Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 32

Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 Minning: Helgi Þórarinsson Æöey Fæddur 15. apríl 1920. Dáinn 1. ágúst 1979. Helfregnin kom óvænt, sló hart. Dagion áður hafði að vísu spurst, að Helgi væri á spítala, en mig grunaði ekki, að svona mikil alvara væri á ferðum. Hann hafði kennt lasleika heima í Æðey þremur vikum fyrir andlátið, legið nokkra daga heima, en farið síðan Jil læknis til ísafjarðar. Þá sást, að grípa þurfti til skjótra ráða, og Helgi var sendur til Reykjavíkur til frekari læknismeðferðar. Gn sjúkdómurinn fór geyst. Sterk iyf voru reynd, en árangurslaust. Helgi andaðist um hádegisbil miðvikudagin 1. ágúst, 59 ára að aldri. Seint á vetri 1936—1937 bættust smám saman í 1. bekk M.A. nokkrir nýnemar víðs vegar að af landinu. Þeir höfðu lesið heima um veturinn, en voru nú komnir til að hlýða á kennslu nokkrar vikur, áður en þeir þreyttu vor- próf. Einn þeirra var vestfirskur piltur, sem þegar vakti sérstaka athygli okkar, sem fyrir vorum í þekknum. Þröngt var í stofunni, svo að hann gat ekki fengið borð til að sitja við, en stól fékk hann og sat fremst í stofu milli dyra og kennaraborðs. Ekki var trútt um, að hann rændi stundum athygl- inni frá lærifeðrunum. Hann var höfði hærri en aðrir menn eld- rauður á hár og hrokkinhærður, mikilleitur og fyrirmannlegur í fasi, stiililegur og sýnilega enginn flysjungur. Hann var rammur að afli, en friðsamur og lét engan á því kenna. Þó skildist smásveinum fljótt, að skynsamlegt var að bekkjast ekki um of til við þennan nýja mann að vestan, enda fýsti þess brátt engan, því að við kynningu reyndist hann hið mesta ljúfmenni og glaðvær og hlýr félagi. Þetta var Helgi Þórarinsson frá Látrum í Mjóafirði við ísafjarð- ardjúp, kominn um langan veg til að leita sér menntunar og sækja skóla. Nú á dögum þykir slíkt að vísu engin nýlunda eða tiltökumál, en á þessum tíma, á kreppuárun- um fyrir síðari heimsstyrjöld, var það fátækum sveitapilti þrekvirki og ekki á annarra færi en þeirra, sem voru miklum kostum búnir, ekki aðeins námsgáfum, heldur einnig föstum vilja og sterkri löngun til að mannast og mennt- ast, því að veraldlegu efnin voru oftast af skornum skammti og styrkir litlir eða engir, þannig að sjálfsögun, sjálfsbjargarvilji og seigla nemandans sjálfs réð úrslit- um, en stundum kom þó að vísu til góðra manna hjálp eða frænd- styrkur. Treyst var á sumarvinnu við bjargræðisvegina, í síld eða sveit, og síðan lifað eins spart að vetrinum og nokkur kostur var, hverri krónu velt í lófa og mörg freisting, sem þá varð á vegi ungra manna engu síður en nú, var að velli lögð. Við þetta allt óx mann- dómur, dugur og siðrænt, andlegt og líkamlegt þrek þessara ungu manna og það er engin tilviljun, að þeir nýttust þjóðfélaginu vei í leiðtoga- og nytjastörfum síðar, auk þess sem þeir lögðu grunninn að eigin gæfu og gengi á ævibraut- inni. Helgi Jóhannes Þórarinsson fæddist á Látrum í Mjóafirði 15. apríl 1920. