Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 21

Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 21 Enn hart barist í Miðbaugs-Guineu Madríd. 8. ájíúst. AP. Reuter. FREGNIR hcrma að mjög harðir bardagar geisi nú í útjaðri heimabæjar Macias Nquema hins fallna einræðisherra Mið- baugs-Guineu. en hinir nýju valdhafar hafi eigi að síður mestan hluta landsins á sfnu valdi. í þessum fregnum segir að hinn fallni foringi, sem stjórnaði land- inu með harðri hendi allt frá árinu 1968, þegar það hlaut sjálfstæði frá Spáni, verjist nú ásamt mönn- um sínum í smábænum Nzeng Ayong við landamæri Gabon. Hinir nýju valdhafar gáfu hin- um fallna foringja frest þar til í gær að gefast upp og mæta fyrir dómstóla, en haft er eftir sam- starfsmönnum hans að ekki komi annað til greina en að berjast til síðasta manns. Skögareldar á Spáni í rénun — kostuðu a.m.k. 21 mannslíf Gerona, Spáni. 8. ágúst. AP. SLÖKKVILIÐSMENN hafa nú náð yfirhöndinni í baráttunni við skógarelda þá er brutust út í nágrenni Costa Brava, baðstrandarinnar frægu í gærmorgun. Eldarnir kostuðu 21 mann lífið. flest börn. sem lokuðust inni í gömlum árfarvegi inni í skóginum. Að sögn talsmanna lögreglunn- ar unnu um tvöþúsund manns að björgunarstörfum í alla nótt og búist er við því að starfinu ljúki ekki fyrr en í fyrsta lagi að viku liðinni. í fyrstu var talið að 22 hefðu týnt lífi en það var leiðrétt í morgun þegar einn þeirra er talinn va_r af fannst lítið brenndur í skóginúm. Ekki hefur tekist að bera kennsl á nema hluta líkanna sem brunnu mjög illa. Talið er víst að eldarnir hafi komið upp á þremur mismunandi stöðum á sama tíma og Joseph Tarradellas fylkisstjóri á staðnum sagði það liggja i augum uppi að eldarnir væru af mannavöldum. — „Glæpamenn sem vilja vinna okk- ur tjón hafa þarna verið að verki.“ sagði fylkisstjórinn í sjónvarps- viðtali. Ekki eru taldar líkur á því að fleiri lík komi í ljós, þar sem flest þau svæði sem fólk heldur sig á hafa verið leituð. ITjúlímánuði einum hafa alls verið 1500 skógareldar víða um Spán og hafa eytt um 400 þúsund ekrum lands. Þeir hafa þó ekki verið mannskæðir til þessa. Af þessum 1500 eldum er talið sann- að, að 275 séu af mannavöldum jneð það í huga að valda skaða. Skálað fyrir samveldinu — eftir að Samveldisfundinum lauk í Lusaka bauð Kenneth Kaunda leiðtogunum til hófs og þar lagöi Joe Clark, forsætisráðherra Kanada til að skálað yrði fyrir samveldinu. Krafist var vistar á geðveikrahæli Stokkhólmi. 7. áKÚst. frá Onnu Bjarnadóttur. fréttamanni Mbl. RÉTTARIIÖLDUNUM yfir hinum 19 ára pilti sem myrti fjölmarga sjúklinga á langlegudeild Östra-sjúkrahússins í Malmö á síðasta vetri er lokið. Sannað var að hann myrti 13 farlama gamalmenni með banvænum hreingerningarlegi og að hann reyndi að myrða 14 til viðbótar en ekki tókst að sanna að hreingerningarlögurinn hefði verið valdur að bana þeirra. Verjandi piltsins. Börje Svedberg. og saksóknari. Sten Runerheim. lögðu báðir til að til meðferðar. Dóms er að vænta 28. Verjandi piltsins sagði í mál- flutningi sínum að hluti ábyrgðar- innar á fjöldamorðunum hvíldi á herðum starfsfólks langlegu- deildarinnar sem pilturinn starfaði við. Hann var aðeins ráðinn þangað um skamman tíma og alls ekki undir ömurleika sjúklinganna bú- inn. Hann fékk lítinn stuðning frá starfsfólkinu í byrjun og þegar hann þótti undarlegur í hátterni var hann látinn alveg afskiptalaus. Upp hefði komizt um morðin miklu fyrr og nokkrum afstýrt, sagði verjandinn, ef starfsfólkið hefði fylgzt með piltinum og hlustað á sjúklinga sem bentu á hann og sögðu hann hafa gefið sér inn eitur. Niðurstaða sex vikna geðrann- sókna var að pilturinn er geðveik- ur. Við réttarhöldin sagði prófessor Bo Gerle sem hafði umsjón með geðrannsókninni að pilturinn væri mjög vel upp alinn en að hann væri seinn til og tilfinningar hans væru óeðlilegar. Sem barn umgekkst hann sjaldan aðra en foreldra sína ulturinn yrði settur á geðveikrahadi ágúst n.k. og aðra fullorðna og leitaði einnig samvista við eldra fólk er hann eltist vegna þess að það ætlaðist til minna af honum en jafnaldrar hans. Hann var ráðinn á langlegudeild- ina til þess að lesa fyrir og skrafa við gamla fólkið. Það varð honum mikið áfall er hann sá hversu margir sjúklinganna voru alveg út úr heiminum og hann brást við því með því að drepa þá hvern af öðrum. Pilturinn gerir sér enga grein fyrir brotinu sem hann hefur framið og þegar hann er spurður