Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979
17
Þröstur Sigtryggsson skipherra:
Ef til eru lög í
landi þá gilda
þau líka á sió
„Málið hcfur verið tekið upp og
það er varðskip á leiðinni á
þessar slóðir,“ sagði Þröstur Sig-
tryggsson, er Mbl. spurði um
viðbrögð við beiðni Þórðar Ey-
þórssonar skipstjóra á Hval 8 um
að varðskip kæmi og stuggaði við
Greenpeace-mönnum. Spurningu
um það, hvaða aðgerðir varðskip-
ið myndi grípa til svaraði Þröst-
ur, að Landhelgisgæzlan hefði
ekki fengið nein fyrirmæli um
aðgerðir. „Við höfum stuðning í
efnahagslögsögunni. Það ríkir
íslenzkur fullveldisréttur á þessu
200 mflna hafsvæði. Ef til eru Iög
í landi um aðgerðir gegn mönn-
um, sem hindra aðra í einhverju
löglegu starfi, þá gilda þau lög
lfka á hafinu.“
Varðandi siglingalög sagði
Þröstur að skip, sem ekki er að
veiðum, ætti að víkja fyrir öðru,
sem er að veiðum og að taka yrði
tillit til veiðarfæra, sem eru úti,
varðandi siglingu við skip að
veiðum.
Spurningunni um það,
hvort brot væri að sigla þétt
framan við annað skip, sagði
Þröstur vandsvarað. „Meðan ekki
verður árekstur er erfitt að gefa
sér einhverjar forsendur," sagði
hann.
„Enda sýnist mér þarna
ekki um það að ræða, að sigling sé
hindruð, heldur hitt, að menn eru
hindraðir við löglegar veiðar. Og
þá er spurningin: Hvað segja lögin
um það?“
Skömmu eftir að blaðamenn Morgunblaðsins
flugu fyrst yfir Hval 8 um klukkan 20 í
gærkvöldi (efri myndin) sneru Greenpeace-
mennirnir á hraðbátnum aftur til togarans
Rainbow Warrior, (myndin til vinstri) sem síðan
hætti landsiglingu og lét reka. Ljósm. Mbl.
Emilía.
Greenpeace-menn:
Forst jóri H vals í skey ti til Greenpeace:
Öll truf lun á veiðum
skipa Hvals er ólögleg”
„Höfum rétt til
að vernda
flökkuspendýr”
KRISTJÁN Loftsson forstjóri Hvals hf., sendi í gær
skeyti til yfirmanna Rainbow Warrior, skips
Greenpeace-samtakanna, þar sem það var að trufla
veiðar Hvals 8.
í skeyti sínu vekur Kristján athygli á þeirri
staðreynd að aðgerðir Greenpeace-samtakanna f
íslenzkri lögsögu hafi í för með sér ólöglega truflun
fyrir skip Hvals hf.
Með reglugerð númer 299 frá 15. júlí 1975 hafi
fiskveiðilögsaga íslands verið færð út í 200 sjómílur
og íslenzkum skipum verið tryggö sérréttindi til veiða
innan lögsögunnar. Þetta sé einnig skýrt tekið fram í
sérstökum lögum nr. 51 frá 1. júní 1979 um landhelgi,
efnahagslögsögu og landgrunn.
Með tilvísun bæði til alþjóðlegra og íslenzkra laga
sé sigling erlendra skipa um íslenzk hafsvæði heimil
svo fremi sem þau virði íslenzk lög og reglur og
forðist alla ágengni við íslenzk skip sem séu á
löglegum veiðum í íslenzkri fiskveiðilögsögu.
Þá vekur Kristján á því athygli að öll truflun á
veiðum skipa Hvals hf. sé ólögleg. Allir þeir sem
undirbúa og framkvæmi slíkt verði sóttir til saka og
skaðabóta krafist. Eigi þetta á sama hátt við eiganda
og skipstjóra Rainbow Warrior. Verði skipinu haldið
til tryggingar greiðslum fyrir skemmdir, sem kunni
að verða unnar á skipum Hvals hf. af þeim, sem eru í
einhverjum tengslum við ofangreint skip. Jafnframt
lýsir Kristján allri ábyrgð á hendur Green-
peace-mönnum vegna meiðsla, sem kunni að verða á
mönnum, á meðan Rainbow Warrior truflar hvalveið-
ar íslenzku bátanna.
ÁHÖFN Rainbow Warrior
svaraði skeyti Kristjáns
Loftssonar á eftirfarandi
hátt:
„I dag hótaði Kristján
Loftsson að kæra okkur á
grundvelli fiskveiðilaganna,
ef við hindruðum skip hans í
hvaladrápi.
Við virðum af einlægni
baráttu íslendinga á liðnum
árum fyrir því að vernda
fiskveiðar sínar, en hvalur er
flökkuspendýr, ekki fiskur.
Við í Greenpeace-samtök-
unum teljum okkur hafa rétt
til þess að vernda flökku-
spendýr.
í dag urðum við vitni að
viðbjóðslegu drápi á hval, og
þurfti Hvalur VIII að nota
til þess þrjá skutla og það
tók 16 mínútur að drepa
þennan eina hval skipsins á
tveimur dögum.
Þar sem talað er um lög,
má geta þess að þetta ofbýð-
ur öllu mannlegu eðli.
Áhöfn Rainbow Warrior.“
15hvalir
veiddir
15 hvalir höfðu veiðst þeg-
ar Mbl. hafði tal af Kristj-
áni Loftssyni forstjóra
Hvals í gærkvöldi, 14
langreiðar og einn búr-
hvalur.
Blaðamenn Morgunblaðsins flugu einnig í gærkvöldi yfir Hvai 6 og Hval 9 og voru báðir með tvo hvali á síðunni, Hvalur 6 á bakborðshlið og Ilvalur 9 við stjórnborðshlið.
Skammt frá Hval 9 sáu blaðamenn Morgunblaðsins, hvar hvalur fór, en vegna aðstæðna í hvalstöðinni koma skipin nú aðeins með tvo hvali hvert í einu, þannig að ekki varð
af því að Hvalur 9 léti til skarar skríða. Hins vegar var Hvalur 8 bara með einn hval og Greenpeacemenn hættir eftirförinni, sem þeir hafa sennilegast haldið uppi til að
koma í veg fyrir að Hvalur 8 fengi annan hval á heimleiðinni. Ljósm. Mbl. Emilía.