Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979
Sest flóttafólk frá Vietnam að á Islandi?
RÍKISSTJÓRNIN mun væntanlega taka afstöðu til þess á fundi sínum í dag, hvort íslendingar eiga að veita
viðtöku flóttafólki frá Víetnam sem Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur beðið um hæli fyrir. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í gær. þá hefur skrifstofa flóttamannafulltrúa S.Þ., Pauls Hartlings, farið
þess á Jeit við íslcndinga að þeir taki við fimmtfu flóttamönnum.
Ails er talið að flóttafólkið sé um 300 þúsund talsins. Hefur verið lagt til að ísland taki við 50
flóttamönnum. Danmörk 1000 (þar eru þegar 250 flóttamenn frá Víetnam), Finnland taki við 100, Noregur
1000 og Svíþjóð 2000.
Morgunblaðið leitaði í gær til ráðherra úr öllum stjórnarflokkum og fara svör Svavars Gestssonar og
Steingríms Hermannssonar hér á eftir:
Almenningur segi
álit sitt á málinu
— segir utanríkisráðherra og kveðst sjálfur vilja fá
nánari upplýsingar áður en hann tekur afstöðu
eða fólk af kínverskum ættum,
sem Víetnamar hafa lagt nokkra
áherslu á að flyttust úr landi. Á
þessu stigi sagði ráðherrann ekki
tímabært að taka ákvörðun um
það hvaða fólk kæmi hingað til
lands, fyrst yrði að taka ákvörðun
um grundvallaratriði málsins; já
eða nei. Viljum við taka við þessu
fólki eða ekki. Einnig sagði ráð-
herra að æskilegt væri að gera sér
grein fyrir kostnaði við þetta, en
hann yrði óhjákvæmilega mikill í
byrjun. Eftir það yrði þá að semja
við Flóttamannahjálpina um val á
fólkinu, en íslendingar myndu
vafalaust vilja fá að velja fólkið og
láta það ganga undir læknisskoð-
un. Benedikt Gröndal sagði að
lokum, að hann gæti ekki sagt til
um það hvenær ríkisstjórnin yrði
tilbúin til að taka málið upp að
nýju, en ljóst væri að málið væri í
mikilli kreppu hjá Sameinuðu
þjóðunum og ýmislegt væri að
gerast. Svisslendingar hefðu til
dæmis þegar svarað játandi og
væru þeir búnir að auka sinn
kvóta og ætla nú að taka 1000
manns á ári. Ljóst væri að málið
þarfnaðist skjótrar ákvörðunar,
enda væri bæði dýrt og óhemju
kostnaöarsamt að hafa allt þetta
fólk í flóttamannabúðum lengi.
„ÞAÐ er ekkert nýtt af þessu
máli að frétta, það hefur verið
lagt fram í ríkisstjórninni og
ráðherrar hafa það nú til athug-
unar og íhugunar, en á þessu
stigi er ekki unnt að segja til um
hversu fljótt ákvörðun verður
tekin", sagði Benedikt Gröndal
utanrikisráðherra í samtali við
Morgunblaðið síðdegis í gær, er
hann var spurður um þá ósk
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, að íslendingar taki við
50 flóttamönnum frá Víetnam.
Benedikt sagði að skeyti um
málið hefði fyrst komið í fyrrinótt,
og hefðu ráðherrar strax fengið
það til athugunar. Benedikt kvaðst
hins vegar hafa sent þegar út
fréttatilkynningu um málið, þar
sem nauðsynlegt væri að almenn-
ingi gæfist kostur á því að segja
sína skoðun á því hvernig bregðast
ætti við máli sem þessu. Utanrík-
isráðherra sagðist ekki ætla að
mynda sér neina skoðun á málinu
fyrr en hann hefði í höndum
ítarlegri upplýsingar um það.
Utanríkisráðherra sagði, að sér
skildist, að í þeim 300 þúsund
manna hópi, sem raunar færi
dagvaxandi, og væri á vegum
Sameinuðu þjóðanna, væri fólk á
öllum aldri og af öllu tagi. Senni-
lega mikill hluti þess Kínverjar
----II ,
SKRIFSTOFA hai,
K&rísteTKÍ
iff “fi™'Sttí“hs
raönnum otr h»im «7 f,étta-
fyrirácinu4,rm **rM koDIið
œÍiíraðpíuIUHanrrM-ÍSrá®uney‘inu
aðkk°ðXV*rrði7hU^ndum|
ráðstefna «« séJmk
manna frá víoí < amá flðtta- |
haðan búðum m F,6ttafólk
trúans er n í , ^“amáiafull-
fyrr er getið bflP ^®r8€m
sannaarnt vLuíf í iagt til
50 flóttamðnnu' í'and t*ki við
en þar eru " ú o2.anmðrk I00°-
Víetnam j manns frá
lOOOogSvíþjðð^,100’ Noree“r
i*e^anekýk„£n?rtda,'Utanríkiaráð-
atjórnarfundi má! á. ríkis-
'nni frá ráðuneySu. 8 1 frétt-
Stjómin tekur
afstöðu í dag
— segir Svavar Gestsson
„ÞAÐ veröur tekin afstaða
til þessarar beiðnar á
fundi ríkisstjórnarinnar í
fyrramálið, og þá kemur
það bara í ljós,“ sagði
Svavar Gestsson viðskipta
ráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær, er
hann var spurður álits á
þeirri ósk Flóttamanna-
hjálpar S.Þ. að íslending-
ar taki við flóttafólki frá
Vietnam.
