Morgunblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JUNI1979
Nixon ekki fenginn til
að vitna um Salt II
Washington, 20. júní. AP.
UTANRÍKISNEFND Öld-
ungadeildar Bandaríkja-
þings hefur skipulagt ítar-
legar vitnaleiðslur vegna
Salt II samningsins en
ákveðið að kalla ekki fyrir
Richard Nixon og Gerald
Ford, fyrrverandi forseta.
Formaður nefndarinnar, Frank
Church ' öldungadeildarmaður,
sagði að þeirri tillögu starfsliðs
nefndarinnar að kalla Nixon og
Ford fyrir hefði verið hafnað á
þeirri forsendu, að lítið væri á því
að græða miðað við það sem
nefndin þyrfti að vita.
Ef tillagan hefði verið sam-
þykkt hefði þetta verið í fyrsta
sinn sem Nixon kæmi fram til
þess að tjá sig um mikilvæg,
opinber málefni síðan hann sagði
af sér forsetaembætti í ágúst 1974.
Sumir öldungadeildarmenn
repúblikana voru sagðir óttast
pólitísk vandræði ef Nixon birtist
í vitnaleiðslum nefndarinnar.
Haft er eftir heimildum í þing-
inu að æðstu menn allra greina
heraflans sem sitja í hinu sameig-
inlega herráði þeirra myndu
styðja Salt II þrátt fyrir nokkrar
Skothríð á
landamærum
Tel Aviv, 20. júní. AP.
STÓRSKOTALIÐ ísraelsmanna
og Palestinumanna skiptust á
skotum yfir norðurlandamæri
ísraels í dag, annan daginn í röð
að sögn ísraelsku
herstjórnarinnar.
Sovézksmíðaðar Katyusha-eld-
faldflaugar hæfðu ísraelskar
byggðir í Norður-Balileu og ollu
nokkru eignatjóni en endu mann-
tjóni. íbúarnir höfðu allir leitað
hælis i neðanjarðarbyrgjum.
ísraelsmenn svöruðu skothríð-
efasemdir. Eini valkosturinn sem
þeir hafa er að segja af sér en talið
er ólíklegt að þeir geri það.
Brezkur sérfræðingur í kjarn-
orkumálum sagði í dag að þrátt
fyrir Salt II gætu Rússar eytt
eldflaugum Bandaríkjamanna á
jörðu niðri áður en Bandaríkja-
menn réðu yfir sömu getu gagn-
vart Rússum.
Veður
víða um heim
Akureyri 10 alskýjaó
Amsterdam 23 léttskýjað
AÞena 35 heiðskírt
Barcelona vantar
Berlín 24 heiðskírt
Br'ússel 24 léttskýjaö
Chicago 28 rigning
Frankfurt 23 skýjað
Genf 20 heiðskírt
Helsinki 19 heiðskírt
Jerúsalem 30 léttskýjað
Jóhannesarb. 15 léttskýjað
Kaupmannah. 21 léttskýjað
Lissabon vantar
London 26 léttskýjað
Los Angeles 28 heiðskírt
Madrid 33 léttskýjaö
Malaga 25 heiðskírt
Mallorca 25 léttskýjað
Miami 30 skýjað
Moskva 20 skýjað
New York 28 heiöskírt
Ósló 24 heiðsklrt
París 24 heiðskírt
Reykjavík 9 rigning
Rio De Janeiro 27 heiðsklrt
Rómaborg 25 rigning
Stokkhólmur 25 léttskýjað
Tel Avív 28 léttskýjað
Tókíó 31 léUskýjað
Vancouver 17 skýjað
Vínarborg 20 akýjað
Flugvélaskipið Minsk,
40,000 lestir, fór ásamt beiti-
skipi og öðru herskipi frá
Indlandshafi á sunnudag og
skipin voru þegar síðast frétt-
ist á siglingu um 960 km
norð-norðaustur af Singa-
pore.
