Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 25 Magnús L. Sveinsson Eins og komið hefur fram fluttu borgarfulltrúar Sj álfstæðisflokks- ins nýverið tillögu um aukafjár- veitingu vegna atvinnumála skóla- fólks. Magnús L. Sveinsson (S) hafði framsögu fyrir málinu á fundi borgarstjórnar. Skrifstofa borgarstjórnar Magnús sagði, að þegar búið hefði verið að leggja fram þessa tillögu á skrifstofu borgarstjóra sl. þriðjudag hefðu meirihluta- menn rokið til á borgarráðsfundi og flutt tillögu um 118 milljón króna fjárveitingu vegna sumar- vinnu skólafólks. Fyrir þessar 118 milljónir væri hægt að ráða 100 manns, því efniskostnaður væri talsverður. Magnús L. Sveinsson minnti á, að Guðmundur Þ. Jóns- son hefði látið þá skoðun í ljós, að fjárhæðin myndi ekki duga. Fækkun ráðninga Þann 6. júní hefði 431 skólanemi verið á atvinnuleysisskrá hjá Ráðningarstofunni. Sama dag hefðu 328 nemar verið ráðnir, en á sama tíma í fyrra hefðu þeir verið 600. Þess vegna væri nú búið að ráða 272 færri nú en í fyrra. Þjóðviljinn hefði m.a. fjallað um þetta 1. júní undir fyrirsögninni: „Atvinnuhorfur skólafólks dapr- ar“. „Atvinnurekendur halda að sér höndum". Reykjavíkurborg væri stærsti atvinnurekandinn og þær tölur sem sýndu stöðuna nú og í fyrra sýndu svo ekki yrði um villst, að það væri rétt sem Þjóð- viljinn segði a.m.k. hvað snerti borgina, hún héldi að sér höndum undir stjórn vinstri meirihluta þar sem 272 færri hefðu verið ráðnir í ár en í fyrra. Ólafur B. Thors (S) kvaddi sér hljóða á fundi borgarstjórnar 7. júní vegna skipulagsmála. Hann minnti í upphafi máls síns á, að áður hefði hann vakið athygli á meðferð þeirri sem samþykkt aðalskipulags borgarinnar frá apríl 1977 hefði fengið, því núver- andi meirihluti hefði ekkert gert til að fá skipulagið staðfest hjá ríkinu. Ekki væri því annað fyrir- sjáanlegt en skipulagsyfirvöld ætluðu að kasta fyrir róða tals- verðri vinnu og heykjast á að fá Guðmundur Þ. Jónsson Sérstakar ráðstafanir Það sem væri þó alvarlegast væri, að ekki liti út fyrir, að úr atvinnuhorfum skólafólks rættist nema gripið yrði til sérstakra aðgerða og út á það gengi tillaga þeirra sjálfstæðismanna. Sam- kvæmt upplýsingum í borgarráði væri gert ráð fyrir, að 350—400 skólanemar yrðu ráðnir til borg- arinnar í ár auk þeirra 100 sem fyrr er getið. Á liðnum árum hefði hins vegar verið ráðið sem hér segir: 1976 848, 1977 798 og 1978 758. í þessum tölum væri allt skólafólk sem ráðið hefði verið, en sumt hefði horfið til annarrar vinnu. Ráðningarnar nú væru langt neðan við það sem verið hefði. Auk þess væru mun fleiri en skólafólkið eitt skráðir atvinnu- lausir nú en í fyrra. Ekki liti út fyrir, að atvinnureksturinn gæti tekið á móti eins mörgum og áður. Mikil óvissa ríkti í þjóðmálum. Óvarlegt væri því að gera ráð fyrir öðru en a.m.k. jafn margir myndu leita til borgarinnar nú og á fyrri árum. Hér væri því um stóralvar- legt vandamál að ræða Stefna meirihlutans Magnús L. Sveinsson minnti á, að meirihlutinn hefði á stefnuskrá sinni að treysta undirstöðuat- skipulagið staðfest. A fundum skipulagsnefndar 23. apríl og 7. maí hefðu verið til umræðu breyt- ingar á aðalskipulaginu frá 1962, en í millitíðinni hefði eins og fyrr segir verið samþykkt annað skipu- lag. Ólafur B. Thors sagðist furða sig á slíkum vinnubrögðum því með þessu væri verið að lítilsvirða ákvarðanir borgarstjórnar, þ.e. frá apríl 1977. Ólafur sagði, að samþykktum ætti alls ekki að stinga undir stól þegar nýir vald- Ólaíur B. Thors vinnuvegi í borginni. Stefna meiri- hlutans hefði sérstaklega komið fram í því að íþyngja atvinnu- rekstri og hefðu aðgerðir borgar- stjórnar sem ríkisstjórnar þegar leitt til samdráttar, sem nú bitn- aði m.a. á skólafólki. Magnús sagði, að þegar samdráttur væri í þjóðfélaginu væri mjög þýðingar- mikið, að opinberir aðilar gripu inn í og stæðu að framkvæmdum til að koma í veg fyrir atvinnu- leysi. Atvinnuleysi skólafólks fylgdu ýmis vandamál sem borg- arfulltrúar vildu ábyggilega losna við. Komið hefði fram, að fjárhag- ur borgarinnar væri rýmri nú en áður og einmitt þess vegna ætti að vera svigrúm til aukafjárveiting- ar. Erfiðar vinnudeilur Guðmundur Þ. Jónsson (Abl) sagði, að vinnudeilurnar hefðu gert mjög erfitt fyrir. Á liðnum árum hefði hinn almenni vinnu- markaður tekið við talsverðum fjölda. Þó þessi aukafjárveiting hefði verið samþykkt þá væri málunum ekki þar með lokið og þeim yrði gefinn gaumur áfram. Hann lagði til, að með tilliti til þess yrði tillögu