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Guðrún Runólfs- dóttir, dóttir Runóifs bónda í Heydal Jónssonar og konu hans Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Eyri í Mjóafirði, og Þórarinn bóndi Helgason, sonur Helga Ein- arssonar bónda á Látrum og Þóru Jóhannesdóttur, konu hans. Helgi var elstur systkina sinna, en alsystkini hans eru Runólfur, f. 1922, cand. mag. í íslenskum fræðum og deildarstjóri í Mennta- málaráðuneytinu, og Kristín, f. J 926, d. 1970, gift Guðfinni Magn- ússyni, og bjuggu þau á ísafirði. Þórarinn missti konu sína frá börnunum þremur, þegar dóttirin var tíu daga gömul, en kvæntist aftur síðar Hjálmfríði Berg- sveinsdóttur frá Aratungu í Steingrímsfirði. Börn þeirra og hálfsystkin Helga eru: Guðrún f. 1935, gift Nikulási Sigfússyni, yfirlækni Hjartaverndar, Bragi f. 1936, verkstjóri hjá náttúruvernd- arráði, og Sigríður f. 1938, gift Sigþór Jakobssyni myndlistar- manni. Helgi var bernskuárin heima á Látrum við hinn skógi prýdda Mjóafjörð og vandist öllum venju- legum búskaparverkum, eins og þau voru fyrir vélaöld, og fékk snemma styrka hönd af ár og orfi og víða sýn og djúpan skilning á lífsbaráttu alþýðu manna í land- inu, ekki aðeins af afspurn, heldur einnig af eigin raun. Samúð hans með erfiðisfólki átti hér rætur og hélst upp frá því. En hugurinn stóð til náms og bókar, svo að hann settist sem fyrr segir í Menntaskólann á Akureyri vorið 1937, Þar hófust kynni okkar Helga, sem leiddu brátt til vináttu, sem haldist hefir alla tíð síðan og meira að segja orðið enn nánari, eftir því sem tímar hafa liðið. Við bekkjarsystkinin öll eignuðumst í honum hinn ágætasta félaga, sem öllum okkur þótti vænt um og við dáðum fyrir margs konar atgervi og ágæti. Hann var alltaf til í glens og gaman, ef það var af saklausum toga, og öll réttlætis- mál studdi hann óhikað, við hvern sem var að eiga. Hann var alltaf mjög félagslyndur og tryggur vin- ur sínum, sótti enda fundi og bekkjarsamkomur, svo sem stúd- entsafmæli, allra manna best, þótt hann ætti einna lengst að sækja. Ræktarsemi hans við forna vini og sameiginiegar minningar var slík. Eftir stúdentsprófið, sem hann lauk vorið 1942, hélt Helgi til Reykjavíkur og hóf nám í lögfræði við Háskóla íslands, en svo réðst, að hann gerðist kennari við Hér- aðsskólann á Núpi meira en hálf- an veturinn 1942—1943. Eftir það tók hann til við námið aftur og lauk fyrrihlutaprófi 1946, en vann alltaf nokkuð með námi, einkum við kennslu. Einnig vann hann hjá Skattstofu Reykjavíkur og við framkvæmd eignakönnunarinnar 1947—1948. Flest háskólaárin bjó hann á Nýja stúdentagarðinum, og eigum við félagar margar bjartar og skemmtilegar minning- ar frá þeim árum. En um þetta leyti kynntist Helgi forkunnarmyndarlegri stúlku, Guðrúnu Lárusdóttur, sem þá vann við Landssímastöðina í Reykjavík. Hún er dóttir Guðjónu Guðmundsdóttur, sem var ein hinna nafnkunnu Æðeyjarsyst- kina, og Lárusar Guðnasonar verslunarmanns, en fóstruð og alin upp að mestu leyti hjá Elísabetu móðursystur sinni og Jónasi Jónassyni. manni hennar. Þau Helgi gengu í hjónaband 20. mars 1948 og eignuðust sex börn. Þau eru: Jónas, f. 1947, bóndi í Æðey, Þórarinn f. 1950, hamskeri, nú starfsmaður Sementsverksmiðj- unnar á Akranesi, kvæntur Báru Jósefsdóttur, ljósmóður, Guð- mundur Lárus, f. 1953, kpnnari við Gagnfræðaskóla Akureyrar, kvæntur Brynhildi Júlíusdóttur, Einar, f. 1957, húsasmiður í Reykjavík, kvæntur Svövu Þ. Þórðardóttur, hjúkrunarfræðingi, Guðjón, f. 1959, hefir að mestu verið í heimahúsum, og Kristín Guðrún f. 1962, hefir einnig að mestu dvalist heima. Öll eru börnin myndarfólk og harðdug- legt, eins og þau eiga kyn til. Árið 1948 réðst Helgi til skrif- stofustarfa hjá Almennum trygg- ingum hf. og varð ári síðar deildarstjóri hjá því fyrirtæki. Þeirii stöðu gegndi hann i rúm 13 ár og naut mikils