Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 43 Hreinn og Oddur menn mótsins HÁPUNKTUR fyrri dags Reykjavíkurleikanna í frjálsum íþróttum var hiklaust 100 metra hlaupið, þar sem mættir voru til leiks sporléttustu menn íslands í dag. Oddur Sigurðsson, Vilmundur Vilhjálmsson. Sigurður Sigurðsson og að auki einn brokkfær, Dani, Frank Foli. til að veita enn frekara aðhald. Oddur sigraði glæsilega í hlaupi þessu, hljóp á 10.48 sekúndum. Sigurður varð annar á 10,77 sekúndum. danski Foli krækti í þriðja sætið á 10,79, en Vilmundur varð að láta sér lynda 4. sætið, er hann hljóp á 10,83 sekúndum. Nánar er greint frá 100 metra hlaupinu á blaðsíðu 3. Annars var fyrri keppnisdagur- inn fremur flatneskjulegur og fátt um fína drætti. Hreinn Halldórs- son náði þó ágætu kasti í kúlu- varpinu er hann þeytti kúlunni 20,48 metra í þriðju tilraun. Annað kast átti Hreinn rétt yfir 20 metra, en önnur köst hans voru ógild. Frammistaða Óskars Jakobssonar í kúlunni var eftir- tektarverð, en hann önglaði í annað sætið með 19,27 metra kasti. Framfarir Óskars í kúlu- varpi eru stöðugar, þó að ekki sé um hans aðalgrein að ræða. ítal- inn Gropelli varð þriðji með 18,33 metra kast. Mikill skari ítala, einir fjórir eða fimm, köstuðu þarna kúlu, hver með sínu búk- hljóði, en enginn veitti Hreini og Óskari markverða keppni. Eina met mótsins setti Guð- mundur R. Guðmundsson í há- stökki. Var þar um unglingamet að ræða, er hann snaraði sér yfir 2,04 metra. Hann gerði síðan tilraunir við 2,07 metra og munaði svo mjóu, að eitt sinn var hann farinn að fagna, þegar ráin skall síðbúin í höfuðið á honum. Há- stökkskeppnin var nokkuð spenn- andi, þar sem Stefán Friðleifsson (1,98 metra), Karl West (1,95 metra) og Hafsteinn Jóhannsson (1,90 metra) veittu Guðmundi harða keppni. Lítum svo á aðrar greinar. Sleggjukast ítölsk einokun, keppendur þrír og allir ítalir. Allir settu vallar- met, Urlandi sigraði með 72,4 metra, Bodbersck grýtti sleggj- unni 71,92 metra og Bianchini 70,90 metra. Langstökk karla íslenskur sigur, enda keppendur allir frá Fróni. Sigurður Sigurðs- son sigraði örugglega, sigurstökk hans var 6,80 metrar. Sigurður Hjörleifsson sem stökk 6,54 metra varð í öðru sæti og Stefán Þ. Stefánsson varð þriðji með 6,52 metra. 100 metra hlaup kvenna Keppt var í tveimur riðlum. Lára Sveinsdóttir skildi alla keppinauta sína eftir og hljóp á 12,01 sekúndu. Sigríður Kjartans- dóttir varð önnur á 12,18 sekúnd- um og Helga Halldórsdóttir varð í þriðja sætinu á 12,31 sekúndu. Sigrún Sveinsdóttir hlaut besta tímann í hinum riðlinum. 800 metra hlaup karla Óskar Guðmundsson var hér hlutskarpastur og hlaut tímann 2:05,4 mínútur. Bjarni Ingibergs- son UMSB varð annar á 2:07,1 mínútu og þriðji varð Sigurður Haraldsson FH á 2:08,3 mínútum. 