Morgunblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979
11
Flóamarkadurinn Sambands
dýraverndunarfélaga
ÞÓTT seint voraði og gróður væri um hálfum mánuði á
eftir, eru sumardvalarsvæðin víðs vegar um ,landið nú
orðin ágæt og byrjað að taka þar við gestum. Á skrá eru
25—30 sumardvalarsvæði, sum nokkuð vel skipulögð og
búnaður góður, önnur í uppbyggingu.
— Stefnt er að því að öll upp- 1 hefur verið eftir því sem við
fylli lágmarkskröfur. Mörg svæð-
anna bjóða upp á nokkuð full-
komna hreinlætisaðstöðu, svo sem
snyrtingu, aðstöðu til baða og
sundlaugar, möguleika til þvotta,
sölu á ferðamannavarningi
o.s.frv., sögðu þeir Eiríkur Ey-
mundsson á Laugarvatni, formað-
ur Félags eigenda sumardvalar-
svæða, og Kristleifur Þorsteinsson
á Húsafelli, varaformaður félags-
ins, er blaðamaður hitti þá að
máli. Sögðu þeir að hugmyndin
væri að byggja upp hér á landi
ekki lakari sumardvalarsvæði en
erlendis. Því væri reynt að fylgj-
ast með þróuninni þar og sam-
ræma eftir því sem við á hér á
landi. Vissulega hefði margt
áunnist hér á síðari árum, þótt
margt væri óunnið enn. Sá skiln-
ingur væri orðinn almennur, að
þessi þjónustugrein ferðamála
væri þjóðinni nauðsynleg og ætti
fullan tilverurétt.
Félagið hefur haft samband við
alla þá er tengjast ferðamálum á
einn eða annan hátt, félögum og
opinberum stofnunum og reynt
verður komið að uppfylla reglu-
gerð um tjald og hjólhýsasvæði i
frá 1974, svo og aðrar reglur um j
slíkt að því er þeir sögðu. Þá hefur
verið leitað eftir staðfestingu á
dvalargjöldum til viðkomandi
stofnana. En að því er þeir Eiríkur
og Kristleifur sögðu, munu
dvalargjöld á íslandi vera um það
bil helmingi lægri en gerist í
öðrum löndum, þótt aðbúnaður sé
líkur. Þeir bentu á, að gjaldeyris-
tekjur okkar af erlendum ferða-
mönnum væru orðnar fjórða
mesta tekjulindin, yfir 10 millj-
arðar árið 1978 að talið er, og
óhætt að fullyrða að sumardvalar-
svæðin ættu þar nokkurn hlut að
máli. Ekki væri þó síður mikil-
vægt á þessum erfiðu tímum að
hvetja fólk til að ferðast innan-
lands að öðru jöfnu og spara
gjaldeyri og dvelja jafnframt í
fögru umhverfi í hreinu lofti á
mjög ódýran hátt.
Þeir bentu á, að mörg sumar-
dvalarsvæðin eru með góða hrein-
lætisaðstöðu, flest hafa á boðstól-
um algengan ferðamannavarning,
víða eru sundlaugar og gufuböð,
hótel í næsta nágrenni, bátaleiga,
hestaleiga, íþróttavellir og göngu-
leiðir. Á skrá félagsins eru tjald-
svæði og þjónusta í Reykjavík,
Húsafelli, Borgarnesi, Hreðar-
vatni, Stykkishólmi, Vatnsfirði,
Stóru-Giljá, Varmahlíð, Akureyri,
Vaglaskógi, Laugum, Húsavík,
Reykjahlíð og Skútustöðum, Ás-
byrgi, Vesturdal, Egilsstöðum,
Hallormsstað, Þórisdal, Höfn,
Skaftafelli, Hrífunesi, Vík, Þjórs-
árdal, Laugarvatni og Þingvöllum.
Allt frá skóm upp í
hjónarúm og hurðir
Þær Bergþóra t.v. og Jórunn halda hér á verklegum samfestingi. Bak vid þær má sjá að úr mörgu er að
velja. Ljósm. Mbl. Kristján.
Sumardvalarsvæðin opn-
uð víðs vegar um landið
SAMBAND dýravcrndun-
arfélaga íslands hcfur í
u.þ.b. eitt ár rckið ílóa-
markað að Laufásvegi 1 í
Reykjavík til styrktar
starfsemi sinni. Mbl. leit
við á markaðnum nú ný-
verið og spjallaði við að-
standendur hans.
Jórunn Sörensen formaður sam-
bandsins og Bergþóra Skarphéð-
insdóttir unnu við afgreiðslu
þennan daginn, en að sögn þeirra
vinna fjölmargir aðilar frá hinum
ýmsu dýraverndunarfélögum við
markaðinn í sjálfboðavinnu.
Jórunn sagði að markaðurinn
hefði gengið mjög vel þann tíma
sem hann hefur starfað. „Mikið
hefur borizt af fatnaði og öðru og
við seljum allt sem okkur berst.
Hér kennir margra grasa, t.d. er
hér hægt að fá skótau, fatnað,
búsáhöld, myndir, hurðir, eitt
hjónarúm er nýkomið, bækur, yfir
hundrað ára gamlir silfurplett-
munir og margt fleira. Einnig má
geta þess, að minningarkort Dýra-
verndunarsambandsins eru af-
greidd hér og eins áskrift að
Dýraverndaranum, málgagni
sambandsins."
— Og'hvað er vinsælast?
„Búsáhöldin. Þegar við fáum
eitthvað af þeim, stoppa þau
yfirleitt stutt við. Margir hafa
fengið á sig góða skó og fatnað s.s.
kápur og fleira."
Jórunn sagði einnig, að fólk
utan af landi kæmi oft á markað-
inn og aðilar frá dýraverndunar-
félögum þar ættu ekki minnstan
þátt í að senda gjafir til markað-
arins. Öllum ágóða er varið til
starfsemi sambandsins, þ.e.
verndunar dýra.
Þær stöllur sögðust að lokum
vilja færa öllum þeim, er styrkt
hefðu starfsemina beztu kveðjur
og þakklæti, og þá sérstaklega
húsráðendum á Laufásvegi 1, sem
veitt hefðu ómetanlega aðstoð.
Markaðurinn er opinn alla virka
daga frá kl. 14.00—18.00.
j Verkstjórar
gæti öryggis
á vinnustað
í LÖGUM UM öryggisráðstafan-
ir á vinnustöðum segir m.a. að
það sé skylda vinnuveitenda að
upplýsa unga starfsmenn og
óvana um allar þær hættur. sem
kunna að felast í starfi þeirra og
kenna þeim að vinna og um-
gangast vinnustaðinn á öruggan
hátt.
í frétt frá öryggismalastjóra
segir að verkstjórar séu fu!l-
trúar vinnuveitenda og eigi að
sjá um þessa fræðslu. Segir að
nú sé sá tími sem mörg ung-
menni séu að hefja störf á
vinnumarkaðinum og skuli þeir
því gæta þess að þeir sem séu
undir umsjá þeirra skuli hafa
fengið viðunandi fræðslu um
hættur sem starfinu séu sam-
fara.
Auóvitaö
Benidorm
//
o
oo o
Margra ára reynsla,
brautryöjendur
í Benidorm feröum.
Reyndir fararstjórar,
þjálfaö starfsfólk.
Næsta brottför 11. júlí.
Góðir greiðsluskilmálar.
Seljum farseöla um allan heim á lægsta verði.
Ferðamiðstöðin hf.
AÐALSTRÆTI 9 — SÍMI 28133