hvort hann telji sig hafa rétt til að ákveða um líf annarra og dauða verður hann undrandi og kemst í vandræði. Prófessor Gerle sagði að það yrði að líta á piltinn sem hættulegan þar sem hann gerir sér ekki grein fyrir því sem hann hefur gert. Gerle heldur þó að löng og ýtarleg meðferð geti læknað hann og gert honum kleift að verða virkur og frjáls borgari á ný. ■ . ■ ■ ■ 1979: ".'V A Kjarvalsatööum, Þar sem Þessi mynd er tekin, veröur miðstöö Reykjavíkurvikunnar. Ljósm. Mbl. Kristinn. Frá blaðamannafundinum á Kjarvalsstööum í gær, Þar sem Reykjavíkurvikan var kynnt. Tónleikar, sýningar og borgarstofnanir kynntar Borgarstjórn samþykktí í vetur tillögu sjálf- stæðismanna um aö stofna til sérstakrar Reykja- víkurviku í tengslum viö afmælisdag Reykjavík- urborgar, 18. ágúst. Tilgangurinn er sá aö gefa almenningi kost á aö kynna sér borgarstofnanir og Þá starfsemi sem Þar fer fram. Reykjavíkurvik- an hefst mánudaginn 13. ágúst og lýkur á afmælisdeginum laugardaginn 18. ágúst. Aö þessu sinni verður kynning á Rafmagnsveitu Reykjavíkur og þróunarstofnun, auk þess gefst borgarbúum kostur á aö kynnast starfsemi Siglingaklúbbsins Sigluness, sem starfræktur er á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur. Miðstöö Reykja- víkurvikunnar í ár veröur að Kjarvalsstöðum, en þar verða sýningar og tónleikar. Verða þar haldnir kynningafundir á vegum Þróunarstofnunar og fariö í skoðunarferðir í tengslum viö þá, og þaöan verður einnig farið í kynnisferöir til Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Rafmagnsveita Reykjavíkur: Ekiö verður frá Kjarvalsstöðum kl. 17.00 á mánudag og einnig á sama tíma á miðvikudeginum 15., og föstudegin- um 17. ágúst. Fararstjóri kynnir starfsemi stofn- unarinnar og mannvirki, sem ekið er framhjá, auk Þess sem áherzla verður lögö á kynningu Elliöaársvæöisins. Rafstööin frá 1921 viö Elliöaár veröur skoðuð, svo og Elliöaársvæöiö, og munu fulltrúar frá Stangaveiöifélagi Reykjavíkur kynna laxveiðiárnar Elliðaár og sýna fluguköst og veiöitæki. í félagsheimilinu verður komiö fyrir myndum og gestum boöiö upp á kaffi. Þróunarstofnun Reykjavíkur: Stendur fyrir kynn- ingu að Kjarvalsstöðum á verkefnunum „athugun á þéttingu byggðar vestan Elliðaáa“, deiliskipulagi og framkvæmdum viö íbúöabyggingar á svonefndum tilraunareitum í Seljahverfi, þar sem íbúum var gefinn kostur á aö taka þátt í skipulagsstörfum. Ennfremur verður sýnd tillaga að deiliskipulagi á svæöinu milli Barónsstígs, Bergþórugötu, Snorra- brautar og Egilsgötu. Haldnir verða kynningarfund- ir og farið í skoðunarferðir á kynningarsvæöin og er þaö á dagskrá kl. 17.00 þriðjudaginn 14. ágúst og á sama tíma á fimmtudeginum 16. ágúst og laugar- deginum 18. ágúst. Æskulýðsráð Reykjavíkur kynnir siglingaklúbb sinn Siglunes í Nauthólsvík. Klúbburinn á nú 42 báta af ýmsum geröum. Alls geta 70—80 unglingar verið á siglingu í einu. Bátsferöir verða farnar daglega kl. 17—19 um Skerjafjörö aö Álftanesi. íslandsmeistaramót í siglingum verður laugardag- inn 18. ágúst kl. 14. í Tónabæ leikur hljómsveitin Brunaliðið fimmtudagskvöld 16. ágúst. Sýningunni „Sumar á Kjarvalsstööum“ lýkur 19. ágúst. A Reykjavíkurvikunni veröa þar einnig tónleikar fimmtudagskvöld 16. ágúst kl. 20.30. Þá leika Rut, Unnur María og Inga Rós Ingólfsdætur ásamt Herði Áskelssyni verk eftir Bach, Handel, Telemann og Purcell. Þá eru ráögeröir útitónleikar á Miklatúni, ef veður leyfir. Brunaliöiö skemmtir mánudagskvöldiö 13. ágúst og kl. 16. laugardaginn 18. ágúst verða þar einnig útitónleikar. Reykjavíkurvikunni lýkur á afmælisdegi Reykja- víkurborgar 18. ágúst með því að afhent veröa viðurkenningarskjöl fyrir fegurstu götu Reykjavíkur 1979, besta umhverfi á vinnustað og beztan aöbúnaö barna á ibúöarhúsalóö. Borgarráð skipaöi þriggja manna nefnd til undirbúnings og skipulagningar Reykjavíkurvikunn- ar. í nefndinni eiga sæti: Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi, sem er formaður nefndarinnar, Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi og Böðvar Pétursson. Auk þeirra sátu á blaöamannafundi á Kjarvalsstöðum í gær forráöamenn fyrirtækjanna sem kynnt veröa, ásamt listráöunaut og arkitekt Kjarvalsstaða. Sögöust þau vonast til aö hátíöin yrði vel sótt og væri fyrirhugað að halda slíkar Reykjavíkurvikur árlega eöa a.m.k. annaö hvert ár framvegis. Aðgangur er þátttakendum að kostnaöarlausu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.