1500 metra hlaup kvenna Hér græddi FRÍ einn verðlauna- pening, því að keppendur voru aðeins tveir þrátt fyrir að fjórir væru skráðir til keppni. Ragnheið- ur Ólafsdóttir varð öruggur sigur- vegari, hljóp á 4:42,4 mínútum, en helsti keppinautur hennar Guðrún Karlsdóttir UBK hljóp á 5:01,3 mínútum. FRÍ græddi líka tvo verðlaunapeninga í 1000 metra hlaupi sveina, þar sem Sævar Leifsson lét sig hafa það að skokka kílómetrann einn. Hljóp Sævar á 3:05,4 mínútum og var yfirburðasigurvegari í hlaupinu. 400 metra hlaup karla Hér biðu áhorfendur (sem voru frekar fáir) spenntir eftir því að sjá hvort Oddur myndi leggja alla að velli á nýjan leik. En Frank nokkur Foli kom mjög á óvart og sigraði örugglega á 49,09 sekúnd- um. Oddur var þó ekki langt að baki Fola og hlaut tímann 49,86 sekúndur. Aðalsteinn Bernharðs- son varð þriðji, hlaut tímann 50,93 sekúndur. 400 metra hlaup kvenna Rut Ólafsdóttir FH varð örugg- ur sigurvegari á 58,21 sekúndu, Helga Halldórsdóttir varð önnur á 60,32 sekúndum og Ragnheiður Jónsdóttir varð þriðja á 62,22 sekúndum. 1500 metra hlaup karla Þetta var hálfgert gönguhlaup og Ágúst „gekk“ hraðast. Hann vann örugglega á 4:02,7 mínútum. Steindór Tryggvason var á hælum Ágústar og hlaut tímann 4:03,2 mínútur. Sigurður P. Sigmunds- son hafnaði í þriðja sætinu á 4:05,7 mínútum. Kringlukast kvenna Enginn komst nálægt sovésku stúlkunni Elenu Kovalevu, sem náði sínu lengsta kasti á sumrinu, 55,04 metra. Guðrún Ingólfsdóttir tryggði sér annað sætið er hún þeytti kringlunni 41,50 metra. Margrét Óskarsdóttir ÍR varð þriðja með 32,06 metra. Kringlukast karla Óskar Jakobsson hreppti hér þriðja sætið með 54,98 metra kasti. ítalarnir voru sterkir í þessari grein eins og reiknað hafði verið með, Malini Moreno sigraði með 57,60 metra kast og landi hans Filip Monforte kastaði 56,44 metra og hreppti annað sætið. Rússinn, sem reyndist vera tug- þrautarmaður, kastaði aðeins 46,22 metra. Leikunum verður framhaldið í kvöld og hefst keppnin klukkan 19.30. Er tímaseðillinn sem hér segir. 19.30 Stangarstökk Kringlukast karla 100 m grindahlaup kvenna 19.40 200 m hlaup karla, I-riðill 19.50 200 m hlaup karla, II-riðill 20.00 Hástökk kvenna 20.10 Spjótkast karla 1500 m hlaup karla B-hlaup 20.30 Kúluvarp karla 800 m hlaup kvenna 20.40 800 m hlaup karla A-hlaup 20.50 200 m hlaup kvenna. _ gg., Hreinn lialldórsson undirbýr sigurkastið í gærkvöldi. Ljósm. Emilía. • Ragnar Margeirs.son, hinn bráðefnilega miðherji ÍBK, skor- aði þrennu í Svíþjóð í gærkvöldi. Strákarnir töpuöu fyrir Dönum ÍSLENSK A drengjalandsliöiö í knattspyrnu beiö öðru sinni ósigur á jafnmörgum dögum, er Danir gengu af velli sigurvegarar ’a Norðurlandamótinu í Svípjóð í gær- kvöldi. í fyrrakvöld töpuðu íslendingar 2—6 fyrir Svíum, en í gær var tapið 3—5 fyrir Dönum. Ekki eins slæm úrslit, en staðan í hálfleik var jöfn, 1—1. Að sögn Gylfa Þórðarsonar, fararstjóra íslenska hópsins, var leikur íslensku sfrákanna gjörólíkur þeim sem þeir sýndu gegn Svíum í fyrrakvöld. Þá var varla heil brú í liðinu, nú átti liðið mjög góða