En nú er það orðin staðreynd. Til ham- ingju Þjóðviljamenn! Þegar við hófum olíu- kaup frá Sovétríkjunum fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi voru þau olíukaup nauðsyn- leg til að tryggja markað fyrir sjávarafurðir okkar í Sovétríkjunum. Þá þurft- um við á þeim markaði að halda og þá fóru viðskiptin við Sovétríkin fram á vöru- skiptagrundvelli. Þegar rætt var um það fyrir all- mörgum árum, að ástæða væri til að leita eftir olíu- kaupum annars staðar frá var svarið jafnan, að það mætti ekki gera vegna þess, að þá mundum við tapa fiskmörkuðum okkar í Sovétríkjunum. Þeir tímar eru liðnir að viðskiptin við Sovétmenn fari fram á vöruskiptagrundvelli. Til viðbótar er svo komið við- skiptum okkar við Sovét- menn, að á síðasta ári keyptum við af þeim vörur fyrir 15,5 milljarða en vörukaup þeirra frá okkur námu aðeins um 7 milljörð- um króna. Það er því alveg ljóst, að sú forsenda, sem einu sinni var til staðar fyrir því að kaupa alla okkar olíu frá Sovétríkjun- um, er ekki lengur fyrir hendi. í þeim umræðum, sem fram hafa farið um olíu- kaup okkar að undanförnu hefur Morgunblaðið ekki lagt á það áherzlu fyrst og fremst, að við ættum að hætta öllum olíukaupum frá Sovétmönnum. Hins vegar hefur Morgunblaðið lagt á það ríka áherzlu, að hvetja ríkisstjórnina til að fara að ráðum formanns Sjálfstæðisflokksins og taka upp viðræður við Sovétmenn um breytta verðviðmiðun. Þegar sýnt var skömmu eftir áramót að Rotterdammarkaðurinn mundi æða upp kvaddi Geir Hallgrímsson sér hljóðs utan dagskrár í þinginu og hvatti ríkisstjórnina til að taka upp slíkar viðræður. Ráðherrar tóku þessari ábendingu vel á sínum tíma enda sjálfsagt. Þótt breyt- ingin yfir í viðmiðun við Rotterdam hafi verið eðli- leg og sjálfsögð á sínum tíma og Morgunblaðið m.a. eindregið hvatt til þess að viðmiðun yrði breytt frá verðskráningu í Karabíska hafinu er auðvitað ljóst, að aðstæður hafa gjörbreytzt. Við eigum ekki að ríghalda okkur í eitthvað, sem var rétt og skynsamlegt fyrir nokkrum árum, þegar að- stæður eru allar aðrar nú. Þótt ráðherrar hafi tekið ábendingu formanns Sjálf- stæðisflokksins vel í vetur hafa þeir hins vegar ekkert gert. Þeir hafa enga til- burði haft til þess að ræða þetta vandamál við Rússa. Því hefur að vísu verið lýst yfir, að það verði gert síðar á þessu ári en það er ein- faldlega orðið alltof seint. Hvað veldur þessum drætti? Er Svavar Gests- son feiminn við Rússa? Vill hann ekki ræða svona mál við þá? Og þar sem þeir Alþýðubandalagsmenn leggja nú svo mikið upp úr skoðunum eigenda íslenzku olíufélaganna má spyrja, hvort þeir hafi eitthvað við það að athuga, að teknar verði upp viðræður við Rússa um breytta verðvið- miðun? Hvers vegna skyldu þeir hafa eitthvað við það að athuga? Rökin, sem við leggjum fram við Sovét- menn eru augljós. Rotter- damviðmiðun er út í hött í dag eins og málin hafa þróast. Lítill hluti olíuvið- skipta heims fer fram á grundvelli Rotterdam- skráningar. Eðlilegt er hins vegar fyrir okkur, sem höf- um keypt olíu af ykkur í nær 30 ár, að miða við grunnverð olíuframleiðslu- ríkjanna, sem er