Morgunblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979
13
vinna markvisst að þessu strax
og í sumarleyfið er komið. Þann-
ig fáum við þá hvíld sem við
þörfnumst um leið og við bætum
samband við þá sem næst okkur
standa og verðum ákveðnari og
öruggari að takast á við streitu
hins daglega lífs. Meginmark-
miðið er að gera fólk hæfara að
takast á við streitu.
Áhersla verður lögð á:
1) Slökun
2) Hreyfingu.
3) Tjáskipti, þ.e. hvernig við
tölum saman og á hverju
samskipti okkar byggjast. Oft
vill verða misbrestur á bein-
um tjáskiptum, sem eru sér-
staklega mikilvæg í hreinskil-
inni sambúð.
Dagskráin verður í aðalatrið-
um þessi:
Dagurinn hefst á léttri hreyf-
ingu, síðan slökun. Eftir
morgunverð tekur við hópstarf-
semi um mismunandi tjáningar-
form. Frá 11.30—16.00 geta
menn notið sólar að eigin vild.
Frá 16.00—19.00 er hópstarf-
semi, hreyfing og slökun.
Urval efnir til hjónaviku
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilk^nning
frá Ferðaskrifstofunni Urval:
Nýtið sumarleyfið betur, verið
virkari og njótið sólar og sumars
um leið og þið byggið upp sál og
líkama.
Vegna fjölda fyrirspurna hef-
ur Ferðaskrifstofan Úrval
ákveðið að fara út á nýja braut í
sólarlandaferðum með því að
bjóða hjónum að nýta sumar-
leyfið á annan og betri hátt en
áður.
Okkur til aðstoðar höfum við
þá Jóhann Inga Gunnarsson,
þaulvanan fararstjóra í ferðum
Úrvals og landliðsþjálfara í
handknattleik, og Pál Eiríksson,
sem hefur staðið fyrir samskon-
ar námskeiðum í Danmörku og
Noregi, fyrir norska atvinnurek-
endafélagið N.A.F.
Markmið
Að slappa af er ekki einungis
að liggja í sólinni. Mörg kom-
umst við að þessu, þegar við
förum til sólarlanda og okkur
tekst ekki að slaka almennilega
á fyrr en líður að lokum ferðar-
innar. Og hvernig stendur á
þessu?
Of mikill hraði og álag ein-
kenna um of okkar daglega líf og
valda hjá okkur streitu. Mörg
vinnum við þannig störf að þau
taka meir á andlega heilsu okkar
en líkamlega og fáum við litla
hreyfingu í starfi. Það er stað-
reynd að á meðan við leggjum
áherslu á vissa líkamsstarfsemi
hvílist önnur. Þau okkar sem
stunda einhverja líkamsrækt
vita það, að eftir slíka ástundun
finnum við hversu endurnærð
við erum á sálinni.
Ef við losnum ekki við það
álag sem starfinu fylgir, þá
bitnar það oftast á þeim sem síst
skyldi, þ.e.a.s. þeim sem standa
okkur næst. Og allt of oft byggir
þetta á misskilningi og því hve
erfitt okkur reynist að tjá okkur
á eðlilegan máta.
Þegar til sólarlanda er komið,
tekur það of langan tíma fyrir
okkur að losna undan streitu
daglegs lífs. Okkur tekst ekki að
einbeita okkur að alhliða hvíld
og byggja upp eðlilegt samband
við okkar nánustu. Þess vegna er
mörgum okkar nauðsynlegt að
Dagarnir verða nýttir vel og
fær fólk því nægan tíma til að
aðlagast. sólinni. Þátttakenda-
fjöldi miðast við 10 hjón.
Námskeiðið stendur í eina
viku (fyrstu viku ferðarinnar),
síðan geta farþegar valið að
dvelja eina til tvær vikur á sama
hóteli eða í íbúð.
Áætlað verð: Kr. 286.000.- í 2
vikur. Kr. 365.000.- í 3 vikur.
Innifalið: Flugferðir, gisting á
Hótel Columbus í tveggja manna
herbergi með fullu fæði. Nám-
skeiðsgjald, fararstjórn flutn-
ingur til og frá flugvelli.
Ekki innifalið: Brottfarar-
skattur kr. 5.000 - auk þess koma
hækkanir vegna olíuhækkana og
gengissigs, eins og á aðrar sólar-
ferðir.
VSÍ:
Ákvörðnn-
inumsam-
úðarverk-
bann lögleg
MÚRARAFÉLAG Reykjavíkur
skrifaði fyrir stuttu Múrara-
meistarafélagi Reykjavíkur bréf
þar sem því er haldið fram að
samúðarverkbann félagsins sé
ólöglegt. Múrarameistarafélagið
fól Vinnuveitendasambandinu að
svara bréfi þessu og í svari þess
til Múrarafélagsins er staðhæf-
ingu þessari mótmælt og því
haldið fram að öll skilyrði sem
lög setji um vinnustöðvanir séu
uppfyllt.
I bréfi VSÍ segir m.a. að í bréfi
Múrarafélagsins sé því haldið
fram að samúðarvinnustöðvanir
séu því aðeins heimilar að tengsl
séu milli aðalvinnustöðvunar og
samúðarvinnustöðvunar og segir
VSI að fullyrðing þessi eigi sér
enga stoð og beri fræðimönnum
saman um að engin slík tengsl
þurfi að vera til staðar. Er vitnað
til ritsins Vinnuréttur þar sem
segir: „Þegar stéttarfélag á í
löglegu verkfalli er öðru stéttar-
félagi heimilt að boða til samúð-
arverkfalls með því enda þótt það
eigi sjálft ekki í neinni kjaradeilu
og kjarasamningur þess sé í gildi.
Samúðarverkfall er því einfald-
lega til þess fallið að styðja kröfur
annarra, aðgerð til þess ætluð að
bæta kjör annarra en þeirra sem
til þess boða.“
Einnig er vísað til dóms félags-
dóms þar sem segir að löggjafinn
hafi almennt viðurkennt verkföll
og verkbönn sem löglegar aðferðir
í skiptum aðila vinnumarkaðarins
og hvorki þar né annars staðar í
íslenzkum lögum séu ákvæði er
kveði á um tengsl milli samúðar-
verkfalls og aðalverkfalls.
u i.i.vsim; \simi\n KIÍ: .
22480
Júorflunblníiit)
KOOAK SAFETY PILM 5063
KODAK S'AFETY FILm avnj
AFETY FILM 5063
kOOAK 6AFETY FILM 5063
Ljósin í bænum, Magnús og Jóhann og Helgi
Pétursson skemmta í Árnesi laugardagskvöld,
Klúbbnum, sunnudagskvöld.
Eitthvað sem
enginn lifir án
Á
skaioor hf