Morgunblaðið - 31.10.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979
19
Ingimar
Eydal með
hljómsveit
FYRIR skömmu hóf nýtt tríó að
leika á Hótel KEA á Akureyri.
Nefnist það ASTRO-tríó og er
skipað þeim Ingimar Eydal,
Grétari Ingvarssyni og Rafni
Sveinssyni.
ASTRÖ-tríóið leikur fyrir
dansi á laugardagskvöldum og
einkasamkvæmum, sem haldin
eru í salarkynnum Hótel KEA
og hefur á skömmum tíma náð
ágætum vinsældum.
Á laugardagskvöldum, milli
kl. 7 og 9, leikur Ingimar Eydal
einn fyrir matargesti Hótel
KEA á nýtt og mjög fullkomið
hljóðfæri, rafmagnsorgel, sem
hljómað getur eins og heil
hljómsveit og líkt eftir ýmsum
ólíkum hljóðfærum.
(Fréttatilkynning frá KEA).
Notkun nagladekkja og
vandamál vetrarumferðar
VERKFRÆÐINGAFÉLAG
íslands gengst fyrir fundi á Hótel
Esju í kvöld klukkan 20.30 og
verður efni fundarins „Notkun
nagladekkja — vandamál vetrar-
umferðar". Frummælendur verða
Þórður Þorbjarnarson borgar-
verkfræðingur, Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastjóri, Guttormur
Þormar yfirverkfræðingur, Stefán
Hermannsson forstjóri malbikun-
arstöðvar Reykjavíkurborgar og
Ásbjörn Jóhannesson sérfræðing-
ur hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins.
Kerran horfin en bát-
ur kominn
EIGANDA Volkswagenbifreiðar,
sem stóð fyrir utan húsið Njáls-
götu 40, brá heldur betur í brún
þegar hann kom að bifreið sinni
á mánudagsmorguninn.
Búið var að stela kerru, sem fest
var aftan í bifreiðina, en í staðinn
var kominn vagn með súðbyrtum
í staðinn!
gaflbát, hvítum með grænum
botni.
Kunna menn enga skýringu á
þessu og eru allar upplýsingar vel
þegnar af Rannsóknarlögreglu
rikisins, sem hefur bátinn nú í
sinni vörzlu.
Gaf f jórða
sætið eftir
vegna byggða-
sjónarmiða
LEÓ Löve fulltrúi hafði samband
við Mbl. í gær og sagði það rangt,
sem segir í frétt blaðsins um lista
Framsóknarflokksins i Reykja-
neskjördæmi, að hann hafi ekki
gefið kost á sér í neðra sæti en
þriðja sætið. „Ég gaf f jórða sætið
eftir vegna byggðasjónarmiða, en
lét þess jafnframt getið, að ég
myndi taka sæti annars staðar á
listanum, ef þess væri sérstak-
lega óskað,“ sagði Leó.
Hann kvaðst vilja taka fram að
kosningin hefði ekki verið bind-
andi nema fyrir þrjú efstu sætin,
en í kosningu um þriðja sætið fékk
Helgi H. Jónsson 187 atkvæði og
Leó 54. Eftir kosninguna segir
Leó, að Grímur Runólfsson for-
maður uppstillinganefndar hefði
komið að máli við sig og sagt að
honum stæði fjórða sætið til boða,
en hins vegar hefði hann líka látið
á sér skiljast, að mönnum þætti of
stutt á milli Hafnfirðinga með
Markús Á. Einarsson í öðru sæti
og Leó í fjórða. „Það var vegna
þessa stjónarmiðs, sem ég gaf
fjórða sætið eftir," sagði Leó.
Húsavík:
Tekjurýmun
bænda 200
milljónir
Húsavík, 30. okt.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN lauk s.l.
þriðjudag hjá Kaupfélagi Þingey-
inga og var slátrað um 52.300 fjár.
Meðalþungi dilka reyndist 12,2
kíló, en var í fyrra 14,6 kíló.
Heildartekjurýrnun bænda miðað
við það að þeir hefðu náð sama
meðalþunga og í fyrra er rúmar
200 milljónir króna.
— Fréttaritari.
Lýst eftir
aftaníkerru.
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld um
klukkan 23 hvarf frá húsi við
Sunnuflöt í Garðabæ ný dökkbrún
aftaníkerra, 1 m x 1,5 m að stærð
með ljósbrunum, rúströndóttum
segldúk. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið kerrunnar varir, eru vinsam-
legast beðnir að hringja í síma
42039. Fundarlaunum er heitið.
HANDBÓK
3 mtm
Ómissandi bók í bflinn!
Góö ráð og mikilsverðar upplýsingar
fyrir ökumenn.
Eintak bíður þín á næstu Shell-stöð
Olíufélagið Skeljungur h.f.