Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 , 19 glytta í nýtt met eftir fyrri sprett í 250 m skeiði, en þá hljóp Skjóni frá Móeiðarhvoli á 22.3 sek. keppnislaust. Þar sem menn voru orðnir „metþyrstir" var ákveðið að leyfa aukasprett til þess að slá metið. Þá stökk Skjóni upp og hleypti knapinn, Albert Jónsson, þá undir Fannar en það dugði ekki til, en tíminn var 22.6 sek. Seinni daginn tókst betur til, en þá hljóp Skjóni vegalengdina á 21.6 sek. sem er 0.6 sek. undir gildandi meti. Höfðu menn á orði að slíkan og þvílíkan sprett hefðu þeir aldrei séð. Mikill fögnuður greip um sig meðal áhorfenda sem og starfsmanna og mikið klappað. Eigandi Skjóna er Helgi Val- mundsson en knapi eins og áður sagði Albert Jónsson. Annar í skeiðinu varð svo Villingur Harð- ar G. Albertssonar og knapi á honum var Trausti Þ. Guðmunds- son. Þriðji varð svo Fannar Harð- ar G. Albertssonar, en knapi á honum var Sigurbjörn Bárðarson. Þessir tveir hestar hlupu báðir á 22.7 sek. en þeir kepptu um annað sætið og hljóp Villingur þá á 22.4 sek. sem er hans besti tími til þessa en Fannar stökk upp. Það er sjálfsagt ár og dagar síðan Fannar hefur hlotið þriðju verðlaun ef hann hefur þá nokkurn tíma skipað það sæti áður. inn á sunnudag. Hlutskarpastur varð Stjarni frá Litla-Vatnshorni, eigandi Ómar Jóhannsson, en knapi Valdimar Kristinsson, náði hann tímanum 1.45.8 mín. Annar varð Kóngur, eigandi og knapi Jóhannes Jóhannesson, hann hljóp á 1.53.8 mín. Það má geta þess að þetta er sami Kóngur og keppti í 350 m stökki og fyrrver- andi íslandsmethafi í 250 m fola- hlaupi. Má það kallast gott að vera með hest samtímis í brokki og stökki, þar sem erfitt gæti reynst að ræsa stökkhest í brokkkeppni. í þriðja sæti varð svo Ægir, eigandi og knapi Ingimar Pálsson. Hljóp hann vegalengdina á 1.59.4 mín. Sennilega hefur knapinn á fyrsta hesti í brokkinu dauðskammast sín við verðlaunaafhendingu, inn- an um alla nýju íslandsmethafana sem þar voru. Aukasprettur í 300 m stökki Leyfður var aukasprettur í 300 m stökki svo hægt væri að fá Islandsmet í þeirri grein líka. Reiknað var með að Glóa myndi slá metið, sem hún og gerði en hún varð bara ekki fyrst. Léttfeti, sá sem varð annar í folahlaupi, skaut hlaupadrottningunni ref fyrir rass og var einu sekúndubroti á undan í mark. Þriðji hestur varð svo Glotti. knapi og eigandi Jónas Sigurjónsson, stóó efstur í B-flokki gæðinga. í 150 m skeiði var sett íslands- met og var þar að verki Gustur Reynis Aðalsteinssonar. Náði hann tímanum 15.0 sek. Að vísu hefur náðst betri tími í þessari vegalengd en það var Garpur Harðar G. Albertssonar, hljóp hann vegalengdina á 14.8 sek. Þessi tími hefur ekki verið stað- festur sem íslandsmet, þar sem ekki var búið að samþykkja reglur um þessa keppnisgrein þegar Garpur náði þessum tíma. Annar varð Trausti, eigandi og knapi Ámundi Sigurðsson, og í þriðja sæti varð Lyfting, eigandi og knapi Ingimar Ingimarsson. Þessi hross hlupu á sama tíma, 16.0 sek., og kepptu þau um annað sætið og varð Trausti þar hlut- skarpari. Brokkkeppni í öldudal Brokkið var eina keppnisgreinin þar sem ekki var slegið íslands- met. Segja má að brokkið hafi verið í öldudal í sumar. Ekki hafa náðst verulega góðir tímar. Þeir brokkarar sem hvað mest hafa verið í sviðsljósinu á undanförn- um árum hafa lítið eða ekki tekið þátt í keppnum í sumar. En hvað um það, þá var brokkkeppnin á Vindheimamelum hálf bragðdauf. Sex hestar voru skráðir til leiks og mættu aðeins tveir í seinni sprett- Kóngur og hljóp hann einnig undir gildandi Íslandsmetstíma, en það er 21.3 sek. og á það Nös frá Urriðavatni. En tímarnir urðu sem hér segir: Léttfeti 20.8 sek., Glóa 20.9 sek. og Kóngur 21.2 sek. Yfir ein milljón í peningaverðlaun Það verður ekki af Skagfirðing- um skafið, að víst kunna þeir að halda hestamót betur en aðrir. Virðist allt gert til þess að ná góðum árangri og ekkert til þess sparað. Mikil vinna var t.d. lögð í að valta völlinn. Einnig er reynt að laða að bestu hlaupahross landsins með háum peningaverð- launum og má geta þess, að á þessu móti var greidd yfir 1 milljón í peningaverðlaun og er þá ótalinn kostnaður við verðlauna- peningakaup. Það virðist sem sé að Skagfirðingar leggi allt í söl- urnar til þess eins að halda góð mót. Einn hestamaður úr Skagafirði sagði að nú yrðu þeir sennilega að láta bjóða upp stóðhestahúsið á Vindheimamelum til þess að end- ar nái saman. En sem kunnugt er veita Skagfirðingar vegleg met- verðlaun. Að lokum vil ég þakka Léttfeta- og Stígandamönnum fyrir frábært GARÐ SLATTUVELAR Það er leikur einn að slá grasflötinn með INÍórlett 4 Nú fyrirliggjandi margargerðir á hagstæðum verðum. Lágmúla 5, sími 81 555, Reykj Af hverju VE ASEA mótorar eru sterkir og endingargóðir. ASEA mótorar þola erfiðar aðstæður. ASEA mótorar eru 15—20% létt- ari en mótorar úr steyptu járni. ASEA mótorar hafa rúmgóð tengibox. i ASEA mótorar ganga hljóðlegaA ASEA mótorar eru einangraðir j' skv. ströngustu kröfum. I ASEA mótorar hafa hitaþol skv.\. ströngustu kröfum. \ ASEA mótorar uppfylla ströng- ustu þéttleikakröfur. Nítíuogfimm ára reynsla ASEA j tryggir góða endingu. M.a. þessvegna verður ASEA fyrir valinu. Eigum ávallt fyrirliggjandi í birgðageymslum okkar ASEA mótora 0.18 kW — 15 kW. ASEA gírmótora frá 0.18 kW — 1.5 kW. Ujj-3 Aðrar stærðir afgreiddar með stuttum fyrirvara frá birgða- geymslum ASEA. Veitum viðskiptavinum okkar tækniþjónustu. .Æ'S^Íng^ asss??i 104 ReyKfavlk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.