Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 r________ Ljósm. Emilfa. FORSETINN SOTTUR Kristján Pfldjárn. forseti íslands, fékk veslega heimsókn að Bessastöðum í gær. t>á var hann sóttur á Lincoln Coupe. 1917 módel með V —12 vcl. Forsetinn skoðaði bflasýninguna í gær, en þá rinmitt voru 75 ár liðin síðan fyrsti hfllinn kom til landsins. I>að var þýzkur bfll af gerðinni Cudcil og gekk hann undir nafninu Thompsen-bfllinn. Aðsókn að bflasýningunni hefur verið góð og mikill fjöldi fólks skoðað bflana þar. en þeir eru 55 að tölu. MAYEN: Byr ja Norðmenn veiðar eftir mánuð? Á FUNDI norskra og íslenzkra embættismanna í Ósló í byrjun vikunnar var cinkum rætt um loðnuveiðar við Jan Mayen. Á fundinum kom fram sú skoðun Norðmanna. að þeir telja vafasamt að þeir geti bannað veiðar norskra skipa við Jan Mayen ef loðnan gengur þangað norður í sumar þar sem hafsvæðið þarna sé alþjóðlegt. Um 15. ágúst hefjast loðnuveiðarnar í Barents- hafi og fram til þess tíma eru lítil eða engin verkefni fyrir loðnuflota Norð- manna og munu þeir hafa áhuga á að byrja loðnuveið- ar við Jan Mayen í næsta mánuði. Hins vegar hefur verið rætt um að loðnuveið- íslenzkra skipa hefjist Af Islands hálfu sátu fund þennan Már Elísson fiskimálastjóri, Jón Arn- alds ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og Jón B. Jónasson deildar- stjóri. Lögðu íslendingarn- ir áherzlu á að lausn yrði fundin á þessu máli hið bráðasta. Norskir og ís- lenzkir fiskifræöingar ákváðu á fundi sínum í Reykjavík í marzmánuði sl. að vinna sameiginlega að rannsóknum á loðnustofn- inum í sumar og haust. ar Blaðafulltrúi ASÍ: um 20. ágúst. £> Lögin hefðu mátt vera j hagstaeðarifarmönnum INNLENT „Það er og hefur verið stefna Alþýðusambands íslands, að kjaradeilur beri að leysa með frjálsu samkomulagi milli laun- þega og atvinnurekenda. Það er Blaðafulltrúi ASÍ: Menn velta fyrir sér siðferði shkra aðgerða staðreynd, að í farmannadeilunni gaf Vinnuveitendasambandið aldrei neinn kost á að deilan yrði leyst með slíku samkomulagi milli deiluaðila og eftir 2ja mán- aða stöðvun var málum þannig komið, að sáttanefnd áleit til- gangslaust að miðla málum,“ sagði Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi Alþýðusambands íslands, er hann var spurður um afstöðu ASÍ til bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar. Haukur sagði: „Því virtist ekki um annað að ræða í deilunni á „VARLA er unnt að líta á hækk- unina, sem Loftleiðaflugmenn hafa nú fengið, öðru visi en sem framhald af fyrri ákvörðun stjórnar Flugleiða og vinnuveit- endasambands íslands, þegar þessir aðilar veittu að fyrra bragði Flugfélagsflugmönnum þaklyftingu, sem þýddi þá á mánuði allt að ríflegum mánað- arlaunum verkamanns," sagði Haukur Már Haraldsson, blaða- fulltrúi Alþýðusambands ís- lands, er Morgunblaðið spurði um viðbrögð sambandsins við þaklyftingu Loftleiðaflugmanna. „Það er sérlega athyglisvert," sagði Haukur Már, „að þessi þaídyfting hjá flugmönnum kem- ur á sama tíma og sett eru bráðabirgðalög á farmenn, vegna þess að Vinnuveitendasambandið neitaði þeim um nokkra kaup- hækkun og hafði að auki boðað viðtækasta verkbann, sem boðað hefur verið á íslandi og þótt víðar væri leitað. Það verkbann er raunar boðað gegn verkafólki, sem átti alls ekki í neinum deilum við Vinnuveitendasambandið. Menn geta svo velt fyrir sér siðferðinu sem felst í slíkum vinnubrögðum." þessu stigi en að þriðji aðili kæmi þar inn til lausnar. Um efnislegt innihald bráðabirgðalaganna vil ég ekki tjá mig, að öðru leyti en því að það hefði að skaðlausu mátt ýera hagstæðara farmönnum." Forsætisráðherra um yfiryinnubannið: „Því verða júrist- arnir að svara” „ÉG VIL nú ekki segja mitt álit gærkvöldi, er hann var spurður á þessum aðgerðum að svo álits á yfirvinnubanni því er stöddu, það verða júristarnir að farmenn hafa boðað til, og segja til um, hvort þessar að- þegar er komið til fram- gerðir eru brot á bráðabirgða- kvæmda. lögunum," sagði Ólafur Jó- Vildi forsætisráðherra ekki hannesson forsætisráðherra í að öðru leyti tjá sig um málið að samtali við Morgunblaðið í svo stöddu. Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ: Yfírvinnubannið ólögleg adgerð „VIÐ lítum á þessar aðgerðir yfirmanna á farskipum sem brot á nýsettum bráðabirgðalögum, brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og brot á samning- um,“ sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands, er Morg- unblaðið spurði hann um afstöðu vinnuveitenda við yfirvinnu- banni yfirmanna á farskipum. Þorsteinn sagði að í viðskiptum launþega og vinnuveitenda hvíldi ákveðin yfirvinnuskylda á herðum launþega. Sem dæmi sagði hann að í samningum, sem verkalýðs- samtökin hefðu gert væri sérstakt ákvæði um að yfirvinna skuli ekki unnin eftir klukkan 20, nema nauðsyn beri til. Farmenn hafa enga slíka yfirvinnutakmörkun í sínum samningum þar sem yfir- Vélinni snúið á túninu ú Breiða- bakka. (Ljósm. Sigurgeir). Nauðlenti vél sinni íEyjum BANDARÍSKUR flugmaður nauðlenti eins hreyfils áburðar- flugvél sinni af Cessnu-gerö á Breiðabakkatúninu í Vestmanna- eyjum um klukkan 19.30 í fyrra- kvöld. Var flugmaðurinn W.R. Goyi búinn að fljúga vél sinni frá Nýfundnalandi til Reykjavíkur á leið sinni til Brussel. Austur af Vestmannaeyjum sló rafmagn út og tók hann þann kost að lenda í Eyjum. Lágskýjað var og þar sem flugmaðurinn vissi ekki um flug- völlinn ákvað hann að lenda upp í móti brekkunni á Breiðabakka. Lendingin tókst mjög vel á mis- hæðóttu túninu. Vélin er óskemmd. vinnutakmarkanir eru í gildi, eins og t.d. í fiskvinnslu, en þær yfir- leitt byggðar á grundvelli samn- inga. Auk þess kvaðst hann líta svo á að slíkar aðgerðir þyrfti að boða sem hvert annað verkfall með 7 daga fyrirvara. „Þessi ákvörðun," sagði Þor- steinn, „er tekin af þeim félögum sem þarna eiga hlut að máli og skipulögð. Því er þarna ótvírætt um aðgerðir að ræða, sem stríða gegn bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar, sem sett voru í gær. Lögin banna beinlínis verkföll og verkbönn á þessu sviði fram til áramóta." Aðspurður, hvort vinnuveitend- ur myndu leggja málið fyrir Fé- lagsdóm, svaraði Þorsteinn: „Það hefur ekki verið ákveðið ennþá. Við trúum því ekki að óreyndu, að þessum aðgerðum verði haldið áfram, þegar það er ljóst að þetta stríðir gegn lögum. Við höfum tilkynnt Farmanna- og fiski- mannasambandinu afstöðu okkar og jafnframt tekið það skýrt fram að við áskiljum okkur allan rétt til þess að halda málum okkar fram. Við trúum því ekki að þessu verði haldið áfram, en bregðist það, eigum við sennilega ekki annarra kosta völ en láta reyna á þetta fyrir Félagsdómi.“ Forsætisráðherra um flóttafólkið: „Frekar jákvœður” „ÞETTA erindi var bæði um ráðstefnuhald um vandamálið og um viðtöku flóttaíólks, og ég á von á því að ríkisstjórnin taki afstöðu til þessa máls á fundi sínum á morgun," sagði Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, er hann var spurður um hver væri skoðun hans á því að íslendingar tækju við flóttafólki frá Víetnam. Á miðsíðu í dag er nánar sagt frá málinu. Sagði forsætisráðherra að kanna yrði þetta mál frá öllum hliðum, hann hefði ekki tekið endanlega afstöðu til þess, en kvaðst þó vera frekar jákvæður við þessari málaleitan Flótta- mannahjálparinnar. Ingólfur Ingólfsson, forseti FFSÍ: V erkbannid er fyllflega lögmætt „ÞESSAR aðgerðir okkar eru jafn löglegar og aðrar yfirvinnu- bannsaðgerðir, sem í gangi eru Ingólfsson forseti Farmanna- og Morgunblaðið spurði hann álits : yfirmanna væru ólöglegar. „Víðs vegar um land er í gildi yfirvinnubann," sagði Ingólfur, „um helgar með ýmsum hætti eftir atvikum í ýmsum atvinnu- greinum og sérstaklega þó í þeim, sem mega sízt við því, svo sem eins og í fiskvinnslu. Hér í Reykjavík er nærtækt dæmi um yfirvinnubann í hafnarvinnu um helgar, frá föstudegi til mánu- dags. Eg veit ekki hvað mennirnir eru að fara, þeir hafa kannski ekki frétt af þessu: Því er þetta ekki annað en hvert annað furðu- legt raus. Við það fáum við auðvitað ekki ráðið. Þessi aðgerð er því fyllilega lögmæt, svo fram- arlega sem aðrar eru það og ólöglegar eins og þær hinar, en >g ómótmælt er.“ sagði Ingólfur fiskimannasambands (slands, er i ummælum VSÍ um að aðgerðir hafa þó verið látnar ganga fyrir sig án mótmæla.“ Ingólfur kvað leiðindaand- rúmsloft vera í þessari deilu. Hann kvað forstjóra Eimskipafé- lagsins og ráðningarstjóra hafa í gær kvatt-skipstjóra Eimskipafé- lagsins á sinn fund, þar sem þeir hefðu haldið mikinn reiðilestur yfir þeim. „Höfðu þeir í hótunum við skipstjórana," sagði Ingólfur. „Þeim var að vísu ekki hótað brottrekstri, en flestu öðru og mun vafalaust haldið áfram í þeim dúr, að reyna að ögra einstaklingum og hópum manna með hótunum. Það er gömul reynsla af því hjá þvífyrirtæki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.