Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.06.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979 17 Gagnrýni á flugDC-10 WaHhington, 20. júní AP SAMBAND farþega bandarískra flugfélaga sagði í dag, að sú ákvörðun evrópskra yfirvalda að leyfa aftur flug flestra DC-10 flugvéla í Evrópu væri óábyrg ráðstöfun sem ætti sér enga hliðstæðu í sögu flugsins“. Samtökin segja að daglega komi fram upplýsingar sem styöji ákvarðanir dómsyfirvalda um kyrrsetningu DC-10 flotans. Ekk- ert hafi komið fram sem hrekji rök sambandsins sem ákvarðanir dómstóla og bandarísku flugmála- stjórnarinnar hvíli á. Jafnframt segir einn æðsti yfir- maður McDonnell-flugvélaverk- smiðjanna, að DC-10 sé sem fyrr „stórkostleg flugvél" og að ekkert bendi til smíðagalla á vélinni. John Brizendine, yfirmaður Douglas-deildar fyrirtækisins, segir að þess vegna eigi tafarlaust að leyfa aftur flug DC-10 flugvéla um allan heim. Hann sagði í vitnaleiðslum í flugmálanefnd fulltrúadeildarinn- ar að nýleg gagnrýni á DC-10 væri að miklu leyti fjarstæðuken'nd og jafnvel óábyrg af þeirri einföldu ástæðu að enginn fótur væri fyrir henni. Danir án bíls einn dagí viku Kaupmannahöfn. 20. júní. AP. verður lagt fram á þingi á DANIR verða að skilja bíla sína morgun og verður að lögum fyrir eftir heima einn dag í viku til mánaðamót. þess að gera ríkisstjórninni Opinber samgöngutæki verða kleift að spara orku og draga undanþegin aukasköttum og úr geigvænlegum greiðsluhalla. ferðum þeirra verður ekki fækk- Frumvarp ríkisstjórnarinnar að. Þetta gerðist 1971 — Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðar stjórn Suður- Afríku í Suðvestur-Afríku ólög- lega. 1963 — Páll páfi VI kosinn — Frakkar draga Atlantshafsflota sinn út úr Nato. 1945 — Japanir gefast upp á Okinawa. 1942 — Rommel tekur Tobruk og Bretar hörfa. 1919 — Þýzka flotanum sökkt í Scapa-flóa. 1916 — Átök Bandaríkjamanna og Mexíkana við Carrizal, Mexíkó. 1915 — Búaher De Wets gefst upp eftir uppreisn í Bloem- fontein. 1898 — Fyrstu bandarísku her- mennirnir sækja á land á Kúbu. 1887 — Fimmtíu ára stjórnar- afmælis • Viktoríu drottningar minnzt — Bretar innlima Zulu- land. 1813 — Orrustan um Vittoria: Wellington gersigrar Frakka og Jósef Bonaparte flýr frá Spáni til Frakkiands. 1798 — Sigur Lakes lávarðar á Vinegar Hill og uppreisn Ira lýkur með innreið hans í Wex- ford. 1788 — Bandaríska stjórnar- skráin tekur gildi með staðfest- ingu níunda ríkisins, New Hampshire. 1661 — Kardis-friður Rússa og Svía: Norðurlandastríði lýkur og Rússar afsala sér tilkalli til Lífiands. Afmæli. Leo páfi IX (1002— 1054) — Rockwell Kent, banda- rískur listmálari (1882—1971) — Jean-Paul Sartre, franskur rit- höfundur (1905 — —) — Jane Russel, bandarísk leikkona (1921----) — Francoise Sagan, franskur rithöfundur (1935 --) Andlát. Játvarður III Eng- iandskonungur 1377 — John Smith, landnemi, 1631 — Nikolai Rimsky-Korsakov, tónskáld, 1908. Innlent. Jörundur Jörundsson kemur til Reykjavíkur með „Margaret and Anne" 1809 — Olíubruninn mikli á Battaríinu 1901 — Tryggvi Þórhallsson myndar stjórn eftir kosningar 1931 - „Súðin" fer tii Hong Kong í síðustu