trausts í starfi. Eflaust hefði Helga beðið mikill frami í viðskiptalífinu, ef hann hefði kært sig um, en árið 1961 brugðu þau Guðrún til annarra miða. Þau höfðu þá eignast fimm dugnaðardrengi, sem þurftu meira viðnám krafta sinna en bauðst á malbiki Reykjavíkur, og auk þess mun þráin til átthaganna hafa togað nokkuð fast. Nú bauðst þeim Æðey til kaups með gögnum og gæðum, og þetta tækifæri gripu þau, sögðu skilið við trygga at- vinnu við kjötkatlana syðra og futtust búferlum vestur í Djúp. Þeim var áreiðanlega báðum ljóst, að þau voru að ganga til fangbragða við margs konar erfiði og áhyggjur, sem hljóta að bíða þeirra, sem taka sér bólfestu á ystu mörkum byggðar og varn- arstöðu gegn landauðn og fólks- flótta. En bjartsýni þeirra var mikil, traust á forsjóninni og þó nokkur trú á eigin mátt og megin. Synirnir hjálpuðu til eftir megni. jafnóðum og þeir uxu úr grasi, og brátt fæddist dóttirin, óskabarn og blessunartákn. öll fjölskyldan var samhent um öll nauðsynja- störf, og þannig urðu þau léttari en ella hefði orðið. Börnin urðu garpar til vinnu eins og foreldr- arnir og snemma sjálfbjarga. Þeim var alltaf sýnd umhyggja, en ekki með því að hlífa þeim sífellt við erfiðleikum, heldur með því að styrkja þau og efla til að takast á við þá og sigrast á þeim, kenna þeim hin réttu tök. Þetta er uppeldisaðferð náttúrunnar sjálfrar og hefir alltaf gefist vel. Æðey er kostajörð, en mannfrek eins og allar hlunnindajarðir. Æð- arvarp er mikið, eins og nafn eyjarinnar bendir til, og dúntekja eftir því, en hún krefst mikillar vinnu og erfiðis á vorin, ef hún á að nýtast, og einnig mikillar natni og vandvirkni við hreinsun dúns- ins og verkun, svo að hann verði góð söluvara. Ekki er að orðlengja, að Æðeyjardúnn hefir lengi verið í hæsta gæðaflokki og fengið hann færri en vildu vegna vandaðra vinnubragða við verkun hans, en hún hefir öll farið fram heima. En umgengni við æðarfuglinn sjálfan og umhirða og verndun varpland- anna er hér ekki ómerkasti þátt- urinn. Sambýli æðar og manns er mjög náið, og maðurinn getur miklu ráðið með umhirðu sinni eða hirðuleysi, hvort varp eflist eða eyðist. Hér í Æðey er sinnt um æðarkollurnar eins og lambærnar, og þær launa líka fyrir sig. Varnir gegn vargi alls konar hafa líka lengi verið efldar, svo sem með minkahundum og öðrum tiltækum ráðum. Fjármennska er erfið í Æðey, m.a. vegna flutninga fjár með bátum milli eyjar og lands, og smalamennskur langar og harð- sóttar vegna fámennis sveitarinn- ar og víðlendra óbyggða norður af, þó að þar væri allt fram undir miðja öldina alimikil byggð. Þá er fyjabúskapur í eðli sínu þannig vaxinn, að þeir, sem þar eiga heima, verða jafnan að búa meir að sínu en aðrir bændur, sýna meiri fyrirhyggju og úrræði og treysta meir á sjálfa sig en landbændur, ef eitthvað bjátar á. Þetta vissu þau Guðrún og Helgi mæta vel, en gengu djörf og hiklaust til leiks, enda von góðrar afkomu, ef búskapurinn blessaðist á annað borð. Og hann blessaðist. En Æðey er meira en góð bújörð með hlunnindum. Hún er einnig ein mesta fuglaparadís þessa lands. Þar munu vera ekki færri en 23 varptegundir auk annarra fugla, sem þangað slæðast. Þar iðar allt af lífi. Æðarkollurnar verpa nærri því að segja inni í bæ, og teistan, þessi fjörugi, fallegi og mannelski fugl, á sér hreiður allt í kringum höfnina framan við bæj- ardyrnar og meira að segja undir bæjarhellunni. Fullyrt er, að bæj- arhrafninn