Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 Frædslustarf Krabbameins- félags Reykjavíkur: Viðurkenningar til reyklausra bekkja þrefölduðust Undanfarin þrjú skólaár hefur Krabbameinsfélag Rykjavíkur staðið fyrir óvenju umfangsmiklu fræðslu- starfi í skólum og hefur það farið sívaxandi. Sl. vetur heimsóttu framkvæmdastjóri félagsins og fræðslufull- trúi alls 94 grunnskóla í öllum fræðsluumdæmum og fræddu nemendur um áhrif reykinga og reykingavarnir og sýndu kvikmyndir. Sérstök áherzla var lögð á þessa fræðslu í 6.,7. og 8. bekk og segir í frétt frá Krabbameinsfélaginu að hún hafi náð til fjögurra nemenda af hverjum fimm í þessum bekkjum, til þriðjungs nemenda í 4. og 5. bekk og til f jórðungs nemenda í 9. bekk. Samtals náði þessi þáttur fræðsdustarfsins til um 15 þúsund nemenda á skólaár- inu. í frétt Krabbameinsfélags Reykjavíkur segir m.a. svo um þessa starfsemi: Milli 40 og 50 skólar á höfuð- borgarsvæðinu og víðar efndu auk þess til skipulagðrar hóp- vinnu nemenda í 6. bekk um áhrif og afleiðingar reykinga. Var fyrst og fremst stuðst við fræðsluefni það sem Krabbameinsfélagið hef- ur gefið út sérstaklega í þessu skyni en jafnframt beittu nem- endurnir eigin hugkvæmni í rík- um mæli. Sýnishornum af vinnu- brögðum þeirra og árangri hóp- starfsins var brugðið upp á sýn- ingunni „Svona gerum við“ hinn 30. apríl á Kjarvalsstöðum. Nem- endur úr Hvassaleitisskóla lýstu hópvinnunni í heild sinni, skýrðu veggmyndir sem hóparnir teikn- uðu og fluttu frumsaminn leik- þátt. Nemendur úr Álftamýr- arskóla, Vesturbæjarskóla og Vogaskóla fluttu einnig frum- samið efni, leikþætti, sögu og vísur, og nemendur úr Æfinga- skólanum lýstu niðurstöðum kannana er þeir gerðu á reykingavenjum nemenda í Kennaraháskólanum og Stýri- mannaskólanum og báru þær saman. Dagskrá þessi þótti tak- ast prýðilega. Veigamikill þáttur í fræðslu- starfi Krabbameinsfélags Reykjavíkur í skólunum er útgáfa blaðsins Takmarks. Blaðið flytur fréttir af reykingavarnastarfi í landinu, einkum fræðslustarfinu í skólunum og árangri þess, auk erlendra frétta og margs konar annars fróðleiks um reykinga- vandamálið. Fjögur tölublöð komu út á skólaárinu, hið síðasta í byrjun maí. Flytur það einkum ýmislegt efni varðandi íþróttir, W Iféttobféf 4itrv 4*Ubrigði»mól Menntamálaráðherra: Von um verulegan árangur VEGGSPJALDA- SAMKEPPNI? AFREKSFOLKIÐ • REYKIR EKKI m.a. lýsa nokkrir landsþekktir íþróttamenn afstöðu sinni til reykinga. Að meðtalinni sérút- gáfu Takmarks, litabókarblöðum handa 8 og 9 ára börnum, fóru meira en 106 þúsund eintök af blaðinu í skólana á tímabilinu. Krabbameinsfélag Reykjavíkur veitti nú í annað sinn viðurkenn- ingar til reyklausra bekkja í grunnskólum. Hlutu 166 sjöttu bekkir þessa viðurkenningu, 69 sjöundu bekkir, 30 áttundu bekk- ir og 8 níundu bekkir eða samtals 273 en það eru 30% af öllum 6.