Morgunblaðið - 21.06.1979, Síða 36
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIM.VSIXI. \
SÍMINS KH:
22480
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AK.I.VSIMi \
SIMINX KU:
22480
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979
Telpa drukknar
í Svarfaðardal
TÍU ára gömul stúlka
drukknaði í Svarfaðardal
síðdejíis í gær. Ilún var á
ferð með hópi barna úr
Kúpavogi cr slysið varð.
Stúlkan mun hafa fallið í
skurð í íírennd við sund-
laugina við Tjörn í
Svarfaðardal ojí var látin
þegar að var komið. Unnið
var að rannsókn málsins í
gærkvöldi og þegar Morg-
unblaöið fór í prentun voru
málsatvik óljós.
V-Þjóðverjar óska
eftir siglingum með
stórkarfa í sumar
ÞJÓÐVERJAR hafa lýst áhuga sínum á að íslenzkir togarar sigli í
sumar til býzkalands og selji þar karfa. einkum stórkarfa. Er það
nýlunda að karfamarkaðir séu eins góðir þar í landi eins og raunin er
nú því yfirleitt hefur verð dottið niður á mörkuðum yfir sumartím-
ann. Nú er verðlag hins vegar hátt og jákvætt útlit framundan.
Lestum
lokað
TT'i rj AO í gærdag stöðvuðu verkfallsverðir farmanna alla vinnu við lestun og losun
IVlUKKdn X i .1/0 skipa í Reykjavíkurhöfn, og lokuðu lestarhlerum þeirra, enda hafa
farmenn lýst yfir yfirvinnubanni í heimahöfnum skipanna. Yfirvinnubannið mun gera það að verkum
að farskipin munu ekki geta haldið eðlilegri áætlun, þrátt fyrir tilkomu bráöabirgðalaganna.
Að sögn Ágústs Einarssonar hjá
LIU barst fyrir nokkru skeyti frá
Þjóðverjunum þar sem þeir spyrj-
ast fyrir um áhuga ísienzkra á
siglingum með karfa til V-Þýzka-
lands. Aðalástæðan fyrir því að
Þjóðverja va'ntar þennan fisk á
markaðinn er lokun miðanna hér
við land fyrir þýzkum togurum.
Einnig er betra útlit varöandi
siglingar með aðrar fisktegundir
til Þýzkalands og Bretlands í
sumar en áður. Á sumrin hafa
siglingar íslenzkra skipa yfirleitt
verið í lágmarki, en eftir útfærslu
landhelginnar hér við land eru
aðstæður breyttar hjá fiskiskipum
þessara þjóða og minna framboð á
mörkuðum.
Eitt skip seldi afla erlendis í
gær, Hópsnesið seldi 38.2 tonn í
Englandi fyrir 15.6 milljónir, með-
alverð 409 krónur.
Yfirvinnubannið
fyrir F élagsdóm?
LOSUN OG LESTUN farskipanna í höfnum landsins hófst í gærmorgun og
gekk sinn vanagang fram eftir degi, eða þar til klukkan varð 17.08. Um
það lcyti fóru hafnarverkamenn í kaffi, en þegar þeir komu aftur til vinnu,
höfðu yfir.nenn skipanna komið um borð, lokað lestum og gengið frá
skipunum undir nóttina. Engin vinna varð því cftir klukkan 17 við losun
og lestun skipanna, svo sem yfirvinnubann yfirmannanna kveður á um.
Vinnuveitendasamband Islands
lýsti yfir því í gær að það iiti á
Vinna aðeins yfirvinnu
sé yfirmaður til staðar
FUNDUR farmanna í Sjómannafé-
Iagi Rcykjavíkur samþykkti í
gærkvöldi að taka undir þá yfirlýs-
ingu stjórnar og samninganefndar
félagsins þar sem segir að félags-
menn Sjómannafélags Reykjavíkur
muni ekki vinna yfirvinnu við
skipsstörf á hcimahafnarsvæði
nema ábyrgur yfirmaður skipsins
sé til staðar við vinn-.stjórn.
í samþykkt stjórnar og samninga-
nefndar Sjómannafélags Reykjavík-
ur frá í gærmorgun er harðlega
mótmælt bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar um stöðvun verkfalls
á farskipum. Þar er jafnframt lýst
furðu á einróma stuðningi ríkis-
stjórnarflokkanna við þessar að-
gerðir þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar
og baráttumál er þeir komust í þá
aðstöðu að geta sett slík lög, eins og
segir í samþykktinni.
I samþykktinni segir að slíkum
lögum verði hlýtt sem öðrum, en
deilu Sjómannafélagsins við útgerð-
armenn sé þó ekki lokið. Nú þegar
verði sú krafa gerð á útgerðirnar að
lögbundnum samningum verði hlýtt
af þeirra hendi ekki síður. ÖIl
útgerðarfélög verði krafin um að
fylgja lögboðnum samningum við
mannaráðningar, forgangsrétt í
Sækja um
22% hœkkuii
BORGARRÁÐ samþykkti nýlega
tillögu íþróttaráðs um að sækja
til verðlagsyfirvalda um hækkun
á gjaldskrá sundstaða í Reykja-
vík. í tillögunni er gcrt ráð fyrir
22% hækkun að meðaltali.
skipsrúm og fjölda undirmanna í
áhöfn auk vinnutímaskyldu.
