Morgunblaðið - 31.10.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
239. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 31.0KTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovét:
200 pólitískir f ang-
ar í hungurverkfalli
Moskvu — 30. október — Reuter
UM 200 pólitískir fangar í so-
vézkum fangabúðum og fangels-
um tóku í dag þátt í hungurverk-
falli til að mótmæla frelsissvipt-
ingu og öðrum refsingum vegna
skoðana, að því er forsvarsmenn
Helsinki-hópsins í Moskvu
skýrðu frá í dag.
Meðal þeirra, sem þátt tóku í
hungurverkfallinu voru eðlisfræð-
ingurinn Júrí Orlov, fyrrverandi
formaður Helsinkihópsins, sem nú
er í fangabúðum í námunda við
„Sovézka frid-
arrádid” borgar
Haag — 30. október — AP.
LEIÐTOGI hollenzkra samtaka, sem
beita sér fyrir herferð gegn nev-
trónu-sprengjum og kjarnorkuvopn-
um, hefur að sögn hollenzkra blaða
viðurkennt að hafa þegið fjárstuðn-
ing frá Sovétríkjunum.
Haft er eftir Nico Schouten, leið-
toga samtakanna „Stöðvið nevtrónu-
sprengjuna — stöðvið kjarnorku-
vopn“, að hinn sovézki stuðningur
hafi komið frá „Sovézka friðarráð-
inu“. Hafi verið um að ræða flugfar-
seðla, sem hann sjálfur og tveir
stuðningsmenn hafi veitt viðtöku í
Moskvu, og sé von frekari stuðnings í
sömu veru.
Perm, og Anatólí Sjaranskí, sem
afplánar 13 ára fangelsi. Þetta er
fimmta árið í röð sem pólitískir
fangar í Sovétríkjunum skipu-
leggja hungurverkfall á „degi
samvizkufangans", 30. október.
„Vondar
konurá
að hengja”
Teheran — 30. október — Reuter.
KARLAHJÖRÐ, vopnuð
hnifum, réðst að kvenna-
göngu í Teheran í dag, þar
sem krafizt var jafnréttis
kynjanna. Konurnar, sem
fóru hundruðum saman,
voru flestar klæddar að
hætti Vesturlandabúa. og
fylgdi þeim fjöldi karla, sem
er sama sinnis.
Göngufólkið lagði á flótta
og kom ekki til mannskæðra
átaka, en meðal slagorða
andstæðinganna var krafa
um að vondar konur ætti að
hengja.
Nýr KCIA-foringi
Seoul — 30. október — AP
CHOI KYU-HAH, sem nú gegnir forsetaembætti í Suður-Kóreu, hefur
skipað nýjan yfirmann leyniþjónustu landsins (KCIA), eftir að Kim
Jae Kuy, fyrrum yfirmaður stofnunarinnar, myrti Park forseta á
föstudaginn var. Þetta er fyrsta ráðstöfun stjórnarinnar til að styrkja
pólitiska stöðu sina, en óvissa og ókyrrð hafa rikt i landinu frá því að
morðið var framið, en stjórnin er sögð hafa náið samstarf við herinn.
Um 80 leyniþjónustumenn eru í
yfirheyrslum, sem fram fara á
vegum hersins, en yfirheyrslurnar
miða fyrst og fremst að því að
upplýsa hve margir leyniþjónustu-
menn höfðu veður af því að Kim
ætlaði að myrða forsetann.
Bandaríkjamenn eru mjög á
verði vegna hins ókyrra ástands í
Suður-Kóreu, en af hálfu Banda-
ríkjastjórnar hefur komið fram að
á vopnlausa svæðinu á landamær-
um Norður- og Suður-Kóreu hafi
allt verið með eðlilegum hætti
síðan morðið var framið.
Elízabet drottning býður Hua Kuo-feng velkominn i BuckinghamhöII. Að loknum hádegisverði leiddi
drottning gest sinn um innanstokks, og mun langt siðan hún hefur haft svo mikið við erlendan
þjóðhöfðingja. (AP-simomynd)
Hua líkti Sovét-
stj órn við nazista
Lundúnum — 30. október — AP.
HUA Kuo-feng, formaður kínverska kommúnistaflokks-
,ins, réðst harkalega á Sovétstjórnina í veizluræðu í
Lundúnum í kvöld, og líkti yfirvofandi hættu vegna
útþenslustefnu hennar við hættuna af nazistum á sínum
tíma.