ferð sína undir íslenzkum fána 1951 — Sigur- björn Einarsson vígður biskup 1959 — f. Jón Helgason biskup 1866. Orð dagsins. Sagan endurtekur sig; sagnfræðingar endurtaka hver annan — Philip Guedalla, enskur sagnfræðingur (1889— 1944). Klofningur Salisbury, 20. júnf. AP. ÁTTA þingmenn flokks Abel Muzorewa forsætisráðherra í Rhódesfu sögðu sig úr þing- flokknum í dag og er þetta þriðji klofningurinn sem hefur orðið í liði stuðningsmanna nýju stjórnarinnar. Klofningnum stjórnaði James Chikerema, fyrsti varaforseti flokks Muzorewa biskups, og hann hélt því fram, að flokkur- inn bældi niður alla gagnrýni á Muzorewa. Vegna klofningsins hefur Muzorewa ekki lengur meirihluta á þingi, sem er skipað 100 þing- í Rhódesíu mönnum, en hann hafði áður tveggja þingsæta meirihluta. Nú leikur mikil vafi á því hvort „þjóðeiningarstjórn" biskupsins geti haldizt við völd. Uppreisnarmennirnir boðuðu stofnun nýs stjórnmálaflokks, Lýðræðisflokks Zimbabwe. í París sagði þingmaður brezka Ihaldsflokksins, að stjórn frú Margaret Thatchers mundi viður- kenna nýju stjórnina í Rhódesíu fyrir haustið. Hann sagði einnig að Bretar væru hlynntir því að viðskiptabanninu á Rhódesíu yrði aflétt eins fljótt og auðið væri. Frá Húsavík. Algjört aflaleysi á heimamiðum Norður- og Austurlandsbáta Aflabrögð á heimamiðum báta bæði Norðanlands og Austanlands hafa verið með fádæmum slök að und- anförnu og má segja að um algjörlega dauðan sjó sé að ræða. Netabátar hafa fengið allt niður í 100 kg í róðri og 1 tonn hefur verið algengt. Skakbátar hafa fengið allt niður í einn fisk í róðri. Vegna þessa aflaleysis hafa margir bát- ar legið í landi í ýmsum verstöðvum á Norður og Austurlandi. Hrísey Afli Hríseyjarbáta hefur verið óvenju lélegur að undanförnu og hafa trillukarlar fengið allt niður í einn til tvo þorska, sagði Árni Tryggvason leikari í samtali við Morgunblaðið, en hann rær við Hrísey á sumrum. Sagði Árni að það væri orðið slæmt þegar menn þyrftu að vera rífast um það hvor þorskurinn væri stærri. Einn og einn hefur þó fundið bleyðu þar sem sæmilegur afli hefur gefist. Siglufjörður Björn Þór Haraldsson í Siglu- firði sagði að afli hjá heimabátum væri hreint enginn um þessar mundir. Kvað hann þetta mjög óvenjulegt á þessum árstíma og réru bátar lítið vegna þessa. Línu- bátur hefur til dæmis ekki verið látinn hefja veiðar vegna aflaleys- isins. Björn Þór kvað sjómenn kenna köldum sjó og átuleysi um ástandið. Kvaðst hann hafa verið á Hólmavík fyrir skömmu og hefði sama ástand verið þar, netabát- arnir væru með 500—600 kg í netin í róðri. Þórshöfn Jóhann Jónsson forstjóri hraðfrystihússins á Þórshöfn kvað aigjört aflaleysi hafa verið síðustu vikuna, en þá datt aflinn skyndi- lega allt niður í 100 kg í róðri. Þetta skeði eftir að nær allur Norðurlands- og Austfjarðaflot- inn kom á miðin hingað þar sem afla gaf um skeið, sagði Jóhann, nú róa menn ekki einu sinni í þessari ördeyðu. 