leikkafla. Danir komust í 1—0 á fyrstu mínútu leiksins, en Ragnar Margeirsson, ÍBK, jafnaöi úr víti sem hann fiskaöl sjálfur. Snemma í síðari hálfleik komust Danir síðan í 3—1, en upp úr miðjum hálfleiknum minnkaði Ragnar enn muninn meö marki úr víti. Og enn var það einstaklingsframtak Ragnars sem uppskar vítið. Danir gerðu þó út um leikinn, komust í 5—2 þegar 5 mínútur voru til leiksloka en á 88. mínútu fullkomn- aði Ragnar þrennu sína, þegar hann skoraði fallegasta mark leiksins, einlék upp völlinn, var felldur, reif sig aftur upp, lék á tvo í viðbót og skaut síðan þrumufleyg í markvinkilinn frá vítateig, 3—5. Auk Ragnars, sagði Gylfi að Gisli Bjarnason, KR, hefði átt mjög góðan leik með íslenska liðinu, „mjög sterkur leikmaður, sérstaklega ' i skallaboltunum“ sagði Gylfi. í hinum riölinum sigruðu Vestur-Þjoðverjar Finna 1—0, en íslendingar leika um fimmta sætið annað hvort við Norðmenn eða Finna. -gg. • Jóhanna Ingólfsdóttir. (s- landsmeistari kvenna tvö síðast- iiðin ár. íslandsmótið í golfi á Akureyri: Hannes og Kristín hafa forystu HANNES Eyvindsson hefur for- ystuna í meistaraflokki karla á lslandsmótinu í golfi scm fram fer á Akureyri um þessar mund- ir, en fyrsti keppnisdagur meist- araflokks var í gær. Leiknar voru 18 holur, en keppnin heldur áfram í dag. Eftir 18 holur hefur Hannes leikið á 74 höggum. Magnús Hall- dórsson er með 76 högg og þrír kappar eru jafnir á næstu grösum með 78 högg, þeir Björgvin Þor- steinsson, Jón Þór Gunnarsson og Sigurður Hafsteinsson. Kristín Þorvaldsdóttir er efst i meistaraflokki kvenna, hefur leik- ið á 182 höggum, (91—91). Sólveig Þorsteinsdóttir er önnur með 183 högg (94—89). Jóhanna Ingólfs- dóttir, sem hafði forystu eftir fyrri daginn féll niður í þriðja sætið með 184 höggum samanlagt. Tryggvi Sæmundsson GA er efstur í 3. flokki karla, hefur leikið á 197 (93—104) höggum. Ragnar Lárusson er í öðru sæti með 199 (98—101) högg og Jón Guðmunds- son er í þriðja sæti með 200 (96—104) högg. Jónína Pálsdóttir hefur foryst- una í 1. flokki kvenna, hefur þegar slegið 216 högg, Lóa Sigurbjörns- dóttir hefur slegið 222 högg og Guðný Kjærbo hefur slegið 239 högg. Keppnin í 2. flokki karla fer fram á Olafsfirði og keppnin í 1. flokki karla fer fram á Húsavík. Staðan þar er nú þessi: 2. fl. karla, Ólafsfjöröur: Friðþjófur Helgason, NK 161 Donald Jóhannesson, GK 167 Júlíus Ingvarsson, GJ 171 í KVÖLD klukkan 19.30 leikur meistaraflokkur ÍBK gegn stjörnuliðinu svonefnda, sem skip- að er fyrrverandi leikmönnum ÍBK. Verður stjörnuliðið styrkt 1. fl. karla. Húsavík: Jóhann Benediktsson, GS 164 Guðni 0. Jónsson, GL 166 Sigurður Héðinsson, GK 169 Reynir Þorsteinsson, GL 172 Ólafur Marteinsson, GK 174 með þjálfurum IBK, þeim Tranter og Smith. Leikurinn fer fram á grasvellinum í Keflavík og er hann til fjáröflunar fyrir þátttöku ÍBK í Evrópukeppninni. ÍBK leikur í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.