„Styrk og sameinuð Evrópa á að halda aftur af hvaða
hermangara sem er og á að vara hann við bíræfnum
ævintýrum,” sagði Hua. Síðar í ræðunni sagði hann: „Á
sama hátt og Winston Churchill afhjúpaði fyrirætlanir
nazista hefur Thatcher forsætisráðherra rakið slóð
fagurgala Brésneffs um brottflutn-
ing 20 þúsund hermanna frá
Austur-Þýzkalandi, slá ryki í augu
sér.
Bretar hafa tjaldaö því sem til er
við komu Hua, og er greinilegt að
formaðurinn, sem ætíð klæðist lát-
lausum búningi að hætti Maós,
kann vel að meta gullslegin skart-
klæði og fjaðraskúfa lífvarða og
annarra, sem þátt taka í stórfeng-
legum skrautsýningum Breta við
tækifæri sem þetta.
stríðshættunnar og skorað á menn að grípa til
gagnráðstafana.”
Hua vitnaði hér ótvírætt til ræðu
Thatchers í Luxembourg fyrr í
mánuðinum þar sem hún lýsti því
yfir að sovézka stríðsvélin væri
fjarri því að miðast við varnir, —
hún væri skipulögð og smurð til
árása. Hún hvatti aðildarríki EBE
til að efla varnir sínar og láta ekki
Gef a upp
Frakkland:
og hneykslan vegna
smorðs ráðherrans
París — 30. október — AP.
HELZTU stjórnmálaleiðtogar Frakklands hafa lýst
hneykslan sinni og sorg vegna fráfalls verkalýðsmála-
ráðherra landsins, Roberts Boulin, sem fullvíst er talið
að framið hafði sjálfsmorð. Lík Boulins fannst í bifreið
í grunnri tjörn í morgun, en í bílnum var tómt
svefnlyfjaglas og orðsending frá hinum látna. Upphaf
máls þessa er grein, sem um miðja síðustu viku birtist
í Le Canard Enchaine, en þar var því haldið fram, að
Boulin hefði misnotað aðstöðu sína til að komast yfir
fimm ekrur lands á frönsku Rívíerunni fyrir lítið verð.
Boulin hefur haft á sér fyrir- um að bera ábyrgð á dauða hans
myndarorð, en að sögn fjöl- með því að birta tilhæfulausar
skyldu hans varð honum svo aðdróttanir.
mikið um þessi brigzl að hann Giscard D’Estaing Frakk-
gat ekki á heilum sér tekið, og er landsforseti, Barre forsætisráð-
Le Canard Enchaine nú sakað herra og Marchais kommúnista-
Robert Boulin
leiðtogi eru meðal þeirra, sem
hafa látið í ljós andúð sína á
blaðinu vegna máls þessa. Barre
sagði við fréttamenn er hann
kom af ríkisstjórnarfundi í dag:
„Ég bið ykkur að hugleiða hverj-
ar geta orðið afleiðingar opin-
berrar vanvirðu og rætni.“ Mar-
chais tekur í sama streng og
segir tímabært, að í opinberri
umræðu verði hætt að beita
aðferðum, sem spilli aldarhætti
og stofni lýðræðinu í hættu.
Boulin var í flokki gaullista.
Hann hefur verið ráðherra í
samfellt átján ár, og var meðal
þeirra, sem taldir voru koma
sterklega til greina sem eftir-
menn Barres í forsætisráðherra-
embætti.
rangar
aflatölur
Færeyjum — 30. október — írá Arge,
fréttaritara MorKunbladsins.
VESTUR-ÞÝZKIR togar-
ar á karfaveiðum við Fær-
eyjar hafa gefið upp rang-
ar tölur um aflabrögð, að
því er fiskveiðieftirlitið í
Færeyjum skýrði frá í dag.
Grunur hefur leikið á því
um hríð að aflinn væri i
raun mun meiri en V-Þjóð-
verjarnir vildu vera láta,
en færeyska fiskveiðieftir-
litið hefur fengið upplýs-
ingar um löndun skipanna
í heimahöfn.
Fiskveiðieftirlitið ætlar
að láta fara fram nánari
athugun á málinu áður en
landstjórnin í Færeyjum
fær það til meðferðar.