Morgunblaðið - 24.06.1979, Síða 1
64 SÍÐUR
140. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sandinist-
ar hafna
afskint-
um USA
Washinxton, Manauua, 23. júní. Reuter.
FORSVARSMENN Sandinista-
skæruliðahreyíingarinnar í Nica-
ragua, sem berjast gegn Somoza
íorscta, lýstu því yfir á fundi sem
boðað var til í Samtökum Ameríku-
ríkja, OAS, að þeir vísuðu alfarið á
bug hugmyndum Bandaríkja-
manna um að þeir sendu sveitir til
Nicaragua til þess að binda enda á
bardagana f landinu. Fulltrúi sand-
inista, Miguel Escoto, sagði, að yrði
af áætlun Bandarfkjamanna myndi
það vera glæpsamleg gjörð og sú
forsenda, sem gefin væri, að með
því væru Bandaríkjamenn að
tryggja lýðræðið, væri hjóm eitt.
í fréttum frá fundinum segir, að
margir fulltrúanna telji að það
virðist nánast sjálfgert að stjórn
Somoza falli innan tíðar.
Frá Managua bárust þær fréttir í
morgun, að talsmenn sandinista
hefðu skýrt frá því, að þeir hefðu
látið taka af lífi sex menn eftir að
byltingardómstóll hefði dæmt þá til
dauða. Barizt var enn af mikilli heift
í fátækrahverfum norðvesfur af
Managua fram eftir nóttu. Stjórnar-
hermenn beittu flugvélum og eld-
flaugum gegn skæruliðum. Skæru-
liðar sögðu að þeir hefðu náð á sitt
vald tveimur smábæjum skammt frá
landamærunum við Honduras.
Flugdagurinn var haldinn í Reykjavík í gær og voru þar til sýnis ótal vélar af ýmsum gerðum og aldursflokkum. Vél frá Icecargo sézt hér
fara lágt yfir og á vellinum standa ýmsar erlendar vélar. Ljósm. Mbi. Ói.K. Mait.
Lule var látinn
fara frá Uganda
Dar Es Salaam, 23. júní. Reuter.
YUSUFU LULE, forseti Úganda um skamma hríð, kom í dag til
Tanzaniu eftir að ákveðið var í gær, að hann færi umsvifalaust frá
Úganda. Á blaðamannafundi í Kampala eftir að Lule var farinn á
brott, sagði hinn nýi forseti, Godfrey Binaisa, að Lule héldi að öllum
likindum til Bretlands.
Búizt er við, að Nyerere, forseti
Tanzaníu, ræði við Lule meðan
hann tefur í Tanzaníu. Tanzaníu-
menn hafa þegar lýst því yfir, að
þeir styðji Binaisa og áreiðanlegar
heimildir herma, að Tanzaníufor-
seti hafi falið ýmsum háttsettum
embættismönnum að kynna er-
lendum fulltrúum í Dar Es
Salaam afstöðu stjórnarinnar
varðandi leiðtogaskiptin í Úganda.
Lule, sem er 69 ára gamall, bjó í
útlegð í London og Dar Es Salaam
meðan Amin stýrði landinu. Hann
sagði af sér á miðvikudag, en dró
síðan lausnarbeiðni sína til baka
og virðist nú hafa beðið lægri hlut
í þeirri skammvinnu valdastreitu
sem á eftir fylgdi.
Lule
Flóttamannavandamálið í Suðaustur-Asíu:
Víetnamar eru
á móti alþjóð-
legri ráðstef nu
Tokyo, Kuala Lumpur, 23. júní — AP,
Reuter.
MÁLGAGN víetnamska kommún-
istaflokksins, Nhan Dan, sagði f
dag, að alþjóðleg ráðstefna sem
fyrirhuguð er um flóttamanna-
vandann í Suðaustur-Asíu, væri
„ráðabrugg enskra nýlendusinna,
kínverskra útþenslusinna og amer-
ískra heimsvaldasinna til að sverta
Bandarískir embættismenn:
Frysting olíuinnflutn-
ings leiddi til kreppu
Washinfíton, Ncw York, StrassbourK, London. 23. júní. AP, Reuter.
BANDARÍSKIR embættismenn sögðu í dag, að ef Bandaríkjamenn færu að áskorun leiðtoga ríkja
Efnahagshandalagsins (EBE) og takmörkuðu olfuinnflutning sinn á næstu árum og miðuðu við innflutning í
fyrra hefði það í för með sér ófyrirsjáanleg kreppuáhrif. Takmörkun af þessu tagi kæmi illa niður á áætlunum
er miðuðu að auknum hagvcxti í landinu.
