Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 33 missti móður sína þegar hann var taeplega 7 ára gamall. Mun móður- missirinn hafa haft djúp og mikil áhrif á hinn unga og viðkvæma svein og ekki er mér grunlaust um að til þeirra megi rekja ýmsa þætti í skapgerð hans síðar. Helgi varð stúdent frá M.A. 1942, en að loknu stúdentsprófi lagði hann stund á lögfræði við Háskóla íslands og lauk fyrra hluta prófi í þeirri grein, en hætti þá námi og gerðist starfsmaður Almennra Trygginga hf., fyrst sem fulltrúi en síðar deildarstjóri. Hjá þessu fyrirtæki vann hann tæplega 14 ár, en 1961 tók hann sig upp og fluttist vestur að Djúpi á ný, keypti Æðey og bjó þar síðan til æviloka við mikla rausn og batn- andi efnahag. Æðey hefur um langan aldur verið víðfrægur rausnargarður og í engu setti hún niður eftir að Helgi tók þar við. Þangað þótti öllum gott að koma og það var mjög að skapi Helga að taka á móti gestum og veita þeim konunglega. I því sem öðru voru þau Guðrún og hann samstillt. Mörgum fannst í mikið ráðizt þegar Helgi sagði upp góðri stöðu í Reykjavík og réðst í búskap, efnalítill með vaxandi fjölskyldu. En allt fór það vel, Æðey er vildisjörð og þar undi Helgi sér vel með sinni ágætu konu og mann- vænlegum börnum. Kona Helga var Guðrún Lárus- dóttir frá Æðey. Voru þau gefin saman 1948. Þau eignuðust 6 börn en þau eru: Jónas, bóndi í Æðey, Þórarinn, búsettur á Akranesi, Guðmundur Lárus kennari, búsettur á Akur- eyri, Einar, húsasmiður í Reykja- vík, Guðjón og Kristín Guðrún, sem bæði eru enn búsett í Æðey. Öll eru börnin væn og líkleg til allra góðra hluta eins og þau eiga kyn til í báðar ættir, en Guðrún móðir þeirra á sammerkt bónda sínum í því að vera mikil mann- kostamanneskja eins og það Æð- eyjarfólk yfirleitt er. Helgi Þórarinsson unni fegurð- inni í íslenzkri náttúru, enda mikill náttúruverndarmaður. Hann hataði alls konar ljótleika og aumingjaskap, hvar, hvernig og hvenær sem hann birtist og í hvaða mynd. Hann var áhugamað- ur um samtök burtfluttra Djúp- manna og gaf Félagi Djúpmanna stórgjöf fyrir tveimur árum til þess að hlúa að landi félagsins við Djúp. I öllu var hann mikillar gerðar. Helgi var með hæstu mönnum og vörpulegur á velli, hlýr og elsku- legur í allri framkomu og frænd- rækinn. í engu var hann meðal- maður. Ég kveð nú þennan vin minn og frænda og þakka honum liðna tíð, langa ævi og margar sólskins- stundir. Á milli okkar var ávallt mikil vinátta, hún upphófst þegar við vorum báðir ungir við Djúp vestur og á hana bar aldrei skugga. Mér finnst einhvern veginn að veröldin sé miklu snauðari að Helga gengnum. Eg endurtek samúðarkveðju mína og okkar hjónanna til Guð- rúnar og barnanna 6, svo og allra vina og ættingja Helga. Við syrgjum öll Helga og sökn- um hans, en mest var þó um vert að hafa þekkt hann langa ævi, þess vegna erum við þakklát í sorginni. Friðfinnur ólafsson. Tuttugu og sjö ár er langur tími í mannsævinni, en allan þann tíma hlotnaðist mér að njóta vináttu og velvildar Helga Þórar- inssonar. Á hvaða hátt get ég með þessum fáu línum látið í ljós virðingu mína fyrir honum? Ef til vill er best að reyna að gefa lýsingu á Helga eins og ég kynnt- ist honum, lýsingu sem ég vona að allir muni strax þekkja. Hann var mjög hávaxinn, þrek- inn um herðar og var mjög vel að manni. Ætíð var hann ólgandi af lífi og skopskyn hans var ríkt. Að því er ég best veit, var hann tryggur vinum sínum, óeigingjarn, mjög örlátur og sannur, eins traustur og björgin á Vestfjörð- um, þessum hrjúfa landshluta, sem hann þekkti svo vel og unni svo mjög. Er það að furða, að slíkur maður skyldi eignast svo marga vini? Eins og við orðum það í Englandi: „Að eignast vini er að vera vinur“ og Helgi var fyrst og fremst vinmargur. Það vottar sá mikli fjöldi, sem heimsótti Æðey, eyjuna grænu, og naut þar í ríkum mæli gestrisni hans og Guðrúnar, konu hans, svo og allrar fjölskyld- unnar. Það, að hann skyldi árið 1961 yfirgefa þægindi höfuðborgarinn- ar ásamt fjölskyldu sinni í því skyni að setjast að við hið svala Djúp, er nægur vitnisburður um skapgerð hans og áræði. Meðal áhugamála hans var náttúra landsins, dýrin, fuglarnir, blómin, og fjöllin, sem blöstu við frá heimili hans. Mér hefur oft verið sagt, að nú á dögum séu þeir fáir, sem myndu vilja leggja á sig það erfiði og þá áhættu, sem stundum fylgir því að búa í þessum lands- hluta. Helgi naut vissulega þessa lífs og gaf sig allan því á vald. Ég tók fullan þátt í öllum þessum hugðarefnum hans og það auðgaði samvistir okkar. Einu sinni, þegar við vorum saman á heimili mínu í Surrey, talaði ég við hann um fallegu trén okkar og í hugsunarleysi orðaði ég, að stundum hlyti hann að óska þess, að slík tré gætu verið hluti af umhverfi hans í Æðey. „Nei, alls ekki", svaraði hann strax, „ef þannig væri myndi útsýnið spill- ast til okkar tignarlegu fjalla og litadýrðarinnar í þeim.