Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979 33 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI leynd, t.d. George Vins, sem nú hefir verið látinn laus úr langri fangavist og er kominn vestur um haf með fjölskyldu sinni í skiptum fyrir rússneskan njósnara sem var þar í haldi. Er vonandi að bókin um George Vins eigi eftir að koma út á íslensku eins og svo mörgum öðrum málum. Þarna voru líka myndir frá guðsþjónustum þessa fólks og mátti sjá þar tilbeiðslu þess og lotningu fyrir almáttugum guði. Fjöldi fólks stóð úti í einu af fljótum Rússlands og tók þar biblíulega skírn í hlýðni við Frels- ara sinn, sem bauð að „Þannig ber oss að fullnægja öllu réttlæti“ (Matt. 3:15). Biblían greinir ekki frá öðru en að þeir sem trúðu voru skírðir og þá niðurdýfingarskirn, sem táknar greftrun hins gamla manns.e Kól. 2:12. og Róm. 6:4. „En Filipus lauk upp munni sínum og tók til á ritning þessari og boðaði honum fagnaðarerindið um Jesúm. En er þeir fóru áfram veginn, komu þeir að vatni nokkru og hirðmaðurinn segir: Sjá, hér er vatn, hvað hamlar mér að skírast? En Filipus sagði: Ef þú trúir af öllu hjarta er það heimilt. En hann svaraði og sagði: Eg trúi að Jesús Kristur sé guðssonurinn. Og hann lét vagninn standa við. Og þeir stigu báðir niður í vatnið, Filipus og hirðmaðurinn, og hann skírði hann.“ Post 8:35— 38. Einnig Post. 2:35—42 og Mark. 16:16. Af minni eigin reynslu í gegnum sjómannastarfið um áratuga skeið hefi ég oft orðið vitni að því hvernig einhvers konar valda- menn hafa komið í veg fyrir að rússneskir sjómenn eða verkafólk hafi fengið að njóta guðs orðs, sem það með gleði og þakklæti hafði tekið á móti frá mér, eða þá að ég hafði verið hindraður í að ná sambandi við það. Þannig er frjálsræðið þar í reynd. Guð gefi að stjórnendur Ráð- stjórnarríkjanna sjái að sér í tíma og leyfi fólki óhindrað og frjálst að tilbiðja þann Guð sem, „svo elskaði heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16. Sigfús B. Valdimarsson. Hlaup og laxveiðar Kæri Velvakandi Óneitanlega tók borgarstjór- inn sig vel út í landsboðhlaupinu 17. júní, ekki síður en sá, er við keflinu tók, Úlfar Þórðarson læknir. Manni þykir alltaf huggu- legt, þegar broddborgararnir gera að gamni sínu og eru með, eins og hvunndagsfólkið. En eftir á að hyggja: Fyrir skömmu var sá siður aflagður, að borgarstjórinn veiddi fyrsta lax- inn úr Elliðaánum, heldur var Sigurjón Pétursson kominn í hans stað. Sigurjón flutti líka ræðuna á Austurvelli, þegar jólatréð var afhent og er yfirleitt búinn að ýta borgarstjóranum til hliðar, þegar eitthvað „fínt“ er á dagskrá, enda nýbúinn að fá forsetalaunin sín hækkuð af því að hann hefur svo mikið að gera við að stjórna borginni og er svo önnum kafinn í veizlum. En borgarstjórinn var rétt góð- ur til að hlaupa fyrsta sprettinn í boðhlaupinu. Forseti borgar- stjórnar hafði engan áhuga á að blanda sér í það. Maður úr Vesturbænum. ^iKARNABÆR Þúfærð nóg að gera hjá okkur Viö erum aö opna nýja, glæsilega saumastofu og erum aö leita aö góöu fólki til aö hjálpa okkur aö reka hana, helst vönu saumaskap, erum ekki á móti því aö kenna fólki meö áhuga fyrir starfinu. Mjög góö vinnuskilyröi. Gott kaup (bónus). Þarf aö byrja strax eöa um miðjan ágúst. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 28155 eöa á saumastof- unni aö Laugavegi 59,4. hæð. ^KARNABÆR Þakka innilega auösýnda vinsemd í tilefni 60 ára afmælis míns 15. júní sl. Sighvatur Bjarnason Keilufelli 17. Þakkir rýrari en núna. Iþróttafélögin verða því að hafa öll spjót úti til að afla sér fjár, eins og t.d. búningar knattspyrnumanna bera með sér. Þátttakendur í landshlaupi Frjálsíþróttasambandsins eru með borða merktan Morgunblað- inu, af því að báðir aðilar töldu sér hag af viðskiptunum. Það er allt og sumt. Nú á að reyna að gera þetta mál pólitískt. Hvað sem um það má segja, virðist blasa við, að það auðveldar ekki fjáröflun íþrótta- félaganna í framtíðinni. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Sofia í Búlgaríu fyrir skömmu kom þessi staða upp í skák þeirra Minevs, Búlgaríu, sem hafði hvítt og átti leik, og Ioakimidesar, Grikklandi. 14. Ra5! og svartur gafst upp, því að drottning hans er fönguð. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1. Plachetka, Tékkóslóvakíu 10 v. af 13 mögulegum. 2. Hazai, Ungverjalandi 9'/2 v. 3. Radulov, Búlgaríu 8'/2 v. 4.-5. Búlgararnir Padevsky og Georgiev 7'/2 v. 6. Minev 7 v. HÖGNI HREKKVÍSI P/fo íÆ c&piTHo pyen rr að áPjefFA * Wyp/L /" Mínar innilegustu þakklr votta ég öllum: fjölskylduliöi, félögum og einstaklingum sem unnu aö því, aö gjöra mér glaðan sjötugsafmælisdaginn 5. júní meö: hjálpsemi, gjöfum, heim- sóknum, skeytum, bréfum og símtölum. Séuö allir vel þess vísir vinir, aö mín var ánægjan. Lífsins herra og lukkudísir launi fyrir gamlingjann. Ingpór Sigurbjörnsson Kambsvegi 3 R. 19. JUNI er kominn út. Fjölskyldan í brennidepli. Blaöiö fæst í bóka- verzlunum og á blaösölustööum. Kvenréttindafélag íslands. MANNI OG KONNA Gætið vel að, þar sem börn eru að leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.