Talsmcnn Hvíta hússins vildu ekkcrt um niðurstöður fundar leiðtoga EBE í Strassbourg segja að svo komnu
máli. Bentu þeir þó á. að yfirvöld hefðu þcgar lagt til að olíuinnflutningur yrði takmarkaður að einhvcrju Ieyti.
en þó ekki neitt í líkingu við hugmyndir EBE-ríkja. Við lok fundarins í Strassbourg sögðu leiðtogar EBE að
sparnaðarráðstafanir Evrópuríkja yrðu gagnslausar ef önnur lönd heims færu ekki að dæmi þcirra.
Carter Bandaríkjaforseti hélt í Fyrstu sex mánuði ársins var neytenda í Bandaríkjunum hækkaði
dag í opinbera heimsókn til Japans, olíuinnflutningur Bandaríkja- um 7,4 af hundraði á árinu og um
manna orðinn 8,1 af hundraði meiri
en þar mun hann sitja fund leiðtoga
helztu iðnríkja heims í næstu viku.
Fyrir hönd ríka EBE mun Valery
Giscard d’Estaing Frakklandsfor-
seti afhenda Carter áskorun fund-
arins í Strassbourg og er búist við
að sparnaðarráöstafanir Evrópu-
ríkjanna verði helzta umræðuefnið
á fundinum í Tókýó.
miðað við sama tímabil árið 1978 og
er búizt við því, að innflutningurinn
eigi eftir að aukast næstu ár. Þegar
hefur orðið nokkur röskun á banda-
rísku þjóðlífi vegna takmarkaðra
birgða af gasolíu og benzíni. í
ársbyrjun spáðu sérfræðingar því
aö verð á benzíni og gasolíu til
3,3 af hundraði 1980, en með tilliti
til þróunar olíumála að undanfðrnu
og iíklegra verðhækkana á næst-
unni er nú reiknað með að verðið
hækki um 34,7 af hundraði í ár og
um 21,6 af hundraði á næsta ári.
Helmut Schmidt kanzlari
V-Þýzkalands lét svo um mælt
nýlega að nýjar skyndilegar verð-
hækkanir kynnu að valda efnahags-
legu hruni í vestrænum ríkjum.
Sérfræðingar telja að Opec-ríki
hækki verð á olíu allt að 30 af
hundraði á fundi samtakanna í
Genf í næstu viku.
Einnig er talið að Opec-ríkin taki
upp framleiðslukvóta og kann það
að auka enn áhrif verðhækkananna.
Olíuráðherra Saudi Arabíu mun, að
sögn kunnugra, reyna að knýja
fram þak á olíuverð og einnig að öll
ákvæði um aukagjald verði afnumin
þannig að öll ríki Opec selji olíu á
sama verði. Saudi-Arabar eru að
íhuga að auka olíuframleiðslu sína
um 12 af hundraði „til að stöðva
skrekkinn sem hlaupinn er í heims-
markaðinn”.
Víetnam í augum heimsins“. Þá
sagði blaðið, að flóttamannavanda-
málið í Suðaustur-Asíu væri stór-
lega ýkt.
Á morgun mun DC-10 þota frá
Caledonian-flugfélaginu breska
sækja um 300 flóttamenn til Hong
Kong en breskt herskip bjargaði
þeim á Kínahafi. Japönsk yfirvöld
hafa tilkynnt að þau muni taka við
um 500 flóttamönnum frá Víetnam.
Malaysísk herskip héldu áfram að
stugga „bátafólki" frá landinu. í
gær voru þrír bátar með um 250
manns dregnir út fyrir malaysíska
landhelgi. Indónesísk stjórnvöld
hafa tilkynnt að þau geti ekki tekið
við fleiri flóttamönnum, en þar eru
nú um 34 þúsund flóttamenn.
Malaysískir embættismenn, sem
sjá um aðstoð við víetnamska flótta-
menn i landinu, segja að óvenju stór
hluti þeirra sé ungt fólk undir 18
ára aldri, eða yfir helmingur. „Það
sem vekur mesta athygli er, að
margt þessara ungmenna er eitt sér,
annaðhvort vegna þess að foreldrar
þeirra vildu ekki fara frá Vietnam
eða þá vegna þess, að fjölskyldur
þeirra höfðu ekki efni á að borga
fyrir nema einn til tvo úr fjölskyld-
unni,“ sagði embættismaður í Kuala
Lumpur. „Sex af hverjum tíu hafa
orðið að beita mútum til þess að
komast úr landi,“ bætti hann við.
Síðan 1975 hafa vestræn lönd tekið
við rúmlega 43 þúsund flóttamönn-
um. Eftirlitsmaður flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna sagði,
að á milli 30 og 40% „bátafólksins"
hefðu drukknað á leið frá Víetnam.
Áætlað er, að um 1.5 milljónir
manna vilji fara frá Víetnam.