sjálfstæðismanna vísað frá. hafar kæmu heldur fara eftir því, sem ætlast væri til, að skipulagið yrði endurskoðað á fimm ára fresti. Ólafur B. Thors bar síðan fram þá ósk, að borgarráð gengi í að fá staðfest aðalskipulagið frá 1977 hjá ríkinu. Björgvin Guðmundsson (A) sagði, að talsverður ágreiningur hefði verið um málið, en hann byggist við, að það yrði afgreitt miög fljótlega. Ánnars staðar er frekar sagt frá máli hans. Kristján Benediktsson Undarleg afstaða Magnús L. Sveinsson sagði, að afstaða meirihlutans væri undar- leg ekki síst með tilliti til þess að GÞJ hefði lýst yfir, að 118 milljón- ir myndu ekki duga. Atvinnu- ástand hefði ekki verið mjög slæmt í fyrra og á síðustu árum, en nú kynni að fara svo að ástand- ið yrði mun verra og 118 milljónir væru aðeins lausn á hluta vanda- málsins. Forgangur Ólafur B. Thors (S) sagðist telja, að þetta mál ætti að hafa forgang því slæmt atvinnuástand hjá skólafólki gæti haft alvarleg áhrif á möguleika þess til skóla- náms. Þess vegna væri rangt að vísa tillögu sem þessari frá, því hún yrði gott vegarnesti fyrir borgarráð. Hlutur borgarinnar ætti að vega þyngra á metunum í erfiðu árferði. Afskiptum ekki lokið Kristján Benediktsson (F) sagði, að afskiptum borgarráðs væri ekki lokið af þessu máli. Nú ætti eftir að skoða þann hóp, sem væri yngri en 16 ára og væri atvinnulaus. Bæði þyrfti að finna verkefni og útvega fjármagn. Ekki væri neitt enn vitað um hugsan- lega lausn á vinnudeilum, en ef ekki leystist úr gæti ástandið orðið alvarlegt, en borgarfulltrúar sem aðrir yrðu að vona, að úr rættist og þegar hjólin færu að snúast á nýjan leik sköpuðust atvinnutækifæri. Engin samkeppni Kristján Benediktsson minnti á, að stefna borgarinnar hefði verið að fara ekki í samkeppni við hinn almenna vinnumarkað um vinnu- afl skólafólks. Aðalatriðið væri, að allir fengju eitthvað að gera. Tillögu sjálfstæðismanna var síð- an vísað frá með átta atkvæðum gegn sjö. Frá borgar- stjórn Nefndar- kosningar Á fundi borgarstjórnar 7. júní fóru fram kosningar í hinar ýmsu nefndir borgarinn- ar. Engar breytingar urðu á nefndarskipan frá því sem áður var. Ankannaleg vinnubrögð Elín Pálmadóttir (S) gerði að umtalsefni á síðasta fundi borgarstjórnar mál skólastjóra Ármúlaskóla. Hún sagði alla málsmeðferð af hálfu borgar- stjórnarmeirihlutans og ráðu- neytis hina furðulegustu. Hann hefði verið kallaður í mennta- málaráðuneytið og honum til- kynnt gegn hans mótmælum, að starf hans hefði verið lagt niður og hann mundi settur á biðlaun. Um þetta hefði fræðsluráði verið algerlega ókunnugt. Hins vegar hefðu á næstu dögum við umræddan atburð verið lagðar fram um- sóknir um stöðu forstöðu- tnanns við skólann. Hún kvaðst telja þessi vinnubrögð ankannaleg og svona ákvarð- anir væru umhugsunarefni þegar gengið væri fram hjá aðilum sem málið skipti veru- lega eins og fræðsluráði. Starf úti- deildar ár- angursríkt segir Ólafur B. Thors Útideildin í Reykjavík varð mönnum umræðuefni á fundi borgarstjórnar 7. júní. Var m.a. rætt um hvort hún yrði sett undir félagsmálaráð eða æskulýðsráð og varð niðurstað- an að setja hana undir félagsmálaráð. ólafur B. Thors (S) sagði á þessum fundi, að samkvæmt upplýs- ingum frá aðilum sem þekktu þessi mál vel væri ijóst, að ein öruggasta vörn landsins gegn ávana- og fikniefnum væri einmitt rekstur þessarar deild- ar. Með því væri spyrnt við því fótum að markaður fyrir þessi efni skapaðist hér og þar með minnkaði ásókn erlendra aðila í þessa átt. Davíð Oddson: Fyrirætlan- ir meirililut- ans eru að enguorðnar Davíð Oddsson (S) sagði á fundi borgarstjórnar. að stjórn þessa meirihluta á borginni væri með eindæntum. I vetur við gerð fjárhagsáætlunar hefði verið vegið að Mæðraheitnilinu. Kleifarvegarheimilinu, Utideild og ennfremur starfsemi veiði- og fiskiræktarráðs. Nú heföi blaðið hins vegar snúist við hjá vinstri meirihlutanum því umræddar stofnanir hefðu hlotið náð fyrir augum hans a.m.k. að sinni því hann hefði guggnað á fyrri fýrir- ætlunum. Kristján Benediktsson (F) sagði í tilefni af Útideildinni, að starfsemi hennar hefði verið komin í óefni og þanist út. Þess vegna hefðu málin veriö tekin til sérstakrar athugunar í vetur. Guðrún Helgadóttir (Abl) tók í sama streng. MagnúsL. Sveinsson: Alvarlegt atvinnu- ástand hjá skólafóDd ein af leiðing stef nu bor gar st j ór nar meir i- hlutans og ríkisstjórnar Ólafur B. Thors: jr Akvarðanir borgar- stjórnar eru lítilsvirtar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.