verji varpið á vorin í þakklætisskyni fyrir matgjafir á hörðum vetrardögum. Hér er sam- býli fugla og fólks með gagn- kvæmri virðingu, nærri því að segja á jafnréttisgrundvelli, og með fögrum hætti eins og skapar- inn hlýtur að hafa ætlast til í öndverðu. Fuglafræðingar og fuglaskoðarar víða úr heimi koma til þessarar Mekku, og íslenskir ferðamenn koma hópum saman á hverju sumri til að virða fyrir sér dásemdirnar. Öllu þessu fólki leiðbeindi Helgi og fræddi það um fuglana og náttúru eyjarinnar, lifandi og dauða, því að hann var allra manna lærðastur og fróðast- ur um lifnaðarhætti fuglanna, eðli þeirra og eiginleika. Hann var óþrjótandi fræðasjór á þessu sviði. Fyrir nokkrum árum var þeim Guðrúnu boðið til Bretlands í þakklætis- og viðurkenningar- skyni fyrir aðstoð við fuglaskoð- ara og höfðu af þeirri ferð mikla ánægju. Helgi var jafnframt mikill áhugamaður um náttúruvernd al- mennt og vann því málefni allt það gagn, er hann mátti. En Helgi sinnti einnig mörgum öðrum fræðum af miklum áhuga. Saga eyjarinnr, héraðsins og landsins alls var honum opin bók, og í ættfræði varð ekki komið á hann bragði. Þar var hann prýð- isvel að sér og rakti fyrirhafnar- laust ættir um allt land og tengdi óvæntustu menn ættar- og skyld- leikatengslum af kunnáttu sinni, enda var hann gæddur óvenjulegu stálminni. Bókasafn ágætt er í Æðey, og viðaði Helgi að sér góðum bókum af elju og smekk- vísi. Þessu gaf hann sér öllu tíma til að sinna ásamt búverkunum, en hin allra síðustu ár var Jónas sonur hans að miklu leyti tekinn við búinu. Helgi hafði þó á sinni hendi dúninn og nokkra aðra verkþætti. Mikil gestnauð er í Æðey, eins og að líkum lætur, en þar er öllum komumönnum tekið með kostum og kynjum. Gestir hafa ekki að- eins átt góðum viðurgerningi og stórveitingum húsráðenda að fagna, heldur einnig skemmti- legri, fræðandi og uppbyggilegri viðræðu, því að húsbóndinn var þeim kostum búinn að geta talað við hvern sem var, háan og lágan, lærðan og leikan, svo að gesturinn hefði af skemmtan og fróðleik. Helgi var skipaður hreppstjóri skömmu eftir komu sína í Snæ- fjallahrepp, og í hreppsnefnd átti hann sæti jafnframt. Þá var hann nokkur ár skipaður formaður skólanefndar Héraðsskólans í Reykjanesi, en óskaði að láta af því starfi. Hann var mjög virkur í Félagi Djúpmanna í Reykjavík, og studdi af alefli það baráttumál félagsins að koma á fót félags- svæði og félagsheimili í Mjóafirði. íslensk bændastétt má vera hreykin af að eiga sér aðra eins atgervismenn og eins glæsilega fulltrúa, bæði á hinu verklega sviði og hinu menningarlega og hugsjónalega sviði, og hún átti í Helga bónda Þórarinssyni í Æðey. Á meðan svo er, er hún ekki heillum horfin. Hann var útvörður íslenskrar menningar. Sagt er, að franskir sjóliðsforingjar og tign- armenn hafi undrast á öldinni sem leið, þegar bóndi var sóttur í land til að ræða við þá franskar bókmenntir, svo að þeir komust að fullkeyptu. Sá hét Grímur Thom- sen. Lærðan mann úr suðurlönd- um rak í rogastans hér um árið, þegar hann ávarpaði vegghleðslu- mann í Möðrudal og fékk svörin á latínu, frönsku eða þá einhverjum öðrum Evróputungum að vild. Sá hét Vernharður Þorsteinsson. Margir fræðimenn útlendir hafa borið lotningu fyrir íslenskri bændamenningu eftir að hafa kynnst lærdómi bóndans í Æðey um fugla og grös. Sá hét Helgi Þórarinsson. Hann brá stórum svip yfir hérað sitt. Við lát hans er héraðsbrestur