Minsk-deildin sigldi í norð-
urátt um Suður-Kínahaf og
bandarískir sérfræðingar .
telja að ferðinni sé heitið til
Vladivostok, aðalhafnar
sovézka Kyrrahafsflotans.
Bandaríkjamenn hafa tvö
flugvélamóðurskip á Kyrra-
hafi miðað við sex áður.
Verið getur að sovézku her-
skipin komi við i Cam
Ranh-flóa, fyrrverandi her-
stöð Bandaríkjamanna á Ví-
etnamströndinni. Rússnesk
herskip hafa komið þar við
öðru hverju á undanförnum
mánuðum.
Rússar munu ráða yfir þessari
hæfni snemma á næsta áratug að
sögn sérfræðingsins, Kenneth
Hunts, sem er varaforstöðumaður
herfræðistofnunarinnar í London.
Bandaríkjamenn ráða ekki yfir
þessari hæfni fyrr en á síðari
hluta næsta áratugar, þegar MX
verður að fullu tekin í notkun.
Carter forseti boðaði smíði
MX-flaugarinnar fyrir undirritun
Salt II.
Moskvu-blaðið Pravda segir,
greinilega til að aðvara öldunga-
deildina, að Rússar muni ekki
fallast á nokkrar breytingar á
samningnum og að hvers konar
breytingar gætu haft í för með sér
alvarlegar afleiðingar fyrir sam-
skipti Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna. Blaðið kallaði samning-
inn „sanngjarna málamiðlun".
Uppskurdur á síömsku tvíburunum
Saitvatnsborg, 20. júní AP.
SÍÖMSKU tvíburarnir Lisa og Elisa Hansen voru skornir upp í
gær en þeinv heilsast vel. Tvíburarnir voru aðskildir fyrir 20
dögum og eru 20 mánaða gamlir. Uppskurðurinn í gær var sá
fyrsti í röð nokkurra sem þarf að framkvæma.
Æðstu trúarleiðtogar
írans ræða ástandið
Kyrrahafsfloti
Rússa styrktur
WashinKton. 20. júní.AP.
SOVÉZKI ílotinn heíur í fyrsta skipti sent ílugvélamóð-
urskip til hafsvæða í f jarlægari Austurlöndum að því er
skýrt var frá Washington í dag.
t>ar með hefur Kyrrahafsfloti Rússa verið efldur
verulega á sama tíma og samhúð Rússa og Kínverja er
stirð. hetta virðist einnifí munu auka áhyggjur Japana
af flotaumsvifum Rússa á Kyrrahafi.
Teheran, 20. júní. AP.
FJÓRIR æðstu trúarleiðtogar ír-
ans héldu „ítarlegan og söguleg-
an“ fund í nótt um stjórnmála-
ástandið í landinu að sögn Pars-
fréttastofunnar.
Fréttastofan segir, að rætt hafi
verið um trúmál, drög að nýrri
stjórnarskrá iandsins og fyrir-
hugaða þjóðaratkvæðagreiðslu
um hana. Hún sagði að fundur-
inn fylgdi í kjölfar frétta um
skoðanaágreining trúarleiðtog-
anna.
Fundinn sóttu Ayatollah
Khomeini, Kazem Shariatmedari,
Shahab A1 Din Marashi og Moh-
ammed Reza Golpayegani. Hóf-
samir og vinstrisinnaðir
stjórnmálamenn telja Shariat-
medari baráttumann sinn og hafa
sakað Khomeini um ofsatrúar-
stefnu.
Shariatmedari er andvígur því
að trúarleiðtogar gegni opinberum
embættum, en margir stuðnings-
menn Khomeinis vilja að Kho-
meini verði forseti. Talsmaður
Shariatmedari sagði í dag að hann
væri ánægður með fundinn.
Jafnframt vék Mehdi Bazargan
forsætisráðherra tveimur ráð-
herrum úr stjórn sinni í dag og
skipaði tvo ráðherra í staðinn.
