Morgunblaðið - 31.10.1979, Síða 28

Morgunblaðið - 31.10.1979, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979 vtíP MOBöilK/- KAFP/NU i (N' y *=■ Við sem héldum þeir væru friðsamlegir. Ég er sannfærður um að þessi ungi maður á sér framtið hér hjá fyrirtækinu? Ég kem þó ekki með öngulinn i rassinum, i þetta skipti. e' 3 ríríi i í i \ m 'i r~j fu 3 { i § ' Ú . ! n i Hvers vegna ekki trúarleg tónlist? Vetrardagskrá útvarpsins hefur hafið göngu sína og margar breytingar hafa verið gerðar. Vissulega er alltaf kærkomið að fá breytingu er daginn tekur að stytta en sumar þessara breytinga hefðu betur verið óframkvæmdar. Vilji þeirra sem dagskrá út- varpsins ráða hlýtur alltaf að koma fram í einhverju en þeirra skylda er þó að það verði í sem minnstu. Þeir hafa t.d. tekið sig á og viðurkennt vilja fjöldans og fækkað útsendingartímum klassískrar tónlistar. Þess í stað er nú mun meira um létta dægur- tónlist. Einn er þó sá hópur sem hefur verið skilinn út undan, hópur þeirra sem hefur áhuga á kristinni trú og þeim málum sem að henni lúta. Messurnar eru jú enn á sunnudagsmorgnum og morgun- bænin skipar enn sinn sess, en svo er afskaplega lítið annað handa okkur í dagskrá útvarpsins í vetur. Ég tala nú ekki um sjónvarps- dagskrána. S.l. vetur var tónlistarþátturinn Gleðistund í útvarpinu á laugar- dagskvöldum en nú í vetur virðist ekki vera gert ráð fyrir áfram- haldi hans. Það var þó ekkert minnst á það að hann ætti að hætta, þrátt fyrir að sagt var frá BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Spilað var á sömu spil i öllum leikjum hverrar umferðar í ný- lokinni heimsmeistarakeppni. Var því árangur sveitanna oft borinn saman og i spilinu að neðan voru reynd þrjú mismun- andi game. Norður gaf, austur — vestur á hættu. Norður S. 92 H. K8543 T. KD3 Vestur L. G63 Austur S. G S. Á8543 H. 62 H. ÁG1097 T. Á109542 T. - L. ÁKD5 Suður L. 1042 S. KD1076 H. D T. G876 L. 987 ítalinn Franco og Reiner frá Ástralíu reyndu báðir við 4 hjörtu í sæti austurs. Reiner tapaði sínu spili eftir að út kom hjartadrottn- ing. En gegn Franco spilaði Kuo frá Formósu út laufníu. Ög spilið vann hann með því að leysa trompstöðuna. Tók útspilið, spaðaásinn, trompaði spaða, tígul- ás, trompaði tígul og reyndi að trompa aftur spaða en þá tromp- aði norður betur og spilaði trompi. Eftir nokkra umhugsun tók Franco á ásinn vegna a) ef svíning mistækist væri spilið tapað með tveim slögum suðurs á spaða og b) ætti norður KD í trompinu mætti samt vinna spilið með laufskipt- ingunni, sem var fyrir hendi, þar sem þá mætti fá nægilega marga slagi með tígultrompunum. Og þegar drottningin kom í spilaði Franco aftur trompi og þar sem norður átti ekki til spaða fékk vörnin aðeins 3 slagi á tromp. Gegn Brasiiíu opnaði einn sig- urvegaranna Bandaríkjamaðurinn Goldman á tveim spöðum veikum. Þar með réðu Brassarnir ekki við stígandann í sögnunum, enduðu í 5 laufum, sem fóru tvo niður eftir útspil í spaða. En á hinu borðinu sagði Brasiliumaðurinn í norður 1 hjarta eftir tígulopnun vesturs. Og eftir það var ekki óeðlilegt þó suður spilaði út hjartadrottningu gegn þrem gröndum. Og þar með voru 4 slagir vísir á hjartað með sviningu og tíu í allt þegar laufin féllu 3—3. Góður slurkur stiga til heimsmeistaranna en þeir sigruðu í leiknum með 20 