5 bátar af 6 hafa hætt, en trillurnar eru rétt að byrja að róa, án árangurs þó. Þetta er svona á nær öllum heimamiðum báta á Austur og Norðurlandi, sagði Jóhann. Húsavík Snorri Jónsson hjá Fiskiðju- samlagi Húsavíkur kvað afla óvenju lítinn þar eins og víðar um þessar mundir. Helzt kvað hann afla á línuna, en hins vegar væri skortur á beitu og það væri því fátt til bjargar . Kvað Snorri það í rauninni furðulegt að ekki væri til loðna í beitu hjá þessari loðnu- veiðiþjóð. Kvað Snorri stærri bát- ana vera á netum, en þá minni á handfærum og línu og þeir sem reyndu að vera með línuna beittu öllum fjandanum. Akureyri Afli smábáta frá Akureyri hef- ur hins vegar verið ágætur að undanförnu, en þeir hafa sótt skammt út Eyjafjörð í ágætis þorsk og hefur aflinn verið óvenji' góður í vor og sumar samkvæmt upplýsingum Vilhelms Þorsteins- sonar hjá Útgerðarfélagi Akur- eyrar. Þá kvað Vilhelm togara Útgerðarfélagsins hafa aflað vel að undanförnu, eða 200—300 tonn í túr. Kaþólski söfnuðurinn fái Hamragarða og hús Vilhjálms Þórs Þegar byggingaráform kaþólska safnaðarins í Landakoti komu fyrst til umræðu, kom fram sú tillaga í íbúasamtökum Vestur- bæjar, að Reykjavíkurborg hefði forgöngu um að kaþólski söfnuð- urinn eignaðist hús Vilhjálms Þórs fyrir biskupsbústað og Hamragarða fyrir prestahús og gistiheimili. Þetta var fyrir síð- ustu borgarstjórnarkosningar og kom tillagan fram á fundi í íbúa- samtökunum, sem Ólafur B. Thors sótti fyrir hönd þáverandi meiri- hluta borgarstjórnar. Tillöguna bar fram Pétur Péturs- son og samkvæmt upplýsingum hans kvað hann tillöguna leysa húsnæðisvandamál safnaðarins, sem hann sem gamall nemandi í Landakotsskóla ann alls hins bezta. „Betri skóla hef ég ekki gengið í, ef frá er talið félagsmálanámskeiðið við Gúttó 9. nóvember 1932,“ sagði Pétur og bætti við að þessi lausn kæmi í veg fyrir að hróflað yrði á nokkurn hátt við Landakotstúni, sem væri eins og vin í malbikinu. Pétur sagði að Landakotstún og næsta umhverfi væri sögufrægt í garðræktarsögu Reykjavíkur. Á tímum danskra yfirráða gerðu dönsk stjórnvöld margar heiðarleg- ar tilraunir til þess að kenna íslendingum garðrækt, en þeir voru tómlátir í þeim efnum. Góðar undirtektir fengu þeir þó á einum stað. Það var hjá Margréti Andreu Knudsen, er bjó í Landakoti með fríðan barnahóp. Er hún m.a. kunn frá heimsóknum Jónasar Hallgrím- sonar á heimili hennar í Landakoti. Þá gekk hann á bláum frakka með gylta hnappa og orti ástarljóð á dönsku til einnar dótturinnar. Á þessu ári voru liðin 200 ár frá fæðingu Margrétar Andreu. Hún lifði 20 ár í hjónabandi og 20 ár í ekkjudómi og í skjölum Þjóðskjala- safnsins og víðar má sjá ljóst vitni um garðræktaráhuga hennar, því að hún er eini borgari Reykjavíkur, er telur sig lifa af garðrækt og veitir fjölmennu heimili forstöðu. Enn í dag búa fjölmargir niðjar hennar í grennd við Landakotstún. Má þar nefna frú Ingibjörgu Thors, Gísla Sigurbjörnsson, Jón Hall- dórsson söngstjóra, Ágústu Péturs- dóttur teiknara og fleiri mætti telja. Samband íslenzkra samvinnu- félaga á margra kosta völ í borgar- landinu, sagði Pétur Pétursson og tillaga þessi er á engan hátt borin fram til þess að hnekkja orðstír mætra manna eins og Vilhjálms Þórs og Jónasar Jónssonar, cn þeir hafa þó engin söguleg tengsl við Landakotstúnið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.