margfalt lægra en Rotterdamverðið. Ekki kaupið þið fiskinn af okkur á hæsta verði, sem við fáum fyrir hann á Bandaríkjamarkaði. Þessi rök eru augljós og þau eru sterk. Svavar Gestsson hefði strax í febrúar átt að fljúga til Moskvu og leggja þessi rök fram. Honum hefði áreiðanlega verið vel tekið þar. Hvað veldur þessari tregðu viðskipta- ráðherrans til þess að ræða svo sjálfsagða hluti við vini sína í Moskvu. Hitt er svo annað mál, að það er orðið tímabært fyrir okkur Islendinga að endurskoða öll olíuviðskipti okkar. Eftir að forsendur eru brostnar fyrir því að kaupa olíuna alfarið frá Sovétmönnum er auðvitað sjálfsagt, að frelsi ríki í þessum viðskiptum eins og öðrum og að mönnum sé frjálst að kaupa olíu þaðan, sem verðið er hagkvæmast. Varla geta íslenzku olíu- félögin verið andvíg því — eða hvað? Er það kannski eitthvað „geðveikislegt“ frá sjónarmiði forsvarsmanna olíuféláganna hér, að frelsi ríki í viðskiptum? Sumir þeirra hafa sagt, að við getum ekki fengið olíu keypta annars staðar frá vegna þess að við höfum ekki í aldarfjórðung keypt olíu frá öðrum en Sovét- mönnum. Það er vafalaust rétt, að það getur verið einhverjum erfiðleikum bundið. En geta ekki for- svarsmenn olíufélaganna og Morgunblaðið verið sammála um það að sjálf- sagt sé að láta framtak einstaklingsins sýna getu sína í þessum efnum? Er það ekki í samræmi við bæði lífshugsjónir for- svarsmanna einkafyrir- tækja í olíusölu og Morgun- blaðsins? Eða hefur leiðir skilið einhvers staðar á þessari vegferð? Þjóðviljinn skýrir frá því í gær, að Sovétmenn hafi skorið olíusölu sína til A-Þýzkalands niður um 20% nýlega og sent vini sína þar út á kaldan klaka okurmarkaðarins í Rotter- dam. Þessi athyglisverða frétt Þjóðviljans undir- strikar það öryggisleysi sem við búum við í olíumál- um. Hvað gerum við, ef Rússar tilkynna skyndilega niðurskurð á olíusölu til okkar? Eru það þá ekki hyggindi, sem í hag koma, að hafa þegar gert ráðstaf- anir til að dreifa áhættunni með því að hafa ræktað markaðssambönd annars staðar? Við íslendingar eigum mikil og góð viðskipti við Breta, sem hafa farið vax- andi á undanförnum árum og munu líklega enn vaxa á næstu árum, ef áform Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna verða að veru- leika. Olíuverzlun íslands hefur lengi haft mikil og góð viðskiptasambönd við eitt helzta olíufélag í brezkri eigu. Innan örfárra ára verður svo komið, að Bretar framleiða ekki að- eins næga olíu fyrir sjálfa sig heldur verða aflögufær- ir um útflutning. Við eigum mikil og góð samskipti við Norðmenn, sem auka olíu- framleiðslu sína frá ári til árs. Við höfum þegar gert samninga um olíukaup frá Portúgal. Það gildi einu frá hvaða sjónarhóli olíukaupamál okkar eru skoðuð. Við eig- um í fyrsta lagi að taka upp samninga við Sovétmenn um aðra verðviðmiðun en þá, sem nú er í gildi. Við eigum í öðru lagi að efla á ný gömul viðskiptasam- bönd í því skyni að dreifa kaupum okkar á olíu hrein- lega í öryggisskyni. Morgunblaðið hefur sagt, að til staðar væri bandalag forsvarsmanna a.m.k. sumra íslenzku olíufélag- anna, viðskiptaráðherra