Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979 3 Ljósm. Mbl. Kristján. Verður byggt á Miklatúni? SÚ HUGMYND hefur skotið upp kollinum að á næstu árum verði byggt á Miklatúni, áður Klambratúni. Eftir Því sem Morgunblaðið hefur fregnað munu pær hugmyndir vera uppi hjá Þróunarstofnun borgarinnar aö leyfa byggingu húsaraöar á túninu meðfram Rauðarárstíg, frá Flókagötu að Miklubraut. Ek.ci náðist í Guðrúnu Jónsdóttur forstöðumann Þróunar- stofnunar i gærkvöldi til hana. Eins og fram hefur komið vinnur skipulagsnefnd borgarinnar nú að endur- skipulagningu nokkurra svæöa í borginni. Er ætlunin að þétta byggðina með byggö íbúöarhúsnæöis á þessum svæðum og að nýta þær lagnir og þjónustumiöstöðvar, sem fyrir eru á svæöunum, sem Séð suður eftir Rauöar- árstíg í átt að Miklu- braut. að bera þessa frétt undir eru fimm talsins. Þau eru svæði vestan Álfheima, svæði við Miklubraut við hestinn, í framhaldi af Öskjuhlíðarskóla viö Hafnarfjarðarveg, efst á Laugaráshæð viö Vestur- brún og Austurbrún og austan Borgarspítala. Auk þessara fimm svæða, sem eru til með- ferðar hjá Skipulagsnefnd munu fleiri svæði vera í athugun og þar á meðal svæðiö við Rauöarárstíg. Hornafjarð- arbátur tek- inn í landhelgi FLUGVÉL Landhelgisgæzlunn- ar, TF SYN, stóð vélbátinn Garð- ey SF, 22 tonn, að meintum ólöglegum veiðum við Ingólfs- höfða í gærmorgun. Var báturinn þá 0,3 sjómílur innan við mörkin. Réttarhöld stóðu yfir á Höfn í Hornafirði í gærkvöldi. 35 hvalir á 10 dögum ALLS höfðu veiðst 35 hvalir síð- degis í gær er Morgunblaðið hafði samband við Hvalstöðina í Hval- firði, 32 langreyðar og 3 búrhvalir. Veiði hefur verið ágæt, en hval- bátarnir 4 héldu ekki út fyrr en 10. júní síðastliðinn. í fyrra byrjuðu veiðarnar 28. maí og 20. júní hafði veiðst 71 hvalur, en þoka og leiðindaveður setti þá strik í reikninginn. Einnig stórkostlegt úrval af alls konar sport fatnaöi. Veriö velkomin. Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 28155. Sveit unglinga valin FYRSTA heimsmeistara- keppni unglingasveita í skák fer fram í Viborg í Danmörku í október n.k. Fjölmargar þjóðir hafa til- kynnt þátttöku og er ísland í þeim hópi. Þátttökurétt hafa piltar sem fæddir eru 1. febrúar 1963 og síðar. Islenzka sveitin hefur ver- ið valin og skipa hana þeir Jóhann Hjartarson, Jóhann- es Gísli Jónsson, Elvar Guðmundsson, Karl Þor- steins og Björgvin Jónsson. Björgvin er úr Njarðvíkum en hinir fjórir piltarnir eru félagar í Taflfélagi Reykja- víkur. Sveitin fer utan á vegum Skáksambands íslands en fararstjóri verður Ólafur Ól- afsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.