Assadollah Mobasheri vék úr
starfi dómsmálaráðherra og eftir-
maður hans var skipaður fyrrver-
andi innanríkisráðherra , Ahmad
Sadr Haj Seyved Javadi. Innan-
ríkisráðherra verður Hashem
Sabaghian fyrrverandi varafor-
sætisráðherra.
Þetta eru fyrstu breytingar á
stjórninni síðan Karim Sanjaby
utanríkisráðherra sagði af sér 16.
apríl.
Sadeq Tabatabai varainnanrik-
isráðherra hefur sakað Rússa um
að kynda undir ólgu í suðaustur-
fylkinu Baluchistan í því skyni að
fá aðgang að Indlandshafi, sem
hann segir að hafi lengi verið
markmið þeirra.
Owusu spáð
Ghana
ERLENT
sigri 1
Accara, 20. júní. AP.
VICTOR Owusu, lögfræð-
ingur og hagfræðingur,
hefur tekið forystuna í
hægfara talningu atkvæða
úr forsetakosningunum í
Ghana.
Kosningarnar fóru
fram á mánudag og jafn-
framt fóru fram þingkosn-
ingar. Owusu hefur nú
fengið 327.966 atkvæði
miðað við 304.431 atkvæði
skæðasta keppinauts hans,
Hilla Limanns, fyrrver-
andi starfsmanns utanrík-
isþjónustunnar.
Flokkur Owusu, PFP, hafði
fengið 29 þingsæti af 140 þegar
talningu var lokið í 71 kjördæmi.
Miðvinstriflokkur Limanns, PNP,
hafði fengið 22 þingsæti.
Ef forsetaframbjóðandi fær
ekki hreinan meirihluta verður
kosið aftur innan tveggja vikna.
Herbyltingarráðið, sem tók völdin
4. júní, hefur heitið því að virða
niðurstöður kosninganna og fá
borgaralegri stjórn völdin 1.
október.
Þróaðir glæpir
í Ungverjalandi
Búdapcst, 20. júní. AP.
UNGVERSKA lögreglan hefur
tilkynnt, að handtekinn hafi
verið 10 manna glæpaflokkur
sem hafi notað gasbyssur, eitur-
kúlur, flugelda og
labb-rabb-tæki.
Hinir handteknu eru flestir á
aldrinum 20—30 ára og hittust
þegar þeir afplánuðu dóma fyrir
fyrri glæpi. Þeir ákváðu að
stofna með sér samtök sem væru
tæknilega vel búin til nýrrar
glæpastarfsemi að sögn lögregl-
unnar.
Þeir munu hafa brotizt inn í
verzlanir, skrifstofur, kirkjur og
íbúðir og geymt birgðir af þýfi
að verðmæti 1.7 milljón flórintur
(85.000 dollarar) á felustöðum.
Þeir stálu persónuskilríkjum
og bifreiðum til að rugla lögregl-
una í ríminu og komu sér upp
sjóði með erlendum gjaldeyri til
undirbúnings flótta úr landi.
Kínverjum
heitið kosn-
ingafrelsi
Peking, 18. júní AP.
KÍNVERJAR tilkynntu
nýlega að þing þeirra
mundi með tímanum veita
kínversku þjóðinni frelsi
til að kjósa í frjálsum
beinum og leynilegum
kosningum og að frelsi
dómstóla yrði aukið á
næstunni og vernd sak-
borninga aukiii.
Frumvörp um þetta eru á dag-
skrá fimmta alþýðuþingsins og
voru samþykkt í undirbúnings-
nefnd. Öruggt er að þau verða
samþykkt.
Þingið mun meðal annars fjalla
um frumvarp sem gerir ráð fyrir
sameiginlegum fjárfestingum og
framkvæmdum Kínverja og út-
lendinga.
Þingið kom saman í dag. Á því
verður fjölgað varaforsætisráð-
herrum en þeir eru nú 13.