“ Honum voru heimaslóðirnar mjög kærar. Helgi mun verða mér minnis- stæður allt til æviloka. Hvíli hann í friði. Stanley Cerely. + Sonur okkar, unnusti og bróðir ÁRNI SVEINSSON Nesgötu 27, Neskaupstaö lést í Borgarspítalanum 4. ágúst. Jarörförin fer fram frá Noröfjaröarkirkju laugardaginn 1. ágúst. Guðrún Arnadóttir, Sveinn H. Sveinsson, Dóra Gerður Stefánsdóttir, Sigurlaug Sveinsdóttir, Oddur Þór Sveinsson, Ásrún Björg Sveinsdóttir, Sveinn Bjarni Sveinsson, Laufey Þóra Sveinsdóttir. Móöir okkar ADALHEIDUR ÁSMUNDSDÓTTIR Barónstíg 30, lést aö morgni 5. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Unnur Ólafsdóttir Ásta Jónsdóttir Karitas Jónsdóttir. Eiginmaöur minn, FINNBOGI S. JÓNASSON, forstööumaður, Kristneshæli, varö bráökvaddur aö heimili okkar 6. ágúst. Helga Svanlaugsdóttir. + Maöurinn minn PÁLL KOLBEINS, Túngötu 31, andaöist á Sjúkrahúsi Húsavíkur þriöjudaginn 7. ágúst. Laufey Kolbeins. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, JÓHANNA ÞORVALDSDÓTTIR, Hjarðarhaga 28, Reykjavík andaöist aö kvöldi þriöjudagsins 7. ágúst í Borgarspítalanum í Reykjavík. Gunnar Sígurðsson, Sigurður Atli Gunnarsson, María Gunnarsdóttir, Sasvar Jónsson, Jón Gunnar Sævarsson, Ásmundur Sævarsson. + Hjartans þakkir fyrir samúö og vinarhug sem okkur var sýndur viö fráfall og útför, ÞORUNNAR LOVÍSU SIGURÐARDÓTTUR frá Skuld, Vestmannaeyjum Guö blessi ykkur öll Guöni Grímsson, Sigurður Guðnason, Laufey Siguröardóttir, Lovísa Siguröardóttir, Lilja Ársælsdóttir, Guöni Sigurösson. Systkinin frá Skuld og aörir vandamenn. + Útför móöur okkar ODDNYJAR ÁRNADÓTTUR fyrrverandi Ijósmóöur Esjubergi fer fram frá Brautarholtskirkju, laugardaginn 11. ágúst kl. 2 e.h. Sigríöur Gisladóttir, BergÞóra Gísladóttir. + Elsku drengurinn minn SIGURJÓN MAGNÚSSON lést 30. júlí. Jaröarförin hefur farið fram. Fyrir hönd systkina, barna, barnabarna og annarra vandamanna Guórún Guöjónsdóttir. Faöir minn JÓHANN VIGFUSSON járnsmiöur veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 10. ágúst kl. 3. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagiö. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur 1. Jóhannsson. + Útför fööur okkar, tengdaföður og afa SIGURGEIRS ALBERTSSONAR trésmiös sem lést 5. ágúst, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Sigmundur Sigurgeirsson Ásdís Sigurðardóttir Jóhanna M. Jóhannesdóttir Arnpór Ingólfsson oq barnabörn + Útför móöur okkar, SIGURBJARGAR M. HANSEN, frá Blikastööum fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 16.30. Jarðsett veröur á Lágafelli. Jóna og Nils Hansen + Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og jaröarför sonar okkar og bróöur HAFSTEINS ÓMARS BRAGASONAR, Kambahrauni 26, Hverageröi, Jóhanna Einarsdóttir, Bragi Guömundsson, Margrét Bragadóttir, Hafdís Bragadóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar ÞÓRARINS GUDMUNDSSONAR fiðluleikara Þuríöur Þórarinsdóttir ívar Þórarinsson. + Þökkum innilega öllum, sem sýndu samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför HALLDÓRS B. JÓNSSONAR, fyrrv. útgerðarmanns, á Akranesi. Sérstakar þakkir sendum viö starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík, fyrir frábæra umhyggju honum veitta. Helena Halldórsdóttir, Þorsteinn Steinsson, Emilía Petrea Árnadóttir, Guttormur Jónsson, Helena Guttormsdóttir, Lárus Bjarni Guttormsson. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi KOLBEINN ÍVARSSON, bakarameistari, lést í Landakotsspítala 7. ágúst. Þóra Kolbeinsdóttir, Ivar Kolbeinsson, Jóhanna Kolbeinsdóttir Ingi Ólafsson, Ingibjörg Kolbeinsdóttir, Sigursteinn Hersveinssori Ingibjörg Júlíusdóttir, Samúel Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.