I samþykkt farmanna í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur koma fram harð-
orð mótmæli við því, að ríkisstjórnin
verði við kröfum „langstærsta, best
búna og ríkasta skipafélagsins um
stórhækkun farmgjalda á sama tíma
og þeir telja sjálfsagt að neita
farmönnum um launabætur til að
bera hluta þeirrar stórvaxandi kaup-
máttarrýrnunar, sem allir finna
fyrir".
Sjá bls. 21: Tilkynningar Sjó-
mannafélagsins í heild.
aðgerðir yfirmannanna sem brot á
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn-
ar og lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur. Jafnframt liti VSI á
verkbannið sem brot á gerðum
kjarasamningum. Gagnstætt héldu
farmenn því fram, að yfirvinnu-
bannið væri fyllilega lögmætt, ekki
síður en yfirvinnubönn, sem giltu
víða um land, t.d. í fiskvinnu um
helgar. Slíkum aðgerðum hefði VSI
látið ómótmælt. VSÍ heldur því hins
vegar fram ,að þau yfirvinnubönn
séu á grundvelli kjarasamninga, en í
farmannasamningum séu engar
hömlur settar á yfirvinnu.
Yfirvinnubann farmanna hefur í
för með sér rr.ikla seinkun á losun og
lestun og er fyrirsjáanlegt, a.m.k.
hjá sumum útgerðum, að erfitt
verður ef ekki ógerlegt að ná upp
fyrri áætlun skipanna. Vinnuveit-
endasamband íslands hefur varað
Farmanna- og fiskimannasamband
Islands við yfirvinnubannsaðgerð-
unum og segist trúa því, að farmenn
sjái að sér og hætti við aðgerðir
sínar. Að öðrum kosti eigi VSI ekki
annars kost en leita réttar síns fyrir
Félagsdómi.
Hlaupið
gengur vel
LANDSHLAUP FRÍ hefur geng-
ið mjög vel, og hefur hvarvetna
vakið mikla athygli.
Um kl. 1.15 í nótt voru hlaupar-
arnir á Grímsstöðum. Og til Akur-
eyrar voru hlaupararnir væntan-
legir um kl. 19.00 í kvöld. Sjá
íþróttir.
Leysir olía frá Nígeríu vanda Islendinga:
Olía keypt frá Nígeríu
en hreinsuð í Portugal?
Á FUNDI með viðskiptaráðherra í gærmorgun varpaði Bjarni V. Magnússon hjá Islenzku umboðssölunni
fram þeirri hugmynd að fslendingar kanni möguleika á kaupum á olíu frá Nígeríu. Sem kunnugt er kaupa
Nígeríumenn árlega mikið af skreið frá íslandi. en selja hins vcgar mjög lítið hingað til lands. Olían yrði
ekki hreinsuð í Nígeríu. heldur hefur sú hugmynd verið reifuð, að hún yrði flutt til Portúgals og hreinsuð og
hlönduð þar. en til Portúgals selja fslendingar mikið af saltfiski og hafa Portúgalir til skamms tfma verið
mjiig óánægðir með óhagstæðan viiruskiptajöfnuð við fslendinga.
Bragi Eiríksson hjá Samlagi legt væri að jafna viðskiptajöfnuð-
skreiöarframleiðenda sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi
að langt væri síðan að fyrst hefði
verið rætt um að Islendingar
keyptu meira af Nígeríumönnum
en þeir gerðu. Við athugun hefði
komið i ljós, að þá yrði helzt um
hráolíu að ræða, en Nígeríumenn
væru meðal mestu olíuframleið-
enda í heiminum. Embættismenn í
Nígeríu hefðu oft látið í ljós á
undanförnum árum að nauðs.vn-
inn á milli landanna.
Bragi gat þess að hann hefði
verið í Nígeríu í desember 1957
þegar fyrsti olíufarmurinn fór frá
landinu. Þá þegar hefði hann
byrjað aö ræða um möguleika á að
kaupa olíu frá Nígeríu. Sú staða
gæti hvenær sem er komið upp að
ekki yrði hægt 'að reiða sig á
olíumarkaði í Evrópu. — Auk þess
er jafnmikils virði að selja skreið
til Nígeríu og hraðfrystan fisk til
Rússlands, sagði Bragi Eiríksson
að lokum.
Bjarni V. Magnússon sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
þingkosningar færu fram í Nígeríu
í haust og stjórnmálaflokkar hefðu
lýst því yfir aö þeir væru fylgjandi
frjálsari viðskiptaháttum en tíðk-
ast hefðu í tíð herforingjaráðsins,
sem nú situr. Það væru vöruskipti,
sem þeir vildu, og þess vegna ætti
að vera möguleiki á að kaupa olíu í
Nígeríu, en selja skreið þangaö í
staðinn, þó svo að þarna yrði um
aðskilda samninga að ræöa. Þessi
mál hefðu verið rædd við ráðherra
á sínum tíma, en hefðu nú verið
tekin upp að nýju.
Hins vegar sagði Bjarni að
olíuna þyrfti væntanlega að
hreinsa annars staðar og því hefði
Portúgal komið inn í myndina. —
Það er full ástæða fyrir okkur að
kanna þessi mál gaumgæfilega, því
að þarna ætti að vera um sam-
eiginleg hagsmunamál þjóðanna
að ræða, sagði Bjarni. — Því ræddi
ég þetta mál við ráðherra í dag og
hann fól mér að eiga fund með
olíunefndinni um þessi mál, sagði
Bjarni V. Magnússon.