stigum gegn -2. I Lausnargjald í Persíu 101 Kftir Kvelyn Anthony Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku I Hann myndi aldrci bakka út úr því fyrir neinn. Nema kannski ef Lucy hefði verið annars vegar. Én aldrei fyrir mig. Peters horfði á hana, hún sneri að honum andlitinu og tárin leituðu niður vangana. — Hvað vita margir um þetta? ' — Aðeins forstjóri hans í Teheran. Ég sagði honum frá því áður en ég fór heim. Peteri Iyfti henni upp af rúminu. Hann hélt henni í armslengd frá sér. — Ef ekki vita fleiri um þetta þá er allt i lagi, sagði hann. — Vel getur verið að Logan hugsi sig tvisvar um. Hann getur ekki lifað — vit- andi að hann hafi látið þig deyja. Við verðum að halda áfram að vona — að hann gefist upp. Og meðan okkar menn komast ekki að því... Ef yfirstjórnin í Damaskus kæmist að þessu, vissi hann hvaða skipun yrði umsvifalaust send. Taka hana af lífi. Hann hafði sagt við sjálfan sig, að gengi Field að skilmálunum myndi Eileen verða sleppt úr haldi. En hann efaðist um að það yrði gert. Nú var líf hennar fullkomlega einskis vert. Hann dró hana skyndilega að sér. En hann greip utan um hana og strauk hendinni um hár henn- ar. — Ég get ekki sleppt þér, sagði hann. — Ég get ekki leyft þér að fara. En ég lofa þér því, að enginn gerir þér mein. Hver svo sem niðurstaðan verður. Ég skal sjá til þess, að enginn geri þér mein. Viltu treysta mér? Eileen hailaði sér að honum. Hún fann til þreytu eins og viljaþrek hennar væri þorrið, það hafði endanlega horfið þeg- ar flóttatilraun hennar mis- tókst. Jafnvel áður en hún skók rimlahliðið hafði hún vitað, að Logan myndi aldrei greiða það sem upp var sett fyrir hana. Og maðurinn sem hélt utan um hana bar umhyggju fyrir henni. Hann var að lofa henni dálitlu sem þýddi að hann sviki vini sína og pólitíska sannfæringu hans. „Enginn skal fá að gera þér mein.“ í næstum þrjár vikur hafði hún staðið gegn þeirri freistingu að mynda til- finningatengsl við þennan mann sem hafði verið góður henni. Hún hafði búið við ótta dag hvern, óvissu og þolað likamlega áreitni. En samt haíði hún haldið f vonina og ekki misst móðinn. Nú skynjaði hún aðeins hlýjuna frá likama hans og styrk hans. Hann þráði hana og hún fann spennuna vaxa í honum sem hann hélt henni að sér. Hún átti engan vin i öllum hciminum nema kannski hann. Aðeins Peters var raunverulegur. Peters hafði bjargað henni úr klóm Resnais. Hann lofaði að bjarga henni aftur. — Ég skal gera það eins auðveit og ég get fyrir þig, sagði hann. — En þú veizt ég get ekki látið þig sleppa. Gerðu eins og ég bið þig og við verðum að vona að allt takist. Eileen lyfti höfði og leit á hann. Það fór ekkert á milli mála hvað hann var að meina. — Ég verð að fara niður, sagði hann — Ég verð að láta hin halda að allt sé i lagi. Þau má ekkert gruna. Hann gekk nokkur skref aft- ur á bak. — Komdu aftur til mín, sagði Eileen. — Bara ef þú vilt það, sagði hann. — Þú þarft ekki að vilja... Það er ekki skilyrði í samningnum. — Ég hef aldrei imyndað mér það, sagði hún. Svo bætti hún við á ný: — Komdu svo til mín... Samkvæmið í franska sendi- ráðinu var til að halda upp á Bastilludaginn. Það var heitt f veðri og samkvæmið var haldið úti i garðinum. James Kelly hafði komið snemma og var á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.