Morgunblaðið - 21.06.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979
Versnandi sam-
keppnisaðstaða
ísl. iðnfyrirtækja
í nýútkomnu íréttabréfi Fé-
lags ísl. iðnrekenda er m.a. að
finna eftirfarandi:
Á tímabilinu 1. mars 1977 til 1.
mars 1979 hafa laun hækkaö um
132% á meðan bandaríkjadollar
hækkaði einungis um 69% gagn-
vart íslensku krónunni. Þessi
þróun launa og gengis endurspegl-
ar versnandi samkeppnisstöðu ís-
lenskra iðnfyrirtækja, þar sem
gengið er ráðandi þáttur um
raunverulegar tekjur iðnfyrir-
tækja jafnt í útflutningi sem
samkeppni á heimamarkaði og
launakostnaður er stór þáttur í
útgjöldum.
Skýringa á þessari þróun má að
mestu rekja til mikils uppgangs í
sjávarútvegi síðustu þrjú árin, en
afkoma í sjávarútvegi ræður geng-
isskráningunni nær alfarið. Dæm-
ið sýnir því enn á ný nauðsyn þess
að beita sveiflujöfnunarsjóðum
sjávarútvegsins í samræmi við
upprunalegan tilgang þeirra, ef
iðnaður á að fá að dafna í landinu.
Erlendar fréttir
Volvo mun geta sparað um £ 5000 pr. bíl með því að láta setja bílana
saman í Singapore. Mun samsetningin hefjast nú í júní og er gert ráð fyrir
að 7 Volvo 244 verði settir saman á viku. Að ári liðnu eiga afköstin að vera
30 bílar á viku.
USA. Á fyrri helmingi þessa árs mun útflutningur Bandaríkjamanna á
öllum öðrum afurðum nema landbúnaðarafurðum aukast um 22% m.v.
sama tímabil 1978. Aukningin á fyrri helmingi næsta árs er áætluð 12%
Airbus virðist eftir öllum sólarmerkjum að dæma ætla að verða góð
söluvara. Nú síðast pantaði Air France 33 stk. og British Caledonian 3 stk.
þannig að ekki virðist vera neitt lát á stórpöntununum.
Illum — stórverzlunin í Kaupmannahöfn var rekin með tapi á síðasta ári
sem nam samtals um 20 millj. d. kr. Eigendurnir House og Fraser í
Bretlandi virðast þó ekki örvænta um sinn hag í framtíðinni og segja að nú
þegar á þessu ári hafi orðið hagnaður af rekstri fyrirtækisins.
Noregur. Áætlað er að vöxtur þjóðarframleiðslunnar í Noregi verði um
2,5% á þessu ári.
Flugfargjöld: Bandaríska flugmálastjórnin hefur nú veitt ýmsum
evrópskum flugfélögum, sem almennt fljúga áætlunarflug, heimild til að
hefja flug til USA á sérstaklega lágum fargjöldum.
Daelles Varehus, magasínið í Kaupmannahöfn, seldi fyrir alls 641 millj.
d. kr. á árinu er leið og hafði veltan aukist um 5,4% frá árinu 1977. Þrátt
fyrir að hagnaðurinn minnkaði frá 1977 nam hann um 27,5 millj. d. kr. eða
um 4,5% af veltu fyrirtækisins. Athyglisvert er að fyrirtækið á um 20
fasteignir og góða vörulagera og skuldaði ekki krónu vegna þessa um
áramót.
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Ferðamannastraumurinn:
14 Eddu-hótel munu starfa í sumar
Kjartan Lárusson forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins sagði að Ferðaskrifstofan mundi í sumar
starfrækja 14 Eddu hótel víðsvegar um landið. Þrjú ný hótel munu starfa í sumar, þ.e. á Hallormsstað,
Flókalundi og í Bjarkarlundi en hótelið í Sællingsdal í Dalasýslu mun ekki verða starfrætk í sumar.
Alls munu starfa um 180 manns hjá Ferðaskrifstofunni í sumar í tengslum við Eddu-hótelin. Kjartan
sagði að bókanir væru all góðar bæði frá íslendingum sem útlendingum og að sjálfsögðu yrði nóg pláss
fyrir alla þann tíma sem hótelin verða opin, þ.e.a.s. frá 10 júní til 1. september.
Reksturinn hefur gengið vel
Ragnar Ragnarsson hótelstjóri Hótels KEA á Akureyri sagði í samtali við Viðskiptasfðuna að meira
væri nú búið að bóka fyrir sumarið en þekkst hefði á undanförnum árum, — en ef ekki rætist úr með
veðrið er ég hræddur um að allir þeir sem bókað hafa skili sér ekki.
Að langmestu leyti eru þetta útlendingar og þeir eru ekki spenntir fyrir köldu sumri eftir kaldan vetur
og vor í Evrópu á þessu ári. Reksturinn hefur gengið allvel það sem af er þessu ári og t.d. er nýtingin hjá
okkur betri nú í vetur en á undanförnum árum sagði Ragnar að lokum.
Frá Höfn í Hornafirði.
Höfn í Hornafirði:
r —
Utlit fyrir mildnn ferðamannastraum
Árni Stefánsson hótelstjóri Hótel Höfn á Hornafirði sagði að nú væri meira um bókanir og minna um
afpantanir en á undanförnum árum og því allt útlit fyrir gott ferðamannasumar.
Það verða ráðstefnur í júní og september en það er eriftt að spá um hver áhrif vorkuldanna í Evrópu
verða á starfsemi okkar í sumar. Starfið í sumar hefur gengið all vel og hefur það mest verið fólk sem er
á leiðinni austur svo og fólk sem kemur til fyrirtækja hér á staðnum sagði Árni Stefánsson.
Sendibflstjórar:
Astandið fer dagversnandi
Jón Bergþórsson hjá Nýju
sendibflastöðinni sagði að skipa-
verfallið verkaði mjög illa á
sendibflstjóra. Sumir eru nú þeg-
ar atvinnulausir og fer ástandið
dagversnandi. Hjá okkur eru
starfandi milli 80 — 90 bflstjórar
af um 250 í Reykjavík og er
samstarfið milli stöðvanna mun
meira í dag en það var fyrir
nokkrum árum siðan.
— Auk lítillar atvinnu um
þessar mundir má segja að bens-
ínverðið sé sá þáttur sem gerir
okkur einna erfiðast fyrir. Ef
miðað er við meðalstóran amer-
ískan sendiferðabíl sem ekur á
kílómetragjaldi í dagvinnu þá eru
bensínútgjöldin um 50% þeirra
tekna sem inn koma á sama tíma.
Við erum háðir ákvörðunum verð-
lagsyfirvalda og því koma leiðrétt-
ingarnar seint og í smáskömmt-
um, gjörólíkt því þegar opinberar
stofnanir og opinberir starfsmenn
eiga hlut að máli, sagði Jón
Bergþórsson að lokum.
t>róun norrænna
gjaldmiðla
Á meðfylgjandi mynd má sjá hver þróun dönsku, norsku
og sænsku krónunnar hefur verið á síðustu þremur
árum samkvæmt skráningum danska Handelsbanken.
Samkvæmt henni hefur staða dönsku krónunnar styrkst
um u.þ.b. 5% á sama tíma og staða sænsku krónunnar
hefur versnað um u.þ.b. 12%.
Januar 1976 = 100
Handelsbankens
kronekursindeks