-9. bekkjum í skólum landsins. Hafði fjöldi viðurkenninga til reyklausra bekkja þrefaldast frá fyrra ári. Vitað er að fjölmargir bekkir að auki stóðu mjög nærri því að geta fengið viðurkenningu en hún er því aðeins veitt að enginn í bekknum reyki. Fyrirhugað er að reykinga- varnastarfið í skólunum haldi áfram með svipuðu sniði næsta vetur ef nægur stuðningur fæst af hálfu ríkis og sveitarfélaga. ------oo UU--------- Tilbúið undir tréverk Vorum aö fá til sölu eitt stigahús sem er jaröhæö og tvær hæöir aö Jöklaseli 1 í Breiðholti II. íbúöirnar seljast tilbúnar undir tréverk og málningu, en sameign hússins fullgerö þ.e. máluö, teppalögö o.fl. Lóö afh. meö steyptum gangstígum og grasi. Malbikuö bílastæöi. íbúöirnar afhendast í okt. 1980 en sameign fjórum mánuöum síöar. Tvær 2ja herb. 61.1 fm á 1. og 2. hæö Verö: 16.2 millj. Ein 2ja herb. 70.4 fm á jaröhæö Verö: 18.2 millj. Ein 3ja herb. 93.1 fm á jaröhæö Verö: 23.6 millj. Þeasi íbúö hefur sér inngang og lóö og er endaíbúð. Fjórar 3ja—4ra herb. á 2. og 3. hæö rúml. 90 fm. Verð: 23.6 millj. Ath. fast verö á íbúöunum. Allar íbúöirnar hafa þvottaherb. í íbúöinni og 3ja herb. íbúöirnar einnig búr innaf eldhúsi. — Traustur byggingaraöili: Birgir R. Gunnarsson s/f. — Teikn: Kjartan Sveinsson tæknifræöingur. Seljandi bíöur eftir láni frá Húsn.m.stofnun og mismunin má greiöa á 18 mánuðum. Allar nánari uppl., teikn., afrit af verklýsingu o.fl. liggur frammi á skrifstofu okkar. Fasteignaþjónustan Austurstræti 17, s. 26600. Kári F. Guðbrandsson, Þorsteinn Steingrímsson, Ragnar Tómasson hdl. Verkamað- ur er átta tíma að vinnasér fyrir Vodka- flösku ÞAÐ TEKUR verkamann á fjórða taxta Dagsbrúnar, eftir fjögurra ára starf, sex klukkutíma að vinna fyrir einni brennivínsflösku. Flask- an af íslensku brennivíni kost- ar þannig eftir síðustu hækk- un 7000 krónur, en verka- mannslaunin eru 1150 krónur á tímann miðað við fyrsta júní s.I. Verkamannslaun hafa hækkað um 31% frá fyrsta júní árið 1978, en þá voru þau samkvæmt sama Dagsbrúnar- taxta 878 krónur á timann. Brennivinsflaskan hefur aftur hækkað úr 4200 krónum í YUUu á naíua tilíia éött tllTt 66.6%. Verkamaður er því tæpum einum og hálfum tíma lengur að vinna sér inn fyrir einni flösku af islensku brennivíni í ár miðað við sama tíma í fyrra. Ef tekjð er dæmi af dýrari víntegundum er verkamaður átta tíma að vinna sér inn fyrir flösku af algengu vodka sem kostar 9200 krónur. Sú vínteg- und hefur hækkað úr 5500 krónum á sama tíma í fyrra, eða um 67.3% og þá var hann sex klukkustundir og fimmtán mínútur að vinna fyrir slíkri flösku. Sé miðað við algenga tegund af viskíi, sem kostar 9800 krón- ur flaskan, er verkamaður nú átta og hálfan tíma að vinna fyrir flöskunni. Á sama tíma í fyrra kostaði slík flaska 5900 krónur og hefur því hækkað um 66% á þessu ári. Þá var verkamaður sex klukkutíma og 42 mínútur að vinna sér inn fyrir viskíflöskunni. Félagsmála- námskeið í Hveragerði Hveragerði í júní. SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Ingólf- ur í Hveragerði gekkst nýlega fyrir félagsmálanámskeiði og var öllum heimil þátttaka. Námskeið- ið sóttu 12 manns, konur og karlar. Stjórnendur voru Fríða Proppé sem kenndi ræðumennsku og Árni Sigfússon sem kenndi fundar- stjórn og fundarsköp. Stjórn Ingólfs kvað nemend- úrna mjög ánægða með námskeið- ið, sem hefði verið bæði fróðlegt og skemmtilegt. Hefur stjórnin mikinn áhuga á að halda fleiri slík. — Sigrún

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.