kommúnista og embættis- mannaklíku til þess að koma í veg fyrir umbætur og breytingar á olíuvið- skiptum okkar. Morgun- blaðið stendur við þessa staðhæfingu. Forsvars- menn sumra olíufélaga hér hafa gefið tilefni til þessar- ar staðhæfingar með um- mælum sínum á opinberum vettvangi. Einkaframtaks- menn í olíuverzlun hljóta að varast, að aldarfjórð- ungs gamall vani í olíu- kaupum verði til þess að þeir geri sér ekki grein fyrir þörf breytinga, þegar þær eru orðnar tímabærar. Svo er nú. Hins vegar skal engum getum að því leitt hvað veldur tregðu við- skiptaráðherra kommún- ista til að taka upp viðræð- ur við Rússa um nýja verð- viðmiðun á sama tíma og þjóðin öll verður að þola gífurlega kjaraskerðingu af völdum núgildandi olíu- samninga og atvinnuvegir hennar ramba á gjárbarm- inum af þeim sökum. Hamingjuóskir til Þjóðviljans Samtökin Ungt fólk með hlutverk Reisa kristilega fræðslu- miðstöð að Eyjólfsstöðum EgilsHtöðum 11.6. Nýlega var tekin fyrsta skóflustunga að kristilegri Fræðslumiðstöð sem samtökin Ungt fólk með hlut- verk reisa á jörð sinni að Eyjólfsstöðum á Völlum. Viðstaddir athöfnina voru ýmsir gestir auk nokkurra starfsmanna samtakanna. Sóknarpresturinn séra Vigfús I. Ingvarsson flutti bæn og ávarp. Samtökin Ungt fólk með hlut- fólks sem vill efla leikmanna- verk voru stofnuð fyrir réttum starf innan íslenzku þjóðkirkj- þremur árum í Reykjavík af hópi unnar og auka áhrif kristinnar trúar í landinu. Einn mesti Þrándur í götu öflugs safnaðar- starfs innan þjóðkirkjunnar er skortur á hæfum leikmönnum sem bjóða vilja fram krafta sína. í dag er engin stofnun til í landinu sem þjálfað getur fólk til slíkra starfa. Þessar ástæður m.a. liggja því til grundvallar að samtökin Ungt fólk með hlut- verk hafa nú ráðist í þessa framkvæmd. Fyrirhuguð skólabygging að Eyjólfsstöðum verður rúmir 350m2 að grunnfleti, timburhús, ein hæð og ris. í húsinu verður heimavist fyrir 25 nemendur, auk íbúðar fyrir skólastjórann og annað starfsfólk. Auk annars sem verður í húsinu má nefna mötuneyti, kennslustofu, setu- stofu auk skrifstofu og aðstöðu fyrir kristilegt útbreiðslustarf á Austurlandi. Ætlunin er að vinna af kappi að byggingunni í sumar og munu margir koma að Eyjólfsstöðum og leggja lið. Nær allt verður unnið í sjálfboða- vinnu og þannig reynt að halda byggingarkostnaðinum í skefj- um, enda gerist þess þörf þar eð samtökin fá engar tekjur af starfi sínu heldur aðeins gjafir frá velunnurum. Enn er ekki ákveðið hvenær skólinn tekur til starfa,- það mun að sjálfsögðu fara eftir því hversu mikið fjármagn fæst til byggingarinnar, en von samtak- anna er að það geti orðið sem fyrst. Margt fólk hefur þegar látið í ljós áhuga á að sækja námskeið að Eyjólfsstöðum og er ekki ólíklegt að það muni eiga eftir að verða margt um mann- inn þegar skólahaldið hefst. Þess skal getið að mörg heillaskeyti bárust víðsvegar að m.a. frá Hjörleifi Guttormssyni ráðherra o.fl. þekktum mönnum. Við hér í nágrenni hins tilvonandi skóla vonum að hann megi verða skref á braut batnandi mannlífs. Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.