Svavar kvaðst ekki vilja
segja sína persónulegu skoð-
un á málinu, eðlilegra væri
að það kæmi frá ríkisstjórn-
inni í heild.
Gene Wilder dansar hér tangó
elskhugi*4.
í kvikmyndinni „Heimsins mesti
Keppt um það hver sé
mesti elskhugi heims
NÝJA bíó heíur haíið að sýna bandarísku gamanmyndina „Heimsins
mesti elskhugi“ (The Worlds Greatest Lover). Framleiðandi,
leikstjóri, höfundur kvikmyndahandrits og aðalleikari er Gene
Wilder. Meðframleiðandi er Terence March og tónlist er eftir John
Morris.
Zitz forstjóri Regnboga-kvik-
myndaveranna í Hollywood hefur
um sig hóp jábræðra til þess að
samþykkja allt sem hann segir.
Myndin gerist árið 1926 þegar
frægð Rudolfs Valentinos er í há-
marki og fær Zitz þá hugmynd að
auglýsa eftir manni sem gæti keppt
við Valentino sem starfar hjá Para-
mount-kvikmyndaverinu. Menn
flykkjast í þúsundatali til Holly-
wood til þess að fara í próftöku hjá
Regnboganum og meðal þeirra er
Rudy Hickmann sem er bakari í
Milwaukee. Hann fer með Önnu
konu sinni til Hollywood og segist
þar heita Rudy Valentine.
Rudy kemst í gegnum leikprófið
og kemst í þriggja manna úrslit ert
Anna lendir í ýmsum ævintýrum,
kemst m.a. í náin kynni við Rudolf
Valentino auk þess sem hún lendir
um tíma í höndum lögreglunnar.
Loks fara úrslitin fram í keppn-
inni um það hver sé líkastur Rudolf
Valentino, heimsins mesti elskhugi,
og allt gengur eins og best verður á
kosið.
Með aðalhlutverk í myndinni, auk
Wilders, fara Carol Kane, Dom
DeLuise, Fritz Feld og Candice
Azzara.
Gæzluvarð-
hald framlengt
f FYRRAKVÖLD var íramlengt
gæzluvarðhald ungs manns, sem
setið hefur inni alllengi vegna rann-
sóknar á umfangsmiklu fíkniefna-
máli, sem fíkniefnadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík hefur nú til meðferð-
ar.
Var gæzluvarðhald mannsins fram-
lengt um 20 daga. Tveir menn sitja nú
inni vegna rannsóknar málsins en
þeim þriðja var sleppt á mánudaginn,
en hann hafði þá setið inni í 19 daga.
Á afmæli föðursins í Stundarfriði, en sýningum fer brátt að ljúka.
Síðustu sýningar
á Stundarfriði
LEIKRIT Guðmundar Steinsson-
ar, Stundarfriður, sem Þjóðleik-
húsið hefur sýnt í allt vor, hefur
hlotið miklar vinsældir. Hefur
ávallt verið sýnt fyrir fullu húsi
og eru sýningar að nálgast 30.
Leikári Þjóðleikhússins er nú að
ljúka og verða síðustu 3 sýn-
ingarnar á Stundarfriði um helg-
ina, á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er Stefán Baldursson,
leikmynd og búningar eru eftir
Þórunni S. Þorgrímsdóttur. Með
stærri hlutverk fara Kristbjörg
Kjeld, Helgi Skúlason, Þorsteinn
Ö. Stephensen, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Guðrún Gísladóttir,
Sigurður Sigurjónsson og Lilja
Þorvaldsdóttir.
Á borgarstjórnarfundi í dag
munu fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins leggja fram tillögu um áætlun
til að efla útiveru í Reykjavík.
I tillögunni segir m.a., „að með
hækkandi olíuverði og auknum
aksturskostnaði sé æ mikilvægara,
að borgarbúar geti í frístundum
sínum hitt fólk í nágrenni við
Vitni vantar
LÖGREGLAN í Kópavogi hefur
beðið Mbl. að auglýsa eftir vitnum
að árekstri og ákeyrslu þar í bæ.
Föstudaginn 30. marz s.l. varð
árekstur á mótum Nýbýlavegar og
Skeljabrekku en þar rákust saman
Cortina og Simca. Gerðist þetta um
fjögurleytið um daginn. Vitað var að
tvö vitni voru að árekstrinum og eru
þau beðin að gefa sig fram.
Þá er óskað eftir vitnum að
ákeyrslu sem varð fyrir utan
Hamraborg 1 í Kópavogi á tímabil-
inu 13—13.50 föstudaginn 15. júní
s.i. Ekið var á Citreoen-bifreið og
vinstri hlið hennar skemmd.
heimiii sín.“ Tilgangurinn á að vera
aukning félagslegra samskipta
Reykvíkinga, gera borgina líflegri og
manneskjulegri og efla útivist í
samvinnu við þau félög, sem hafa
slík verkefni á stefnuskrá sinni.
Ætlunin er að auðvelda almenningi
að notfæra sér enn frekar þá aðstöðu
til útivistar, sem Reykjavíkurborg
og félagasamtök hafa komið upp.
Tillaga siálfstæðismanna:
Aukið líf í borg