orðinn. Risinn með barnshjartað er horfinn af svið- inu, byggðirnar við Djúp standa eftir auðari og snauðari, Island er fátækara. Fyrir fáum árum komum við Ellen ásamt tveimur börnum okk- ar í heimsókn til Guðrúnar og Helga í Æðey. Sú heimsókn er okkur ógleymanleg fyrir margra hluta sakir. Móttökur heimafólks voru með þeirri hjartans einlægni og elskusemi, rausn og virkt, að sjaldgæft er, og þó þótti okkur sennilega vænst um, að við vorum ekki látin finna annað en við værum heima. Við fengum að grípa í hrífu og drekka engjakaffi að gömlum sið og að taka nokkurn þátt í daglegu lífi í eynni. Þess á milli gengum við um eyna í fylgd húsbóndans, sem fræddi okkur óspart um sögu hennar og alla hina fleygu og fiðruðu sambýlis- menn sína. Þess á milli voru rifjaðar upp fornar minningar frá skólaárunum, og gott var að orna sér við eldana þá. Þessir sólríku dýrðardagar við Djúp liðu alltof hratt, og að orlofsnóttum liðnum Jcvöddum við með söknuði góða vini og snerum til lands, full þakklætis. Eftir áramótin í vetur komu þau Æðeyjarhjón í heimsókn til Akur- eyrar, og þá gafst enn færi á að efla forna vináttu, þegar þau komu á heimili okkar og þegar við Helgi gengum saman um göturnar og rifjuðum upp kynni af sögu- stöðum æskuáranna og atburði þeim tengda. Gott var sem jafnan áður að eiga við hann viðræðu, þennan jákvæða, fjölfróða mann og elskulega bekkjarbróður. Hann var þá geislandi af lífskrafti og góðri heilsu, að því er virtist, og bjartsýnn á framtíðina og hægari daga en stundum áður. Síst grun- aði mig, að þá sæi ég Helga í síðasta sinn. Þegar við kvöddum hann, var handtakið hlýtt þétt og innilegt sem jafnan áður og brosið geislandi af góðleik og hjartans gleði. Þannig var gott að kveðjast. Nú verður e.t.v. lengra milli funda en ætlað var, og veit þó enginn. Við bekkjarsystkinin kveðjum klökkum huga bekkj- arbróður okkar Helga Þórarins- son, hinn sjötta úr stúdentahópn- um frá M.Á. 1942, sem hverfur af þessum heimi, og þökkum honum alla glaðværðina, góðsemina og tryggðina, sem hann sýndi okkur frá fyrstu kynnum til hinsta dags. Við og makar okkar sendum hon- um blessun og þökk inn á leiðirnar ókunnu, en vottum Guðrúnu og skylduliði þeirra Helga einlæga samúð. Fari hann svo vel, bróðir og vinur, guði falinn og góðum vætt- um. Sverrir Pálsson. I dag verður gerð útför Helga Þórarinssonar bónda í Æðey, en hann lést á sjúkrahúsi hér í borg 1. ágúst s.l. eftir skamma legu, aðeins 59 ára að aldri. Helga er sárt saknað af vinum hans og Djúpið okkar hefur nú misst einn sinna bestu sona. Sár- astur er þó harmurinn hjá hans nánustu, Guðrúnu og börnunum þeirra 6. Þeim öllum sendi ég mína innilegustu samúðarkveðju. Helgi Þórarinsson var mikill mannkostamaður, prýðilega greindur og vel að sér um marga hluti. Trygglyndi hans var mikið og hann var traustur vinur vina sinna. Karlmenni var hann og lét sér lítt bregða þótt erfiðleika- og örlagahnútar risu. Hann var mað- ur skapstór, en þó viðkvæmur undir niðri og brá þess vegna stundum yfir sig kuldagrímu til þess að dylja hitann er inni fyrir bjó. Þetta vissu vinir hans, sem þekktu hann vel. Helgi var fæddur og uppalinn við Djúp, fæddur á Látrum við Mjóafjörð 15. apríl 1920, sonur hjónanna þar, Kristínar Runólfs- dóttur og Þórarins Helgasonar, sem látinn er fyrir fáum árum í hárri elli. Stóðu að Helga þekktar ættir við Djúp og víðar. Helgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.