Morgunblaðið - 21.06.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JUNI1979
5
Laugardaginn 16. júní
efndi Félag sjálfstaeðis-
manna í Austurbæ og Norð-
urmýri til kynnisferðar
um Reykjavík og ná-
grenni fyrir eldri borgara.
Um hálftvöleytið lögðu
tveir langferðabflar frá
Guðmundi Jónassyni af sta<
í rigningu frá Templara-
höllinni við Eiríksgötu
með um hundrað manns
innanborðs.
Tveir afburðaleiðsögu-
menn voru í ferðinni, þeir
Páll Líndal, lögfræðingur,
og Jón A. Gissurarson,
fyrrum skólastjóri.
Séð yfir hópinn í fundarsal Hrafnistu í Hafnarfirði.
Vel heppnuð og ánægjuleg
kynnisferð fyrir eldri borgara
Ekið var um gamla Vestur-
bæinn, út í Skerjafjörð, um
Grímstaðaholtið og þaðan út á
Seltjarnarnes. Síðan var farið
með sjónum allt inn að Elliða-
ám og þaðan sem leið liggur
um Breiðholt, upp á Vatns-
endahæð og Rjúpnahæð. Það-
an sást, hvernig sólin var að
brjótast gegnum skýin og
hellti geislum sínum yfir
gömlu Reykjavík.
Frá Rjúpnahæð var haldið
um Vífilsstaði yfir í Hafnar-
fjörð að Hrafnistu, dvalar-
heimili aldraða sjómanna. Þar
tóku þau Pétur Sigurðsson,
forstjóri, Og Sigríður Jóns-
dóttir, forstöðukona, á móti
hópnum. Útskýrði Pétur
starfsemi alla fyrir gestum.
Er Hrafnista í Hafnarfirði
rekin með mikilli reisn og
myndarskap. Þar dvelst fólk,
sem orðið er of lasburða til að
standa fyrir eigin heimili, en
hefur þó nokkra krafta til að
sinna ýmsum léttum störfum,
svo sem að hnýta net og margs
konar handavinnu, jafnframt
nýtur það félagsskapar hvert
annars. Að lokinni kaffi-
drykkju í boði Hrafnistu fengu
gestir tækifæri til að skoða
hannyrðasýningu stofnunar-
innar, sem sett hafði verið upp
í tilefni sjómannadagsins.
Einnig máttu gestir fara um
alla stofnunina og skoða
starfsemina að vild sinni.
Voru móttökur forráðamanna,
starfsmanna og vistfólks allar
hinar alúðlegustu.
Síðan var farið í Garða-
kirkju. Þar tók Helgi Hjálms-
son, safnaðarformaður, á móti
hópnum. í upphafi spilaði org-
anisti kirkjunnar, Þorvaldur
Björnsson, „Víst ertu, Jesús,
kóngur klár.“ Þá sagði Helgi
Hjálmsson sögu staðarins og
lýsti hinni endurbyggðu
Garðakirkju, sem er í alla
staði hin fegursta. Síðan las
hann sálm Hallgríms Péturs-
sonar: „Þá þú gengur í Guðs
hús inn“. Að endingu sungu
allir saman tvö vers úr „Ó þá
náð að eiga Jesúm".
Frá Garðakirkju var haldið
í Bessastaðakirkju og hún
skoðuð. Þar sungu allir „Son
Guðs ertu með sanni“.
Að lokum var ekið hringinn
í kringum Álftanes og síðan
haldið beint til Reykjavíkur.
Og það var glatt og ánægt
fólk, sem kvaddist við Templ-
arahöllina um hálfsjöleytið
um kvöldið.
Sigríður A. Valdimarsdóttir
Úr föndursal Hrafnistu í Hafnarfirði.
Takmörkun á bú-
vöruframleiðslunni
—rædd á aðalfundi norrænu bændasamtakanna
SAMVINNU- og stéttarfélög
bænda á Norðurlöndum hafa með
sér samband sem í daglegu tali er
nefnt NBC. Árlega er haldinn
aðalfundur, að þessu sinni verður
hann á Laugarvatni dagana 1. og
2. ágúst. Frá hinum Norðurlönd-
unum munu mæta um 155 manns,
þar af eru rúmiega 100 fulltrúar á
fundinum. íslensku þátttakend-
urnir verða um 40. Samtals munu
vcrða rúmlega 200 manns á Laug-
arvatni þessa daga í tengslum við
aðalfundinn.
Aðalmál fundarins verður tak-
mörkun búvöruframleiðslunnar
með tilliti til markaðsaðstæðna.
Þetta vandamál hafa 4 Norðurlön,d-
Lúðrablástur
ímiðborginni
NORSK skólalúðrasveit og
önnur íslenzk munu leika í
miðborg Reykjavíkur síðdegis
í dag.
Norska sveitin er frá Elver-
um Heradsbygd í Noregi. Hún
lék við hátíðahöldin í Reykjav-
ík 17. júní og einnig hefur hún
leikið á Laugardalsvelli og í
gærkvöldi hélt hún tónleika í
Bústaðakirkju.
Lúðrablásturinn í miðborg-
inni í dag hefst klukkan 17 og
það er Skólalúðrasveit Árbæj-
ar og Breiðholts, sem leikur
með norsku sveitinni.
in við að stríða, Danir eru sér á
báti, þar sem EBE sér um vanda
danskra bænda. Svíar flytja út korn
fyrir verð sem er innan við 50% af
því verði sem sænskum bændum er
greitt fyrir kornið. Finnar flytja út
korn og ýmsar búfjárafurðir mest á
heimsmarkaðsverði, þar greiðir
ríkissjóður mjög miklar útflutn-
ingsbætur. Norðmenn hafa flutt út
smjör og osta á verði, sem er langt
undir framleiðslukostnaði. Ýmsar
leiðir eru farnar til að hafa stjórn á
framleiðslunni, munu þær verða
kynntar og ræddar og reynt að
komast að niðurstöðu um hvaða
leiðir beri að fara sem tryggi
jafnframt bændum sambærileg
lífskjör og öðrum stéttum.
Mörg önnur mál verða rædd á
aðalfundinum. Forseti NBC er
Sveinn Tryggvason framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs landbúnað-
arins en aðalritari er Agnar Guðna-
son blaðafulltrúi landbúnaðarins.
Áritanir til Ástralíu
ekki lengur frá
brezka sendiráðinu
ÁSTRÖLSK yfirvöld hafa ákveðið
að frá og með 1. júlí 1979 muni
breska sendiráðið í Reykjavík ekki
lengur gefa út áritanir fyrir
Ástralíu. Fólk sem hyggur á ferðir
til Ástralíu þarf því að hafa
samband við ástralska sendiráðið
í Stokkhólmi.
Dire Straits
Communiqué
„Diskóöld er liöin“ sagöi Egill þurs á hljómleikunum í Höllinni
í síöustu viku.
Mark Knopler og félagar hans eru greinilega sammála Agli
þar, því Dire Straits er ein besta „soft-rokk“ hljómsveit sem
upp hefur komiö. Þeir, eins og Þursar sendu frá sér sína
aöra plötu í síöustu viku og eiga þær þaö sameiginlegt aö
vera stórkostleg framför frá frumburöinum.
Ef þú hefur enn ekki fengiö þér fyrri plötu
Dire Straits sem inniheldur m.a.Jagiö
Sultans og swing þá er hún einnig fáanleg
í verslunum okkar.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24 Vesturveri
Sími 84670 Simi 18670 Sími 12110